Morgunblaðið - 15.04.1984, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1984
Dagskrá friðarviku 1984
SUNNUDAGUR 15. APRÍL
15.00—22.00 Myndlistarsýning.
16.00—19.00 Myndsmiðja fyrir
börn og fullorðna.
16.00—18.00 Setið fyrir svörum.
20.30 Svör úr austri og vestri:
Fulltrúar Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna greina frá af-
stöðu ríkja sinna til kjarn-
orkuvígbúnaðar og friðar-
hreyfinga. Þeir sitja síðan
fyrir svörum fundargesta um
þau mál.
Fundarstjóri: Högni Óskars-
son.
MÁNUDAGUR 16. APRÍL
15.00—22.00 Myndlistarsýning.
16.00—19.00 Myndsmiðja fyrir
börn og fullorðna.
16.00—18.00 Setið fyrir svörum.
15.00 Barnatími.
Kórsöngur.
Leikrit: Ertu skræfa, Einar
Áskell? í flutningi barna af
skóladagheimilum.
Upplestur: Guðrún Helga-
dóttir.
17.00—19.00 Fræðslufundur
Erindi: Afvopnunarviðræður:
Söguleg og efnisleg umfjöll-
un: Gunnar Gunnarsson.
Erindi: Hugmyndir um af-
vopnun: Þórður Ægir ósk-
arsson.
Pallborðsumræður: Eiður
Guðnason, Vigfús Geirdal,
Guðrún Agnarsdóttir og Ingi-
björg G. Guðmundsdóttir.
Fyrirspurnir og almennar
umræður.
Fundarstjóri: Helgi Pétursson.
20.30 Halldórs Laxness-kvöld.
Úr söngbók Garðars Hólm:
Hrönn Hafliðadóttir og Hall-
dór Vilhelmsson við undirleik
Jónasar Ingimundarsonar.
Tónlist eftir Gunnar Reyni
Sveinsson. Úr Atómstöðinni:
Guðbjörg Thoroddsen, Rúrik
Haraldsson, Jón Sigurbjörns-
son, Þorsteinn Gunnarsson
flytja.
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir.
Lesið úr Heimsljósi: Helgi
Skúlason.
Lög úr Húsi skáldsins: Söngv-
arar úr Söngskólanum, stjórn-
andi Jón Kristinn Cortes.
Ljóðalestur: Bríet Héðins-
dóttir.
Úr Kristnihaldi undir Jökli:
Gísli Halldórsson og Þor-
steinn Gunnarsson flytja.
Háskólakórinn syngur undir
stjórn Árna Harðarsonar.
Umsjón og kynnir: Helga
Bachmann.
PRIDJUDAGUR 17. APRÍL
15.00—22.00 Myndlistarsýning.
16.00—19.00 Myndsmiðja fyrir
börn og fullorðna.
16.00—18.00 Setið fyrir svörum.
15.00—16.00 Barnatími.
Leikþáttur í umsjá fóstra.
Kór Mýrarhúsaskóla undir
stjórn Hlínar Torfadóttnr.
Upplestur.
17.00—19.00 Fræðslufundur.
Utanríkisstefna íslendinga:
framlag til friðar- og afvopn-
unarmála.
Fulltrúar allra þingflokk-
anna flytja stutt erindi.
Umræður og fyrirspurnir.
Fundarstjóri: Sólveig Ólafs-
dóttir.
MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL
15.00—22.00 Myndlistarsýning.
16.00—19.00 Myndsmiðja fyrir
börn og fullorðna.
16.00—18.00 Setið fyrir svörum.
15.00—16.00 Barnatími.
Kórsöngur.
Söngur og hreyfileikur.
17.00—19.00 Umræðufundur.
Erindi: íslenskt friðarfrum-
kvæði: Kristín Ástgeirsdóttir.
Erindi: Vígbúnaður á norður-
slóðum: Árni Hjartarson.
Erindi: Varnarviðbúnaður á
íslandi: Kjartan Gunnarsson.
Erindi: Hugmyndir um kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd:
Þórður Ingvi Guðmundsson.
Björn Bjarnason og Stein-
grímur Sigfússon ræða fram-
söguerindin og sitja síðan við
pallborð ásamt frummælend-
um.
Almennar umræður og fyrir-
spurnir.
