Morgunblaðið - 27.03.1984, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1984
Ritstjóri
Nýtt lif
tískublaö
Frjálst framtak hf. óskar aö ráða ritstjóra að einu
af tímaritum sínum, Nýju líffí, tískublaöi.
Leitað er að mjög hæfum starfsmanni sem uppfyll-
ir m.a. eftirfarandi kröfur:
1. Er sjálfstæður.
2. Hefur næma tilfinningu fyrir fólki, lífinu og til-
verunni.
3. Hefur frjótt ímyndunarafl.
4. Er smekkvís.
5. Hefur reynslu í blaðamennsku (æskilegt):
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og býöur þar aö
auki upp á vinnu með fjölda af hressu og duglegu
fólki í hraðvaxandi fyrirtæki. Þeir sem áhuga hafa
á að sækja um starfið leggi vinsamlegast inn
skriflega umsókn með ítarlegum uppl. um þau at-
riði sem máli gætu skipt við mat á hæfni.
Meö allar umsóknir verður farið með sem algjört
trúnaðarmál og öllum verður svarað.
Frjálst framtak hf.,
Ármúla 18, sími 82300.
BVARTA
_ OFURKRAFTUR -
” ótrUleg ending
:»111
SAMAN
VERÐ OG
Eyðirðu stórfé í rafhlöður?
Þá skiptir máli að velja þær
sem endast best.
Hefur þú reynt VARTA rafhlöður?
í flokki algengustu rafhlaðna,
leiðir verðkönnun
verðlagsstofnunar í Ijós
að VARTA rafhlöður
eru með þeim ódýrustu-
VERÐKÖNNUN
Rafhlöftur fyrir vasaljós,
útvörp, segulbönd, rafknúin
leikföng og fl. (R 20)
3
(D
(0
8
Q.
C
VarTA
0:
c
«-♦
<2
c
3
a
3
Q>
B:
Varta super 21.35
Berec power 22.25
Wonder top1* 23.00
Hellesens rauð .. . 25.00
Nationai super 27.00
C:
Phillps super 19.75
Varta high
performance2* 25.10
Wonder super 26.40
Ray-O-Wac
heavyduty 27.00
Varta super dry 29.05
Berec power plus 30.25
Hellesens gold 34.00
Við erum óhræddir við samanburð -
VARTA vestur þýsk háþróuð framleiðsla
VARTA GÆÐIÁ GÓÐU VERÐI
ávallt í leiðinni
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Kýpurfrumkvæði de Cuellar vekur
vonir um lausn á „manneskjulegum
harmleik“ og pólitísku vandamáli
TÍU mánuöir eru liðnir síðan fulltrúar Kýpur-Grikkja og Kýpur-Tyrkja
slitu viðræðum um framtíðarskipan á eynni og nokkru síðar lýstu hinir
síðarnefndu yfír stofnun sjálfstæðs ríkis á þeim hluta eyjarinnar sem
Tyrkir hafa hersetið síðan í innrásinni sumarið 1974. Er það svæði um
fjörutíu prósent af flatarmáli Kýpur. Engin samskipti eru milli Kýpur-
Grikkja og Kýpur-Tyrkja og sá hluti sem Tyrkir ráða er nánast lokað
land, í orðsins fyllstu merkingu. í innrásinni flýðu þúsundir Kýpur-
Grikkja norðan úr landinu undan Tyrkjum, einkum þó frá Famagusta,
sem var eftirsóttur ferðamannastaður, en mun nú vera eins konar
draugaborg. Mikill heiftarhugur er milli þjóðarbrotanna og hann minnk-
ar ekki eftir því sem árin líða og skipting eyjarinnar verður æ sterkari
raunveruleiki.
að vakti því athygli og
kveikti vonarneista, að
Perez de Cuellar, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, hef-
ur nú haft frumkvæði að því að
viðræður hefjist á ný. Hann hef-
ur rætt við fulltrúa Kýpur-
Grikkja og fulltrúa Kýpur-
Tyrkja og hitti til dæmis að máli
Rauf Denktash, leiðtoga þeirra
síðarnefndu, sem hét því að gefa
framkvæmdastjóranum ein-
hvers konar svar innan tveggja
vikna eða svo. Fengjust aðilarnir
þó ekki væri nema til að setjast
að samningaborðinu aftur væri
vel af stað farið, að mati frétta-
skýrenda.
