Morgunblaðið - 28.12.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1983
31
svilum hefur ætíð og fram til
þessa dags verið góð vinátta.
En árið 1964 bauðst Kristjáni
starf við starfsmannahald Flugfé-
lags íslands, sem þá hafði skrif-
stofur sínar í Bændahöllinni við
Hagatorg. Starfið var ábyrgðar-
starf við launaútreikninga og
launagreiðslur og krafðist stöð-
ugrar árvekni og samviskusemi.
Hann naut þess að takast á við
þessi verkefni og ávann sér strax
fyllsta traust yfirboðara sinna
jafnt sem starfsmanna félagsins.
Við sameiningu flugfélaganna ár-
ið 1973 var honum svo falið að
annast þessi mál fyrir hið nýja fé-
lag, Flugleiðir, og jókst starfið þá
enn að umfangi. Við þessi um-
skipti flutti Kristján skrifstofu
sína á Reykjavíkurflugvöll og þá
hefst sá kafli í starfsævi hans,
sem enn var ólokið er hann lést, og
er ekki að efa að samstarfs-
mönnum hans þar þyki sárt að sjá
svo góðum dreng kippt burt af
vettvangi starfsins fyrirvaralaust.
Og þann hug bar hann til þess fé-
lags að ætla mætti að það hefði
notið krafta hans lengi enn ef hon-
um hefði orðið lengri lífdaga auð-
ið.
Kristjáni féllu þessi störf ákaf-
lega vel. I flugmálunum var mikið
að gerast og hann naut þess að
vera staddur í hringiðu þeirrar at-
burðarásar og taka þátt í upp-
byggingunni. Félagið er stórt og
starfsmennirnir margir. Og starf
Kristjáns var þess eðlis að hann
kynntist þeim æði mörgum. Hann
naut trausts þeirra í þeim við-
kvæmu málum sem launamál
jafnan eru, og því veitti starfið
honum þá lífsfyllingu sem allir
starfsamir menn þrá, en margir
fara á mis við. Því dreg ég ekki í
efa að Kristján valdi rétt í því sem
öðru er hann valdi sér ævistarf.
í einkalífi sínu var Kristján
mikill gæfumaður. Eftirlifandi
eiginkona hans er Sigríður Sigurð-
ardóttir og þau voru ung er þau
felldu hugi saman. Þessi glæsilega
stúlka er yngst barna Sigurðar
Ámundasonar járnsmiðs í Vél-
smiðjunni Héðni um árabil og
konu hans, Unu Sigfúsdóttur,
mikil sæmdarhjón, sem nú eru
bæði látin en bjuggu á Hávalla-
götu 7 hér í borg. Og í því húsi
hófu þau Kristján og Sigríður
búskap sinn er þau giftu sig árið
1961. Þar bjuggu þau í sex ár.
Sambýlið við tengdafólk sitt í
þessu húsi var Kristjáni gæfuríkt
svo þar á féll hvergi skuggi og
hann talaði ávallt um tengdafor-
eldra sína með mikilli ást og virð-
ingu. Á Hávallagötunni fæddust
þeim tvær dætur, Sigrún Una 1962
og Margrét 1964. Árið 1968 fluttu
þau svo búferlum austur yfir læk í
Árbæjarhverfi og reistu sér nýtt
og glæsilegt heimili.
Kristján var mikill fjölskyldu-
maður og þau Sigríður, enda bæði
alin upp við sterk fjölskyldubönd
þar sem ríkti mikil samheldni og
umhyggja fyrir öldnum sem
óbornum. Þeim var því báðum um-
hugað að fella fjölskyldulíf sitt í
þann farveg sem þau höfðu kynnst
í foreldrahúsum. í þessu sem öðru
voru þau samhent og dæturnar
nutu því mikils ástríkis og skiln-
ings í foreldrahúsum. Þessa nutu
og vinir þeirra. Það er mér ljúft og
skylt að votta, því einn af þeim
mörgu þáttum sem knýtti vináttu
okkar Kristjáns æ traustari bönd-
um var áralöng vinátta dætra
okkar og seinna tengdir þeirra á
milli er þær uxu úr grasi, því mak-
ar þeirra eru systrasynir.
Jón Valur Smárason er tengda-
sonur Kristjáns og Sigríðar og
Kristján Friðrik, nú fjögurra ára,
alnafni afa síns, augasteinn og
eftirlæti. En Kristján var þeirrar
gerðar að hann kaus að deila
hverri hamingju með þeim er
næstir standa og því urðu þessi
nýju fjölskyldubönd og afastrák-
urinn tilefni góðrar vináttu við
hinn afann og ömmuna.
Á heimili þeirra Kristjáns og
Sigríðar er gott að koma. Þar er
öllum vel tekið með einstakri gest-
risni og höfðingsskap. Þeim hjón-
um hefur alla tíð verið einkar lag-
ið að gera hverja samverustund
með vinum sínum að hátíðar-
stund. Þær eru orðnar margar
samverustundirnar sem við Guð-
rún viljum nú þakka. Þær voru
margar á heimili þeirra, en einnig
annars staðar, við hinar ólíkustu
kringumstæður, en allt hátíðar-
stundir og fyrir þær allar erum
við þakklát.
Hugurinn leitar til þeirra sem
eftir lifa. Við Guðrún og fjöl-
skylda okkar vottum Sigrfði,
dætrum hennar, tengdasyni og
Kristjáni litia okkar dýpstu sam-
úð. Margréti og börnum hennar
sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur í þeirra mikla
missi um þessi jól. Og við trúum
því að fagrar minningar um feðg-
ana föllnu eigi eftir að færa þeim
gleðileg jól að ári.
