Morgunblaðið - 28.12.1983, Síða 44
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1983
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Allur bærinn í eld-
hafi, sfðan kom
kveljandi hávadi
og loks sprakk allt
— segir Sigurjón Jóhannsson bóndi
Borgarnesi, 27. desember.
„ÞEGAR ÉG leit út úr fjárhúsinu,
var að sjá sem allt væri í eldhafi,
síðan kom kveljandi hávaði og loks
sprakk allt,“ sagði Sigurjón Jó-
hannsson, bóndi á Valbjarnarvöllum
í Borgarhreppi, í samtali við Morgun-
blaðið. Hann var með þessum orðum
að lýsa því hvernig það hefði borið að
þegar eldingu laust niður í bæinn í
þrumuveðrinu sem gekk yfir héraðið
á annan dag jóla, svo eldur varð laus
í íbúðarhúsinu og stórskemmdi það.
Sigurjón var ásamt Guðmundi
syni sínum í fjárhúsum 100— 200
metrum frá íbúðarhúsinu, þegar
eldingunni iaust niður. „Eg vissi
ekki fyrr en það logaði út úr öllum
raftenglum í fjárhúsinu, þar sem
við vorum,“ sagði Sigurjón. „Við
hlupum strax heim að íbúðarhús-
inu og mættum þá Ingu, konunni
minni, og Jóhönnu, dóttur okkar,
þar sem þær komu svartar af sóti
út úr húsinu. Inga hafði verið að
tala í símann og fékk roknahögg og
hellu fyrir eyrun þegar símatækið
þeyttist af stað og þráðurinn frá
símatækinu og út að vegg brann.
Reykháfurinn splundraðist og valt
á hlaðið og síðan sprakk út úr raf-
magnsinntakinu og rafmagnstöfl-
unni og brann út úr rofum og
tenglum. Ég hljóp inn í húsið, um
það allt og drap í smáglæðum sem
ég fann á tveimur stöðum. Síðan
ók ég út að næsta bæ til að láta
vita um þetta, því að bæði sfminn
og rafmagnið fór út en á meðan
gaus eldurinn upp svo kalla varð
allt slökkviliðið í Borgarnesi út.“
íbúðarhúsið á Valbjarnarvöllum
er í eigu Heiðars, bróður Sigur-
jóns, en hann er fluttur í Borgar-
nes. Það er hlaðið úr steini og
klætt að hluta. Efri hæðin, sem var
rishæð með íbúðarherbergjum,
brann alveg og allt sem þar var, en
steypt plata var á milli hæða þann-
ig að slökkviliðinu tókst að verja
neðri hæðina að hluta. Eldur var
þó laus f forstofu, kyndiklefa og
eldhúsi og er það allt sviðið að inn-
an og það sem þar var inni ónýtt.
Sá hluti neðri hæðarinnar sem eld-
ur komst í er þó meira og minna
skemmdur af reyk og vatni. Auk
þess eyðilagðist rafkerfi allra úti-
húsanna og rafkerfi gamals íbúð-
arhúss á bænum. Spennistöð bæj-
arins, sem er í um 200 metra fjar-
i
Þannig leit rishæð íbúðarhússins á Valbjarnarstöðum
á Mýrum út eftir að eldingin og eldurinn höfðu leikið
um það. Á innfelldu myndinni er fjölskyldan: Sigurjón
Jóhannsson og Inga Guðmundsdóttir ásamt börnum
sínum Guðmundi og Jóhönnu Marfu.
Morffu n blaðið/HBj.
lægð frá íbúðarhúsinu, splundrað-
ist og jarðstrengur sem liggur
heim að bænum brann.
„Ég geri mér ekki grein fyrir því
hvar eldingin hefur komið niður,"
sagði Sigurjón, „ég held helst að
hún hafi leikið hér um allt svæðið.
Maður hefur ekki getað ímyndað
sér svona nokkuð fyrr en þetta
kemur fyrir mann sjálfan, þetta
skeður svo snöggt, alveg eins og
maður gæti hugsað sér að yrði í
loftárás. Annars verð ég að segja
það að það var einstök heppni, að
engin meiðsli skyldu verða á fólki
við þetta, konan í símanum, en hún
slapp alveg.
Við gistum hjá bróður mínum í
Borgarnesi fyrstu næturnar á
meðan við erum að átta okkur á
þessu, en síðan er það hugmyndin
að reyna að koma gamla húsinu í
stand til bráðabirgða, þvf við verð-
um að vera hérna á bænum vegna
skepnanna," sagði Sigurjón Jó-
hannsson.
— HBj.
Fjallfoss, hið nýja skip Eimskips, á siglingu.
Eimskipafélag íslands:
Fjallfoss afhent-
ur í næsta mánuði
EIMSKIPAFÉLAG íslands hefur fest kaup á þýsku flutningaskipi og
verður það væntanlega afhent félaginu í næsta mánuði, að því er segir í
frétt frá Eimskip, sem Morgunblaðinu barst í gær. Skipið mun bera
nafnið ms. Fjallfoss. Skipið var smíðað í Vestur-Þýskalandi árið 1977, en
kaupverð þess nú nemur um 45 milljónum íslenskra króna.
