Morgunblaðið - 05.02.1984, Page 48

Morgunblaðið - 05.02.1984, Page 48
EUROCARD V J EfTT KORT AliS SIAÐAR SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Ágætur rækjuafli við Kolbeinsey: 110-120 rækjur í hverju Dalvík, 2. febrúar. í DAG kom Dalborg EA 317 inn með 25—30 tonna rækju- afla. l»ennan afla fékk Dal- borg á KoJbeinseyjarsvæði og er rækjan stór og falleg, um 110—120 rækjur í kílóið. Rækjan verður flutt til Akur- eyrar og unnin hjá K. Jónssyni, þar sem rækjuvinnsla hefur ekki enn hafist að nýju hjá Sölt- unarfélagi Dalvíkur. Héðan eru gerð út fjögur skip og bátar á kílói úthafsrækju og hafa aflað sæmilega þegar veður hefur gef- ið. í gær kom Björgvin EA 311 og landaði 130 tonnum af karfa. Sökum alvarlegrar vélarbilunar mun hann ekki fara á veiðar aft- ur fyrr en eftir 10—12 daga. Einn bátur hefur hafið neta- veiði, mb. Otur, og landaði í dag þremur tonnum af þorski og ufsa, sem hann fékk á miðunum út af Siglufirði. — Fréttaritarar. Theódór Norðkvist hjá O.N. Olsen á ísafirði: Hrafninn flýgur á hvíta tjaldinu Kvikmyndahátíð hófst í Reykjavík í gær með frumsýningu á mynd Hrafns Gunnlaugssonar „Hrafninn flýgur“ í Háskólabíói, en alls voru þá fyrirhugaðar 17 sýningar á innlendum og erfendum kvikmyndum. Á myndinni heilsast Davíð Oddsson borgarstjóri og Hrafn Gunnlaugsson. Morgunblaðiö/ÓI.K.M. Sjá nánar á bls. 58—60 og 64—66. Verðlækkun- in mikið áfall Rfkisspítalar greiddu 21 milljón kr. í dráttarvexti sl. ár. „ÞETTA er gífurlegt bakslag. Mér virtist rækjuneyzla á erlendu mörk- uðunum vera að aukast, en í kjölfar undirboða Norðmanna og áfallsins með Asíurækjuna í Hollandi, liggur rækjuneyzlan nánast niðri á megin- landi Evrópu og England getur ekki tekið við öllu framboðinu, auk þess, sem verð hefur lækkað verulega. Nú virðist rækja bara vera sett í sam- band við blóðkreppusótt eða ein- hverja hitabeltissjúkdóma, sem ekki þekkjast hér. Við verðum hins vegar að reyna að þreyja Þorrann, en ef ekki rætist fljótlega úr, gæti orðið þröngt í búi víða,“ sagði Theódór Norðkvist, framkvæmdastjóri rækjuverksmiðju O.N. Olsen hf. á ísafirði í samtali við blm. Morgun- blaðsins. Theódór sagði ennfremur, að nú væri góð rækjuveiði í Djúpinu en hráefni þó ekki enn nægilegt til að komast hjá uppsögnum. Þurft hefði að segja upp 10 manns i verksmiðjunni um áramótin vegna hráefnisskorts. Ljóst væri að Djúprækjan dygði ekki ein sér og því hefði verið brugðið á það ráð að leigja hafrannsóknaskipið Haf- þór, ásamt tveimur öðrum vinnslustöðvum, til úthafsrækju- veiða, sem hæfust líklega í marz. Það væri því ekki aftur snúið þó horfur væru slæmar nú og birgðir talsverðar. * Davíð A. Gunnarsson, forstjóri ríkisspítalanna: Tölvuvæðing talin spara talsvert fé NÚ ER verið að tölvuvæða ríkisspít- alana og skráir kerfið annars vegar upplýsingar um sjúklinga og með- ferð þeirra og hins vcgar er hægt í kerfinu að fylgjast með fjárhags- stöðu einstakra deilda á hverjum tíma, starfsmannafjölda og fleiru. Búist er við að með tölvuvæðingu ríkisspítala sé hægt að spara tals- verðar fjárhæðir, samkvæmt upp- Útigangslamb frá Sauðanesi virðist þrífast vel í Strákum FYRIR skömmu varð vart við úti- göngulamb í fjallinu Strákum. Hafði