Morgunblaðið - 16.02.1984, Side 48

Morgunblaðið - 16.02.1984, Side 48
SIAÐFESTIÁNSIRAUST FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Verðlag á ýmsum vörum gefið frjálst 1. marz nk. Verðlagsstofnun mun eftir sem áður sjá um ákveðna verðgæzlu VEKÐLAGSRAÐ samþykkti á fundi sínum í gærdag, með hliðsjón af samkeppnisaðstæðum, að fella niður hámarksálagningu í heildsölu og smásölu á nokkrum vörutegundum frá 1. marz nk. Vörutegundirnar eru Morgunblaðið/ Sigurgeir. Hængurinn skilinn frá hrygnunni, en aðeins kvenloðnan er fryst. Loðnufrysting hafin í Eyjum Voutitiftnneovnim I fnkninr “ Veatmannaeyjum. 15. febnjar A l'KSSARI loðnuvertíð er aðeins ráð- gert að frysta 300 tonn af loðnu, sem er það magn sem Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna hefur þegar gert sölu- samning um. Alls er talið óvíst að um frekari sölumöguleika verði að ræða á frystri loðnu. I'að eru fjögur frystihús í Vestmannaeyjum, sem hafa tekið að sér að frysta þessi 300 tonn, 75 tonn á hvert hús. Frysting hófst í gær, þegar Kap II VE-4 kom með 230 tonn. Kap landaði aftur í dag 150 tonnum. Samkvæmt mælingum, sem gerð- ar voru í gær úr sýnum úr afla Kap II, var hrognafylling loðnunnar komin í 17,6%, en þegar hún er komin yfir 20%, er loðnan talin hæf til hrognakreistingar. Er jafnvel búist við því að það verði um eða eftir næstu helgi. Loðnubræðslurn- ar hér búa yfir mjög fullkomnum tækjum ti' hsss að kreista hrogn úr loðnunni og frystihúsin ætla sér stóran hlut af þeim 3.000 tonnum af Liverpool til íslands ENSKA knattspyrnufélagið Liv- erpool kemur hingað til lands í haust og leikur gegn KR. KR á 80 ára afmæli á þessu ári og er leik- urinn liður í afmælisdagskrá fé- lagsins. Leikurinn fer líklega fram sunnudaginn 12. ágúst. Sjá nánar á íþróttasíðu. loðnuhrognum sem Sölumiðstöðin hefur samið um sölu á til Japans. Loðnubræðslurnar tvær hafa tekið við tæplega 30.000 tonnum af loðnu frá áramótum. — H.KJ. matvara, nýlenduvara, hreinlætis- og hjúkrunarvörur, snyrtivörur, papp- írsvörur til heimilisnota og plast- og álfilmur til heimilisnota. Jafnframt samþykkti Verð- lagsráð, að fella framleiðsluverð- lagningu á kaffi, gosdrykkjum, öli og niðursoðnum fiskbollum og -búðingi undan verðákvörðun Verðlagsstofnunar og fella niður hámarksverð á smjörlíki, brauði og unnum kjötvörum. Verðákvörð- un síðastnefndu vörutegundanna verður þó háð samþykkt Verð- lagsstofnunar. „Ábyrgðin verður ekki bara í höndum verzlunarinnar. Verð- lagsstofnun mun áfram gegna þýðingarmiklu hlutverki við að fylgjast með verðmyndun og verð- þróun, skýra orsakir verðbreyt- inga og miðla upplýsingum til stjórnvalda og almennings," sagði Matthías Á. Mathiesen, viðskipta- ráðherra, í samtali við Mbl. „Þáttur almennings í verðgæzl- unni verður ekki síztur. Ein af megin forsendum virkrar sam- keppni er öflugt verðskyn og að- hald neytenda. Neytendur mega því ekki sofa á verðinum, þar sem opinbert eftirlit getur aldrei kom- ið í staðinn fyrir árvekni og dómgreind hins almenna kaup- anda,“ sagði Matthías Á. Mathie- sen ennfremur. Sjá ennfremur viótal við við- skiptaráðherra og frétt um fram- kvæmd verðgæzlunnar í miðopnu. Forsetakosningar: Vigdís verð- ur í kjöri MORGUNBLAÐINIJ barst í gær yfirlýsing frá forseta íslands þar sem segir: „Þeim tilmælum hefur verið beint til mín að ég gefi kost á mér við forsetakjör, sem fram á að fara á komandi sumri, fyrir kjörtímabilið 1984—1988. Eg hef ákveðið að verða við þessum tilmælum." Reykjavík, 15. febrúar 1984, Vigdís Finnbogadóttir. Arnarflug kærir Flugleiðir fyrir ofreiknuð tryggingargjöld: Krefja Flugleiðir um sjö milljónir króna ÁGREININGUR er nú risinn með Arnarflugi og Fiugleiðum um tryggingar- greiðslur af flugvélum Arnarflugs á árabilinu 1978—1982, en á því árabili höfðu félögin samvinnu sín á milli um tryggingarmál