Sverrir Sveinsson
Hljómurinn er þagnaður og
harmur upp kveðinn af ættingjum
og ástvinum Kristjáns Friðriks
Jónssonar, er lést þann 15. des.
fyrir aldur fram af völdum
heilablóðfalls.
Kristján Friðrik fæddist þann
17. des. árið 1935. Foreldrar hans
eru Margrét Guðmundsdóttir og
Jón Kristjánsson, sem sjá nú á
eftir elsta syninum yfir móðuna
miklu. Systkini Kristjáns eru
Erla, Hilmar, Margrét og Guð-
mundur.
Kristján lauk ungur gagnfræða-
námi, vann svo um tíma en fór
síðan í Verslunarskólann og út-
skrifaðist þaðan.
Um 20 ára skeið hefur hann
unnið hjá Flugfélagi íslands sem
sameinaðist í Flugleiðir og vann
nú síðast í starfsmannahaldi. Um
tíma vann hann erlendis, á Hawaii
og í Florida.
Þann þriðja júní 1961 steig
Kristján gæfuspor og giftist Sig-
ríði Sigurðardóttur og ól hún hon-
um tvær dætur, Sigrúnu Unu
fædda 17.3. 1962 og Margréti sem
fædd er 6.6. 1964. Kristján lét
einnig eftir sig eitt barnabarn, al-
nafna sinn Kristján Friðrik, fjög-
urra ára hnokka.
Kristján var gæfumaður í
einkalífi og starfi. Hann var
hreinskiptinn, eilítið dulur, en þó
glaðvær og hlýr í viðmóti.
Leiðir okkar lágu saman í gegn-
um músíkina. Hann blés fallega á
trompet, sem hann náði góðu valdi
yfir og að hætti gömlu meistar-
anna lá leið hans úr lúðrasveitum
bæjarins beint í dixieland og
jassmúsík. Ég minnist margra
góðra stunda frá Sigtúni og Hótel
Borg og nú síðast frá fimmtíu ára
afmælishófi FÍH að Broadway, er
við lékum síðast saman og vissu-
lega verður það trega blandið að
horfa á vin minn á skjánum nú
eftir áramótin, en þó skal það
metið að list hans hefur varðveist.
Einnig er leikur hans geymdur á
afmælishljómplötu FÍH.
Undirritaður leit inn til Krist-
jáns á skrifstofunni síðastliðið
sumar. Ekki datt mér i hug að
þetta væri í siðasta sinn sem við
hittumst. Við vorum meðal annars
að tala um að koma einhvern tíma
saman áður en langt um liði og
taka saman „dixie-program“, ann-
aðhvort fyrir sjónvarp eða útvarp,
sem raunar var aukaatriði. Aðal-
atriðið var að upplifa hljóminn.
Enginn má sköpum renna. Líf
manns, horft til baka er sem ör-
skot.
Ég leyfi mér í nafni félaga
Kristjáns úr músikinni að votta
eiginkonu hans, dætrum og öldn-
um foreldrum samúð okkar með
þessum fátæklegu orðum, en við
biðjum um styrk þeim til handa í
sorginni.
Egilsstöðum,
Árni ísleifsson.
Lúðrasveit Reykjavíkur hefur
orðið fyrir því áfalli að missa einn
sinn besta hljóðfæraleikara og fé-
laga.
Kristján Fr. Jónsson trompet-
leikari lést þann 15. desember sl.
eftir stutta sjúkdómslegu. Hann
byrjaði fyrir um 30 árum að leika
á trompet með lúðrasveitinni og
varð fljótt öruggur og góður blás-
ari. Síðasta áratuginn var hann
sólótrompetleikari og Jeiðandi
maður í öllum samleik.
Það fór saman hjá Kristjáni að
vera góður trompetleikari og
traustur félagi. Hann var ávallt
tilbúinn að fórna frítíma sínum
fyrir lúðrasveitina og var af félög-
unum kosinn til trúnaðarstarfa.
Kristján var gjaldkeri Lúðrasveit-
ar Reykjavíkur mörg undanfarin
ár og til dauðadags.
Um leið og við kveðjum góðan
félaga og vin, vottum við aðstand-
endum hans innilega samúð okkar
og þökkum samfylgd hans og sam-
starf.
Lúðrasveit Reykjavíkur
Kristján Friðrik Jónsson,
launagjaldkeri Flugleiða, andaðist
í Landspítalanum 15. þ.m. eftir
stutta legu. Hann lést langt um
aldur fram, aðeins 47 ára, vegna
afleiðinga heilablæðinga.
Ég kynntist Kristjáni fyrst er
hann hóf störf hjá starfsmanna-
haldi Flugfélags lslands árið 1965.
Mér er minnisstætt þegar
starfsmannastjórinn, Magnús
heitinn Björnsson, var að kynna
þennan sviphreina unga mann
fyrir okkur starfsfólkinu, hve
okkur þótti hann traustvekjandi
og prúður í framkomu. Það kom
brátt í ljós, að þarna hafði verið
valinn réttur maður til starfa og
Ieysti hann bæði smá og stór verk-
efni með lipurð og samviskusemi.
Við ótímabært andlát Magnúsar
var Kristján beðinn að axla aukna
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Okkur er þaö einstök ánægja aö geta nú boöiö viöskipta-
vinum okkar upp á almenna gjaldeyrisþjónustu s.s.:
• stofnun innlendra gjaldeyrisreikninga
• afgreiöslu feröamanna- og námsmannagjaldeyris
• útgáfu Eurocard kreditkorta
auk allrar almennrar bankaþjónustu.
V6RZLUNRRBRNKINN
Bankastræti og Húsi verslunarinnar.