það villzt undan við göngur í haust og lent í sjálfheldu og því talið af. Ekki er unnt að ná lamb- inu enn, en það virðist hafa það gott og eiga sér öruggan næturstað í fjallinu því það hverfur alltaf þeg- ar fer að rökkva. Það hefur nú gengið sjálfala þarna í um fimm mánuði. Það er Trausti Magnússon, vitavörður á Sauðanesi, sem á lambið, en dóttir hans, Vilborg, sagði í samtali við Morgunblað- ið, að þau væru himinlifandi yfir því að lambið væri komið í leit- irnar og virtist vel haldið. Sagði hún, að síðastliðið sumar hefðu um 20 kindur gengið í Strákun- um og þau á Sauðanesi saknað 7 kinda í haust og hefði aðeins þetta lamb komið fram. Það hefði eins og áður sagði lent í sjálfheldu ásamt öðru lambi, sem líklega hefði drepizt. Trausti faðir sinn hefði reyndar verið búinn að ná þessu lambi í haust er hann hefði verið í Strákunum ásamt fleiri mönnum, en orðið að skilja það eftir. Vilborg sagði ennfremur, að ekki væri mögulegt að komast að lambinu nú vegna snjóa- og ísa- laga, en daglega væri fylgzt með því í kíki. Það virtist hafa nóg að éta og vera vel haldið, að minnsta kosti sæist á því horna- hlaup. Lambið hyrfi alltaf undir rökkur og virtist hafa fundið sér góðan næturstað í einhverju gili í fjallinu. Vitavörðurinn á Sauðanesi er með um 100 kindur. lýsingum sem Mbl. fékk hjá Davíð Á. Gunnarssyni, forstjóra ríkisspít- alanna. Þá sagði Davíð að Stjórnar- nefnd ríkisspítala hefði gert um- fangsmiklar tillögur um hvernig hægt væri að standa að sparnaði á launalið og öðrum rekstrar- gjöldum, í samræmi við stefnu- yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um þessi efni. Samkvæmt stefn- unni um sparnað um 2,5% á launalið og um 5% sparnað á öðr- um rekstrargjöldum, sagði Davíð að spara þyrfti á bilinu 40 og 50 milljónir. Einn liður í sparnaði er sá að breyta vinnutíma og hefur nú síð- ast verið breytt vinnutíma hjúkr- unarfólks, þannig að það mætir nú klukkan 8.00, en ekki klukkan 7.30, eins og áður var. Ennfremur sagði Davíð að læknum hefði ver- ið fækkað og dregið hefði verið úr yfirvinnu. Af öðrum sparnaðarhugmynd- um nefndi Davíð að rætt væri um að draga úr loftræstingu á næt- urnar, sem spara myndi rafmagn, minnka ljósanotkun, skipta sjaldnar um á rúmum, draga úr lyfjanotkun, ræsta minna og skipulegar. Þá nefndi Davíð að í ár væri reiknað með því að ríkisspítalar slyppu við að greiða dráttarvexti á þessu ári, en í fyrra greiddu spítalarnir samtals 21 milljón króna í dráttarvexti. Sú háa upp- hæð stafar af því að fjárlög hafa ekki verið raunhæf, að sögn Dav- íðs. Sagði hann að ef fjárlögin færu úr böndunum yrði erfitt að halda utan um reksturinn. Erfiðleikar í ófærðinni NOKKRIR erfiðleikar urðu í um- ferðinni í Reykjavík og nágrcnni í gær vegna mikillar ofankomu. Einkum átti fólk í vandræð- um í Breiðholti og á milli Hafn- arfjarðar og Reykjavíkur, en einnig víðar. Til dæmis var ófært um götur Keflavíkur í gærmorgun. Samkomum varð víða að fresta. Flug fór úr skorð- um innanlands og ferjuflugvélar á leið til Reykjavíkur lentu á Akureyri. í gærmorgun stóð til að vígja nýju stólalyftuna í Blá- fjöllum, en því varð að fresta vegna ófærðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.