Morgunblaðið - 16.05.1984, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
110. tbl. 71. árg.
MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Árásum á íbúða-
hverfi verði hætt
Beirút, 15. maí, AP.
ÞRJÚ börn á aldrinum 8 til 12 ára létu
lífið í vesturhluta Beirút í dag þegar
fallhyssukúla sem þau voru að leika
sér að, sprakk í höndum eins þeirra.
Bömin héldu að sprengjan væri óvirk.
Kennsla var felld niður í öllum
skólum Beirút í dag til að lýsa
hryggð yfir dauða 12 ára gamals
pilts, sem lést í gær þegar byssukúl-
um rigndi óvænt yfir leiksvæði nem-
enda í skóla á vegum grísku rétt-
trúnaðarkirkjunnar i vesturhluta
borgarinnar. 21 nemandi til viðbótar
slasaðist.
f framhaldi af þessum atvikum
hafa leiðtogar stríðandi fylkinga í
Beirút hvatt til þess að hætt verði
árásum á hverfi óbreyttra borgara í
báðum borgarhlutunum. Útvarps-
stöðvar og dagblöð í borginni hafa
gert þessum hvatningum góð skil, en
jafnframt spurt hverjir standi á bak
við árásirnar á íbúðahverfin ef allir
deiluaðilar eru sammála um að þær
séu fordæmanlegar.
Mynd þessa af Arthur Scargill, leiðtoga breskra námuverkamanna, sem
nú eru í verkfalli, ætlaði Lundúnablaðið The Sun að birta á forsíðu
sinni í gær undir fyrirsögninni „Mein Fiihrer“, en prentarar sem starfa
við blaðið komu í veg fyrir það. Gerist það æ oftar að prentarar og aðrir
félagar í verkalýðsfélögum í Bretlandi skipti sér af efni blaða þar í
landi. Sjá nánar á bls. 23.
Stjórnarandstæðingar í Makati á Filippseyjum efna til bálkösts í gær til að mótmæla meintum kosningasvikum
Marcosar forseta. Frambjóðandi stjórnarandstæðinga þar var frú Aurora Pijuan-Manotoc, sem árið 1970 var kosin
Ungfrú alheimur.
Marcos fullviss um
sigur stjórnarinnar
Manila, New York, 15. maí. AP.
Stjórnarandstæðingar á Filippseyj-
um virðast hafa aukið mjög fylgi sitt i
þingkosningunum, sem þar fóru fram
á mánudag. Úrslit þeirra höfðu ekki
verið opinberlega kunngjörð þegar
Mbl. fór í prentun í nótt, en óopinber-
ar tölur bentu til þess að mjög hefði
saxast á meirihluta þann sem stjórn-
arflokkurinn hefur á þjóðþingi lands-
ins.
Tölurnar benda til þess að
stjórnarandstaðan hafi náð meiri-
hluta í 90 af 183 kjördæmum, og að
stjórnarflokkurinn hafi beðið mik-
ið afhroð i Manila, höfuðborg
landsins.
Ferdinand Marcos, forseti Fil-
Duarte hittir
Reagan forseta
San Salvador, 15. maí. AP.
JÓSE Napoleon Duarte, hinn ný-
kjörni forseti El Salvador, fer til við-
ræðna við Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseta og leiðtoga beggja
deilda Bandaríkjaþings um næstu
helgi.
Það var talsmaður kristilegra
demókrata sem greindi frá þessu í
San Salvador í dag. Talsmaðurinn
sagði að boð þessa efnis hefði
komið frá Reagan forseta og færi
Duarte til Washington annað
hvort á laugardag eða sunnudag.
Hann kvað í ráði að Duarte ávarp-
aði Bandaríkjaþing, en nákvæm
áætlun um ferðina væri enn ekki
fyrir hendi.
Aflakvóti EBE þrengir kosti
grænlenskra útgerðarmanna
Kaupmannahöfn, 15. maí. Frá N. J. Hruun, Gra'nlandsfrcttaritera Mbl.
FYRSTA útgerðarfyrirtækið á Aust-
ur-Grænlandi hefur verið stofnað i
Angmagssalik og er að því stefnt að
gera þaðan út stóran rækjutogara til
veiða á miðunum fyrir Austur-
Grænlandi. Á þessu máli eru hins
vegar pólitískar hliöar því að lands-
stjórnin hefur afhent EBE svo stóran
aflakvóta, að ekki er nóg aflögu fyrir
útgerö nýja skipsins.