Júlí — desember:
Um 71% aukning farþega
flutninga hjá Arnarflugi
Vöruflutningar hafa aukizt verulega
í frétt frá Eimskipafélaginu um
hið nýja skip segir svo:
Verkefni skipsins verða aðal-
lega á sviði stórflutninga, enda er
skipið með fjölhæfan útbúnað,
sem gerir því kleift að flytja hinar
ýmsu vörutegundir, s.s. sjávaraf-
urðir til útflutnings, byggingavör-
ur og vörur fyrir stóriðju. Burð-
argeta ms. Fjallfoss er tæplega
1.700 tonn og lestarrými 77.000
rúmfet. Lestar skipsins eru box-
laga með tvöfaldar hliðar og er
skipið milliþilfarslaust. Þá getur
ms. Fjallfoss jafnframt flutt um
níutíu 20 feta gámaeiningar.
Lengd skipsins er 73 metrar og
breidd þess 11,8 metrar. Skipið er
útbúið með aðalvél af gerðinni
MAK, og er ganghraði þess um
12,5 sjómílur á klst.
Fjölhæfni skipsins mun vænt-
anlega gera félaginu kleift að
tryggja góða nýtingu þess, enda er
slíkt nauðsynlegt til að geta
tryggt lágmarksflutningskostnað.
Sem dæmi má nefna að á skipinu
eru 2 þungabómur sem geta lyft
allt að 25 tonnum, bógskrúfa og
góður lyftibúnaður sem gerir alla
lestun og losun skipsins við mis-
jafnar aðstæður á íslensku strönd-
inni auðveldari.
„Farþegaflutningar félagsins í
áætlunarflugi milli landa hafa
stöðugt verið að aukast á þessu
ári, sem sézt bezt á því, að á tíma-
bilinu júlí—desember sl. fluttum
við samtals 15.607 farþega, en til
samanburðar 9.083 farþega á
sama tímabili í fyrra. Aukningin
milli ára er um 71%,“ sagði Magn-
ús Oddsson, sölu- og markaðs-
stjóri Arnarflugs, í samtali við
Mbl.
„Okkur hefur tekizt að fjölga
farþegum erlendis frá á sama
tíma og íslenzki markaðurinn hef-
ur heldur dregizt saman vegna al-
menns bágs efnahagsástands hér
á landi. Þetta hefur fært okkur
auknar tekjur, sem er auðvitað
meginmarkmiðið," sagði Magnús
Oddsson.
Magnús Oddsson sagði, að far-
þegaflutningar félagsins hefðu
aukizt um 154% í júlímánuði, um
65,8% í ágústmánuði, um 57,5% í
septembermánuði, farþegaflutn-
ingar hefðu staðið í stað í október,
aukizt um 33% í nóvembermánuði
og nú væri fyrirsjáanlegt, að þeir
myndu aukast um nær 35% í des-
embermánuði.
„Við flytjum um 880 farþega í
desember milli landa, en í fyrra
fluttum við 640 farþega. í nóvem-
ber leit dæmið þannig út, að við
fluttum í ár 1.027 farþega, en 770
farþega á sama tíma i fyrra,"
sagði Magnús Oddsson.
„Þá hefur verið ótrúleg aukning
í vöruflutningum okkar á þessu
ári, þó sérstaklega síðari hluta
ársins. Sem dæmi má nefna, að í
nóvember og desember höfum við
flutt liðlega 70 tonn af vörum, en á
sama tíma í fyrra fluttum við um
13 tonn. Það er því um liðlega
Flogið verður 18
sinnum yfir N-Atlants-
haf á viku í sumar
FLUGLEIÐIR hf. hafa samið við
hollenska flugfélagið KLM um leigu
á tveimur þotum af gerðinni DC-8
næsta suraar, að því er Sæmundur
Guðvinsson, blaðafulltrúi Flugleiða,
tjáði blaðamanni Morgunblaðsins í
gær. Sagði Sæmundur fyrri vélina
koma inn í áætlunarflug Flugleiða
hinn 1. mars næstkomandi og hina
síðari 1. aprfl og yrðu þær báðar á
leigu til mánaðamótanna október/
nóvember 1984. Þoturnar verða not-
aðar á flugleiðinni yfir Norður-
Atlantshaf, milli Evrópu og Banda-
ríkjanna.
Sæmundur Guðvinsson sagði, að
fimmföldun á vöruflutningum að
ræða,“ sagði Magnús Oddsson.
Magnús Oddsson sagði aðspurð-
ur, að alls hefðu verið fluttir
23.000 farþegar milli landa á ár-
inu. Samanburðartölur við síðasta
ár væru ekki raunhæfar, þar sem
félagið hóf áætlunarflug sitt milli
landa í júlíbyrjun á síðasta ári, en
1982 voru fluttir 9.083 farþegar.
þoturnar væru teknar á leigu til
að mæta auknu álagi yfir sumar-
mánuðina, líkt og gert hefði verið
undanfarin ár, en fyrr hefðu verið
leigðar bandarískar þotur. Þotur
KLM sagði Sæmundur vera mjög
góðar vélar, af sömu gerð og Flug-
leiðaþoturnar, DC-8 63, sem taka
249 farþega, og væru hollensku
þoturnar búnar svonefndum
breiðþotuinnréttingum, sem gerði
að að verkum að betur færi um
farþega.
A mesta annatíma í sumar
sagði Sæmundur að farnar yrðu 18
ferðir á vegum Flugleiða hf. yfir
Norður-Atlantshaf, sem er tveim-
ur ferðum fleira en í fyrra, þegar
mest var flogið 16 sinnum. Þessar
18 ferðir næsta sumar verða 7 til
New York, 7 til Chicago, 3 til
Baltimore og 1 til Detroit.
Flugleiðir hf.:
Taka á leigu tvær
DC-8 þotur hjá KLM