Morgunblaðið - 05.02.1984, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.02.1984, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984 Plnr0iui Útgefandi iti hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakiö. Sýnum stillingu Að frumkvæði Vinnuveit- endasambandsins var ákveðið með samþykki Al- þýðusambandsins að Kjara- rannsóknanefnd gerði at- hugun sem leiða á í ljós hverja unnt er að skilgreina sem láglaunahópa. Er ekki vafi á því að niðurstöður í þeirri rannsókn munu vekja athygli þegar þær birtast og jafnvel koma ýmsum á óvart og þá ekki síst verkalýðsrek- endum sem hafa verið með láglaunamanninn á vörunum jafn lengi og raun ber vitni án þess að hagur hans hafi nokkru sinni batnað nema þá helst í orði á meðan við völd sitja ríkisstjórnir sem verka- lýðsrekendunum eru kærar og hljóta því opinbert skjall í samræmi við það. Nú er ver- ið að vinna að tillögum á vegum ríkisstjórnarinnar um það hvernig unnt sé að tryggja lágtekjufólki lág- markslaun. Yfirlýsingar ráð- herra, ekki síst Sverris Her- mannssonar, iðnaðarráð- herra, benda eindregið til þess að lágtekjumenn séu helsta áhyggjuefni stjórn- valda nú þegar rætt er um að bæta kjörin með nýjum samningum. Allir eru sammála um að hinir lægst launuðu mega ekki verða verst úti þegar sigrast er á verðbólgunni, nú er þess eins beðið að þessi samstaða komi fram í verki. Er óþarft að láta langan tíma líða við frekari vanga- veltur og er brýnna að breyta þeim vonum sem þessu fólki hafa verið gefnar í veruleika en geysast um víðan völl í yfirlýsingum sem geta gefið grunlausum áheyrendum til kynna að svo góð tök hafi náðst á verð- bólgudraugnum að hann láti nú að stjórn. Þótt tekist hafi að draga verulega úr hraða verðbólgunnar og minnka viðskiptahallann við útlönd svo um munar er margur vandi og alvarlegur enn óleystur. Þess gætir nú æ meira í umræðum um efnahagsmál og kom meðal annars fram í máli fyrirspyrjanda í sjón- varpsþætti á föstudags- kvöldið hvort það gæti ekki verið að verðbólgan hafi kannski verið tekin alltof föstum tökum. Það hefur löngum verið grunnt á verð- bólguhugsunarhættinum enda er hann forsendan fyrir því að gefið sé eftir þegar vandi steðjar að í atvinnu- málum í stað þess að brjóta vandann til mergjar og kom- ast að meininu sjálfu. Astæða er til að vara við þeim ranghugmyndum, sem alltof oft og lengi hefur verið ýtt undir af ábyrgðarlausum stjórnmálamönnum, að verð- bólgan sé ekki svo slæm þrátt fyrir allt. Þau vanda- mál sem landstjórnarmenn standa nú frammi fyrir væru mun erfiðari viðfangs ef ekki hefði tekist að ná tökum á verðbólgunni. Við blasir að laga efnahagsstarfsemina og lífskjörin að samdrætti í sjávarafla og þeirri stefnu að ekki skuli lifað um efni fram. Við því var að búast að í kringum 1. febrúar yrðu kjaramálin ofarlega á dagskrá stjórnmálamanna og fram hefur komið að rík- isstjórnin telur svigrúm til kjarabóta. Digurbarkalegar yfirlýsingar um það sem áunnist hefur í verðbólgu- slagnum má ekki túlka sem svo að unnt sé að gefa al- mennt eftir, í því fælist ekki annað en byrjað yrði aftur á því að prenta verðlausa pen- ingaseðla til að standa undir fölskum kaupmætti. Hvernig Enginn vafi er á að sov- éskir treholtar finnast víðar en í Noregi. Það liggur einnig fyrir að þessi vinaþjóð okkar Islendinga á nú um sárt að binda vegna landráða Arne Treholt. Norsk stjórn- völd hafa nú þegar ákveðið að grípa til ýmissa aðgerða sem miða að því að draga úr áhrifum og ítökum Sovét- manna í norsku þjóðlífi en þau hljóta um leið að verða að taka mið af nábýlinu við Sovétmenn. Kremlverjar hafa aldrei þolað nágrönnum sínum að vera áhyggjulausir og af Norðurlandaþjóðum hafa Finnar mátt finna mest fyrir því. Þegar Stalín sendi herlið inn í Finnland og Finnagald- urinn stóð sem hæst gengu kommúnistar á íslandi