Morgunblaðið - 28.12.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1983
23
Aðstæður til slökkvistarfs í Austurbrún voru mjög erfiðar.
10 ára drengur lést
í eldsvoða í háhýsi
TÍU ÁRA gamall drengur, Högni E.
Tryggvason, til heimilis að Austur-
brún 4 í Reykjavík, lést þegar eldur
kom upp í íbúð á 11. hæð hússins.
Slökkviliðinu í Reykjavík barst til-
kynning um að reyk legði út frá hús-
inu klukkan 6.32 að morgni aðfanga-
dags. Mikill eldur var í íbúð á 11.
hæð þegar slökkviliðið kom á vett-
vang og aðstæður til slökkvistarfs
mjög erfiðar.
Sambýlismaður móður drengs-
ins vaknaði upp við að mikill reyk-
ur og eldur var í íbúðinni og tókst
honum að koma móðurinni út við
illan leik, en komst ekki aftur inn
í íbúðina vegna mikils elds, reyks
og hita í íbúðinni.
Slökkviliðsmenn komust heldur
ekki inn í íbúðina strax vegna
mikils elds og hita og var þegar
hafist handa við að reyna að ráða
niðurlögum eldsins svo reykkafar-
ar kæmust inn í herbergi þar sem
drengurinn var. Það tókst nokkru
seinna, en drengurinn var látinn
þegar komið var með hann í
sjúkrahús. Slökkvistarf tók um
eina klukkustund. Miklar
skemmdir urðu á íbúðinni, stiga-
gangur fylltist af reyk og hita-
skemmdir urðu á stigagangi.
Verður Kotmúli sumardval-
arstaður fyrir þroskahefta?
Hver keppandi hafði sjö mín-
útna umhugsunartíma á hverja
skák og stóð mótið frá kl. 14 til
kl. 20. Adolf Björnsson setti
mótið, en er því var lokið veitti
Albert Guðmundsson keppend-
um vegleg verðlaun, sem eru
með þeim beztu í heimi fyrir
hraðskákmót. Þá afhenti Albert
Gunnari Gunnarssyni, forseta
Skáksambands íslands, styrk
bankans til sambandsins.
FYRR í vetur eignaðist ríkis-
sjóður allar eignir á jörðinni
Kotmúla í Fljótshlíð í maka-
skiptum viö Fíladelfíusöfnuö-
inn fyrir skóla Ásu Jónsdótt-
ur í BreiÖholti. Fíladelfíu-
söfnuðurinn hafði áður rekið
heimili fyrir börn í Kotmúla,
einkum börn sem áttu ekki í
önnur hús að venda, og átt
allar eignir á jörðinni, en
jörðin sjálf var í eigu ríkisins.
Fjármálaráðherra, Albert
Guðmundsson, og landbún-
aðarráðherra, Jón Helgason,
féllust á þessa málaleitan og
fóru skiptin fram í október.
Að sögn Sam Daniel Glad
hjá Fíladelfíusöfnuðinum,
hafði Kotmúli staðið auður sl.
tvo vetur. „Það hefur dregið
mikið úr þörfinni fyrir slíkt
heimili undanfarin ár,“ sagði
Sam, „og við töldum ekki stætt
á því að hafa svo stórt húsnæði
autt yfir vetrartímann og
ákváðum því að leggja niður
starfsemina í þessari mynd.“
Sagði Sam, að skóli Ásu
Jónsdóttur í Breiðholti nýttist
söfnuðinum með ýmsu móti, en
þó fyrst og fremst sem sam-
komuhús og skóli. Flutti söfn-
uðurinn inn fyrir rúmum mán-
uði.
Um framtíð Kotmúla er það
að segja, að Albert Guð-
mundsson og Jón Helgason
viðruðu þá hugmynd við Magn-
ús Kristinsson, formann Fé-
lags þorskaheftra, og Eggert
Jóhannsson, formann Þroska-
hjálpar og jafnframt fram-
kvæmdastjóra svæðisstjórnar
Suðurlands, að Kotmúli yrði í
framtíðinni nýttur í þágu
þroskaheftra, t.d. sem sumar-
búðir.
„Kotmúli hentar mjög vel til
þeirra nota," sagði Albert Guð-
mundsson, „allar innréttingar
eru þegar til staðar og senni-
lega þyrfti litlu að breyta. Við
ræddum þessi mál fyrir rúm-
um mánuði, en engin ákvörðun
hefur verið tekin enn.“
Magnús Kristinsson sagði,
að sér litist vel á þá hugmynd
að Kotmúli yrði sumardvalar-
staður fyrir þroskahefta. „Við
fögnum þessu frumkvæði ráð-
herranna," sagði Magnús, „en
Jóhann og Helgi efstir
á Útvegsbankamótinu
ÞRIÐJA Útvegsbankaskákmótið fór fram á annan jóladag, en það er nú orðin hefð að
bankinn gangist fyrir hraðskákmóti á milli jóla og nýárs. Að vanda voru nærri allir okkar
sterkustu skákmenn meðal þátttakenda og keppnin var geysilega hörð og spennandi, allt
fram í síðustu umferð áttu þrír skákmenn möguleika á efsta sæti og margir komu til
greina í verðlaunasætin fímm. Að lokum stóðu þeir Jóhann Hjartarson og Helgi Ólafsson
uppi sem sigurvegarar. Þeir hlutu 16 vinninga af 19 mögulegum, sem verður að teljast
afar gott vinningshlutfall í svo sterku móti.
