Morgunblaðið - 05.02.1984, Blaðsíða 1
29. tbl. 71. árg.
Neyðarkall
rússnesks
sálfræðings
New York, 4. febrúar. AF.
SOVÉSKUM sáirræðingi, sem fangels-
aður var fyrir andsovéska hegðun, hef-
ur verið misþyrmt og hann pyntaður í
fangelsinu. Samtökum bandariskra
sálfræðinga hefur borist í hendur bréf
frá honum, sem smyglað var frá Sov-
étríkjunum, og kemur þar fram, að lík-
amleg líðan hans er mjög bágborin.
Sovéski sálfræðingurinn, Anatoly
Koryagin að nafni, var handtekinn í
febrúar 1981 eftir að grein frá hon-
um birtist í breska læknaritinu
Lancet. Þar sakaði hann sovésk
stjórnvöld um að beita sálfræðing-
um og geðlæknum fyrir sig í barátt-
unni við andófsmenn.
„Þeir settu mig í refsiklefa og
beittu mig alls kyns pyntingum,"
segir Koryagin í bréfinu til APA,
samtaka bandarískra sálfræðinga.
„Pyntingar í fangelsum hafa aukist.
Nú er mönnum misþyrmt hroðalega
ef þeir neita að tala við KGB-menn-
ina, ef þeir fara í hungurverkfall eða
bera fram kvartanir." Koryagin er í
hungurverkfalli í fangelsinu en mat-
ur er neyddur ofan í hann.
Árið 1980 kannaði Koryagin lík-
amlegt og andlegt ástand Alexei
Nikitins, verkamanns í iðnaðarborg-
inni Donetsk, sem settur hafði verið
á geðveikrahæli eftir að hann skýrði
tveimur vestrænum fréttamönnum
frá ömurlegum aðstæðum verka-
manna. Koryagin fann ekkert at-
hugavert við andlegt ástand Nikitins
þótt geðlæknarnir segðu annað.
Bannað
að tala
saman!
Aþenu, 4. rebrúar. AP.
STJÓRNVÖLD í Grikklandi settu ný
lög í lok vikunnar og tóku þau þegar
gildi. Snúa þau að leigubifreiðastjórum
og farþegum þeirra. Eru allar samræð-
ur, sem ekki heyra undir viðskipti
þeirra, nú bannaðar.
Af þessum sökum munu hvorki
bílstjórar né farþegar þeirra verða
þeirrar skemmtunar aðnjótandi að
ræða opinskátt og af innlifun um
stjórnmál, en það mun vera afar
vinsælt tómstundagaman í leigubil-
um í Grikklandi. Talsmaður stéttar-
félags bílstjóra sagði þetta grófa að-
för að stéttinni og yfirvöld væru á
ómaklegan hátt að segja bílstjórum
hvernig þeir ættu að vinna verk sín.
„Auk þess ætlast fjöldi farþega til
þess að bílstjórar skemmti þeim með
fjörugum samræðum," sagði hinn
ónafngreindi talsmaður.
Þannig er nefnilega mál með
vexti, að samkvæmt grískum lögum
er bannað að tala illa um forseta
lýðveldisins, forsætisráðherrann og
stjórnarandstöðuforingja á opinber-
um vettvangi, en farþegarnir hafa
kært bílstjórana fyrir að brjóta um-
rædd lög í þremur tilvikum. Hefur
bilstjórunum verið varpað í svart-
holið fyrir ósvífnina. Bílstjórar
óttast nú að dulbúnir útsendarar
lögreglunnar muni f vaxandi
mæli ferðast í leigubílum og freista
þess að veiða óþekka bílstjóra.
80 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ljósm. Sigrún.
Nýliðinn janúarmánuður var sá þriðji kaldasti frá árinu 1881, að því er veðurfræðingarnir segja. Sums staðar á landinu eru líka snjóalög meiri en elstu
menn muna og valda þau miklum vandræðum. Börnin kunna hins vegar betur að meta fannfergið en fullorðna fólkið eins og þessi mynd frá
Hveragerði ber með sér.
Ekkert lát á bardögum í Beirút:
Wazzan vill fá nýja sam-
steypustjórn stríðsaðila
Beirút, Líbanon. 4. febníar. AP.
