Morgunblaðið - 05.02.1984, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984
Mokveiði
á loðnu-
miðunum
MJÖG góð loðnuveiði var í fyrrinótt
og ga-rmorgun. Alls öfluðu 24 bátar
13.790 lesta frá miðnætti og til há-
degis í gær. Bátarnir lönduðu ýmist í
Vestmannaeyjum eða á Austfjarða-
höfnum. Aflinn fæst í Mýrabug, inn-
an við Ilrollaugseyjar, skv. upplýs-
ingum Loðnunefndar.
Auk þessara 24 báta tilkynnti
Húnaröst ÁR um 600 lestir seint á
föstudagskvöldið. En laugardags- |
aflinn var þessi: Bergur VE, 500
lestir; Magnús NK, 500; Albert
GK, 500; Gísli Árni RE, 600;
Skjrnir AK, 440; ísleifur VE, 570;
Dagfari ÞH, 520; Ljósfari RE, 530;
Huginn VE, 550; Grindvíkingur
GK, 900; Gígjan RE, 750; Kap II
VE, 690; Beitir NK, 1200; Svanur
RE, 690; Sighvatur Bjarnason VE,
600; Pétur Jónsson RE, 760; Bjarni
ólafsson AK, 750; Jón Kjartans-
son SU, 900; Sæberg SU, 520; Eld-
borg GK, 1250; Guðmundur RE,
900; Börkur NK, 1150; Sigurður
RE, 1000 og Guðrún Þorkelsdóttir
SU með 650 lestir.
Sögufrægt hús hverfur á Akranesi
ÞESSA dagana er unnið að því að brjóta niður húseignina að Kirkjubraut
24 á Akranesi. Hús þetta er mörgum kunnugt undir nafninu Brú, en það
átti á sínum tíma sá þekkti fréttaritari Morgunblaðsins Oddur Sveinsson.
Oddur bjó sjálfur ásamt konu sinni á efri hæð hússins en hafði verslun á
neðri hæðinni, þar var afgreiðsla Morgunblaðsins í mörg ár. Samvinnu-
bankinn keypti húsið og flutti starfsemi sína í það 1967 og var þar til húsa
fram til ársins 1983 að hann flutti í nýbyggingu við hlið eldra hússins.
Mörgum þykir sjónarsviptir að þessu húsi, en margir eiga sjálfsagt góðar
minningar um þá starfsemi sem þar fór fram.
— JG.
Time:
Reykjavík
er erfið
borg fyrir
hundavini
„KKVKJAVÍK er, að minnsta kosti
lagalega, erfið borg fyrir hunda-
vini, en þar hafa hundar verið
bannaðir síðustu 60 ár vegna bar-
áttunnar við bandorm, sem hrjáð
hefur fslendinga um aldir,“ segir í
upphafi fréttar í vikuritinu Time,
þar sem fjallað er á háöuglegan
hátt um hundamál í Reykjavík og
vandræði fjármálaráðherrans
vegna hundahalds hans.
Segir í fréttinni að í Reykjavík
séu nú um 3.000 hundar. Vand-
ræðin hefðu byrjað þegar einn
hundaeigandi hefði neitað að
greiða sekt vegna hundahalds og
hefði hann verið settur í fangelsi
í tvo daga, en látin laus vegna
athygli fjölmiðla á málinu.
Þá segir Time að Albert Guð-
mundsson, fjármálaráðherra,
hefði játaö í útvarpi að eiga
hund og sagst hvorki mundu láta
hann frá sér fara né greiða sekt
vegna hundahaldsins.
UNWÚLOrtE TO
RtYKJA\/iK
ooa pop 3.000
-
't
Dogged Stand
Rufflimes in Reykjavík
Er síðan sagt frá kæru á hend-
ur ráðherranum vegna þessa og
frá þeim viðbrögðum hans að
hann muni frekar flytja af landi
brott og hætta í stjórnmálum, en
að láta hundtíkina Lucy frá sér
fara. Segir síðan að þrátt fyrir
þetta sé ráðherrann nokkuð ör-
uggur, þó í vandræðum sé, þar
sem hann verði ekki settur í
fangelsi vegna þinghelgi. Hins
vegar er lagt til að Albert Guð-
mundsson verði gerður að full-
trúa íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum í New York, því þar sé
hundahald leyft.