Fundarstjóri: Magnús Torfi
Ólafsson.
20.30 Fjölmiðlar og skoðana-
myndun. Erindi: Heimsmynd
fréttamiðlanna: Þorbjörn
Broddason.
Fulltrúar frá fjölmiðlum
segja frá og sitja fyrir svör-
um.
Fundarstjóri: Árni Gunn-
arsson.
FIMMTUDAGUR 19. APRÍL
15.00—22.00 Myndiistarsýning.
16.00—19.00 Myndsmiðja fyrir
börn og fullorðna.
16.00—18.00 Setið fyrir svörum.
15.00—16.00 Barnatími
Geymdu handa mér heiminn
paþbi eftir Karl Ágúst Úlfs-
son, lag eftir Björk Guð-
mundsdóttur.
Hljómsveitin KUKL leikur.
Lína langsokkur syngur
ásamt féiögum: Sigrún Edda
Björnsdóttir.
Karíus og Baktus mæta: Við-
ar Eggertsson og Edda H.
Backmann.
Undirleikur: Valgeir Skag-
fjörð.
Úmsjón og kynning: Guðrún
Ásmundsdóttir.
Hlé.
16.15—17.15 Endurtekinn barna-
tími.
20.30 Tónlistarkvöld.
fslenska hljómsveitin undir
stjórn Guðmundar Emilsson-
ar.
Kvintett: Laufey Sigurðar-
dóttir, fiðla, Helga Þórarins-
dóttir, víóla, Richard Korn,
kontrabassi, Kristján Þ.
Stephensen, óbó, og óskar
Ingólfsson, klarinett.
Sigrún Gestsdóttir syngur
við undirleik Önnu Norman.
FÖSTUDAGURINN LANGI
20. APRÍL
15.00—22.00 Myndlistarsýning.
16.00—19.00 Myndsmiðja fyrir
börn og fullorðna.
16.00—18.00 Setið fyrir svörum.
15.00 Ógnir og áhrif kjarnorku-
styrjaldar.
Dagskrá á vegum Samtaka
lækna gegn kjarnorkuvá og
Samtaka íslenskra eðlisfræð-
inga gegn kjarnorkuvá.
f dagskránni verður fjallað
um uppbyggingu og eðli
kjarnorkuvopna, áhrif kjarn-
orkusprengingar á mannvirki
og mannslíkamann. Rætt
verður um ákvarðanatöku við
kjarnorkuárás og almanna-
varnir fslands.
Sálræn áhrif vígbúnaðar-
kapphlaupsins og langtíma-
áhrif kjarnorkustyrjaldar
verða kynnt svo sem kjarn-
orkuvetur og áhrif á lífríkið.
Ennfremur verður fjallað um
efnahagsleg áhrif þess að
vígbúnaðarkapphlaupinu
yrði hætt.
Að lokinni dagskrá gefst
kostur á umræðum og fyrir-
spurnum svarað.
Af hálfu lækna tala: Árni
Björnsson, Guðjón Magnús-
son, Högni óskarsson, Sig-
urður Árnason og Sigurður
Björnsson.
Af hálfu eðlisfræðinga tala:
Gísli Georgsson, Hans Kr.
Guðmundsson, Páll Berg-
þórsson, Páll Einarsson og
Þorsteinn Vilhjálmsson.
Fundarstjóri: Ásmundur
Brekkan.
18.00 Bláa stúlkan eftir Messíönu
Tómasdóttur.
Leikbrúðusýning fyrir full-
orðna.
20.30 Blönduð dagskrá.
Þáttur úr leikriti Nínu Bjark-
ar Árnadóttur: Undir teppinu
hennar ömmu í flutningi
vorkvenna Alþýðuleikhúss-
ins.
Leikstjóri: Inga Bjarnason.
Frásagnir af friðarmótum:
María Jóhanna Lárusdóttir,
Sólveig Ásgeirsdóttir og Ken-
eva Kunz.
Síðasta blómið: Kristín Á.
Ólafsdóttir og fleiri.
Undir krossi. Flytjendur.
Dómkórinn undir stjórn
Martin Hunger Friðriksson-
ar; Gunnar Kvaran, Hjörtur
Pálsson, Kristinn Sigmunds-
son, Sigrún Edda Björnsdótt-
ir og Auður Bjarnadóttir.