SHAFIK Wazzan, forsætisráðherra
Líbanon, hvatti í gær herfylkingar
shita, drúsa og kristinna manna til
að leggja niður vopn og stofna sam-
steypustjórn til að leysa af núver-
andi níu manna stjórn undir forystu
Amins Gemayel forseta. Leiðtogar
fylkinganna höfðu ekki sýnt við-
brögð við kalli Wazzans síðast er
fréttist, en forsætisráðherrann sagð-
ist mundu viðra hugmyndina við for-
setann á næstunni. Kall Wazzans
kom í kjölfarið á hörðum bardögum
í Beirút þriðja daginn í röð.
Barist var á flestum vígstöðvum
í Beirút í gær, laugardag, en frið-
argæslusveitirnar sluppu við
áreitni. Shitar gerðu áhlaup á
stöðvar stjórnarhersins með
sprengjuregn að bakhjarli, og
drúsar gættu þess að láta ekki
fallbyssurnar og eldflaugaskot-
pallana kólna þar sem þeir skutu á
íbúðarhverfi kristinna manna úr
fjöllunum umhverfis Beirút.
Stjórnarherinn svaraði drúsum í
sömu mvnt og hélt sínu gegn shit-
unum. í átökunum í gær létu 13
manns lífið og 29 særðust, margt
óbreyttir borgarar. Þar með er
dánartalan í átökunum þrjá síð-
ustu dagana komin upp í 58
manns, en 154 hafa særst.
Brottrekstur sovéskra
njósnara þrefaldaðist
Washington, 4. febrúar. AF.
AÐ MINNSTA kosti 135 Sovétmönnum, sendiráðsmönnum og óbreyttum
borgurum, var vísað úr landi víðs vegar um heim á liðnu ári og höfðu
langflestir þeirra verið staðnir að njósnum að því er segir í skýrslu frá
bandaríska utanríkisráðuneytinu. Er það nærri þrefaldur fjöldi þeirra,
sem rekinn var úr landi árið 1982.
Ástæðurnar fyrir þessari
fjölgun eru þær, að mörgum rík-
isstjórnum er farið að ofbjóða
vaxandi afskipti Sovétmanna af
innanlandsmálum þeirra og
stóraukin njósnastarfsemi. Til
samanburðar má nefna, að árið
1982 var 49 Sovétmönnum vísað
úr landi og ekki nema 27 árið
1981. í raun eru þessar tölur þó
hærri því að stundum er ekki
sagt frá brottrekstri Sovét-
mannanna opinberlega.
„Hér er annaðhvort um að
ræða stórauknar njósnir eða þá
að þeir kunna ekki lengur til
verka við njósnirnar," segir sér-
fræðingur á vegum Bandaríkja-
stjórnar og bætir því við, að eftir
að Yuri Andropov, fyrrum yfir-
maður KGB, varð allsráðandi í
Sovétríkjunum, virðist sem
njósnararnir hafi fengið „frjáls-
ar hendur til hvers sem er“.
„Þeir hafa verið miklu ósvífnari
í tilraunum sínum til að kúga
erlenda borgara og komast yfir
leynilegar upplýsingar, einkum
þær, sem snúast um nýja tækni."
„Afleiðingarnar fyrir Sovét-
menn eru þær, að ríkisstjórnir,
sem áður útkljáðu þessi mál í
kyrrþey, bregðast nú við af meiri
hörku og draga ekki lengur dul á
vanþóknun sína. Noregur er
ágætt dæmi um iand þar sem
Sovétmenn hafa gengið of langt.
Þeir höfðu mann á sínum snær-
um, sem hélt honum væru allir
vegir færir og gerðist kærulaus.
Norska leyniþjónustan leyfði
honum að sprikla um tíma eða
þar til hún vissi hverjir sam-
starfsmenn hans voru. Þá var
níu Sovétmönnum bönnuð land-
vist í Noregi," sagði bandaríski
sérfræðingurinn.
Á liðnu ári var flestum Sovét-
mönnum vísað frá Frakklandi,
47 talsins, og 18 voru reknir frá
Bangladesh vegna afskipta af
innanríkismálum landsins. í
skýrslunni segir, að flestir Sov-
étmannanna, sem reknir eru,
hafi diplómatísk réttindi en aðr-
ir eru fréttamenn, túlkar, versl-
unar- og viðskiptafulltrúar,
starfsmenn sovéska flugfélags-
ins Aeroflot og ríkisskipafélags-
ins Morflot.