íþróttaþáttur sjónvarpsins:
Atli og Ásgeir verða
í sviðsljósinu á morgun
TÓLF mínútna kafli úr leik þýsku
knattspyrnulióanna Stuttgart og
Kaiserslautern verður sýndur í sjón-
varpinu annað kvöld í íþróttaþætti
Bjarna Felixsonar, að því er Bjarni
tjáði Morgunblaðinu í gær. Ásgeir
Sigurvinsson leikur sem kunnugt er
með Stuttgart, og átti hann stórleik í
umræddum leik fyrir nokkru.
Bjarni Felixson sagði einnig ætl-
unina að sýna úr leik Fortuna
Dússeldorf og Bayern Múnchen
annað kvöld, væri þess nokkur
kostur. Kvaðst hann bjartsýnn á að
unnt yrði að sýna a.m.k. 3ja mín-
útna fréttamynd úr leiknum, en
hvort unnt yrði að fá lengri kafla,
væri ekki komið í ljós. Leikur lið-
anna fór sem kunnugt er fram á
föstudagskvöldið og átti Atli Eð-
valdsson mjög góðan leik með
Dússeldorf og skoraði fjórða og síð-
asta mark liðsins gegn Bayern.
Þá eru einnig þær fréttir af
knattspyrnuútsendingum sjón-
varpsins, að tveir leikir í ensku
knattspyrnunni verða sendir út í
beinni útsendingu 3. og 25. mars
næstkomandi og er síðari leikurinn
úrslitaleikur deildabikarkeppninn-
ar á Wembley.
Coldwater Seafood Corporation:
Salan í janúar um 19%
meiri en á sama tíma ’83
HEILDAR8ALA Coldwater Seafood
('orporation, dótturfyrirtækis SH í
Bandaríkjunum, nam samtals um
6.000 lestum í janúar og jókst um
18,8 af hundraði miöað við sama
mánuð í fyrra. Aukningin var lang-
mest í verksmiðjuframleiddum vör-
um eða 17,5% en nokkur samdráttur
varð í sölu fimm punda þorskflaka-
pakkninga.
Að sögn óttars Hanssonar,
sölustjóra Coldwater, er áhrifa
sölusamningsins við Long John
Silver’s lítið farið að gæta í söl-
unni.
Óttar sagði ennfremur, að því
Iönaöarráöherra:
Mjög ánægður
með áhrif um-
mæla minna
„ÉG ER mjög ánægður með þau
áhrif sem ummæli mín hafa haft,“
sagði Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra í tilefni af ummælum Ntein-
gríms Hermannssonar forsætisráö-
herra, Alberts Guðmundssonar fjár-
málaráðherra og fleiri aðila vegna
yfirlýsinga Sverris í viðtali við Mbl.
sl. fimmtudag.
Sverrir sagði m.a. í viðtalinu, að
hann gerði sér ljóst, að forsendur í
fjárlögum nægi ekki til að ná sátt-
um á vinnumarkaðinum og að það
kunni að dragast að markmiðum
ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál-
um verði náð. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra tók
síðan undir þessi ummæli Sverris.
væri hér um óvenju mikla aukn-
ingu að ræða og gæfi hún tilefni
til bjartsýni á framhaldið. Inn-
komnar pantanir hjá fyrirtækinu
í lok mánaðarins væru mun meiri
en í upphafi hans, þó „páskahrot-
unnar" væri enn ekki farið að
gæta enda væru páskarnir óvenju
seint að þessu sinni. Auk hinnar
miklu aukningar í verksmiðjuvör-
unum hefði sala karfaflaka gengið
mjög vel, selzt um 850 lestir í
mánuðinum og nokkur aukning
hefði einnig orðið á sölu ýsuflaka
og annarra þorskflakapakkninga
en fimm punda.