LAUGARDAGUR 21. APRÍL
15.00—22.00 Myndlistarsýning.
16.00—19.00 Myndsmiðja fyrir
börn og fullorðna.
16.00—18.00 Setið fyrir svörum.
15.00-17.00 Skáldadagskrá.
Lesið úr nýjum bókum.
Umsjón: Pétur Gunnarsson.
15.00—16.00 Barnatími (endur-
tekinn frá skírdegi).
17.00—19.00 Fræðslu- og um-
ræðufundur.
Konur og fri UUl — fjölbreytt
dagskrá um framlag kvenna
til friðarmála.
Umsjón: María Jóhanna Lár-
usdóttir.
20.30 Ungt fólk.
Ljóðadagskrá.
Drengjakvartett: Mennta-
skólinn í Kópavogi.
Menntaskólinn við Hamra-
hlíð: Hamlet.
Magnús Þór leikur og syngur.
Sitthvað óvænt — og fleira.
Kynnir: Edda Björgvinsdótt-
ir.
PÁSKADAGUR
15.00—22.00 Myndlistarsýning.
16.00—19.00 Myndsmiðja fyrir
börn og fullorðna.
16.00—18.00 Setið fyrir svörum.
15.00 Friður — réttlæti — von:
Páskavaka: Fyrir börn og
fullorðna.
Flautuleikur: Guðrún Birg-
isdóttir.
Ljóðalestur: fyrir börn og
fullorðna, eftir Nínu Björk
Árnadóttur: Sigurjóna Sverr-
isdóttir les.
Erindi: Svavar Sigmundsson.
Dómkórinn undir stjórn
Martin Hunger Friðriksson-
ar.
Erindi: Misskipting lífsgæða
í heiminum. Jón Ormur Hall-
dórsson.
Söngvar og sögur: Halldór
Vilhelmsson, Jónas Ingi-
mundarsonar og fleiri.
Ávarp: Siðferðileg afstaða
kristinna manna til stríðs og
vopna: Biskup Pétur Sigur-
geirsson.
Bel Canto-kórinn.
Stjórnandi: Guðfinna Dóra
Ólafsdóttir.
Umsjón: Sr. Bernharður Guð-
mundsson.
16.00—17.00 Páskavaka fyrir börn
á vegum æskulýðsstarfs
kirkjunnar.
Umsjón: Sr. Agnes Sigurð-
ardóttir og Oddur Alberts-
son. _______________________
20.30 Endurtekið efni frá 14. apríl.
Arnþór Helgason og Guðrún
Hólmgeirsdóttir leika og
syngja. N
Leikrit: Ég læt sem ég sofi,
eftir Raymond Briggs í þýð-
ingu Bergþóru Gísladóttur og
Keneva Kunz. Guðrún Steph-
ensen og Róbert Arnfinnsson
flytja.
Leikstjóri: Jill Brook Árnason.
MÁNUDAGUR 23. APRÍL
ANNAR í PÁSKUM
15.00—22.00 Myndlistarsýning.
16.00—19.00 Myndsmiðja fyrir
börn og fullorðna.
15.00 Lokafundur.
Hvert stefnir nú?
Ávörp: Hvað hefur lífið kennt
mér: Hulda Á. Stefánsdóttir
og sr. Jakob Jónsson.
Umræður um friðarstarf:
Hvað sameinar, hvað sundr-
ar: Fulltrúar friðarhreyfinga
gera grein fyrir stefnumiðum
sínum.
Almennar umræður og úttekt
á friðarvikunni.
Málverkasýning
Baltasar
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Það er mikill hraði, kraftur og
gerjun í hlutunum þar sem fer
myndlistarmaðurinn Baltasar
Samper. Á sama tíma og hann er
með rosaverkefni við skreytingu
Víðistaðakirkju, heldur hann
stóra málverkasýningu að Kjar-
valsstöðum. Og ekki eru mál-
verkin á sýningunni af notalegu
stærðinni fyrir ofan pluss-sóf-
ana, heldur vel yfir meðalstærð
og sum mjög stór. Svo stór, að
listamaðurinn hlýtur að vera að
hugsa um eitthvað annað en
fjárhagslegan hagnað er hann
málar þær, því að sala á jafn-
stórum málverkum er sjaldgæf
hérlendis.
