Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984 19 Orð og athafnir eftir Magnús H. Magnússort Ráðherrar og aðrir talsmenn rísstjórnarinnar tala nú um nauð- syn þess að bæta hag þeirra, sem við lökust kjör búa. Ef þeir meina eitthvað með þessu þá er það vissulega gott. Batnandi mönnum er best að lifa. Sömu menn settu bráðabirgða- lög 27. maí sl. sem hétu því fallega nafni „Fjármálaráðstafanir til verndar lífskjörum" og sögðu að þau væru sett til að „vernda hag þeirra sem við lökust kjör búa“. Um margt var hér um argasta öfugmæli að ræða. Hækkun persónuafsláttar við álagningu tekjuskatts um 1400 kr. á hvern framteljanda, sem var eitt aðalatriði laganna, kom t.d. öllum að gagni.svo langt sem hún náði, nema þeim sem við lökust kjör búa. Þeir nutu hennar í engu vegna þess, að sá hluti persónu- afsláttar, sem ekki nýtist til greiðslu opinberra gjalda, svo sem útsvara, rennur til ríkissjóðs. Nokkur dæmi: (Bráðabirgðalög- in tóku til tekna ársins 1982. í þessum dæmum eru þær umreikn- aðar til tekna ársins 1983 til að auðvelda samanburð við verðlag í dag.) Hjón með eitt barn höfðu alls ekkert gagn af þessari hækkun persónuafsláttar, ef árstekjur þeirra voru 188 þús. kr. eða lægri. Einstætt foreldri með eitt barn ekkert gagn, ef árstekjur voru 182 þúsund eða minni. Einstæður elli- eða örorkulíf- eyrisþegi hefur ekkert gagn af þessu ef tekjur voru 125 þúsund eða minni. Árið 1983 var elli- eða örorkulífeyrir ásamt óskertri tekjutryggingu samtals 76.951 kr. Það þurfti því umtalsverðar tekj- ur, umfram bætur almannatrygg- inga, til að hafa gagn af þessari hækkun persónuafsláttar og ef þær tekjur voru fyrir hendi, þá stórskertust bætur almannatrygg- inga. Elli- eða örorkulífeyrisþegi með fulla tekjutryggingu, en engar aörar tekjur, fær nú samtals 7.018 kr. á mánuði. Af þessum manni hefur rík- isstjórnin með aðgcrðum sínum haft a.m.k. 2.700 kr. á mánuði. í staðinn fær hann aðeins 193 kr. vegna hækkunar tekjutryggingar um 5%. Margir ellilífeyrisþegar hafa nú orðið nokkrar greiðslur úr líf- eyrissjóðum, því miður allt of litl- ar flestir, og fá því skerta tekju- tryggingu eða enga. Þetta fólk hefur flest orðið að þola mikla skerðingu lífskjara, vegna aðferða ríkisstjórnarinnar, en engar bæt- ur fengið í staðinn, því hækkun persónuafsláttar til skatts nýtist þeim ekki. Ekki kemur þeim lægst launuðu Magnús H. Magnússon „Ef nota á skattalögin til að bæta hag þeirra verst settu, sem sjálfsagt er að gera, verður að greiða þennan hluta út til skattaaðila á sama hátt og nú er gert við barnabætur. Nú, þegar álagning skatta fer öll fram í tölvum, er þetta mjög auð- velt í framkvæmd.“ heldur að gagni afnám skatts af ferðamannagjaldeyri. Varla mikið gagn af lækkun tolla af sykruðum fíkjum eða niðurfellingu vöru- gjalds af hljómpiötum eða lækkun aðflutningsgjalda af bifreiðum. Allar svokallaðar mildandi að- gerðir ríkisstjórnarinnar eiga það sameiginlegt, að hvorki er tekið sérstakt tillit til þeirra allra tekjulægstu á vinnumarkaðinum, né til elli- og örorkulífeyrisþega. Allt tal um „umtalsverðar aðgerð- ir til verndar hag þeirra sem við lökust kjör búa“ er því um flest argasta öfugmæli. Með sama áframhaldi er verið að skapa ör- birgð hér á landi. Þá þróun verður að stöðva. Það er staðreynd, sem allir viður- kenna, að þjóðartekjur hafa lækkað verulega. Þessvegna og vegna óráð- síu síðustu ríkisstjórnar var umtals- verð almenn