Morgunblaðið - 05.02.1984, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984
46
íslendingar hafa löngum átt góða fulltrúa á knatt-
spyrnusviði í Belgíu — og þar leika nú fjórir íslendingar:
Sævar Jónsson, Arnór Guðjohnsen, Pétur Pétursson og
Lárus Guðmundsson. Peir hafa allir staðið vel fyrir sínu;
eru góð landkynning eins og oft hefur verið sagt um
knattspyrnumenn okkar á erlendri grund. í Frakklandi
leika nú tveir íslendingar, Karl og Teitur Pórðarsynir. Um
síðustu helgi birtum við samtöl við íslendingana sem
leika í Pýskalandi: nú röbbum við við þá í Frakklandi og
Belgíu — nema hvað ekki náðist í Pétur Pétursson í tíma.
Um næstu helgi birtum við svo viðtöl við þá þrjá sem
eftir eru í „atvinnuflokknunT: Jóhannes Eðvaldsson hjá
Motherwell í Skotlandi, Magnús Bergs hjá Santander á
Spáni og Pétur Pétursson hjá Antwerpen í Belgíu.
Arnór Guójohnsen, Anderlecht:________
„Þetta er búið að vera
erfitt tímabil fyrir mig“
LÁNIÐ hefur ekki leikið viö Arnór
Guðjohnsen á þessu keppnis-
tímabili. Arnór varð fyrir því
óhappí í landsleik með íslandi að
meiðast og endirinn varð sá að
Arnór varð að gangast undir upp-
skurð og er ekki enn orðinn góð-
ur. Að sögn Arnórs kom í Ijós þeg-
ar hann var skorinn upp að vöðva-
festingar efst á lærvöövanum inn
viö beinið höfðu rifnað og komin
var ígerð í meiðslin. Læknirinn
vildi kenna því um aö Arnór hafði
reynt að æfa lítillega og samfara
bólgu í meiðslunum kom ígerðin.
Arnór var skorinn upp ytra af
þekktum skurðlækni sem fullyrti
að hann mundi verða fullkomlega
jafngóður. En þaö mun taka nokk-
urn tíma áður en allt er komið í
samt lag.
— Ég er búinn að hlaupa lítil-
lega í þrjár vikur, en má ekkert
sparka bolta. sagði Arnór er við
spjölluöum við hann fyrir helgina.
— Það er nokkurn veginn alveg
Ijóst að ég fer ekki að leika
knattspyrnu fyrr en um miöjan
mars eða jafnvel ekki svo snemma.
Ég er með örlítinn seiöing enn í
laerinu og finn til þegar ég tek
eitthvaö á að ráði. Ég á að mæta i
ýtarlega læknisskoöun á þriðjudag-
inn og þá fæ ég aö vita hvenær ég
má fara aö æfa rólega. Svona er nú
knattspyrnan. Annan daginn geng-
ur manni allt í haginn en svo er
stutt í mótlætiö.
— Þetta er búiö að vera mér
mjög erfitt tímabil. Ég er pirraöur
og oft uppstökkur, þetta leggst
þungt á mann að geta ekkert æft
og verða að horfa á alla leiki. En
þetta er líka viss reynsla sem gefur
manni góðan þroska. Lífið er ekki
dans á rósum það veit maöur og
maður herðist af mótlætinu. Maður
veit að þetta getur alltaf komið fyrir
í knattspyrnunni hvenær sem er.
— Ég var kominn í skínandi
góða æfingu í upphafi keppnistíma-
bilsins gekk vel og féll vel inn í leik
Anderlecht-liðsins. Ég náöi aö
skora falleg mörk og bæði í deild-
inni og í Evrópukeppninni og var
bjartsýnn á framhaldiö þegar þetta
áfall kom. Nú er þetta keppnistíma-
bil farið að mestu leyti fyrir lítið
sem ekki neitt.
— Leikmenn Anderlecht-liösins
hafa verið yfir höfuö frekar óheppn-
ir á keppnistímabilinu þaö hefur
veriö mikiö um meiösli. Þaö hefur
sett strik í reikninginn hjá félaginu
og ég á ekki von á því aö liðið verði
í baráttunni um toppætiö í ár. En
Anderlecht á góöa möguleika í bik-
arkeppninni og gæti vel sigrað í
henni. Þá hefur liðiö líka leikið mjög
vel í Evrópukeppninni.
— Að mínum dómi þá mun Bev-
eren halda sínu striki og sigra í
deildinni í ár, og er þaö nokkuö
óvænt. Ég held að enginn hafi
reiknaö með því.
Já svona getur það veriö hjá at-
vinnuknattspyrnumönnunum. Heilt
keppnistímabil fer forgörðum
vegna meiðsla. Arnór haföi leikiö
afar vel í haust meö hinu fræga liði
Anderlecht. En Arnór gerði samn-
ing viö félagið síöastliöiö sumar.
Arnór var á síðasta keppnistímabili
kjörinn einn besti leikmaöur í 1.
deild í Belgíu og hann hefur marg
sýnt það að hann býr yfir geysileg-
um hæfileikum sem knattspyrnu-
maður. Á því leikur enginn vafi aö
hann á eftir að ná sér að fullu og
nýta hæfileika sína og krafta og
komast í fremstu röð. Hann er að-
eins 22 ára gamall. Samningur
hans við Anderlecht rennur út i júlí
árið 1985.