er- inda Sovétstjórnarinnar eins og ekkert hefði í skorist og fóru í hyllingarferðir til Moskvu. Sönnum íslending- um blöskraði þessi þjónkun væri til dæmis að leysa rekstrarvanda útgerðarinn- ar áður en tekið er til við að tala um að ekki skipti máli hvort verðbólgan verði 10 eða 11% í árslok? Þess er nú beðið með vaxandi óþreyju að það takist að beina öllum efnahagsstraumum í einn farveg. Það tekst ekki nema með átaki undir forystu rík- isstjórnarinnar. Framtíð hennar veltur á því að sam- staða náist um þetta átak. þá. Ekki er síður ástæða til að lýsa yfir skömm sinni á því athæfi að nú þegar Norð- mönnum er mest þörf á sam- hug og samstöðu gegn Kremlverjum og útsendur- um þeirra skuli fulltrúar MÍR, Sovétvinafélagsins á íslandi, fara til Moskvu og rita undir samning um „menningarsamskipti" sem veita Kremlverjum gullið tækifæri til aö rækta tengsl við treholta á íslandi. Um heim allan færir KGB sér slíka samninga í nyt sem fulltrúar MÍR ákvaðu að rita undir á sama tíma og norska vinaþjóðin stendur agndofa yfir sviksemi og ítökum KGB. Sovétvinir á íslandi hafa aldrei hikað við að ganga á hólm við heilbrigða skynsemi og almenningsálit heima fyrir í þjónkun sinni við ráðamenn heimskomm- únismans. Það sannast enn einu sinni nú. MÍR og treholtarnir ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Rey kj a víkurbréf ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Laugardagur 4. febrúar ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ K-bygging - krabbameins- lækningar Fyrir nokkrum árum var sú staðhæfing sett fram hér í Morg- unblaðinu að næsta stórfram- kvæmd á heilbrigðissviði (á eftir B-deild Borgarspítala) þyrfti að vera K-bygging á Landspítalalóð, sem hýsa á krabbameinslækn- ingar, ísótópastofu, rannsókna- stofur í meinefnafræði og blóð- meinafræði, rannsóknastofur í röntgengreiningu, skurðstofur og gjörgæziudeild. Brýnasti hluti þessarar byggingar er sá sem rúma á tækjabúnað fyrir krabba- meinslækningar. Allt frá árinu 1978 hefur þessi bygging verið á forgangslista heil- brigðisráðuneytis og hefur fé verið veitt til hönnunar hennar af Al- þingi síðan 1979. Hins vegar hefur Alþingi hliðrað sér við að taka ákvörðun um að hefja bygginguna. Hönnun var iangt komin þegar ár- ið 1981 og þá var lögð fyrir fjár- veitinganefnd sundurliðuð áætlun um byggingaframkvæmdir. í þeirri áætlun var gert ráð fyrir að á árabilinu 1982—1990 yrði bygg- ingunni fulllokið, en jafnframt áfangaskiptingu, þannig að á ár- inu 1986 yrði tilbúið rými fyrir krabbameinslækningar og ísót- ópastofu, árið 1987 rými fyrir meinefna- og blóðmeinarannsókn- ir, árið 1988 aðstaða fyrir skurð- stofur, en að byggingu yrði að fullu lokið með tengigöngum á ár- inu 1990. Þessar upplýsingar komu fram hjá Matthíasi Bjarnasyni, heil- brigðisráðherra, er mál þetta kom á dagskrá Alþingis síðla liðins árs. Á hverju árið síðan hafa tillögur um þessa byggingu legið fyrir við gerð fjárlaga, nokkurn veginn óbreyttar, en Alþingi hefur ekki tekið afstöðu til þess, hvenær framkvæmdir skyldu hefjast fyrr en við síðustu fjárlagagerð. Fyrr- verandi heilbrigðisráðherra fékk ekki þokað þessu máli áleiðis. Af- stöðubreyting fékkst hins vegar í fjárveitinganefnd strax á fyrstu fjárlögum eftir að Matthías Bjarnason tók við heilbrigðisráð- herrastöðu á ný. Þegar Lárus Jónsson, formaður fjárveitinganefndar, mælti fyrir breytingartillögum við fjárlaga- frumvarp, sem meirihluti fjárveit- inganefndar stóð að við þriðju um- ræðu fjárlaga, sagði hann m.a.: „Stofnkostnaður Landspítala hækki um 25,7 m.kr. Þar af fari 16 m.kr. til kaupa á hjartaþræðinga- tæki og 9,7 m.kr. til svonefndrar K-byggingar. { fjárlagafrumvarpi eru fyrir 2,3 m.kr. til þessa verk- efnis, þannig að 12 m.kr. eru til ráðstöfunar á þessu sviði 1984. Með þessum tillögum er bætt