Morgunblaðið - 05.02.1984, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984
18
Könnun Vinnueftirlits ríkisins:
Sex illkynja mesótelíóma-
tilfelli greindust 1965—82
Parket-viðargólf
frá Tarkett
Tarkett er stærsti parketframleiðandi veraldar
í dag.
Tarkett hefur framleitt viðargólf í 100 ár.
Tarkett-parket fæst í fjölbreyttu úrvali m.a.
eik, beyki, aski, demantsfuru o.m.fl.
i Tarket-parket er allt fulllakkað og tilbúið til
lagningar.
Harðviðarval h.f.
Skemmuvegi 40,
sími 74111.
KAUPÞING HF
í KÖNNUN sem Vinnueftirlit ríkis-
ins og Rannsóknarstofa Háskólans
gengust fynr í sameiningu, greind-
ust sex tilfelli hér á landi af illkynja
mesótelíóma-sjúkdómi á árunum
1965 til 1982. Tíðni sjúkdómsins
virðist svipuð hér á landi og í Bret-
landi og N-Ameríku og hefur tilfell-
um heldur farið fjölgandi á undan-
förnum árum. Könnunin bendir til
að asbestmengun sé algengari meðal
þeirra sem fengu sjúkdóminn en hjá
viðmiðunarhóp, sem valinn var til
samanburðar. Spurningalistar voru
lagðir fyrir aðstandendur hinna
látnu, en kerfisbundin leit var gerð í
skrám Krabbameinsfélags íslands
og Rannsóknarstofu Háskólans, að
því er fram kemur í greinargerð
Vinnueftirlits ríkisins.
Erlendar rannsóknir benda til
þess að auk þess að stórauka
hættu á illkynja mesótalíóma,
valdi innöndun asbestryks aukinni
tíðni lungnakrabbameins. Andi
menn að sér asbestryki í miklum
mæli getur það einnig valdið
vefjabreytingum í lungum, en ekki
er kunnugt um að slík tilfelli hafi
komið upp hérlendis.
Asbest hefur verið notað um
áratuga skeið á (slandi í ýmsum
tilgangi. Talið er að hættan sé
fyrst og fremst fólgin í því að
menn andi að sér asbestryki. Ljóst
er að mest hætta stafar af asbesti
á vinnustöðum en menn geta einn-
ig orðið fyrir mengun af völdun
efnisins annars staðar.
Vinnueftirlit ríkisins dregur þá
ályktun af framangreindum rann-
sóknarniðurstöðum að takmarka
beri asbestnotkun hérlendis eins
og framast er mögulegt. Þegar
hafa tekið gildi reglur sem banna
innflutning og notkun asbests
nema í undantekningartilvikum,
en slíkar undanþágur verða tak-
markaðar eins og kostur er. Sam-
kvæmt þessum reglum ber þeim
sem óska eftir að nota asbest og
vörur úr asbesti að sækja um
heimild til þess til Vinnueftirlits
ríkisins sem getur veitt undan-
þágu til notkunar asbests þegar
óhjákvæmilegt er að nota það og
ber þá að gera ítarlegar varúðar-
ráðstafanir til að draga úr meng-
un og tryggja að starfsmenn séu
eins vel varðir gegn menguninni
og kostur er.
Sjúkdómurinn illkynja mesótel-
íóma er æxli vaxið frá brjóst-
himnu, sem umlykur lungu og
klæðir innan innri vegg brjóst-
kassans, eða lífhimnu, sem umlyk-
ur líffærin í kviðarholinu. Sjúk-
dómurinn er sjaldgæfur en á und-
anförnum árum hefur tíðni mesót-
elíóma vaxið i nágrannalöndum
okkar og hefur sú aukning verið
rakin til aukinnar asbestmengun-
ar fyrir nokkrum áratugum. Hef-
ur samband þessa sjúkdóms og
asbestmengunar komið æ betur í
Ijós m.a. í nýjum rannsóknum frá
Bandaríkjunum og Kanada.
Venjulega líður langur tími frá
því að menn verða fyrir asbest-
mengun þar til mesótelíóma hefur
myndast og vaxið þannig að það
greinist. Sjúkdómurinn leiðir yfir-
leitt til dauða nokkrum mánuðum
frá því hann greinist og enn sem
komið er hafa læknisaðgerðir, svo
sem uppskurður, lyfjameðferð eða
geislalækningar haft lítil sem eng-
in áhrif á gang hans. Talin er
meiri hætta á sjúkdómnum eftir
því sem asbestmengunin er meiri,
en grunur leikur á að sjúkdómur-
inn geti komið fram þó mengun
hafi verið fremur lítil. Þannig
hafa verið leiddar að því líkur að
ættingjum þeirra sem vinna í mik-
illi asbestmengun og bera með sér
asbestryk heim úr vinnunni sé
hættara við sjúkdómnum en öðr-
um. Rannsóknir benda til að sum-
ar asbesttegundir leiði frekar
en aðrar til þessa sjúkdóms, en
gera verður ráð fyrir að allar teg-
undir asbests séu hættulegar í
þessu tilliti.
Síðastliðið haust tóku gildi regl-
ur sem banna notkun asbests á Is-
landi nema í undantekningartil-
vikum. Ljóst er þó að áfram verði
unnið með asbest á ýmsum vinnu-
stöðum vegna viðhalds búnaðar
sem inniheldur asbest, við niðurrif
bygginga úr asbesti, viðhald hita-
veitulagna o.fl. Fróðlegt þótti að
athuga hvort illkynja mesótel-
ióma hefði orðið vart á íslandi, en
lauslegar upplýsingar frá læknum
og meinafræðingum bentu til þess
að slík tilfelli hefðu greinst.
Ákveðið var að gera á þessu skipu-
lega rannsókn og var hún fram-
kvæmd í samstarfi Vinnueftirlits-
ins og Rannsóknarstofu Háskól-
ans í meinafræði. Var rannsóknin
framkvæmd þannig að leitað var
kerfisbundið í skrám Krabba-
meinsfélags (slands og Rannsókn-
arstofu Háskólans, en síðan kann-
aðar sjúkra- og krufningsskýrslur
og farið yfir niðurstöður vefja-
greininga.
s«86988
STORKOSTLEGT TÆKIFÆRI
25 MÁNUÐIR OG 10 ÁR
eiþú átt 200.000 kr.
KAUPÞING HF
___Húsi Verzlunarinnar, 3. hæð simi 86988
Erum með í sölu 3ja og 4ra herbergja íbúðir í
þessu glæsilega húsi í miðbæ GARÐABÆJAR
þar sem þú hefur: - stórkostlegt útsýni
- tvennar svalir - þvottahús og búr í hverri íbúð
— stutt í alla þjónustu — leiksvæði fyrir börn
sameign fullfrágengin
Dæmi um staðgreiðsluverð og greiðslukjör:
200 þús. kr. við undirskrift 480 þús. kr.
á 30 mánuðum. Yfirtekið húsnæðis-
stjórnarlán og eftirstöðvar á skuldabréfi
til 10 ára
Staðgreiðsluverð íbúðar
3ja herb. 102m2 1.596 þús.kr.
Afhentar tilbúnar undir tréverk eftir
18 mánuði
Byggingaraðili: Byggingarfélagið hf.
Sölumenn: Sigurður Dagbjartsson hs. 83135
Margrét Garðars hs. 29542
Guðrún Eggertsd. viðskfr.
Símatími sunnudag kl. 13 til 16.