Morgunblaðið - 16.05.1984, Side 17

Morgunblaðið - 16.05.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. MAl 1984 17 sáttmálanum hefur í för með sér, hefur nú þegar verið samþykkt í neðri deild Alþingis og verður af- greitt sem lög fyrir þinglok, ef að líkum lætur. Hljóðritað efni Þótt tollfrelsi vísindatækja sé mikilvægasta breytingin sem að- ildin að sáttmálanum hefur í för með sér skal hér einnig á það minnt að í honum er jafnframt ráð fyrir því gert að aðflutn- ingsgjöld verði felld niður á sýn- ingarefni og hvers kyns hljóðrit- uðu efni sem menningarlegt og vísindalegt gildi hefur. Hér er fyrst og fremst um að ræða hvers kyns fræðsluefni á kvikmyndum, myndsegulböndum, plötum, glærum og snældum, sem í vaxandi mæli er notað í skólum landsins og einnig í almennings- bókasöfnum. Þessar stofnanir hafa á undan- förnum árum ekki getað aflað sér jafn umfangsmikils efnis á þessu sviði sem áætlanir þeirra og óskir hafa gert ráð fyrir. Við þá breyt- ingu. á tollskrárlögunum sem fylgja mun í kjölfar aðildar að sáttmálanum á að geta orðið hér á breyting til batnaðar og ný við- horf að skapast í þessum efnum. Mun frumvarp um þetta efni verða lagt fyrir Alþingi á næst- unni þannig að framgangur þessa máls ætti að vera tryggður um svipað leyti og formleg aðild ís- lands að sáttmálanum verður að veruleika. Á þessijm tveimur sviðum sem nefnd hafa verið mun aðildin að sáttmálanum því hafa verulegar breytingar í för með sér. Að því er varðar önnur atriði sem hann nær til, bækur, listaverk, safngripi og vörur fyrir blinda, er ekki um sambærilegar kvaðir að ræða, þar sem tollar og önnur aðflutnings- gjöld hafa þegar verið felld niður á þeim vettvangi. Dr. Gunnar G. Schram er einn aí alþingismönnum SjálfsUeóis- flokksins. 400 börn með áfengisskaða fæðast á hverju ári í Svíþjóð Frá Magnúsi Brynjólfssyni, frétta- ritara Mbl. í l'ppsölum. „Það ætti að spyrja alla verð- andi foreldra um áfengisvenjur." Þetta er tillaga frá sænsku mæðraskrifstofunni, sem gengur út á að bjóða öllum verðandi mæðrum upp á viðtal hjá félags- ráðgjafa. í umræddum 400 tilvikum hafa mæðurnar neytt áfengis og þ.a.l. hefur verið með vissu hægt að sjá samband milli barnaskaðans og áfengisneyslunnar. Ekki er vitað hvar mörkin liggja niður á við og er öllum ófrískum konum því ráðlagt algjört bind- indi. I Alvsborgsléni voru 45 verð- andi mæður með áfengisvandamál uppgötvaðar við mæðraskoðun. Engin þeirra nema ein neytti áfengis á meðgöngutímanum. All- ar fæddu þær heilbrigð börn. Fyrirspurnir þessar við mæðra- skoðun hafa mætt góðum viðtök- um hjá flestum ófrískum konum. Margar höfðu neytt áfengis áður en þær vissu um að þær væru með barni og báru því kvíðboga fyrir þessu nýja ástandi sínu. Sumar þeirra þorðu því ekki að spyrja. Þess vegna var það léttir fyrir þessar konur er þær voru spurðar um þetta viðkvæma umræðuefni. Ekki síst var það flestum gleðiefni að vita að ekki væri nein hætta á ferðum vegna áfengisneyslu fyrstu sex vikurnar. i i i i i i i I < i i ' i < < < < < < < < < < < < ( i ♦ ♦ Kertastjakar úr hreinum og tærum kristal frá Kosta. Sendum í póstkröfu Bankastræti 10, sími 13122 ^^llar sendíngar af SKODA '84 híngað tíl eru uppseldar.Verksmíðjumar hafa varla undan að framleíða bílana, vegna metsölu víða um heím. Þrátt fyrír það tókst okkur að fá aukasendíngu af SKODA '84 og það á sama lága verðínu: 139 þúsund krónur. Tryggðu þér eínn, áður en þessí sendíng klárast líka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.