að- staða til hjartarannsókna og skref stigið í þá átt að taka upp hjarta- skurðlækningar. Þá er staðfest stefna fjárveitinganefndar að því er varðar svonefnda K-byggingu og vonandi kemst þetta nauð- synjamál á hreyfingu með þessari tillögu." Þegar Matthías Bjarnason, heil- brigðisráðherra, fjallaði um þetta mál á þingi, skömmu fyrir fjár- lagaafgreiðslu, sagði hann m.a., varðandi endurskoðun þessa máls: „Sérstaklega hefur verið á það litið, hvort hægt væri að byrja framkvæmdir þannig að skapa mætti aðstöðu fyrir krabbameins- lækningar og þá sérstaklega að hýsa það krabbameinslækn- ingatæki, þ.e. línuhraðal, sem ekki er til hér á landi og talið er nauð- synlegt til að krabbameinslækn- ingar hér geti samsvarað því bezta sem gerist í heiminum í dag.“ Þær byggingaáætlanir sem vitnað var til hér að framan, rask- ast eitthvað, vegna þess hve seint fjárlagafé fékkst til framkvæmda. Engu að síður ber að fagna því að K-bygging er nú að komast á framkvæmdastig. Öll útboðsgögn til að hefja verkið eru til, að sögn ráðherra, og svo kann að fara, að hægt verði að taka nýja krabba- meinslækningadeild í notkun um áramótin 1989—1990. Það er hægt að stytta þennan byggingatíma með örari fjárveitingum og þá yrði hægt að taka krabbameins- lækningadeildina í notkun einu til tveimur árum fyrr, að dómi heil- brigðisráðherra. Starfsemi ríkis- fyrirtækja og hlutafélaga með ríkisaðild Sverrir Hermannsson, iðnaðar- ráðherra, gaf Alþingi skýrslu „um starfsemi ríkisfyrirtækja og hlutafélaga með ríkisaðild er til- heyra starfssviði iðnaðarráðu- neytis" í desembermánuði sl. Hér er gott fordæmi gefið, sem aðrir fagráðherrar mættu taka til eftir- breytni. Skattborgarar koma við sögu, bæði í stofnfjárkostnaði og rekstraráhættu fyrirtækja, sem ríki á alfarið eða hlutdeild í. Þeir eiga heimtingu á upplýsingum um þessi fyrirtæki. Fjölmiðlar hafa ekki sinnt þessari skýrslu iðnað- arráðherra sem skyldi, en hún ætti að fást í viðkomandi ráðu- neyti, ef fólk hefur áhuga á að kynna sér hana nánar. Hér hefur iðnaðarráðherra brotið ís í upplýs- ingamiðlun. Þau fyrirtæki sem koma við sögu í skýrslu iðnaðarráðherra eru: Hitaveita Suðurnesja hf., Iðn- aðarbanki íslands hf., íslenzka járnblendifélagið hf., Kísiliðjan hf., Kísilmálmvinnslan hf., Lag- metisiðjan Siglósíld (sem þá var óseld), Landssmiðjan, Landsvirkj- un, Orkubú Vestfjarða, Raf- magnsveitur ríkisins, Ríkisprent- smiðjan Gutenberg, Sementsverk- smiðja ríkisins, Sjóefnavinnslan hf., Steinullarverksmiðjan hf. og Þörungavinnslan hf. Af þesssari upptalningu má sjá, þó hún nái aðeins til eins ráðu- neytis, að víða koma ríkið og skattborgararnir við sögu, kannski of víða, því ríkið á ekki að hasla sér völl þar sem framtak einstaklinga er fyrir hendi og er fullfært um viðfangsefnin. Hér verður aðeins tekið fyrir eitt sýnishorn úr skýrslu iðnaðarráðherra, Landsvirkjun. Fyrirtækið var stofnað með lögum nr. 59/1965, en ný lög um það eru nr. 42/1983. Ríkissjóður er eigandi fyrirtækisins að 50%, Reykjavík- urborg að rúmlega 44,5% og Akur- eyrarbær að tæplega 5,5%. Ná- kvæmt yfirlit er yfir starfsemina 1982, framkvæmdir og rekstur, samninga fyrirtækisins um virkj- anamál, orkuöflun og orkusölu, stjórnun og fjármál. Fjöldi fastra starfsmanna er um 170 manns og fjöldi lausráðinna frá 70—250, eft- Gott hal úr „nægtabrunni", sem nú vei ir viðfangsefnum. Heildarorkuöfl- un 1982 var 3070 GWst. Rekstrar- afkoma Landsvirkjunar var óhag- stæð um 152,1 m.kr. þetta ár, 1982. Iðnaðarráðherra ræddi síðar á þingi um verðþróun orku hjá Landsvirkjun 1972—1983. Þar sagði hann efnislega að ef verð- gildi raforku hefði haldizt þetta tímabil, eins og það var 1972, næmu skuldir Landsvirkjunar nú 100 milljónum dollara, eða 3000 m.kr., lægri fjárhæð en raun bæri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.