Morgunblaðið - 27.03.1984, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1984
41
fclk í
fréttum
í veislunni voru margir frægir leikarar og hér eru t.d. Kirk Douglas ásamt konu sinni og þeim til vinstri handar eru
Didda og maður hennar. Konan lengst til vinstri er fyrrum fjármálastjéri leikarans William Holdens, sem nú er
látinn.
Kveðja frá J.R. til
íslenskra aðdáenda
+ Frá Bandaríkjunum barst okkur
lítið bréf frá Diddu Jónsdóttur
Hill en hún býr í Palm Springs I
Kaliforníu. Didda var fyrir
skömmu í veislu, sem haldin var
til heiðurs Mary Martin, móður
leikarans Larry Hagmans, en
hann er líklega kunnari sem J.R. í
Dallas. Didda sagði Larry frá
vinsældum Dallas á ísiandi og
fannst honum þá tilvalið að skála
við hana fyrir öllum aðdáendum
sínum hér norður við heimskaut.
Því miður sagði Didda fátt af
sjálfri sér í bréfkorninu en hún er
frá Reykjavík og vafalaust munu
einhverjir kannast við hana á
myndunum.
Didda Jónsdóttir Hill og Larry Hagman skála fyrir aðdáendum Dallas á
fslandi.
COSPER
Kokkurinn er sýnilega gamall, sjáðu, hárið er grátt.
Gene Anthony Ray, sem hefur
verið aðalleikarinn í „Fame“.
Hér er hann með Debbie Allen.
Anthony
Ray rekinn
úr „Fame“
+ Sjónvarpsþátturinn „Fame“
hefur notið mikilla vinsælda
fyrir vestan en þar er fjallað
um ungt og ákveðið fólk á leik-
listarskóla í New York. Einn
aðalleikarinn er dansarinn
Gene Anthony Ray en það er
nýjast að frétta af honum, að
hann hefur verið rekinn.
Framleiðendur þáttarins
voru búnir að fá sig fullsadda
af Ray, sem látið hefur sig
vanta við upptökur 100 sinnum
síðan í nóvember í haust. Þess
vegna fékk hann pokann sinn
og hefur nú annar maður verið
ráðinn i hans stað. Ray hefur
ekki átt sjö dagana sæla síð-
asta árið og brottreksturinn
var bara eitt áfallið af mörg-
um. í maí í fyrra skemmdist
íbúðin hans í eldi og er talið, að
kveikt hafi verið i henni. Það
er þó aðeins smámál hjá hinu,
að í júní í fyrra voru móðir
hans, Jean, og amma hans
fundnar sekar um að vera höf-
uðpaurar í eiturlyfjahring í
New York. Endanlegur dómur
hefur ekki verið kveðinn upp
en þær eiga báðar yfir höfði
sér 15 ára fangelsi.
DORM
PÁSKAFERÐIN
18. APRIL
Njótið páskanna á Benidormströndinni.
Fjórtán daga ferð í spánska vorið, beint flug.
Góð gisting með eða án fæðis, hótel eða íbúðir.
Örfá sæti laus!
BENIDORM
2. MAI 26 DAGAR
FLUG OG BÍLL
FLUG OG GISTING
Það er alltaf jafn vinsælt að heimsækja stór-
borgir Evrópu yfir helgi eða í vikutíma. Alls-
konar ferðamöguleikar þ.e.a.s. flug og bíll eða
flug og gisting eða eitthvað enn annað sem þú
vilt reyna. Aðeins fyrsta flokks hótel.
FLUG ALLA FÖSTUDAGA.
AMSKS
MM
FLUG ALLA ÞRIÐJUDAGA OG FÖSTUDAGA.
FLUG ALLA FÖSTUDAGA.
gód
GREIDSLUKJOR
BJARNI DAGUR/AUGL TEIKMSTOFA