Máski hefur Baltasar einhvern
boðskap að flytja og máski hefur
hann einnig efni á því að leika
sér í stórum myndum. Eitt er
víst og það er, að sá leikur skilar
af sér langsamlega tilþrifamestu
myndunum að mínu mati. Á ég
hér við myndflokkinn „Goy-
eskur" en þar höfðar hann að
vissu leyti til landa síns Goya og
ádeilumynda þeirra er hann
gerði fyrir sjálfan sig og fundust
fyrst eftir dauða hans. Svið Balt-
asar er hins vegar íslenzkur
myndlistarvettvangur og þangað
beinir hann skeytum sínum og
opinberar háð sitt — hvergi
hræddur hjörs í þrjá.
Á síðustu árum hefur Baltasar
tekið upp á því, að láta vanþókn-
un sína á einu og öðru í sam-
skiptum listamanna í ljósi með
hressilega máluðum myndum.
Vafalaust álítur hann sig öllu
frekar pensilfæran en pennafær-
an og notar því það vopn er
hendi er næst og hjartanu tam-
ast.
— Baltasar hefur lifað og
starfað á íslandi í 21 ár svo að
hann ætti nú að vera orðinn full-
veðja íslendingur þótt hann sé
borinn og barnfæddur Katalón-
íubúi og beri þess mjög merki í
útliti og skapandi list.
Þegar Baltasar kom fyrst
fram með ádeilumyndir, var í
þeim græskulaus kímni, sprell
og spé, sem ég hafði mjög gaman
af. En myndflokkurinn „Goy-
erskur" verður ekki svo létt af-
greiddur með slíku mati því að
háðið er öllu djúpristara og
marktækara um leið og mynd-
irnar eru stórum umbrotameiri
listaverk. Ég tel, að Baltasar
hafi naumast gert áhrifaríkara
verk en t.d. myndina „Enginn
getur slitið okkar bönd“. Sú
mynd þykir mér vera hápunktur
sýningarinnar, — bæði fyrir það
að vera kröftuglega og vel máluð
og svo kemur fram í henni
kímni, sem er mjög sjaldgæf í
íslenzkri myndlist ef hún er þá
til.
Baltasar hefur skipt sýningu
sinni í 7. myndflokka sem nefn-
ast: „Vinir og fjölskylda", „Loft
og láð“, „Sólarhringur á vinnu-
stofunni", „Félagi hestur",
„Þær“, „Sælir eru ... “ og „Goy-
eskur“. Af þessum flokkum
finnst mér trúarlegi flokkurinn
„Sælir eru ..." komast næst
Goyeskunum. Þetta eru að vísu
einungis frumdrög en þau eru
útfærð á einfaldan og léttan hátt
er hrífur ásamt því að þær hafa
yfir sér sterkt trúarlegt yfir-
bragð.
Myndflokkurinn „Félagi hest-
ur“ er og mjög samfelldur. Hann
byggist á beinum og skáldlegum
hughrifum í kringum hesta-
mennsku en hestamaður er Balt-
asar mikill svo sem kunnugt er.
Ég held að listamaðurinn hafi
ekki áður gert betri slíkar mynd-
ir. í myndaflokknum „Þær“ tjáir
Baltasar ást sína til konunnar,
sem hann virðist vilja hafa fagra
og eggjandi — en það er eins og
að það vanti í þessar myndir
blóð, tár og svita. Það má ekki
vanta né svip af þeim holdlega
munaði, sem myndirnar gefa til
kynna að sé til staðar.
I myndaflokknum „Vinir og
fjölskylda" voru það einkum
tvær myndir er höfðuðu til mín,
„Kristín Hall" (1) og „Everyone
has the right to love dogs“ (5), —
í þeirri síðarnefndu er mikil
stemmning. Hinar tvær mynd-
raðirnar, „Loft og láð“ og „Sól-
arhringur á vinnustofunni", eru
landslagsstemmningar, sem
gerðar eru af þeirri leikni og
þrótti sem einkenna mjög vinnu-
brögð Baltasar.
Litið á heildina þá er þetta
mjög fjörleg sýning, sem rís
hæst svo sem áður segir í
myndaflokknum „Goyeskur".