kjaraskerðing óumflýj- anlcg. Þrátt fyrir það mátti ekki skerða hlut þeirra allra verst settu, hvað þá að skerða hlut þeirra meira en annarra, eins og gert hefur verið. Tillögur Alþýðuflokksins Lagfæringar á skattalögum, svo sjálfsagðar sem þær annars eru, koma þeim tekjulægstu, og þar með meirihluta elli- og örorkulíf- eyrisþega, að alls engu gagni með- an sá hluti persónuafsláttar, sem ekki nýtist til greiðslu opinberra gjalda, svo sem útsvara, rennur til ríkissjóðs. Ef nota á skattalögin til að bæta hag þeirra verst settu, sem sjálfsagt er að gera, verður að greiða þennan hluta út til skatt- aðila á sama hátt og nú er gert við barnabætur. Nú, þegar álagning skatta fer öll fram í tölvum, er þetta mjög auðvelt í framkvæmd. Á síðustu þrem þingum hafa þingmenn Alþýðuflokksins flutt tillögur um þetta, ýmist í frum- varpsformi eða sem breytingar- tillögur við efnahagsfrumvörp rík- isstjórna og var það liður í hug- myndum fiokksins um afkomu- tryggingu hinna lægra launuðu. Þetta var einnig eitt af þcim málum, sem Alþýðuflokkurinn lagði hvað mesta áherslu á í stjórnarmyndun- arviðræðunum sl. vor. Síðast flutti flokkurinn þetta mál á Alþingi í nóv. sl. sem breyt- ingartillögu við afgreiðslu á bráðabirgðalögum ríkisstjórnar- innar, sem fyrr var vitnað til. Til- lagan var umsvifalaust felld af stjórnarflokkunum. Nú, aftur á móti, tala forsætisráðherra og fleiri stjórnarliðar um þennan möguleika sem nýjan og vænlegan kost. Það hafa löngum verið örlög margra framfaramála Alþðýðu- flokksins, bæði fyrr og síðar, að það tekur aðra stjórnmálaflokka nokkur ár, stundum áratugi, að átta sig á gildi þeirra en gera þau þá gjarnan að sínum eigin málum ef svo ber undir. . Ef tillaga Alþýðuflokksins hefði verið samþykkt hefði einstætt for- eidri með lágmarkslaun (10.961 kr. á mánuði fyrir fulla vinnu) fengið greiddar liðlega 1.100 kr. á mánuði í neikvæðan tekjuskatt og mun meira ef um hlutastarf væri að ræða. Elli- eða örorkulífeyrisþegi, sem engar tekjur hefur aðrar en bætur almannatrygginga, hefði fengið greiddar nálægt 2.500 kr. á mánuði, sem slagar talsvert upp í það, sem aðgerðir ríkisstjórnar- innar hafa þegar af honum haft. Það hljóta allir að vera sam- mála um það, að kjör þessa fólks megi ekki skerða, hvað þá að skerða þau meira en annarra eins og gert hefur verið. í tillögum Alþýðuflokksins hef- ur ekki verið gert ráð fyrir því, að unglingar innan tvítugs njóti neikvæðs tekjuskatts, enda flestir þeirra í heimahúsum. Það hefur heldur ekki verið gert ráð fyrir því, að menn með sjálfstæðan at- vinnurekstur af einu eða öðru tagi njóti hans og þar með er mesta hættan á misnotkun útilokuð. Kostnaður ríkissjóðs af sam- þykkt tillögunnar yrði 150—200 Borg, Miklaholtshreppi: Pálsmessuskot Borg, MiklaholLshreppi, 26. janúar. ÞAÐ VAR heiðskírt og fagurt vetr- arvcður í gærmorgun, logn og heiðskír himinn og 4—6 stiga frost. Vinir okkar, snjótittlingarn- ir, komu að eldhúsglugganum í stórum hópum og tíndu í sig góm- sætan morgunmatinn. Almanakið segir að Pálsmessa sé. Verði góðviðri allan þann dag verður þungi vetrarins minni sem eftir er. Vegir voru mokaðir í gær og óvenju mikil umferð var, því fólk notaði nú tækifærið og fór í kaupstaðarferð og ann- arra erinda. En þetta góða veður stóð ekki allan daginn. Um klukkan 5 fór að hvessa og það allhressilega. Var nú á stuttri stundu komið Pálsmessuskot. Mikill lausasnjór var og blind- hríð með