Morgunblaðið - 16.05.1984, Síða 47

Morgunblaðið - 16.05.1984, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MAl 1984 47 Sjónvarpið sýnir beint frá Basel í kvöld: Stjörnum prýtt Ju- ventus-lið gegn Porto JUVENTUS frá ftalíu og portú- galska liöið Porto leika til úrslita í Evrópukeppni bikarhafa I knattspyrnu í kvöld í Basel í Sviss og verður leiknum sjónvarpað beint hingað til lands. Útsending- in hefst kl. 18.00. Liö Juventus er taliö sigur- stranglegra og undrar þaö engan. j liöinu er valinn maöur i hverju rúmi, kannski væri nær aö segja aö stjarna væri í hverju rúmi. En þrátt fyrir öll „nöfnin" hafa sumir leikmenn Juventus ekki staöiö sig Jafntefli Nor- wich og Liverpool LIVERPOOL og Norwich geröu jafntefli, 1:1, í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi á Anfield Road í Liverpool. Þetta var síðasti leikur beggja liða í deildinni í vet- ur. Liverpool haföi áður tryggt sér aigur í deildinni — og fyrir leikinn tók Graeme Souness, fyrirliöi meistaranna við nýja Canon- bikarnum sem nú fylgir Eng- landsmeistaratitlinum. John Devine náöi forystu fyrir Norwich á 24. mín. en lan Rush jafnaöi fyrir meistarana á 30. mín. Hans 47. mark í vetur. sem skildi í vetur. Markvöröurinn Stefano Facconi er ekki nema skugginn af hinum fræga Dino Zoff, sem lagöi skóna á hilluna í fyrra og miövöröurinn Sergio Brio, ítalskur landsliösmaöur, hefur ekki uppfyllt þær vonir sem viö hann voru bundnar. Forráöamenn Juventus hafa því undanfariö veriö aö leita aö nýjum miöveröi í staö Brio því ekkert nema þaö besta er nógu gott fyrir liöiö. Landsliðsmenn eru í nær hverri stööu hjá Juve: Gentile, Scirea og Cabrini í vörninni, Platini og Tard- elii á miöjunni og Rossi og Boniek í framlínunni. Massimo Bonini hef- ur leikiö sérlega vel í vetur þó ekki hafi hann enn komist f landsliöið og U-21 árs landsliösmaöurinn Beniamino Vignola hefur einnig leikiö vel í vetur. Fyrir leikinn í kvöld virðist því ekki margt geta komiö í veg fyrir sigur Juventus, um þaö eru allir sammála nema kannski leikmenn og forráðamenn Porto og áhangendur liðsins. En enginn skyldi afskrifa Portú- galana. Þrátt fyrir aö hafa haft á aö skipa frægum leikmönnum í gegn- um árin hefur Juventus ekki geng- iö sem skyldi. Þrátt fyrir að menn hafi oft taliö liöiö sigurstranglegt i • Michel Platini verður í sviðs- Ijósinu í kvðld í Basel. hinum ýmsu keppnum. Liöiö hefur tvívegis beöiö lægri hlut í úrslitum Evrópukeppni meistaraliöa. Liöiö tapaöi fyrir Hamburger SV í fyrra eins og menn muna og tvívegis tapaöi liðið úrslitaleik Fairs Cup (nú UEFA-bikarinn), í annaö skipt- iö á sínum eigin velli. Liöiö hefur aöeins einu sinni boriö sigur úr býtum í Evrópukeppninni, 1977, er þaö vann UEFA-bikarinn. Aö þessum oröum skrifuöum er ekki hægt aö segja annaö en aö Porto eigi von í kvöld, en þetta veröur fyrsti úrslitaleikur liösins í Evrópukeppni. Á heimaslóöum hefur liðiö ávallt veriö taliö þriöja besta liö landsins á eftir Benfica og Sporting, en þrátt fyrir þaö hef- ur liöiö margsinnis tekiö þátt í Evr- ópukeppninni. Þjálfari liðsins, Jose Maria Pedroto, er talinn sá besti í Portúgal og leikmenn liösins eru mjög leiknir meö knöttinn. Aðalmaöurinn í liöi Porto er Fernando Gomez, markakóngur Evrópu í fyrra, og er hann jafn- framt fyrirliöi liösins. Honum hefur ekki gengiö sérlega vel aö skora í vetur, en getur veriö „match- winner“ ef sá er gállinn á honum. Vörn Porto er talin mjög góö og á miðjnunni er hinn leikreyndi Costa og í liöinu er einnig irski landsliös- maöurinn Mickey Walsh. Portú- galska liöiö er þekkt fyrir þaö aö leyfa andstæöingum sínum aö sækja og beita síöan skyndisókn- um sem gefist hafa mjög vel. Leikmenn liösins eru mjög snöggir og fengu Skotarnir hjá Aberdeen aö finna fyrir því í leikjum liðanna í undanúrslitunum. — SH • Phil Thompson er nú fyrir- liði varaliðs Liverpool. Hann hefur verið sigursæll é ferli sínum — eins og sjá má á myndinni þar sem hann er meö þau verðlaun sem hann hefur unnið. Liverpool: Varaliðið sigursælt VARALIÐ Liverpool hefur ekki síður en aðallið félagsins verið sigursælt á undanförnum ár- um. I síöustu