Morgunblaðið - 28.01.1984, Page 1

Morgunblaðið - 28.01.1984, Page 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 23. tbl. 71. árg.___________________________________LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Andropov í framboð Moskvu, 27. janúar. AP. YURI Andropov forseti Sovétríkj- anna, sem ekki hefur sést opinberlega í meira en 5 mánuöi, var í dag form- lega tilnefndur frambjóðandi til þing- kosninga, sem fram fara þann 4. mars. Fer hann fram sem fulltrúi Proletarsky-hverfisins í Moskvu. Tilnefningin var kunngjörð á fundi miðstjórnar sovéska komm- únistaflokksins í dag. Andropov var þar hvergi sjáanlegur. Talið var, að hann myndi e.t.v. reyna að sækja þennan fund, en heilsufar hans leyfði það ekki. Fylgi Andropov fordæmi forvera síns, Leonid I. Brezhnev, og annarra háttsettra sovéskra embætt- ismanna, má vænta þess að hann gangi að kjörborðinu þann 4. mars svo fremi heilsan leyfi. Láti hann sjá sig á kjördag verður það í fyrsta sinn síðan 18. ágúst, að hann sést opinberlega. Þann dag hitti hann 9 bandaríska þingmenn að máli í Moskvu. Ný skjöl nasista finnast Mooso Jaw, Saskatchewan, Kanada, 27. janúar. AP. KASSI, fullur af skjölum og mynd- um af Adolf Hitler, hefur fundist í eigum fyrrverandi njósnasérfræð- ings hersins úr síðari heimsstyrj- öldinni. Að því er best verður séð eru þrjú skjalanna sérstök viður- kenningarskjöl undirrituð af for- ingjanum sjálfum. I*á er að sjá, að eitt skjalanna í kassanum sé undir- ritað af Evu Braun. Að sögn dagblaðsins Moose Jaw Times-Herald voru mynd- irnar og skjölin, sem um ræðir, í eigu Fred Schiesser, Kan- adamanns, sem lést í águst á síð- asta ári, áttræður að aldri. Eig- inkona Schiesser hefur upplýst, að hann hafi alla tíð gætt þessa kassa mjög vel og aldrei leyft neinum að sjá hvert innihald hans var, né upplýst hvernig hann komst yfir skjölin og mynd- irnar. Kassinn fannst á háalofti heimilis Schiesser-hjónanna. Fundi þessum hefur verið tekið með nokkrum fyrirvara í ljósi fundar dagbóka Hitlers, sem síð- an reyndust falsaðar er sann- leiksgildi þeirra var rannsakað nánar. Ljósmyndirnar í kassan- um virðast þó allar ófalsaðar. Á þeim má sjá Hitler með ýmsum háttsettum mönnum innan þýska hersins. Símamynd AP. Frá fundi Arne Treholt (lengst t.v.) og KGB-mannanna Gennadij Titov (í miðið) og Alexander Lopatin í Vínarborg þann 20. ágúst í fyrra. Fréttatilkynning saksóknara norska ríkisins í gær: Treholt var undir smá- sjá FBI í rúm þrjú ár Osló, 27. janúar. Frá Jan Erik Lauré, fréttaritara Morgunblaósins. MAGNAR Florncs, ríkis- saksóknari í Noregi, sagði í yfirlýsingu vegna Tre- holt- njósna- málsins, að áður en Tre- holt flutti til New York og gerðist þar sendiráðu- nautur við sendinefnd Norðmanna, heföu grunsemdir í garð hans verið vaknaðar. í yfirlýsingu ríkissaksóknara sagði ennfremur, að þann 15. Norski ríkissak- sóknarinn, Magnar Flornes. Leiötogar á fundi Þau Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, og Bettino Craxi, forsætisráðherra Ítalíu, hittust á fundi í Róm í gær. Sjá nánar: „Vilja áframhaldandi gæslulið í Líbanon“ á bls. 23. október 1980 hefðu Norðmenn far- ið þess á leit við FBI, bandarísku alríkislögregluna, að hún gæfi Treholt góðar gætur. Allar götur síðan starfaði FBI í samvinnu við norsku öryggislögregluna við að reyna að fletta ofan af Treholt. Fóru norskir öryggislögreglumenn margsinnis til New York til þess að samræma aðgerðir sinar og FBI. Þegar Treholt hætti störfum í New York í ágúst 1982 hafði sam- vinnan borið nokkurn árangur en ekki svo mikinn, að hægt væri að ganga að Treholt og handtaka hann. Til þess skorti áþreifanlegar sannanir. Um leið og hann sneri aftur til Noregs var fylgst mun betur með honum en áður. Á New York-árum sínum var Treholt einkum í sambandi við Vladimir Zjizjin og hittust þeir ýmist innan bygginga Sameinuðu þjóðanna ellegar á minni veitinga- húsum. Zjinzjin var einn starfs- manna Sovétmanna hjá SÞ á þess- um tíma. Það var hins vegar ekki fyrr en í maí í fyrra, að öryggislögreglan var loks fullviss um að Treholt væri í grunsamlegum tengslum við Sovétmenn. Náðust myndir af fundi hans með Gennadij Titov í Helsinki. í ágúst í fyrra náðust aftur myndir af fundi hans með Titov á veitingahúsi í Wien. Þá var jafnframt annar Sovétmaður með í för, Alexander Lopatin. Þetta voru ekki einu fundir Tre- holt með Titov, en fundurinn í Vínarborg var síðasti fundur Tre- holt með útsendurum KGB. Með vitneskju um þessa fundi í pokahorninu lagði norska öryggis- lögreglan allt kapp á að afhjúpa Treholt eins fljótt og auðið var. Það tókst hins vegar ekki fyrr en á föstudag í síðustu viku. Frakkar færa út kvíarnar í Chad París, 27. janúar. AP. ^ VARNARMÁLARÁÐUNEYTIÐ í París tilkynnti í dag, aö franska hernum í Chad hefði verið fyrirskipað að færa hina óopinberu vopnahléslínu í landinu frá 15. að 16. breiddarbaug í kjölfar framrásar uppreisnarmanna, sem njóta stuðnings Líbýumanna. Tilkynningin kemur tveimur dögum eftir að frönsk orrustuþota af gerðinni Jaguar var skotin niður. Flugmaður þotunnar fórsti er flugskeyti, sem skotið var af| uppreisnarmönnum, hafnaði í vél1 hans. Með árásinni var endir bundinn á fimm mánaða tímabil, þar sem allt hefur verið með kyrrum kjör- um í landinu. Bardagahléð kom eftir harðvítugar skærur á milli stjórnarhersins og andstæðinga stjórnar Hissine Habre undir for- ystu Goukouni Oueddei. Frakkar hafa sakað Líbýumenn um að standa að baki þessum nýj- ustu árásum, en þeir hafa harð- neitað að hafa átt þar hlut að máli. Opinbera fréttastofan í Líb- ýu, Jana, skýrði hins vegar frá því í dag, að árásin í fyrradag hefði verið gerð til þess að hefna fyrir þá ákvörðun Habre að hunsa sér- stakan fund Einingarsamtaka Af- ríku um ástandið í Chad.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.