— ÞR
Teitur Þórðarson
Lengstu feröir á útileiki eru 1200—1300 km
og standa í 2—3 daga.
Lárus Guðmundsson
í leik
meö Waterschei.
Karl Þórðarson
fyrir miðju veifar til áhorfenda áður
en leikur hefst.
Teitur Þórðarson, Cannes:_____
„Hér er mjög gott að
vera - algjör paradís"
TEITUR Þórðarson gekk til liös
við franska 2. deildarliðið Cann-
es frá samnefndri borg á „Cote
d’Azur", frönsku rívíerunni, síö-
astliðiö haust en áöur haföi
hann leikið meö Lens í 1. deild
viö góöan orðstír. Morgunblaöiö
ræddi við Teit í vikunni og sagöi
hann aö sér og sínum liöi mjög
vel í Cannes. „Hér er virkilega
gott að vera — það má segja aö
þetta sé algjör paradís," sagöi
Teitur.
Cannes hefur náö nokkuö jöfn-
um árangri í 2. deildinni undan-
farin ár; venjulega hafnað í 6. eöa
7. sæti í sínum riöli, en í haust
ákváöu forráðamenn liðsins aö
gera allt sem í þeirra valdi stend-
ur til að koma liöinu upp í 1.
deild. Þeir gerðu þriggja ára
áætlun þess efnis — en ekki virö-
ist liöið ætla aö komast upp úr 2.
deild í vetur.
2. deildinni er skipt í tvo riöla
— efsta liö í hvorum riöli fer beint
upp í 1. deild og lið númer tvö og
þrjú leika viö liö úr hinum riölin-
um um sæti f deildinni. „Þetta
hefur veriö jákvæöara hjá okkur
eftir áramót en fyrri hluta vetrar-
ins. Viö erum nú í 6. sæti og erum
aö nálgast liöin í næstu sætum
fyrir ofan okkur en viö þyrftum á
talsveröri heppni aö halda ef viö
ættum aö komst upp í vetur,"
sagöi Teitur.
Þaö er geysilega stórt fyrirtæki
í Cannes sem stendur á bak viö
liðið — „ööruvisi væri ekki hægt
aö reka atvinnumannalið hér.
Áhuginn fyrir knattspyrnu er ekki
mjög mikill í borginni: áhorfenda-
fjöldi á heimaleikjum er venjulega
um 2.000 manns; fer kannski í
4.000 er vel gengur. Hér býr mik-
iö af kvikmyndastjörnum og ööru
ríku fólki og þaö stundar heldur
fjarhættuspil — fer frekar í spila-
vítin, sem hér er nóg af, en aö
fara á völlinn."
Teitur sagöi aö sér heföi geng-
iö nokkuö vel undanfariö en mjög
illa framan af hausti — „kannski
þaö hafi verið hitanum aö kenna;
þaö er ekki svo auðvelt aö leika í
40 stiga hita, eins og var hér í
fyrstu leikjunum."
Keppnistímabiliö hófst óvenju
snemma í haust; síöast í júlí sem
er þremur vikum fyrr en venju-
lega. Þaö er vegna úrslitakeppni
Evrópukeppni landsliöa sem
veröur í Frakklandi næsta vor,
þannig aö deiidarkeppninni þarf
aö Ijúka snemma. En þrátt fyrir
þaö fá leikmenn ekki lengra
sumarfrí. „Viö fáum lengra frí frá
deildarkeppninni, en verðum við
æfingar og spilum æfingaleiki al-
veg fram í júní. Deildinni lýkur í
endaöan apríl," sagöi Teitur.
Vegalengdir eru miklar i
Frakklandi — landiö er stórt og
oft langt í útileikina. „Þaö lengsta
sem viö þurfum aö fara i útileiki
eru 1.200—1.300 kílómetrar, og
þær feröir standa yfir í þrjá daga!
En í þá leiki sem Frökkunum
finnst vera nálægt okkur förum
við í rútu — og þaö er 10 tíma
feröalag. Viö förum aö vísu alltaf
daginn fyrir leik. En þaö er hreint
ekki gaman aö sitja í rútu svo
lengi. Aö ekki sé nú talað um
þegar sólin skín fyrir utan glugg-
ann," sagöi Teitur.
Eins og nærri má geta er veör-
iö yfirleitt hiö besta þarna syöra
enda sagöi Teitur aö menn yröu
ekki mikið varir viö aö nú væri
vetur. „Maöur gengur hér um á
einni peysu. Veöriö er „mjög
þokkalegt" núna og sæmilega
frískt loft á kvöldin. Þá er ekki
eins heitt og yfir daginn."
Teitur geröi tveggja ára samn-
ing viö Cannes; er því samn-
ingsbundinn félaginu til haustsins
1985, og ekki sagöist hann vita
hvað þá tæki viö. „Ég er ekki far-
inn aö hugsa um þaö enda nógur
tími til stefnu."
— SH