Morgunblaðið - 28.01.1984, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984
„ þettcí er þitt siáaste ifacri.
Skrúfabu ni&or i' plötaspilaranum!"
Áster ...
... að vita að
hann bíður.
TM Rw U.S. Pat Off.-all rlghts reserved
°1983 Tos Angoles Tlmes Syndlcate
Hvað þetta á að þýða? — Það
kom maður áðan og spurði
hvort við ættum einhverjar
druslur!
Hlýtur að vera lögleysa
Susie Bachmann skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég var stödd í Florida síðastlið-
ið vor og þá fylgdist ég með rétt-
arhöldum sem var sjónvarpað þar.
Ung kona hafði tekið að sér að
sitja hjá átta mánaða gömlum
dreng á kvöldin, þegar foreldrarn-
ir þurftu að bregða sér frá honum.
Barnfóstran var háskólanemi og
hugðist slá tvær flugur í einu
höggi: afla sér tekna og nota tím-
ann um leið til að lesa námsefnið.
Kvöld eitt var drengurinn
óvenju óvær og grét mikið, þetta
truflaði konuna við lesturinn og
barnfóstrustarfið endaði með því
að hún drap drenginn. Hún tók
hann upp á fótunum, sló honum
utan í sófaborð svo hann höfuð-
kúpubrotnaði og lést. Konan gaf
þá skýringu fyrir réttinum, að hún
hefði verið svo illa fyrir kölluð og
þreytt. Hún hafði einnig ætlað að
nota tímann fyrir sig og því fór
sem fór.
Það sem kom mér mest á óvart
var afstaða fólksins sem var við-
statt réttarhöldin. Nærri undan-
tekningarlaust snerist meðaumk-
unin að barnfóstrunni og fólki
fannst miskunnarlaust að hún
skyldi þurfa að sæta refsingu fyrir
verknaðinn.
Ég lýsti undrun minni við Is-
lendinga sem þarna eru búsettir,
en þá sögðu þeir mér að skömmu
áður hefði annað mál líkt þessu
verið í deiglunni.
Ung stúlka hafði tekið að sér að
sitja hjá börnum og gamalmenn-
um. Hún hafði myrt nokkur gam-
almenni og þrjú ungbörn. Þá var
hið sama upp á teningnum: Með-
aumkunin var öll með „aumingja
stúlkunni". Þetta hlaut að vera
uppeldinu að kenna, eða þá þjóð-
félaginu, aumingja stúlkan.
Ég er ekki með þessu að segja að
stúlkurnar báðar séu ekki aumk-
unarverðar. En ef menn þurfa
ekki að sæta refsingu fyrir brot á
lögum hlýtur það að vera lögleysa.
Tilefni þess að þetta rifjast nú
upp fyrir mér er undirskrifta-
söfnun á Akureyri vegna útburð-
armálsins. Það getur nú varla vaf-
ist fyrir venjulegu fólki að hjónin
Danielle Somers og Rafn Jónsson
hafa stórbrotið gegn Grímu Guð-
mundsdóttur. Ég ráðlegg fólki að
„Það getur varla vafist fyrir venjulegu fólki að hjónin Danielle Somers og
Rafn Jónsson hafa stórbrotið gegn Grímu Guðmundsdóttur.“
lesa dómsúrskurð Hæstaréttar í
Mbl. 19. janúar á bls. 12.
Þegar ég virði svo fyrir mér öll
ungu andlitin sem mætt eru fyrir
utan húsið að Þingvallastræti 22 á
Akureyri, þar sem kennari þeirra
og um leið uppalandi og fyrirmynd
býst til að mótmæla því að lögum
sé framfylgt. Ja, þá kemur í hugan
minning:
Ég var stödd á heimili fyrir
nokkuð mörgum árum. Ungur
drengur á heimilinu hafði í bræði
sinni brotið stórt og dýrt gler í
millihurð. Þarna var einnig stödd
vinkona frúarinnar með tvær telp-
ur. Nú voru góð ráð dýr. Þó svo að
húsráðendur hefðu heimilistrygg-
ingu, vissu þeir að tryggingarfélag
þeirra greiddi ekki tjón eins og
þetta. En frúrnar kunnu ráð við
þessu: Þær gáfu skýrslu um að
önnur telpnanna hefði brotið gler-
ið — og mikið rétt — glerið fékkst
greitt úr tryggingarfélagi vinkon-
unnar. Eitt mikilvægt atriði hafði
samt gleymst: Það var ungi dreng-
urinn sem fylgdist vel með bolla-
leggingum frúnna. Þetta var þá
svona einfalt. Aðeins örlítil svik.
Var ómerkilegt rúðugler í milli-
hurð þess virði?
Það er leiðinlegt að hafa ekkert
jákvætt þegar sest er niður til að
skrifa, þessvegna get ég ekki látið
hjá líða þó seint sé að þakka fyrir
dagskrá á vegum Vöku, félags lýð-
ræðissinnaðra stúdenta, í útvarp-
inu 1. desember.
Ef satt skal segja hef ég kviðið
1. des.-dagskránni mörg undan-
farin ár. Það hefur verið minn
skammdegiskvíði. „Þú getur nú
bara slökkt á útvarpinu," segir
e.t.v. einhver og auðvitað endaði
með því að ég gerði það, en nú eru
nýir tímar: Aldrei framar óvönduð
vinstri-dagskrá 1. desember —
enginn skammdegiskvíði.
Með þökk fyrir birtinguna."
Duran Duran á Listahátíð
Fimm stelpur skrifa:
„Kæri Velvakandi!
Við erum hérna fimm Duran Duran-aðdáendur og okkur langar til að koma á framfæri ósk um að
hljómsveitin Duran Duran komi á næstu Listahátíð vegna mikilla vinsælda hér á landi. Við tölum ekki bara
fyrir okkar munn, við vitum um marga sem eru á sama máli.“