Óttar sagði einnig, að nú ríkti
mikil bjartsýni á bandarískt efna-
hagslíf og hefði það líklega þessi
góðu áhrif á söluna því enn væri
samkeppnin við nautakjötið erfið.
Það væri mjög ódýrt um þessar
mundir vegna mikillar slátrunar
af völdum uppskerubrests á síð-
asta ári og nú væru stóru ham-
borgarakeðjurnar til dæmis að
auglýsa hamborgarann á 39 cent,
en svo lágt hefði verðið ekki verið
lengi.
0'
INNLENT
8 ára drengs leitað:
Leitarmaður
fótbrotnaði
LÖGREGLAN í Reykjavík og flokkur
úr Hjálparsveit skáta leituðu átta ára
snáða í fyrrinótt. Hann hafði farið að
heiman frá sér á Granda um hálfníu-
leytið á föstudagskvöldið og síðan
spurðist ekkert til hans.
Þegar farið var að lýsa eftir hon-
um í útvarpi í gærmorgun kom
drengurinn fram heill á húfi. Hann
hafði farið í heimsókn til ömmu
sinnar á Seltjarnarnesi og henni
láðst að láta vita af stráksa.
Ekki endaði sagan þó vel fyrir
alla. Einn hjálparsveitarmannanna,
sem tóku þátt í leitinni, hrasaði í
Vesturbænum í fyrrinótt og fót-
brotnaði.
Alvarlegt umferð-
arslys á Blönduósi
Hlönduósi, 4. febrúar.
í HÁDEGINU í gær varð alvarlegt
umferðarslys á þjóðveginum í gegn-
um Blönduós. Tveir fólksbílar skullu
Strætisvagnar Reykjavíkur:
Tilraunaakstur á flugvallar-
svæðið 1. apríl til 1. október
í VOR verður væntanlega hafinn til-
raunaakstur á vegum Strætisvagna
Keykjavíkur á austanverðan Keykja-
víkurflugvöll, en hugmyndir hafa verið
uppi um strætisvagnaferðir á þetta
svæði um nokkra hríð.
Samkvæmt upplýsingum sem Mbl.
fékk hjá Davíð Öddssyni borgar-
stjóra, er hugmyndin sú að tilraunin
standi yfir á tímabilinu 1. apríl til 1.
október og hugsa menn sér, að á
þessum tíma komi í ljós þörfin fyrir
strætisvagnaþjónustu á þessu svæði.
Líklegt er að leið vagnanna muni
verða frá Hlemmi, upp Snorrabraut,
út að Loftleiðahóteli og hugsanlega
þaðan út í Nauthólsvík. Þaðan
myndi vagninn aka á Umferðarmið-
stöðina og síðan á Lækjartorg. Með
þessu fengist tenging við helstu
strætisvagnastöðvar í borginni, á
Hlemmi og Lækjartorgi, og jafn-
framt við leiðakerfið í heild.
Samkvæmt upplýsingum Mbl. hef-
ur tillaga þessa efnis ekki verið lögð
fyrir stjórn Strætisvagna Reykja-
víkur, en búist er við að það verði
gert á næstu vikum.
saman með þeim afleiðingum, að
ökumaður annars bílsins, sem var
héðan frá Blönduósi, slasaðist mikið,
handleggs- og viðbeinsbrotnaði, auk
annarra meiðsla. Var hann fluttur
með sjúkraflugvél til Reykjavíkur
síðar um daginn. Hann er þó ekki
talinn í lífshættu.
í hinum bílnum sem var á suður-
leið voru þrír farþegar auk öku-
manns. Þeir hlutu allir minnihátt-
ar meiðsl og að sögn Frímanns
Hilmarssonar lögregluvarðstjóra
er talið að sú staðreynd að öku-
maður og farþegi í framsæti not-
uðu bílbelti hafi bjargað þeim frá
meiri meiðslum, þar sem árekstur-
inn var mjög harkalegur.
Hentist bíll fjórmenninganna út
af veginum við höggið, en hinn
snerist á veginum. Báðir bílarnir
eru gjörónýtir.
- BV.