viku tryggði liðið sér sigur í „Central league", deild varaliöanna í Englandi, meö 3:1 sigröi á Leeds United á Anfield. Þetta er þrettándi sigur Liv- erpool i deildinni á síöustu sex- tán árum. i varaliöi Liverpool eru margir kunnir leikmenn og gegn Leeds í umræddum leik voru t.d. Phil Thompson, fyrr- um fyrirliöi Liverpool, Craig Johnston og David Hodgson, sem báöir léku áöur meö Midd- lesbrough, Gary Gilliespie, sem Liverpool keypti frá Coventry í haust og Micahel Robinson, sem keyptur var frá Brighton. Ekki dónalegt varaliö! _ SH anna. Hun er ein þeirra „skatta- paradísa" sem marga dreymir um aö búa í — íbúar þar þurfa ekki aö greiöa skatta. Forráðamenn Chelsea hafa hugsaö sér, ef þeir næla í Souness, aö hann færi til London á miövikudögum til aö undirbúa sig fyrir leik helgarinnar með liöinu. — SH. Clive Thomas hættur að dæma: Lét Maguire boltann eftir Souness frá Anfield? ÍTALSKA liðið Sampdoria, veat- ur-þýska liöiö 1. FC Köln og Chelsea, sem sígraðí í ensku 2. deildarkeppninni í vetur, hafa bæði mikinn áhuga á aö kaupa skoska landsliðsmanninn Gra- eme Souness frá Englandsmeist- urum Liverpool. Chelsea er tilbúiö aö greiöa 300.000 pund fyrir Souness, sem er 31 árs gamall. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum viö ensku meistarana — og reikna má meö því aö félagið muni selja hann áöur en samningurinn rennur út vegna þess aö félagiö fær ekkert fyrir hann eftir þaö. Joe Fagan, framkvæmdastjóri Liverpool, sagöist í samtali viö Morgunblaöiö ekki vita vilja Soun- ess í þessu efni. Souness sjálfur sagöist aftur á móti — í samtali viC Mbl. — ekki hafa áhuga á því aö leika meö ööru liöi en Liverpool í Bretlandi. „Ég býst nú varla viö því aö fara til italíu fyrir 1. júlí — áöur en banniö veröur sett á kaup á er- lendum leikmönnum. Ég veit held- ur ekki hvort Liverpool er tilbúiö aö selja mig — ég vil helst ekki hugsa um þetta núna. Hugsa meira um þaö sem í vændum er hjá liö- inu." Forráöamenn Chelsea gera sér góöar vonir um aö ná í Souness þrátt fyrir allt. Þeir geta boöiö hon- um mjög góð laun — og hyggjast bjóöa honum aö búa á eynni Guernsey, einni Ermarsundseyj- CLIVE THOMAS, einn þekktasti knattspyrnudómari síðari ára, dæmdi sinn síöasta leik í 1. deild- inni ensku á laugardag en hann hættir nú fyrir aldurs sakir — hann er 47 ára. Clive dæmdi leik Stoke og Wolves á laugardag. Forráöamenn Stoke höföu lofaö honum boltanum sem leikiö var meö sem minjagrip en Paul Magu- ire skoraöi öll fjögur mörk Stoke í 4:0 sigrinum. „Þegar Paul geröi sitt þriöja mark sagöi ég viö hann aö hann fengi ekki boltann því þaö væri búiö aö lofa mér honum,“ sagöi Thomans — en þaö er venja i Englandi aö skori leikmaöur þrjú mörk í leik fái hann boltann. „En ég bætti því viö aö skoraöi hann eitt mark til viöbótar horföi málið ööru vísi viö.“ Einni og hálfri mínútu fyrir leiks- lok dæmdi Clive svo vægast sagt mjög vafasama vítaspyrnu á Wolves — og Maguire skoraöi sitt 4. mark í leiknum úr vítinu. „Ég gat ekki gengiö á bak oröa minna," sagöi Thomas eftir leikinn er Maguire haföi fengiö boltann. En forráðamenn Stoke björguöu mál- inu — þeir fengu leikmenn beggja liða til aö árita annan knött og færöu hann Thomas. _____SH. • Clive Thomas Aðalfundur knatt- spyrnudeildar FH AÐALFUNDUR knattspyrnudeild- ar FH verður haldinn þriðjudag- inn 22. maí í Víðistaöaskóla. Fundurinn hefst kl. 20.00. • Graeme Souness (baráttu við Pedro Richards (leik Liverpool og Notts County á laugardaginn. Souness leiddi Liverpool til síns 15. Englandsmeistaratitils. Er hann nú á förum?Morgunbiaðið/SKapti Hangrimsson. Barcelona vildi Atkinson Forráöamenn spánska stór- liðsíns Barcelona hafa áhuga á að fá Ron Atkinson sem nœsta framkvæmdastjóra/þjálfara félagsins, en Argentínumaöur- inn Cesar Luis Menotti hverfur á braut í vor frá félaginu. Þrátt fyrir áhuga El Barca á Atkinson eru ekki miklar líkur á að hann yfirgefi United. „Ron er samningsbundinn okkur og það kemur ekki til greina aö hann fái að fara,“ sagði Keith Edwards, formaður United, í samtali við eitt ensku blaðanna um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.