Grænlenska útvarpið sagði frá
því, að nýja fyrirtækið, sem heitir
Niiniarteq Tasiilaq, hafi gengið
inn í smíðasamning um rækjutog-
ara, sem útgerðarmaður á Borg-
undarhólmi hafi haft við skipa-
smiðastöð í Danmörku. Verður þar
um að ræða stærsta, grænlenska
rækjutogarann, 70 metra langan,
og lestarrými fyrir 700 tonn af
fullunninni vöru. Verður togaran-
um hleypt af stokkunum um næstu
áramót en smíðaverðið er áætlað
um 80 millj. dkr.
Eigendur fyrirtækisins eru ýms-
ir aðilar i Angmagssalik og ná-
grenni, fyrirtækið Polar Shipping í
Holsteinsborg á vesturströndinni
og útgerðarmaðurinn fyrrnefndi á
Borgundarhólmi. Er ætlunin eins
og fyrr segir að gera út á rækju-
miðin úti fyrir austurströndinni,
einkum henni norðanverðri, fyrir
norðan tsland. í skipinu verður út-
búin rannsókna- og kennslustofa
fyrir nemendur í sjávarútvegs-
fræðum. Hægt er að vinna 72 tonn
á dag í skipinu.
Þessi nýja útgerð er nú að verða
dálitiö hitamál á grænlenska
landsþinginu. Þannig er, að á
næsta ári má útgerðin veiða 1600
tonn af rækju við austurströndina
en það er ekki nóg til að hún geti
borið sig. Þess vegna hafa
forsvarsmenn fyrirtækisins séð sig
tilneydda til að leita á náðir
Kanadamanna um veiðileyfi innan
þeirra lögsögu.
Peter Osterman, talsmaður At-
assut, sem er í stjórnarandstöðu,
segir, að þetta mál sýni vel hvernig
komið sé fyrir grænlenskum fiski-
mönnum. Þeir fái ekki lengur að
veiða á sínum eigin miðum vegna
þess, að Siumut, stjórnarflokkur-
inn, sé búinn að selja Efnahags-
bandalaginu allan aflann. Oster-
man segir einnig, að nú sé alveg
ljóst, að Grænlendingar séu full-
færir um að nýta sjálfir fiskimiðin
við landið.
ippseyja, kvaðst í dag fullviss um
að stjórnarflokkurinn mundi
áfram hafa drjúgan meirihluta
þingmanna á bak við sig. Hann
sagði að hin mikla fylgisaukning
stjórnarandstæðinga stafaði af
efnahagsástandinu í landinu og
einnig kyrni morðið á Benigno
Aquino, leiðtoga stjórnarandstæð-
inga, að hafa haft áhrif á viðhorf
kjósenda.
Marcos sagði að kosningarnar
sýndu umheiminum að lýðræði
rikti á Filippseyjum og að kosn-
ingar þar væru frjálsar og heiðar-
legar.
Margir andstæðingar stjórnar-
innar fullyrða að svik séu höfð í
frammi við talningu atkvæða, en
stjórnvöld neita því.
Afganistan:
Sprengjuregn
í Panjsher-dal
Nýju Delhí, 15. maí,
SOVÉSKAR herþotur af MIG-gerð og
þyrlur vörpuðu í dag sprengjum í
mynni Panjsher-dals í Afganistan í því
skyni að reyna að hrekja liðsmenn
frelsissveitanna í landinu á brott þaðan.
Þá hafa borist fregnir af því að
sovéskt herlið hafi sótt fram í And-
rab-dal, sem liggur norð-vestur af
Panjsher-dal og er eins konar „bak-
dyr“ í dalinn. Margir sovéskir her-
menn munu hafa fallið í bardögum
þar og fjöldi hergagna tapast.
Vestrænir stjórnarerindrekar á
Indlandi og í Pakistan hafa fengið
fréttir um, að 7. maí sl. hafi það
atvik orðið í Taimani-héraði í Afg-
anistan, að sovéskur herflokkur hóf
skyndilega vélbyssuskothríð á hóp
fólks sem var að bíða eftir strætis-
vagni. Þeir drápu sjö manns og
særðu a.m.k. 12 aðra. Talið er að her-
mennirnir hafi verið drukknir.
Hugsanlegt er, að hermdarverkið í
Taimani hafi verið hefndarráðstöfun
fyrir sprengjuárás frelsisliða á sov-
éska hermenn i héraðinu daginn áð-
ur, en þá létu sjö hermenn lífið.