Morgunblaðið - 28.12.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1983
Joan Miro
Miro látinn
Palma, 27. desember. AP.
LÍK katalónska listmálarans Joan
Miro var smurt í dag fyrir útrór
meistara súrrealismans, en hann
veróur til grafar borinn á fimmtu-
dag.
Minningarræóa prestins í San
Nicolas-kirkjunni var flutt á móó-
urmáli Miros, katalónsku. Javier
Solana menningarmálaráðherra
var vióstaddur útförina fyrir hönd
ríkisstjórnar Spánar.
Miro verður grafinn við hlið
foreldra sinna í fjölskyldugraf-
reit í Montjuich-kirkjugarðinum
í Barcelona, fæðingarborg hans.
Eiginkona hans, Pilar Juncosa,
lifir mann sinn. Miro var níræð-
ur er hann lézt á jóladag.
Miro var einkum þekktur fyrir
fjöruga notkun skærra lita í
verkum sínum, en uppáhaldslitir
hans voru rautt, gult, blátt og
svart.
Ný stjórn tekin við í Japan:
Áhrif Tanaka
fara þverrandi
Tokyo, 27. desember. AP.
YASUHIRO NAKASONE, forsætisráöherra Japans, mætti í höll Hirohito keisara
í morgun með nýju ráðherrans sína, 20 talsins, sem skipa hina nýju stjórn Japans.
Lauk þar með tveggja mánaóa óvissu í japönskum stjórnmálum.
Eins og fram hefur komið, missti
flokkur Nakasones meiri hluta sinn
á japanska þinginu eftir kosningar
sem voru á dögunum. Eftir að hafa
gert bandalag við nokkra óháða
þingmenn náði flokkurinn meiri-
hlutanum á ný, en samt sem áður er
meirihlutinn heldur fallvaltur að því
talið er. Til þess að styrkja stöðu
sína, gerði Nakasone nokkuð óvænt;
einn af ráðherrum hans er úr röðum
stjórnarandstöðunnar. Er það Sei-
ichi Tagawa, formaður nýja frjáls-
lynda flokksins, sem hreppti emb-
ætti innanríkisráðherra. Flokkur
hans er klofningsflokkur frá flokki
Nakasone og stafaði klofningurinn á
sínum tíma af fjármálahneyksli sem
fyrrum leiðtogi flokksins og forsæt-
isráðherra, Kakuei Tanaka, og fleiri,
voru bendlaðir við.
I hinu nýja ráðherraliði Nakasone
hefur stuðningsmönnum Tanaka
fækkað mjög, enda var það eitt af
loforðum hans gegn endurkjöri
þingsins, að hann gerði sitt til að
draga úr áhrifum Tanaka í japönsk-
um stjórnmálum, því þrátt fyrir
mútumálin umtöluðu, er Tanaka enn
mikið afl á bak við tjöldin.
Mannskæðir
jarðskjálftar
Dakar, 27. desember. AP.
TVENNIR jarðskjálftar riðu yfir Gíneu í Vestur-Afríku í jólavikunni og er óttast
að fleiri hundruð manns hafi týnt lífi í skjálftunum.
Af opinberri hálfu í Gíneu var frá
því skýrt að a.m.k. 300 manns hefðu
farist í skjálfta sem reið yfir norð-
austurhluta landsins sl. miðvikudag
er 16 þorp hrundu til grunna. Um
150 slösuðust og hundruð misstu
heimili sin.
Á aðfangadagskvöld fórust 143 og
rúmlega 200 slösuðust er skjálfti
reið yfir borgina Koumbia og næsta
nágrenni í norðvesturhluta landsins.
Borgin er nú ein rúst, aðeins fjögur
eða fimm hús uppistandandi, og
fimm þorp í nágrenninu einnig.
Smáskjálftar höfðu fundist daglega í
þrjá daga í Koumbia
Einn mannanna, sem grófst undir öðru húsinu við gassprenginguna í
Parfs. Hér er verið að gefa honum súrefni, en seinna var honum
bjargað og komið á sjúkrahús.
París:
Gassprenging
París, 27. desember AP.
MIKIL SPRENGING varð í tveimur samliggjandi húsum í miðborg
Parísar í morgun og grófust fjórir undir rústunum. Talið er, að
sprengingin hafi stafað af gasleka.
Skömmu eftir sprenginguna fannst kona látin í rústum annars
hússins en úr hinu tókst strax að bjarga tveimur mönnum á lífi.
Nokkrum stundum síðar tókst að bjarga fjórða manninum. íbúar
húsanna voru erlendir farandverkamenn og fjölskyldur þeirra.
Spengingin átti sér stað klukkan fimm að morgni að frönskum tíma
og allt fólkið þess vegna í fasta svefni.
ísraelskir hermenn gráir fyrir járnum standa hér vörð á torginu fvrir
framan kirkjuna, sem sögð er standa á fæðingarstað frelsarans. AP.
Mikil gæsla
í Betlehem
Betlehem, 27. de.sember AP.
ÓVENJU MIKIL öryggisgæsla var í Betlehem á jólunum að þessu sinni
en þar voru saman komnar þúsundir manna, pflagríma, ferðamanna og
annarra, sem viðstaddir voru miðnæturmessu í kirkjunni á fæðingar-
stað frelsarans.
