Morgunblaðið - 28.12.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1983
35
*
„A mörkunum að hægt sé að
reka loðdýrabú upp á þessi verð“
— segir formaður loðdýraræktar-
sambandsins um verðlækkun refaskinna
„JÚ, ÞESSI verðlekkun veldur
okkur víssulega vonbrigðum. Við
vissum að mikið framboð yrði á blá-
ref en reiknuðum með að verðið
myndi halda sér, það feri ekki neð-
ar en í fyrra,“ sagði Haukur Hall-
dórsson, bóndi í Sveinbjarnargerði á
Svalbarðsströnd, formaður Sam-
bands íslenskra loðdýrarektenda, í
samtali við Morgunblaðið er leitað
var álits hans á þeirri verðlekkun
refaskinna sem orðið hefur á loð-
dýrauppboðum að undanfornu.
„Þetta voru að vísu fyrstu upp-
boðin,“ sagði Haukur, „og eftir er
að bjóða bestu skinnin upp, en þó
liggur ljóst fyrir að orðið hefur að
minnsta kosti 5% verðlækkun á
blárefaskinnum. Hinsvegar hafa
shadow-skinnin hækkað aðeins,
silfurrefurinn og blendingsrækt út
frá honum hækkaði talsvert og
einnig hefur orðið hækkun á
minkaskinnunum. í þessari stöðu
hlýtur svar bænda að vera það að
auka gæðin, þau hafa ekki verið
nógu góð hjá okkur hingað til. Við
höfum hugsanlega fjölgað of hratt
út frá þessum stofni, en nú erum
við búnir að flytja inn blárefi til
Stykkishólmur:
Góð nýting
félagsheim-
ilisins
StykkLshólmi, 20. desember.
AÐALFUNDUR eigendafélags
Félagsheimilis í Stykkishólmi var
haldinn um sl. helgi. Félagsheim-
ilið hefur undanfarið verið í
tengslum við hótelreksturinn,
þannig að hótelið hefur tekið það á
leigu. Nýting síðasta árs var góð.
Félögin í Stykkishólmi hafa þarna
góða aðstöðu og leiksýningar hafa
verið þarna margar. Þá hafa
leikhópar víða að komið og sýnt
leikrit, söngskemmtanir hafa og
verið. Þá hafa afmælisveislur ver-
ið á hótelinu og eins hefir það séð
um erfisdrykkjur og er sú þjón-
usta vel þegin og metin af bæjar-
búum. Tekjur félagsheimiiisins
hafa ekki verið miklar en nú þarf
að auka reksturinn því ýmislegt
þarf að lagfæra og endurbæta
húsnæðið. Þá var rætt um fegrun
lóðarinnar fyrir utan því félags-
heimilið stendur á einum fegursta
stað í bænum.
Ný stjórn var kjörin og er Grét-
ar Pálsson formaður hennar.
— Árni.
blöndunar og verður það örugg-
lega til að auka gæðin. Það hefur
sýnt sig að gæðaskinnin seljast
ágætlega og meiri munur er að
verði á milli lélegra skinna og
góðra, þegar markaðurinn er eins
og hann er í dag. Einnig verðum
við að fylgjast vel með markaðn-
um og leggja áherslu á þá fram-
leiðslu sem best kemur út hverju
sinni. Við höfum til dæmis mögu-
leika á að auka við okkur í silfur-
ref og blendingum út frá honum
núna eftir að við fluttum hann inn
um daginn.
Það er alveg á mörkunum að
menn geti rekið loðdýrabú upp á
þessi verð en menn verða að
þreyja þorrann og góuna, því ég
trúi því ekki að verðið haldist
svona lágt til lengdar. Við ættum
að hafa betri möguleika en ýmsir
aðrir, til dæmis Finnar, til að
standa þetta lága verð af okkur
vegna betra og ódýrara fóðurs.
Finnar hafa hafið skipulega fækk-
un í blárefastofni sínum og ætti
framboðið á markaðnum því að
fara minnkandi," sagði Haukur
Halldórsson.
Hausthappdrætti
heyrnarlausra ’83
Dregiö var í happdrættinu þ. 20. desember sl. Vinn-
ingsnúmer eru þessi:
1. 18.750 5. 24.594
2. 17.755 6. 3.345
3. 8.107 7. 15.387
4. 13.474 8. 20.064
Um leið og við þökkum veittan stuðning óskum við
landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi
árs.
Félag heyrnarlausra,
Klapparstíg 28, R.
Sími 13560.
GAFFLAR
stórir, smáir, kraftmiklir, liprir.
Samfara stórauknum einingaflutningum og
markvissri uppbyggingu þeirra í Sun höfn,
hefur mikilvægi lyftara í þjónustu okkar
aukist til muna.
Gámavæðing í takt við nútímakröfur,
170.000 m2 athafnasvæði, og vöruskálar
með 29.000 m2 gólf- og hilluplássi hefur
skapað nýja þörf fyrir sérhæfða lyftara sem
valda lykilhlutverki sínu í fjölbreyttum
flutningum. Þeirri þörf fullnægir Eimskip.
7 gerðir lyftara tryggja hámarks afgreiðslu-
hraða og rétta meðferð á hverri vöru. Þeir
eru sérfræðingar á sínu sviði, í smágámum,
stórgámum, frysti- og kæligámum, brettum
og fletum og eiga mikilvægan þátt í öruggum
flutningi alla leið heim í hlað.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sírni 27100
*
' k