og sáu Flugleiðir um að inn- heimta og greiða tryggingargjöldin. Telur stjórn Arnarflugs, að félagið hafi verið látið greiða mun hærri upphæðir fyrir tryggingar af vélum félagsins en þær kostuðu. Á stjórnarfundi Arnarflugs í gærdag var síðan tekin ákvörðun um að skjóta ágreiningsmáli þessu til dómstóla. Agnar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Arnarflugs, sagði í samtali við Mbl., að samkvæmt þeim skjölum, sem Flugleiðir hefðu látið af hendi varðandi tryggingar á vélum félagsins síðasta tryggingar- árið, væri ljóst, að Arnarflug hefði verið látið greiða um 240 þúsund dollurum meira fyrir tryggingarnar en þær kostuðu, eða liðlega 7 millj- ónum króna á núverandi gengi. nTryggingarkostnaðurinn hjá hinu enska tryggingarfyrirtæki á árinu 1982 var um 150 þúsund doll- arar, sem svarar til um 4,4 milljóna króna á núverandi gengi. Hins veg- ar var Arnarflugi gert að greiða 390 þúsund dollara til Flugleiða, sem nemur liðlega 11,4 milljónum króna," sagði Agnar Friðriksson. Agnar Friðriksson sagði aðspurð- ur, að Flugleiðir hefðu neitað Arn- arflugi um skjöl varðandi trygg- ingar féiagsins á árabilinu 1978- 1981. „Við getum því ekki fullyrt nákvæmlega hvort eða hversu mik- ið við höfum þurft að greiða um- fram það sem tryggingarnar kost- uðu á því árabili." „Það hafa staðið yfir samninga- viðræður milli félaganna á undan- förnum mánuðum, en í þeim hefur engin niðurstaða fengizt og því tók stjórn félagsins ákvörðun í gærdag um að skjóta málinu til dómstóla," sagði Agnar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Arnarflugs, að end- ingu. * Qhappið á Keflavíkurflugvelli á sunnudaginn: Tölur um bremsuskilyrði ekki marktækar þegar ég fékk þær — segir flugstjóri á Langfara Flugleiða „ÞAÐ Á ekki að vera neinum vandkvæðum bundið að stöðva þotuna á 2.150 metrum jafnvel þó það væri rétt að ég hefði snert brautina innan við 7 þúsund feta merkið. Ég tel að ég hafi snert miklu fyrr og átt um átta þúsund fet eftir, eða rúmlega 2.600 metra. Og það er ekki rétt, að ég hafi komið of hátt inn til lendingar, lendingin var fullkomlega eðlileg og eftir þeim geisla, sem ég hafði ætlað að lenda eftir,“ sagði Daníel Pétursson, flugstjóri hjá Flugleiðum, í samtali við blaðamann Mbl. í gærkvöld. Daníel var flugstjóri á l-angfara, flugs FI621, sem fór út af flugbrautinni á Keflavíkurflugvelli sl. sunnudag. Daníel sagðist vera hissa á fréttatilkynningu þeirri um at- burðinn, sem flugmálastjóri sendi frá sér í gær. Þar segir m.a.: „Að sögn margra sjónarvotta lenti flugvélin við eða innar en 7.000 feta merki flugbrautarinnar, þ.e. um 900 metra inn á brautinni frá brautarenda. Til þess að stöðva flugvélina voru því eftir um 2.150 metrar af flugbrautinni. Nægði það ekki og fór flugvélin fram af brautarendanum, yfir 60 metra öryggissvæðið og um 30 metra út yfir það ..." „Skömmu fyrir lendinguna voru mér gefnar upp tölur um bremsu- skilyrði á brautinni, 0.30, 0.39 og 0.40. Turninn bætti svo við í fram- haldi af því að brautin væri að Daníel Pétursson, flugstjóri á Langfara: Tel mig hafa átt um 2.600 metra eftir en ekki 2.150 metra... frjósa, runway is freezing," sagði Daníel. „Eg taldi víst, að í þessum tölum — sem merkja sæmileg bremsuskilyrði, sæmileg til góð og góð — væri frystingin tekin með í reikninginn. Það virðist ekki hafa verið og því voru tölurnar ekki lengur marktækar þegar ég stað- festi móttöku þeirra. Annars tel ég ekki rétt að vera að tala mikið meira um þetta í bili. Loftferðaeftirlitið hefur ekki lokið rannsókn sinni á málinu og á með- an er ástæðulaust að vera að slá einhverju föstu um orsakir óhappsins, eins og þó virðist búið að gera,“ sagði Daníel Pétursson flugstjóri. Fréttatilkynning Flugmála- stjórnar er birt í heild í miðopnu blaðsins í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.