Morgunblaðið - 28.01.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANOAR 1984
5
Nýja kökuhúsið:
Ókeypis brauðmylsna
handa smáfuglunum
„FÁTT ER svo með öllu illt, að
ekki boði nokkuð gott,“ segir í
upphafi fréttatilkynningar frá Nýja
kökuhúsinu, sem Morgunblaðinu
hefur borist. í fréttatilkynningu
segir síðan:
„Um síðustu helgi voru eins og
venjulega bakaðir stórir
skammtar af nýjum brauðum í
Nýja kökuhúsinu, meðal annars í
tilefni „þýskrar viku“, sem þar
stendur nú yfir.
Færri treystu sér hins vegar
út í illviðrið en vildu, og varð því
mikill afgangur af hinum ágætu
brauðum. Þetta brauð hefur nú
verið þurrkað og malað, sett í
poka og verður afhent hverjum
sem vill færa smáfuglunum
björg í bú á snævi þakinni jörð.“
Yfírlýsing í tilefni
af Staksteinum
f STAKSTEINUM í gær er fjallað
um viðtal sem birtist í Dagblaðinu/-
Vísi 25. þ.m. um kynni mín af Norð-
manninum Arne Treholt og Jens Ev-
ensen. í Staksteinum er bent á að
lesa mætti úr viðtalinu að ég teldi
ekki ástæðu til að gera mikið úr Tre-
holt-málinu. Lýst er furðu yfir um-
mælum mínum sé rétt eftir mér haft.
Af þessu tilefni vil ég taka fram
að ég las ekki yfir umrætt viðtal
fyrir birtingu, enda bjóst ég ekki
við að hægt væri að gera frétt úr
þeim takmörkuðu upplýsingum
sem ég hafði um málið.
Ég vil lýsa því yfir að ég tel
engan veginn hægt að líta öðruvísi
en mjög alvarlegum augum á mál
eins og þetta, sem varðar landráð í
Noregi.
Guðmundur Eiríksson
Athugasemdin
ekki send Mbl.
AÐ GEFNU tilefni vill Morgun-
blaðið taka fram að ástæða þess
að það birti ekki athugasemd
þriggja starfsmanna fSALs við
ummælum iðnaðarráðherra á
fimmtudag var sú að athugasemd-
in barst ekki blaðinu og hefur ekki
borist enn. Hins vegar birti blaðið
í gær, föstudag, athugasemd
samninganefndar starfsmanna ál-
félagsins við ummælum iðnaðar-
ráðherra, Sverris Hermannssonar,
en blaðið fékk athugasemdina í
hendur seinnipart fimmtudagsins.
Svar við fyrirspurn frá
Hannesi H. Gissurarsyni
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Jóni Sigurðssyni,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar:
Hannes H. Gissurarson beinir
til mín fyrirspurn í Morgunblað-
inu 27. janúar 1984 út af frásögn
Þjóðviljans af símtölum við
nokkra menn, sem spurðir voru
álits á fréttum þess blaðs af skrif-
um í blöð á Englandi um peninga-
magnskenningu í hagfræði. Af
þessu tilefni vil ég taka fram, að
það er rétt athugað hjá Hannesi,
að fyrirsögnin á frásögn Þjóðvilj-
ans frá símtali við mig var Þjóð-
viljans. Fyrirsögnin var án efa
valin útfrá sjónarmiði blaðsins
fremur en mínu, en það er erfitt
að elta ólar við allt, sem er skrifað
í blöðin. Sem betur fer virðist
fyrirspyrjandi hafa verið á varð-
bergi gagnvart skrifum Þjóðvilj-
ans um þetta mál.
Reykjavík 27. janúar 1984,
Jón Sigurðsson.
Fundur með BSRB
og ríkisvaldinu
RÍKISSÁTTASEMJARI hefur boð-
að til fundar í kjaradeilu Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja og ríkis-
valdsins, að höfðu samráði við for-
menn beggja samninganefnda.
Fundurinn verður á þriðjudaginn
kemur, 31. janúar, klukkan 13.30.
Siðasti fundur var árangurs-
laus, en á honum svaraði ríkis-
valdið kröfum BSRB og kvað
hækkanir, sem færu út fyrir
ramma fjárlaga, ekki koma til
greina.
*
Sjómannasamband Islands:
Krefst farbanns á danskt skip
SJÓMANNASAMBAND íslands hef-
ur fyrir hönd íslenzkra skipverja á
danska sanddæluskipinu Putte Pan,
krafist þess að farbann verði sett á
skipið. þar sem útgerðin hefur ekki
greitt skipverjum laun um langt skeið.
Skipverjar halda því fram, að útgerðin
skuldi þeim um 1,2 milljónir króna í
laun. Samningaumleitanir hafa staðið
yfir, en án árangurs.
Gerðarbeiðni um farbann á skipið
átti að taka fyrir hjá bæjarfógetan-
um í Hafnarfirði í gær en var frest-
að til þriðjudagsins að beiðni lög-
manns útgerðar skipsins. Lögreglu-
vörður hefur verið hafður um skipið
síðustu tvo sólarhringa. „Við höfð-
um rökstuddan grun um að skipinu
yrði siglt utan og fórum því fram á
lögregluvörð til þess að koma í veg
það,“ sagði Arnmundur Bachmann,
lögmaður í samtali við Mbl.
„Skip þetta hefur verið hér á landi
á annað ár og oft hefur verið reynt
að koma í veg fyrir, að það fengi að
athafna sig hér á landi, en án árang-
urs, þó ótvírætt sé að það hafi verið
hér í andstöðu við íslenzk lög,“ sagði
óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands Islands í samtali
við Mbl.
sem sterkir, öruggir, gangvissir, ódýrir ( innkaupi, með lítið viðhald og ódýra varahluti
(könnun verðlagsráðs) og ekki síst fyrir hátt endursöluverð.
Nú hefur útliti og innréttingum verið breytt svo um munar: mælaborð, stýri, stólar, aftursæti, grill, húdd,
stillanlegir speglar innanfrá, stuðarar o.fl. o.fl., en sífellt er unnið að endurbótum er lúta að öryggi og
endingu bílsins. 6 ára ryðvarnarábyrgð.
Verð við birtingu auglýsingar kr.
199.500.-
Bifreiðar &
srteiid pjónusta Landbúnaðarvélar hf.
SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600
Söludeild sími 312 36
Vél
Rumtak 1442sm3
Borun 76 mm
Slaglengd 80 mm
Þjöppun 8.5 1
Kraftur 55 kW (75 DIN PS)
á 5600 sn/m
Tog 108 Nm á 3500 sn/m
Eyðsla 7-101/100 km