Morgunblaðið - 27.03.1984, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1984
39
Eigendur og starfsmaður Sprautu- og bifreiðaverkstæðis Borgarness sf. fram-
an við hinn fullkomna sprautuklefa fyrirtækisins. MorRunbiaðið/HBj.
Borgarnes:
Nýtt bifreiðaverk-
stæði með fulikomn-
um sprautuklefa
Borgarneai, 15. mare.
í BORGARNESI hefur verið stofnað
nýtt fyrirtæki, Sprautu- og bifreiða-
verkstæði Borgarness sf. Fyrirtækið
er til húsa í eigin verkstæðishúsi í
iðnaðarhverfinu á Sólbakka, við
gatnamót Norðurlands- og Ólafsvík-
urvegar, þar sem áður var Bifreiða-
verkstæði Halldórs Haraldssonar.
Eigendur eru þrír, Björn Jó-
hannsson bílasmiður, Gísli
Bjarnason bifvélavirki og Pétur
Jónsson bílamálari, og starfa þeir
allir í fyrirtækinu við fjórða
mann. Fyrirtækið hóf starfrækslu
1. mars sl. og tekur það að sér
bílasprautun og allar almennar
bílaviðgerðir, réttingar, ryðbæt-
ingar og mótorviðgerðir, eða nán-
ast allt viðkomandi bílnum.
í samtali við blm. Mbl. lögðu
þeir félagar áherslu á þá mögu-
leika sem þeir hafa í bílasprautun
með nýjum sprautuklefa af full-
komnustu gerð, sem reyndar er sá
eini á Vesturlandi og þó víðar væri
leitað. Sögðu þeir að klefinn gæfi
möguleika á mun betri vinnu við
sprautunina og möguleikum á
bökun en auk þess væri vinnuað-
staða mjög góð fyrir starfsmenn-
ina. Þeir félagar sögðust bjartsýn-
ir á reksturinn, byrjunin lofaði
góðu og næg verkefni væru fram-
undan. — HBj.
fSÍ
Líkamsrækt A JSB
i
tXt
VORNAMSKEIÐ
6 vikna
vornámskeiö
2. apríl
—17. maí
★ Líkamsrækt og megrun fyrir dömur
á öllum aldri.
★ 50 mín. æfingakerfi J.S.B. meö músík.
★ Morgun-, dag- og kvöldtímar.
★ Tímar tvisvar eöa fjórum sinnum í viku.
n
fc
★ „Lausir tímar“ fyrir
vaktavinnufólk.
Byrjenda- og framhalds-
flokkar.
Fyrir þær
sem eru í megrun
3ja vikna kúrar.
Tímar fjórum sinnum í viku.
Mataræði, vigtun, mæling.
\U
rr
í
M1
jl'
Verið brúnar og hraustar allt árið. /
Sólbekkirnir eru í Bolholti. Ath.: Einnig ný Ijós í Suðurveri. LJ
Sauna og góð búnings- og baðaðstaða ár báðum stöðum.
Stuttir hádegistímar í Bolholti.
mín. æfingatími — 15 mín. Ijós.
25
m
Kennarar í Suðurveri: Bára, Sigríður og
Margrét.
Kennarar í Bolholti: Bára og Anna.
Kennsla
fer fram
á báöum stööum.
L
INNRITUN OG UPPLÝSINGAR í SÍMUM
83730, SUÐURVER OG 36645, BOLHOLTV
I ílfamembt ICD Suöu™ri’ »ími “730. «|
LIKdmSrXKl UODm Bolholti 6, .ími 36645. ?
.............................tMB
Minning:
Gunnlaugur Eyj-
ólfur Marteinsson
Fæddur 6. júní 1920
Dáinn 20. mars 1984
Gunnlaugur fæddist á Þurá í
Ölfusi. Hann var sonur hjónanna
Marteins Eyjólfssonar og Svan-
borgar Jónsdóttur. Gunnlaugur
var þriðji í röðinni af sjö systkin-
um. Elst er Sigurjóna, svo Helga,
þá var Gunnlaugur, síðan Svavar
og Ásta, Skúli og Valgerður yngst.
Hann ólst upp á Þurá í Ölfusi.
Þaðan fluttist hann síðan ásamt
foreldrum sínum 1945 til Hvera-
gerðis, í Björk, Bláskógum. Árið
1949 fluttist hann til Reykjavíkur
og hóf þá störf við pípulagnir. 5.
júní giftist hann eftirlifandi konu
sinni, Sigurrós Líkafrónsdóttur.
Þau eignuðust einn son, Hafstein
Gísla, en fyrir átti Sigurrós eina
dóttur, Bjarney Ólafsdóttur. Árið
1964 fluttu þau frá Reykjavík til
Hveragerðis, og þar hélt Gunn-
laugur áfram störfum sínum við
pípulagnir, sem hann stundaði
eins lengi og hann gat, eða þangað
til hans erfiðu og löngu veikindi
háðu honum það mikið að hann
gat ekki meir.
Gunnlaugur var vinnusamur og
afkastamikill, svo mjög að athygli
vakti hvar sem hann var. Hann
var eftirsóttur í alla vinnu, vegna
verklagni sinnar, og var sama
hvað það var sem hann gerði.
Hann unni dýrum, og þá fyrst og
fremst hestum. Alla tíð frá barn-
æsku notaði Gunnlaugur hvert
tækifæri sem honum gafst til að
fara á hestbak. Var sama hvernig
viðraði, ef hægt var að koma því
við að fara á hestbak, þá gerði
hann það. í gegnum hestamennsk-
una eignaðist hann marga góða
vini sem hann mat mikils og átti
margar dýrmætar ánægjustundir
með. Gunnlaugur var sannur vin-
ur vina sinna. Traustur þeim sem
hann tók og synjaði aldrei bón
neinna sem leituðu til hans. Slík
var hjálpsemi hans og góðvilji í
garð annarra. Samviskusemi, ein-
lægni, traust og heiðarleiki var
hans aðalsmerki. Hann unni frelsi
og hans mesta ánægja var að ríða
um heimasveit sína sem hann að
þvi er virtist gat aldrei slitið sig
frá. Við dóttir mín, sem hann var
vanur að kalla drottninguna hans
afa síns, þökkum forsjóninni fyrir
að hafa fengið að kynnast honum
og þeim dýrmætu kostum sem
prýddu hann.
Minning hans lifi í guðs nafni.
Bjarney Ólafsdóttir, Sólveig
Bjarney Daníelsdóttir.
ummm... ég heppin að fá
þessa værðarvoð
frá Álafossi.
Ivv
O
§ oy J
I mörg Herrans ár hafa værðarvoðirnar frá Álafossi verið sériega
vinsæl og vel þegin fermingargjöf, enda - ef þú hugsar um það -
sjálfsagður förunautur ungs fólks út (lífið.
Ávallt til taks - léttar, mjúkar og hlýjar; hvort sem er í skíðaferðir,
útilegur eða bara til þess að hafa það huggulegt heima.
Ætlar þú að sleppa fermingarbarninu þínu út í lífið án værðarvoðar
frá Álafossi?
&
^lafossbúöin
--NESTURGÖTU2 SlMt 13404-
TXT7T