Kýpur-málið er stundum kall-
að „vandamálið gleymda" vegna
þess hve takmarkaður þrýsting-
ur hefur verið af hálfu erlendra
ríkja á báða deiluaðila til að
reyna að leiða það til lykta. Og
fjölmargir hafa til dæmis alls
enga hugmynd um, að höfuð-
borgin Nikósía er skipt borg, þar
sem öll umferð milli borgarhlut-
anna er stranglega bönnuð, öðr-
um en fulltrúum Sameinuðu
þjóðanna, sem hafa lið á gríska
hlutanum. Sjálfir kalla Kýp-
urbúar málið „manneskjulegan
harmleik" og þrátt fyrir hatur
og beizkju myndi hinn almenni
Kýpurbúi án efa fagna því ef
tækist að sameina eyjuna á ný.
Enn eru tyrkneskir hermenn á
norðurhluta Kýpur. í samtali við
Newsweek nú á dögunum sagði
Evren, Tyrklandsforseti, að þeir
myndu vera þar unz tekizt hefði
að finna lausn á málefnum Kýp-
ur. Ekki ber mönnum ásamt um,
hversu margir tyrkneskir her-
menn séu að staðaldri á Kýpur,
Tyrkir segja töluna vera um 17
þúsund, en álitið er að þeir séu
ailmiklu fleiri, allt að tuttugu og
fimm þúsund.
Hið nýja „lýðveldi" á Norður-
Kýpur hefur aðeins hlotið opin-
bera viðurkenningu Tyrklands,
en aftur á móti nýtur ríki Kýp-
ur-Grikkja alþjóðlegrar viður-
kenningar.
Svo að vikið sé á ný að atbeina
Perez de Cuellar, skal þess getið
að hann mun hafa borið fram
ýmsar tillögur, sem kynnu að
liðka fyrir því að menn sættust á
að hefja viðræður. Ekki hefur
verið greint frá því í hverju
hugmyndir hans felast, en
stjórnmálasérfræðingar segja að
mest sé um vert að de Cuellar
hafi gert fulltrúum skýra grein
fyrir því, að ekki megi dragast
öllu lengur að koma á fundum
vegna þess hve tíminn vinnur
ótvírætt gegn framvindu mála á
Kýpur, í stað þess að vinna með
henni. Það er vitanlega einnig
mikið áhugaefni stjórnanna í
Ankara og Aþenu að eitthvað sé
aðhafst; þrívegis hefur mjóu
munað að til styrjaldar kæmi
milli þessara tveggja erkifjenda,
Tyrkja og Grikkja, vegna Kýp-
urmálsins. Atlantshafsbanda-
lagið hefur að sönnu öðru hverju
reynt að hvetja til sátta og
samningagerða, enda bæði
Tyrkland og Grikkland mikilvæg
aðildarlönd. En þær tilraunir
hafa að engu orðið.
Perez de Cuellar er sagður
hafa skorað á Rauf Denktash,
forvígismann á N-Kýpur, að
draga til baka sjálfstæðisyfirlýs-
inguna og stefna að því að koma
á laggirnar sambandsríki á
eynni, þar sem bæði þjóðarbrot-
in nytu jafnréttis. Denktash hef-
ur sagt að hann hafi hvorki ját-
að né neitað þessum tilmælum
en muni gefa svar fljótlega eins
og áður var vikið að. Nú er það
svo sem fjarri því að vera ný
hugmynd, að einhvers konar
sambandsríki verði sett á lagg-
irnar á Kýpur; það var svona
hálfgildings það fyrirkomulag
sem var þegar innrás Tyrkja var
gerð sumarið 1974. En eins og
alkunna er gekk sambúðin ekki
snurðulaust, Grikkir töldu sig
ekki hafa þaú áhrif sem þeim
bæri vegna þess hversu miklu
fjölmennari þeir eru. Tyrkir
kvörtuðu svo hástöfum yfir því
að Grikkir litu á sig sem herra-
þjóð og undirokuðu þá. Og sjálf-
sagt hafa báðir haft nokkuð til
síns máls. Nú er það hins vegar
svo að skipting Kýpur er því
meira harmsefni — fyrir utan að
vera pólitískt vandamál og það
vont — vegna þess að á síðustu
áratugum fyrir innrásina hafði
blóðblöndun milli Grikkja og
Tyrkja færzt í vöxt. Það eru því
æði margir sem telja til blóð-
bandaskyldleika við báða. Og
margt af því fólki hefur búið við
mjög bágar aðstæður síðustu tíu
árin, v^gna þess að hvorki
Kýpur-Grikkir né Kýpur-Tyrkir
geta alfarið hafnað þessu fólki
— né heldur tekið það inn í sam-
félag sitt.
Það hefur ekki verið vænt útlit
á Kýpur síðan Denktash og fé-
lagar lýstu yfir lýðveldisstofn-
uninni. En margir hafa orðið til
að lofa margnefndan atbeina
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, og það skyldi þó aldrei
vera að vilji til viðræðna og
sæmandi málalykta væri í sjón-
máli.
(Heimildir AF — Newsweek — A (’ase of
lluman Tragedy — ('umhuriyet o.fl.)