Morgunblaðið - 28.01.1984, Síða 30

Morgunblaðið - 28.01.1984, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Þessi mynd var ekki birt opinberlega fyrr en löngu eftir að Agravanefndin tók til starfa. Á mvndinni sést maöur með byssu (yzt til hægri) hlaupa af svæðinu. Hann þekktist við athugun og heitir Leonardo Mojica, einn yfirmanna öryggissveitanna. Hann kvaðst hafa verið að gera vettvangskönnun í grennd við morðstaðinn. Mojica tregaðist lengi við að koma fyrir nefndina og bera vitni, en mun nú gera það í þessari viku. Morðið á Aquino Ekki er spurt hver gerði það heldur hver gerði það ekki Fjórum mánuðum og hálfum betur eftir morðið á stjórnarandstöðuleiðtoganum Benigno Aquino á flugvellinum í Man- ila eru menn engu nær um að upplýsa málið. í stað þess að menn spyrji: Hver gerði það? — er nú spurt: Hver var það sem gerði það ekki? Almenningur efast um sannleiksgildi þeirra yfirlýsinga sem stjórnvöld og rannsóknarnefnd senda frá sér, en það skýrir þó ekki, hver var að verki. Þeir sem hafa fylgzt með störfum nefndar Coraz- on Agrava, fyrrverandi dómara, eru smátt og smátt að hallast að þeirri skoðun, að það muni aldrei verða leitt í Ijós, hver skaut banaskotinu á Aquino. eir sem telja sig þekkja til starfa Warren-nefndarinn- ar, sem á sínum tíma var sett til að rannsaka morðið á John F. Kennedy, Bandaríkjaforseta, sjá ýmsar hliðstæður á málunum tveimur. Að vísu komust Warr- en-nefndarmenn að þeirri niður- stöðu, að Lee Harvey Oswald hefði verið einn að verki og ekk- ert samsæri hefði legið að baki. En fleiri hafa efast um það en þeir sem hafa trúað því. Og ýmsu svipar saman, það vantar vitni, vitni hafa gufað upp og málskjöl og myndir o.fl. sem ætti að vera fyrir hendi sjást hvergi. Nefndin hefur nú starfað í átta vikur og vel það. Hún hefur yfirheyrt um fjörutíu menn, flestir eru þeir innan hersins — og allir styðja þeir fyrstu útgáfu stjórnvalda um að einn maður, Rolando Galman, hafi allt í einu stokkið fram undan flugvallar- stiga og skotið á Aquino af stuttu færi, án þess að öryggis- vörðum gæfist svigrúm til að stöðva manninn. Galman var síðan, að sögn þessara sömu að- ila, skotinn snöfurmannlega til bana af öryggisvörðunum sem áttu að gæta Aquinos. í desemberlok komust raddir á kreik um það að maður nokkur, Ramon Balang, sem hafði fáein- um andartökum eftir morðið lýst því yfir, að Galman hefði ekki getað skotið Aquino, hafði alls ekki verið yfirheyrður. Bal- ang óttaðist um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar, og dróst loks á að tala við nefndarmenn á skrifstofu lögmanns síns. Hann kvaðst ekki hafa séð hver skaut Aquino, en hann hefði séð nokkra öryggisverði vera að skrafa við Galman skammt frá stiganum, sem rennt var að vél- inni og eftir að Aquino var skot- inn. Öryggisverðirnir hefðu ekki sýnt nein viðbrögð, hvorki þust fram til að vernda Aquino né beint byssum að Galman. Með því að vera á þeim stað sem Bal- ang segir að Galman hafi verið er útilokað að hann hafi getað myrt þingmanninn fyrrverandi. Balang endurtók þennan vitnis- burð síðan formlega fyrir nefnd- inni nokkrum vikum síðar. Agravan-nefndin gaf út þá yf- irlýsingu að framburður