Morgunblaðið - 27.03.1984, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1984
19
Orgeltónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
N.Bruhns/Prelúdía í e-moll
M.Reger/Inngangur og passakaglia
í d-moll
Þorkell Sigurbjörnsson/Kóralfanta-
sía yfir sálmalagið Auf meinen lieb-
en Gott
J.A. Guilain/Svíta á öðrum tóni
L.Böellmann/Gotnesk svíta op. 25.
Hörður Áskelsson orgelleikari í
Hallgrímskirkju hélt tónleika í
Kristskirkju sl. sunnudag fyrir
nærri fullsetinni kirkju. Fyrir
tónleikana hélt hann smátölu og
sagði lítillega frá hverju verki og
höfundum þeirra. Nicolaus
Bruhns (1665—1697) var nemandi
Buxtehude og starfaði bæði í
Slésvík-Holstein og í Danmörku
og átti mikinn þátt í mótun kant-
ötunnar og gerð orgeltónlistar
ásamt Krieger og Kuhnau. Þykja
tónverk hans vera oft meira „in-
spíreruð" en hann hafði tækni til
að hemja og þannig hljómaði
Prelúdían, sem einskonar röð af
hugmyndum án þess að verulega
væri unnið með þær, sem sumar
hverjar voru þó áheyrilegar og vel
skrifaðar fyrir orgel. Annað
verkið var Inngangur og passa-
kaglia eftir Reger, tignarlegtverk,
sem Hörður lék mjög vel. Þriðja
verkið, Kóralfantasía, eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, lék Hörður einnig
mjög vel. Verkið er sem flest verk
Þorkels byggt á þrástefjaaðferð-
inni og í Kóralfantasíunni notaði
orgelleikarinn mikið „vibrato",
sem gerði það að verkum að á köfl-
um hljómaði það eins og indónes-
ísk Gamelan-tónlist. í lokin reis
tónbálkurinn nokkuð vel og endaði
verkið á einum sterkum tóni. Svíta
á öðrum tóni, eftir Jean Adam
Guilain, var næst á efnisskránni,
en Guilain var þýskt tónskáld og
orgelleikari er starfaði í Frakk-
landi og var auk þess þekktur
fyrir að vera mikill vinur franska
orgelsnillingsins Louis Marchand,
þess er flúði af hólmi fyrir Bach,
svo sem frægt er orðið. Eftir hann
bggja aðallega tónverk fyrir
hljómborðshljóðfæri.
Svítan er ekta frönsk og var fal-
lega leikin af Herði. Síðasta verkið
var svo Gotneska svítan eftir
Boellmann, sem er frægasta verk
hans. Verkið hefst á Inngangi og
kóral og síðan kemur gotneskur
Menuett, skemmtilega unnið verk.
Þriðji kaflinn er bæn og svo ótrú-
legt sem það kann að þykja, er
þetta yndislega lag eins og dæg-
urlag frá 1980, en Boéllmann lést
1897. Verkið endar á Tokkötu, sem
minnir mjög mikið á kvikmynda-
tónlist, einfalt á í gerð en ekki
óáheyrilegt. Hörður Áskelsson er
Metsölublaó á hverjum degi!
Höróur Áskelsson
góður orgelleikari og einkenndist
leikur hans af skýrri mótun hend-
inga og vel útfærðri registreringu.
Það var aðeins í verki Þorkels sem
blæbrigðunum var ofgert, svo að á
köflum hljómaði verkið eins og
austurlensk bjöllutónlist. Það má
deila um það hvort passa-
kaglíu-stefið hjá Reger hefði ekki
mátt vera á skýrara registri, sér-
staklega í upphafi en niðri í kirkj-
unni var röddin nærri hljómlaus.
Nú er að bíða þess að Hörður fái
orgel og kirkju við sitt hæfi til að
þroska sig sem listamann, svo -
hann megi hefja orgeltónlist til
þeirrar virðingar sem hún naut
hér á landi fyrir nokkrum árum er
orgelstólarnir voru setnir af
stórhuga listamönnum.
Jón Ásgeirsson
Ljósritunarvélin
sem beðið
hefur verið
eftir
Engir stenslar, enginn vökvi, aðeins myndvals og eitt
framköllunarefni - duft.
Verð innifelur myndvals fyrir tugþúsundir eintaka.
Kr. 66.600.-
AÐEINS EITT
FRAMKÖLLUNAR- KJARAN
EFNI ARMULI 22 - REYKJAVÍK - SÍMI 83022
Að öllum líkindum tölvan sjálf.
Fyrir það fyrsta þá kostar hún
minna en þú gætir haldið.
IBM PC einkatölva með 128000
stafa vinnsluminni, 83ja tákna
lyklaborði,360000 stafa diskettu,
prentara sem skrifar 80 stafi á
sekúndu, litaskermi, auk nokk-
urra grunnforrita, kostar minna
en nýr smábíll.
Og hún skapar þér aukinn
tíma. Með því m.a. að losa þig
undan svo mörgum tímafrekum
verkum eins og að endurreikna,
endurmeta, endurvélrita, endur-
útgefa, endurvinna og endur-
taka. Hún -getur sparað þér
margar klukkustundir á viku.
H vers virði er hver kíukkustund í
þínu starfi? Hafir þú ekki gert
þér grein fyrir því, láttu þá IBM
PC einkatölvuna leiða þig í allan
sannleikann.
Og annað, hún ætti að geta
hjálpað þér að gera nokkrar
skarplegar ákvarðanir í hverjum
mánuði - t.d. varðandi lausn á
verkeínum, í fiárfestingum, verð-
lagningu, skráningu á upplýs-
ingum, í útgjöldum og bættri
samkeppnisstöðu.
Allt þess eðlis að leiða til meiri
hagnaðar og meiri sparnaðar.
Að lokum, IBM PC einka-
tölvan er fjárfesting í réttari
ákvarðanatökum, betri stjórnun
og framleiðni og þægilegra
vinnuumhverfi - hún er fljót að
borga sig!
Farðu og hittu einhvem söluaðil-
ann fyrir IBM PC einkatölvuna.
Söluumboð fyrir IBM PC einkatölvuna:
Gísli J. Johnsen
Skrifstofubúnaður sf., Smiðjuvegi 8,
Kópavogi, sími 73111
Skrifstofuvélar hf.
Ottó A. Michelsen, Hverfisgötu 33,
Reykjavík, sími 20560
Örtölvutækni sf., Ármúla38,
Reykjavík, simi 687220
LITTLB TRAMP CHARACTER L1CBN8BD BY BUBBLES, INC.. 8.A.