Yfirmaður rómversk-kaþólsku
kirkjunnar í ísrael, Giuseppe
Beltritti, fór fyrir mikilli göngu
á aðfangadag frá Jerúsalem til
Betlehem og var fólksins alls
staðar vel gætt af fjölmennu
lögregluliði. Átta kórar úr ýms-
um heimshornum sungu söngva
á aðaltorginu í Betlehem og um
miðnætti var messa í kirkjunni,
sem er sögð standa þar sem fjár-
húsið stóð áður, fæðingarstaður
Jesú Krists. Um 1400 manns
komust fyrir inni í kirkjunni en
úti fyrir var mikill mannfjöldi.
Borgarstjórinn í Betlehem,
Elias Freij, sem er kristinn Pal-
estínumaður, sagði í viðtali, sem
haft var við hann, að „þótt
ástandið í Miðausturlöndum sé í
sannleika sagt skelfilegt skulum
við vona, að boðskapur barnsins
frá Betlehem — friður á jörðu —
muni ná til allra manna og að
hatrið verði upprætt úr hjörtun-
um“.
Suður-Afríkumenn
sækja inn í Angóla
Pretoria, Suóur Afríku. 27. desember. AP.
HERMÁLAYFIRVÖLD í Suður-
Afríku staðfestu í gær að hersveit-
ir þeirra hefðu sótt 200 kílómetra
inn í Angóla í þeim tilgangi að
uppræta skæruliða sem berjast
gegn suður-afrískri stjórn í Nami-
bíu. Constand Viljoen herforingi
Utanríkisráðuneytið franska tll-
kynnti um helgina, að þremur
frönskum sendimönnum hefði ver-
ið vísað á brott frá íran. í síðustu
viku lokaði franska stjórnin ísl-
ömsku miðstöðinni í París og boð-
aði brottrekstur þriggja írana, sem
gerst hefðu sekir um „óviður-
kvæmilegt athæfi“.
Samskipti Frakka og írana
hafa farið versnandi að undan-
förnu og fyrr í mánuðinum lok-
aði fransstjórn tveimur frönsk-
um menningarmiðstöðvum, sem
voru til húsa í egypska sendiráð-
inu í Teheran. Iranski forsætis-
ráðherrann, Mir-Hossein
Moussavi, sagði um brottrekstur
Frakkanna nú, að hann stafaði af
„glæpsamlegu framferði"
franskra stjórnvalda gagnvart
írönskum stúdentum í Frakk-
landi.
Óvild klerkastjórnarinnar í
garð Frakka stafar af því, að þeir
hafa skotið skjólshúsi yfir ýmsa
andstæðinga hennar, t.d. Bani-
Sadr, fyrrum forseta írans, og
Massoud Rajavi, leiðtoga muja-
hadeen-skæruliða, og ekki batn-
og yfírmaður herafla Suður-Afríku
sagði ástæðuna vera þá, að um
1.400 skæruliðar hefðu safnast
saman í Angóla og ætluðu þeir að
sækja inn í Namibíu og vinna
hryðjuverk.
Viljoen sagði að erfiðar uppá-
aði vinskapurinn þegar Frakkar
seldu írökum nokkrar Super Et-
endard-þotur búnar Exocet-
flugskeytum.
Fjórir menn vopnaðir vélbyss-
um komust inn í afgreiðslu Verzl-
unarbankans, Banco Mercantil, í
miðborginni, og höfðu á brott
jafnvirði 1,9 milljónar Banda-
ríkjadala í pesos og dollurum.
Ræningjarnir komust undan með
ránsfeng sinn.
Einn ræningjanna bankaði upp
á í bankanum og kvaðst vera
sendill með jölagjöf til eins
starfsmanna, sem voru innandyra
við frágang eftir lokun afgreiðsl-
unnar. Honum hafði ekki fyrr ver-
komur hefðu verið í átökunum,
þannig leituðu skæruliðarnir
hvað eftir annað undir verndar-
væng hermanna Angóla og kúb-
anskra bandamanna þeirra
fremur en að berjast gegn
Suður-Afríkumönnunum. Þetta
hefði haft í för með sér, að
Suður-Afríkumenn og hermenn
Angólastjórnar hefðu nokkrum
sinnum lent í bardögum og hefði
mannfall verið hjá báðum.
Herforinginn bar til baka að
hermenn Suður-Afríku hefðu
myrt óbreytta borgara, einnig
að suður-afrísk herþota hefði
verið skotin niður. Hins vegar
hefði að minnsta kosti einni sov-
éskri eldflaug verið skotið að
suður-afrískri þotu, en send-
ingín hefði geigað.
ið hleypt inn en hann dró vélbyssu
undan klæðum, afvopnaði vörðinn,
skipaði starfsmönnum upp að
vegg og hleypti félögum sínum
inn.
Ræningjarnir settu á sig skíða-
gleraugu og fóru inn í peninga-
geymslu, þar sem fjórir banka-
gjaldkerar voru við talningu pen-
ingaseðla. Sögðu gjaldkerar ræn-
ingjana hafa vitað í hvaða hólfum
dollara var að finna og skipað sér
að opna þau.
Sendiráðsmenn
reknir á víxl
Parí.s, 27. desember. AP.
Mesta bankarán
í sögu Mexíkó
Mexíkóborg, 27. desember. AP.
STJÓRNARANDSTAÐAN skoraði á ríkisstjórnina að setja hervörð við^
banka landsins í kjölfar mesta bankaráns Mexíkó.