Balang væri „stórkostlegt skref í þá átt að upplýsa málið" en síðan hefur nánast ekkert gerzt. Ekki fyrr en annað og enn athyglisverðara kom fram frá Ruben Regalado, sem var blaðamaður og talaði við ýmsar sjónvarpsstöðvar í Tókýó skömmu eftir að Balang tjáði sig. Regalado var þá fluttur til Japan og fór þar huldu höfði. Hann kvaðst óttast að skýra frá þessu, þar eð hann hefði fengið aðskiljanleg hótunarbréf eftir að hann talaði við sjónvarpsstöðv- arnar. Regalado sagði að hann hefði heldur ekki séð þegar Aqu- ino var skotinn. En hann hafi séð Galman standa með útréttar hendur við stigann og hefði hann verið með byssu í annarri hendi. Einn af öryggisvörðum Aquino, Arnulfo Demesa, sem segist hafa verið óvopnaður, stökk fram eftir að Aquino var skotinn og lét skothríðina dynja á Galm- an — þó svo að Regalado segi að honum hafi verið haldið þegar hann átti að hafa hleypt af byss- unni. Þegar Regalado var látinn skoða myndir, sem sýndu hvern- ig líkin lágu á vígvellinum, kom í Ijós að framburður hans var langtum rökréttari en það sem talsmenn öryggissveitanna höfðu haldið fram. Einn er sá vandi mestur sem nefndin fæst við og það er að fá fleiri vitni til að koma fram með það sem þau hafa í pokahorninu. Bróðir Aquinos, Agapito, segir að hann viti til þess að ellefu vitni hafi verið að morðinu sjálfu — en kvaðst þó aðeins hafa talað við tvö þeirra per- sónulega — en þau treysti sér ekki til að bera vitni meðan Marcos er við völd. Fjórtán vitni, sem nefndin hefur óskað eftir að ræða við, eru annað hvort í Jap- an eða á Taiwan og treysta sér ekki til að koma til Filippseyja af ótta við hefndaraðgerðir. Annað sem nefndin glímir við er að ávinna sér traust almenn- ings. Margir lögvísir menn segja að niðurstaða nefndárinnar muni að öllum líkindum verða sú, að nokkur vafi leiki á því að Galman hafi drepið Aquino þrátt fyrir eindreginn framburð öryggisvarðanna þess efnis. Það er þó verulega sérkennilegt að morðvopnið var ekki rannsakað og einnig er trúlegt að hið aug- ljósa skeytingarleysi sem örygg- isverðir sýndu er Aquino gekk út úr vélinni muni ekki verða mál- inu til framdráttar. Hvort sem það á nú við rök að styðjast eða ekki hafa Filippsey- ingar þegar myndað sér skoðun á málinu: Aquino var myrtur af einum eða fleirum, sem tengjast stjórnvöldum. Og það vefst fyrir stjórninni og yfirmönnum ör- yggissveitanna að hreinsa sig af áburðinum. Þar sem mikill fjöldi vitna hefur ekki verið yfirheyrð- ur enn, er ólíklegt að nokkur niðurstaða fáist. Að minnsta kosti ekki fyrr en eftir þingkosn- ingarnar sem á að halda í maí. Agrava-nefndin hefur tilkynnt að hún muni leggja allt kapp á að niðurstaða verði komin í mál- inu löngu fyrir þann tíma. En í bili er ekkert sem bendir til að það takist. Og meðan Ferdinand Marcos hefur ennþá ægivald yfir her og öryggislögreglu er ekki sennilegt að honum muni áfram um að opinber og endanlegur blettur verði stimplaður á hann. (Ifeimild: Byggt i grein Guj Sacerdoti í Far Eastern Kconomic Review.) Jóhanna Kristjónsdóttir er blaða- maAur á Morgunbladinu. íslenzk veiðiskip til N-Ameríku og V-Afríku(?): Ahugi útvegsaðila og eftirgrennslan þurfa að fylgjast að — sagði Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra Geir Hallgrímsson, utanríkisráð- herra, sagði á Alþingi í gær að ís- lendingar viidu gjarnan hafa sam- starf við Grænlendinga um fiskveiði- mál, enda hefðu þeir þegar leitað eftir slíku samstarfi. Þá hefði einnig verið leitað eftir upplýsingum um, hvaða skilmála Bandaríkjamenn hygðust setja fyrir hugsanlegum veiðiheimildum til útlendra aðila í bandarískri fiskveiðilögsögu. Upp- lýsingar sem fengizt hefðu þar um hafi leitt til nýrra spurninga. Reyna þurfi á, hvað felist í fyrirvörum Bandaríkjamanna, er kunngert hafi verið um hugsanleg veiðileyfi. Nauð- synlegt sé hinsvegar að fá fram, hvort áhugi sé til staðar hjá íslenzk- um útvegsaðilum til veiða í erlend- um fiskveiðilögsögum. Eftirgrennsl- an íslenzkra stjórnvalda þurfi að haldast í hendur við áhuga íslenzkra útvegsaðila til að nýta slík leyfi, ef fengjust. Þessi sjónarmið komu fram í umræðu um tillögu til þingsálykt- unar, sem Karl Steinar Guðnason (A) mælti fyrir í gær. Tillagan fel- ur í sér, ef samþykkt verður, að ríkisstjórnin skuli „kanna mögu- leika á kaupum veiðileyfa og öflun veiðiaðstöðu fyrir íslenzk fiskiskip í fiskveiðilögsögu ríkja í Norður- Ameríku og Vestur-Afríku". í greinargerð er bent á að pólsk fiskiskip hafi haft heimild til þorskveiða í fiskveiðilandhelgi Bandaríkjanna fram að setningu herlaga í Póllandi og hafi selt afla að einhverju leyti til bandarískra fyrirtækja. Þá stundi Sovétríkin talsverðar fiskveiðar í fiskveiði- lögsögu Vestur-Afríkuríkja. Þegar umræður um stöðvun hvalveiða hafi staðið sem hæst á Alþingi, segir ennfremur í greinargerð, „barst óformlegt tilboð frá Banda- ríkjunum þess efnis að íslenzk skip gætu fengið veiðiheimildir við strendur Bandaríkjanna gegn því að íslendingar létu af hval- veiðum." Skuldirnar hækka orkuverðið: Framlag til orkuverðs- jöfnunar hækkað um 700% — segir iðnaðarráðherra Sverrir Hermannsson, iðnaðar- ráðherra, greindi frá því á Alþingi sl. miðvikudag, að hallarekstur Lands- virkjunar 1982 hefði numið 152 m.kr. Fyrirtækinu hafi verið gert að jafna þann halla með erlendri lán- töku og tilheyrandi lánsfjárkostnaði. Ef fram hefði haldið sem horfði, þá fyrrv. iðnaðarráðherra lét af störfum á sl. vori, hefði rekstrarhalli Lands- virkjunar 1983 orðið 400 m.kr. Hvern veg átti að mæta honum? Ef við hefðum greitt verðgildi raforku, eins og það var 1972, næstu 10 árin, næmu skuldir Landsvirkjunar 100 milljónum dollara eða 3000 m.kr. lægri fjár- hæð en raun ber vitni. Greiðslu- byrðar kalla síðan á enn hærra orkuverð en verið hefði, ef eðlileg verðþróun hefði náð fram. Þessar upplýsingar komu fram í umræðu um tekjustofna sveitarfé- laga, en verðþróun ýmissa þjón- ustustofnana er undir sömu sök seld, hefur orðið óhagstæðari neytendum, vegna skuldabyrðar fyrirtækjanna. „Ég vil líka minna á það,“ sagði iðnaðarráðherra, „að á fjárlögum fyrir 1983, sem síðasta ríkisstjórn afgreiddi, vóru 35 m.kr. ætlaðar til orkujöfnunar í landinu. Á þeim fjárlögum sem síðast vóru af- greidd (1984) er það 230 m.kr. eða 700% hækkun milli ára.“ m [iurgtt nl u s MetsöluNaóa hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.