miklum skafrenningi skall á snögglega og urðu vegir hér ófærir á skammri stundu. Lentu margir í vandræðum með að komast heim til sín. Við svokallaðan Stapa í Eyja- hreppi sátu margir bílar fastir vegna ófærðar. Jarðýta var að verki í gær í Kolbeinsstaða- hreppi að afloknu dagsverki ætl- aði svo ýtustjórinn heim til sín að Eiðhúsum. Frá því í gær- kvöldi og þar til um hádegið í dag var ýtan að losa bíla úr fönn á þessari leið. Meðal annars var gripaflutningabíll frá kaupfélag- inu í Borgarnesi fastur í fönn frá því seinnipartinn í gær og þar til rétt fyrir hádegið, að ýtunni tókst að losa hann. Nokkuð af því ferðafólki sem lenti í þessum hríðarbyl komst heim að Dals- mynni í Eyjahreppi og gisti þar í nótt. Nú er komið betra veður og vonandi helst það eitthvað, skólabörn sem eru í daglegum akstri í Laugargerðisskóla kom- ust ekki í skólann í dag vegna ófærðar. - Páll milljónir kr. á ári og kæmi fram á ríkisreikningum sem skattalækk- un og finnst sjálfsagt ýmsum það fýsilegri kostur en margt annað. Þingmenn Alþýðuflokksins lögðu einnig fram á Alþingi sl. haust tillögu um 15 þúsund kr. lágmarkstekjur á mánuði og hafa margir tekið undir þá kröfu. Því mætti ná með neikvæðum tekju- skatti, eins og hér hefur verið lýst, með því einu að hækka persónu- afslátt til skatts (og hækka efstu skattþrepin á móti ef ríkissjóður má ekki af aurunum sjá). Sjálf- sagt er þó að láta reyna á það til hlítar, að atvinnurekendur komi inn í þá mynd, svo mjög hefur þeim verið hlíft að undanförnu. Það sem helst hann varast vann ... Á síðasta landsfundi Sjálfstæð- isflokksins var sérstaklega álykt- að um það, að beita ætti skattalög- um til að bæta hag þeirra verst settu. Það hefur ekki verið gert. Þvert á móti, eins og hér hefur verið sýnt fram á. Og nýkjörinn formaður flokksins lýsti því yfir í sjónvarpinu 15. nóvember sl. að það mundi aldrei ske, að flokkur- inn stæði að lagasetningu þar sem meira tillit væri tekið til þeirra tekjuhærri en þeirra tekjulægstu. Einmitt þetta hefur verið gert. Varnaðarorð Ríkisstjórnin hefur vissulega náð miklum árangri í slag sínum við verðbólguna. Mun fleira þarf þí til að koma en einhliða kjara- skerðing launþega ef árangurinn á að verða varanlegur, en fram að þessu hefur kjaraskerðingin verið svo til eina úrræði ríkisstjórnar- innar. Þessum árangri má ekki glutra niður, en vísasta leiðin til þess er að misbjóða samvisku þjóðarinn- ar. Almenningur hefur greinilega verið og er reiðubúinn til að færa miklar fórnir tii að leggja verð- bólgudrauginn að velli, en sam- viska þjóðarinnar þolir það ekki til lengdar, að kjörum þeirra verst settu sé þrýst niður á stig örbirgð- ar meðan ýmsir hópar í þjóðfélag- inu hafa frjálsar hendur til að maka krókinn að vild. Ég vona að ríkisstjórnin átti sig á þessu í tíma, ella á hún á hættu, að allt hennar erfiði verði unnið fyrir gýg. Ég hef út af fyrir sig litlar áhyggjur af framtíð ríkisstjórnar- innar, sem slíkrar, en miklar áhyggjur af kjörum þeirra lakast settu og miklar áhyggjur af því, að verðbólgudraugurinn verði vakinn upp að nýju fyrir einstrengings- hátt og að því er virðist skilnings- leysi ríkistjórnarinnar. Magnús H. Magnússon er varafor- maður Alþýduflokks og fyrrv. al- þingismaöur. Ég óska eftir aö fá sendan KAYS pöntunarlistann í póstkröfu á kr. 98.- laö viðbaettu póstburðargjaldi). Nafn Heimili Staður Póstnr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.