Morgunblaðið - 27.03.1984, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1984
25
ÍÉÉÍ
I./ Júlíus.
snjöllu
Ifsögöu
Sigurganga FH-inga heldur áfram
Allt á suðupunkti í
leik Víkings og FH
VIKINGAR velgdu FH-ingum svo sannarlega undir uggum þeg-
ar liöin mættust í fyrstu umferö íslandsmótsins í handknattleik
í íþróttahúsi Seljaskóla á sunnudagskvöldið. Reyndar má
segja að fleiri hafi volgnað en FH-ingar, því á tímabili var allt á
suðupunkti í húsinu, hvort heldur var inni á veilinum eða í
stúkunni. Það var varla fyrr en flautað haföi verið til leiksloka
aö menn gáfu sér tíma til að líta á markatöfluna, svo mikið
gekk á undir lok leiksins. Þá kom í Ijós að FH-ingar höföu
sigrað með eins marks mun, skoruðu 25 mörk en Víkingur 24
og geta FH-ingar verið meira en lítið ánægðir með þann sigur.
í hálfleik skildi og eitt mark, 15—14, þannig að hvort lið gerði
10 mörk í seinni hálfleik.
FH-ingar náðu fljótlega tveggja
marka forystu, 3—1, en Víkingur
eða öllu heldur Viggó Sigurðsson,
svaraöi með þremur mörkum í röð
og staðan 4—3 fyrir Víking. Krist-
ján jafnaði fyrir FH og upp frá því
var jafnt á öllum tölum fram undir
miðjan hálfleikinn að FH-ingar
komust tvö mörk yfir, 9—7. Krist-
ján Arason var tekinn úr umferð
strax í byrjun leiksins og FH-ingar
svöruðu með því aö taka þá Viggó
og Sigurð úr umferð. Þessar leik-
aðferðir liðanna virtust lítil áhrif
hafa þar sem þessir þrír menn
voru markahæstir í liðum sínum,
'enda sluppu þeir oft úr gæslu.
Tveggja marka forysta FH hélst
áfram og þegar 3 mínúiur voru til
leikhlés bættu þeir enn viö þá for-
ystu með marki Sveins og staöan
15—12. Þeir félagar Guömundur
og Hilmar gerðu sitt markið hvor
fyrir lið sitt áður en leiktími fyrri
hálfleiksins rann út og staðan því
15—14. Eins og sést á þessum töl-
um var varnarleikur liðanna ekki
mikill og þaö sama má segja um
markvörsluna.
Seinni hálfleikurinn var hálfqerð
njög svo kröftugi leikmaöur Víkinga Hörö-
irson ógnar hér vörn Vals og lét síðan
:ot ríða af.
spegilmynd þess fyrri, Víkingar
jöfnuðu strax og komust síöan
einu marki yfir, 16—15. Kristján
jafnaði metin og síðan var jafnt þar
til um miðjan hálfleikinn að
FH-ingar komust tveimur mörkum
yfir, 20—18. Mestur var munurinn
4 mörk er staðan var 23—19. Vík-
ingar voru þó ekki á því að gefa sig
og gerðu þrjú næstu mörk og
staöan 23—22 og 8 mínútur til
leiksloka.
Kristján kom liði sínu tvö mörk
yfir en Siguröur Gunnarsson
minnkaði muninn niöur í eitt mark
strax í næstu sókn, 24—23. Þá
misstu FH-ingar tvo menn út af
með stuttu millibili en engu að síð-
ur tókst Kristjáni að skora 25.
mark FH. Víkingar misstu boltann í
næstu sókn en dæmdur var ruðn-
ingur á FH rétt á eftir, Víkingar
brunuðu í sókn og Siguröur Gunn-
arsson skoraði, staðan 25—24 og
4 mínútur eftir. Þegar tvær og hálf
minúta var eftir af leiknum var
dæmt víti á Víkinga en Kristján
Sigmundsson gerði sér lítið fyrir
og varði frá nafna sínum Arasyni,
Víkingar því með boltann en
misstu hann fljótlega og FH í sókn.
Dæmd var töf á þá og hálf mínúta
eftir. Víkingar reyndu allt hvað þeir
gátu að brjótast í gegnum vörn FH
en ekkert gekk og þegar 3 sekúnd-
ur voru eftir af leiknum átti Sigurö-
ur hörkuskot að marki FH en
Sverrir varði og þar með rann tím-
inn út.
Hjá FH voru stórskytturnar
þrjár, Atli, Kristján og Hans í aðal-
hlutverkum og geröu 20 af mörk-
um FH-liðsins. I heild átti liöiö
ágætan leik nema þá helst í vörn-
inni en hún hefur oft verið betri.
Viggó Sigurðsson var í miklum
ham í leiknum, gerði 9 mörk, en
varð fyrir þvi óláni að meiðast í
nára en spilaöi leikinn engu að síð-
ur til enda. Þeir Hörður, Siguröur
og Steinar stóðu honum ekki langt
að baki og áttu allir góðan leik.
FH-ingar voru utan vallar í sam-
tals 16 mínútur en Víkingar í 10
mínútur.
Sverrir varði víti frá Viggó og
Kristján Sigmundsson varöi víti frá
Kristjáni Arasyni.
Verðbólga í textanum!