Þeir Helgi og Jóhann byrjuðu Róbert Harðarson, sem stóð
báðir illa, en náðu síðan frábær- sig mjög vel á Haustmóti TR um
um lokaspretti. Eftir að hafa
hlotið 3'/2 vinning úr sex fyrstu
skákunum hlaut Helgi 12% v. úr
13 síðustu og Jóhann fékk 14 v.
úr 15 síðustu umferðunum. Frið-
rik Ólafsson byrjaði einnig illa
og voru mjög mislagðar hendur
á mótinu öllu. Strax er það var
hálfnað átti hann sáralitla
möguleika á að blanda sér í bar-
áttuna um efsta sætið.
daginn, tók forystuna í upphafi
og leiddi mótið eftir níu umferð-
ir. En þá skyndilega missti hann
dampinn, tapaði mörgum skák-
um í röð og endaði að lokum rétt
yfir miðju. Þá tók Jóhann við
forystunni, en tapaði fyrir Mar-
geiri Péturssyni í næstsíðustu
umferð og þá náði Helgi að brúa
bilið.
Endanleg röð keppendanna 20
varð þessi:
1.—2. Jóhann Hjartarson og
Helgi Ólafsson 16. v, af
19 mögulegum.
3. Jón L. Árnason 15 v.
4. Margeir Pétursson
12% v.
5.-7. Friðrik Ólafsson,
Bragi Kristjánsson og
Dan Hansson 12 v.
8. Elvar Guðmundsson
11 v.
9,—10. Karl Þorsteins og Rób-
ert Harðarson 10 v.
11. Sævar Bjarnason 9%
v.
12. Ingvar Ásmundsson
8% v.
13.—15. Jónas Þorvaldsson,
Benedikt Jónsson og
Áskell Örn Kárason 7
Jóhann Hjartarson, t.v., teflir við Jón L. Árnason.
Mótið gekk mjög hratt og al-
gjörlega snurðulaust fyrir sig,
enda vanir skákstjórar við
stjórnvölinn, þeir ólafur Ás-
grímsson og Ólafur H. Ólafsson.
Bflageymslan við Arnarhól:
Er ekki á vegum Seðlabankans
— segir Stefán Þórarinsson, rekstrarstjóri Seðlabankans
STEFÁN Þórarinsson, rekstrar-
stjóri Seðlabanka íslands, hafði
samband við Morgunblaðið vegna
frétta um hina nýju bflageymslu
Reykjavíkurborgar við Kalkofns-
veg. Sagði hann það misskilning
sem gætti mjög í fjölmiðlum, að bfl-
ageymslan væri á vegum bankans,
auk þess sem hún væri ekki í kjalla
nýbyggingar Seðlabankans eins og
oft hefur verið haldið fram.
„Samkvæmt samningi milli
Seðlabankans og borgarinnar frá
11. júní 1981 tók bankinn að sér
að reisa bílageymslu Reykjavík-
urborgar á lóðinni Kalkofnsvegui
3, samhliða byggingu bankans á
lóðinni við Kalkofnsveg númer 1.
Bílageymslan er því ekki undir
bankabyggingunni, heldur verður
settur jarðvegur ofan á þak
geymslunnar, sem þannig verður
hluti af Arnarhóli," sagði Stefán
Þórarinsson.
„Samkvæmt samningi aðila
átti framkvæmdum að ljúka í
janúarlok 1984, en í samráði við
Reykjavíkurborg var lagt kapp á
að geta tekið geymsluna í notkun
um miðjan desember fyrir jóla-
umferðina. Það tókst og var bíla-
geymslan formlega afhent
Reykjavíkurborg 15. desember sl.
og sér borgin að sjálfsögðu um
allan rekstur bílageymslunnar
frá þeim tíma,“ sagði Stefán Þór-
arinsson, rekstrarstjóri Seðla-
bankans að endingu.
Jónas Þorvaldsson, t.v., og Helgi Ólafsson tefla. Ólafur Ásgrímsson,
skákstjóri, stendur fyrir aftan Helga. Ljósm. Eik.
v.
16. Ásgeir Þór Árnason
6% v.
17. Magnús Sólmundarson
5% v.
18.—19. Jóhann Þórir Jónsson
og Gunnar Gunnars-
son 5 v.
20. Leifur Jósteinsson 2%
v.
það er ýmislegt sem þarf að
huga að áður en ákvörðun er
endanlega tekin. Ef hefja á
rekstur á staðnum þarf til
dæmis að ræða málin við þá
deild í félagsmálaráðuneytinu
sem fer með málefni þroska-
heftra og skipuleggja rekstr-
arformið. En það er ótvírætt að
húsnæðið hentar vel og von-
andi verður af þessu."
Slökkviliósmenn fara inn f húsið med reykköfunartæki. Mornunhi.dw júiíus.