LESENDUR eru beðnir velvirð-
ingar: halda mætti aö verðbólga
heföi hlaupið í texta minn efst til
vinstri á bls. 46 á sunnudag! Liv-
erpool hefur unnið mjólkurbikar-
inn tvö siðustu ár — ekki þrjú, en
deildarbikarinn eitt ár þar á und-
an, þannig aö þessa keppni,
deildar/mjólkurbikarkeppnina,
hefur liöið unnið síöustu þrjú ár
— ekki fjögur.
— SH.
Víkingur 24
FH 25
Hlutskipti dómaranna var ekki
öfundsvert í þessum leik en hann
dæmdu Rögnvald Erlingsson og
Stefán Arnaldsson. Þeir komust
þokkalega frá leiknum en geta
engu að síöur gert betur.
Mörk FH: Atli Hilmarsson og
Kristján Arason 7 mörk hvor, Hans
Guðmundsson 6, Þorgils Óttar 2,
Sveinn Bragason, Valgarð Val-
garðsson og Pálmi Jónsson eitt
mark hver.
Mörk Víkings: Viggó Sigurðsson
9 (2 v.), Sigurður Gunnarsson 5,
Steinar Birgisson 4, Hörður Harð-
arson 3, Guðmundur Guðmunds-
son 2 og Hilmar Sigurgíslason 1
mark.
— BJ
Dalglish samdi
til f jögurra ára
KENNY Dalglish, skosk
landsliösmaðurinn hjá Liver-
pool, skrifaði undir fjögurra
ára samning viö félagiö um
helgina. Undanfariö hefur ver-
ið talsvert rætt um þann
möguleika aö Kenny sneri aft-
ur til Skotlands en nú er Ijóst
að svo veröur ekki á næstunni
a.m.k. Hann er nú 33 ára þann-
ig aö samningurinn gildir þar
til hann verður 37 ára. Dalglish
hefur leikið 94 landsleiki fyrir
Skotland.
• Sigurður Gunnarsson skoraöi sjö mörk gegn Val á laugardag. Hér er eitt þeirra í fæöingu — hann hefur
hleypt af þrátt fyrir aö Björn Björnsson hangi í honum og Olafur H. Jónsson nr. 10 fær ekki stöðvað boltann.
Valur ógnaði
aldrei Víkingssigri
EFTIR að hafa veriö fjórum mörk- |
um undir í leikhléi tókst Völsur-
um aldrei aö ógna sigri Víkings í
leik liðanna í úrslitakeppni hand-
boltans á laugardag. Víkingur
sigraði 24:20 — og sami munur
skildi liöin í leikhléi. Staðan þá
13:9.
Leikurinn var jafn til að byrja
með en síöan settu Víkingar á fulla
ferð og tóku forystuna. Sóknar-
leikur Víkinga var betri en Valsara
— skytturnar ákveðnari og leik-
kerfin gengu betur upp. Valur
komst aöeins einu sinni yfir í leikn-
um — 5:4 á 3. mín.; eftir það skor-
aði Víkingur þrjú mörk og breytti
stöðunni í 7:5. Munurinn jókst síð-
an og var fjögur mörk er blásiö var
til hlés.
Siguröur Gunnarsson, sem lék
mjög vel í sókninni í þessum leik,
skoraöi tvö fyrstu mörk seinni hálf-
leiks — staöan þá oröin 15:9. Sex
marka munur og vonir Vals um
Valur Víkingur
20 : 24
sigur að engu orönar. Munurinn
varð minnstur, þrjú mörk, í seinni
hálfleik en sigurinn var aldrei í
hættu.
Þess ber aö geta að i liö Vals
vantaði Þorbjörn Jensson, sem
ekki gat leikiö af persónulegum
ástæöum, og Brynjar Harðarson
og Steindór Gunnarsson sem voru
meiddir og munar óneitanlega um
minna. Einn Viking vantaöi reynd-
ar, Steinar Birgisson.
Sigur Víkings var sanngjarn í
þessum leik — sóknarleikur liösins
var betri en Vals, og vörnin var
yfirleitt góð hjá Hæðargarðsliðinu.
Sigurður Gunnarsson og Viggó
Sigurðsson voru báðir góðir í
sókninni — Viggó einnig í vörn
ásamt Hilmari Sigurgíslasyni.
Hilmar gaf ekki þumlung eftir.
Kristján og Ellert vöröu báðir
nokkuð vel — einnig Einar hjá Val.
Annars var Valsliöiö jafnt, helst
mætti nefna Jakob Sigurösson í
sókninni — síógnandi sá ungi
landsliösmaður.
MÖRKIN. VÍKINGUR: Siguröur
Gunnarsson 7/1, Viggó Sigurðson
7/1, Hörður Harðarson 3, Ólafur
Jónsson 3, Karl Þráinsson, Guö-
mundur Guðmundsson 1, Hilmar
Sigurgíslason 1.
VALUR: Stefán Halldórsson 6/2,
Jakob Sigurösson 5, Þorbjörn
Guðmundsson 3/3, Björn Björns-
son 4, Ólafur H. Jónsson 1 og
Valdimar Grimsson 1.
Valur fékk 7 víti, skoraði úr 6.
Víkingur fékk 2 víti, skoraði úr
báöum. Víkingar voru samanlagt
reknir út af i 10 mín., Valsarar í 8
min.
— SH.