Morgunblaðið - 16.05.1984, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 16.05.1984, Qupperneq 48
Opió alla daga frá kl. 11.45-23.30. AUSTURSTRÆTI22. INNSTRÆTI, SÍMI 11633. Opiö öU fímmtudags-. föstudags-. laugardags- og sunnudagsk völd AUSTURSTRÆTI 22, INNSTRÆTI, SÍMI 11340 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. íslenskir tómatar komnir á markað ÍSLENSKIK tómatar eru nú komnir í allar búðir á höfuðborg- arsvæðinu. Nokkuð er síðan fyrstu tómatarnir skiptu litum í gróður- húsum en það var ekki fyrr en í lok síðustu viku að þeir komu á markaðinn. Fyrsta vérðið á tómötunum er 135 kr. kílóið í heildsölu sem er 35% hærra en fyrsta verð í fyrra og nokkrum krónum hærra verð en á þeim erlendu tómötum sem síðast voru fluttir inn, að sögn Níelsar Marteinssonar söl- ustjóra Sölufélags garðyrkju- manna. Smásöluálagning er frjáls á tómötum en Níels sagði að smásöluverðið væri yfirleitt 180 til 185 kr. kílóið. Bjóst hann við að tómatarnir myndu lækka fljótlega þegar framboðið yrði meira. Níels sagði að útlitið með uppskeruna væri ekkert sér- staklega gott, plönturnar væru heldur veikburða eftir sólarleys- ið undanfarnar vikur. íslenskar gúrkur eru búnar að vera á markaðnum síðan um miðjan mars. Einnig eru komin salat, steinselja, radísur, kínakál, ís- salat og grænkál, að sögn Níels- ar, og grænar paprikur að byrja að koma. Uppskerustörfin eru hafin af fullum krafti hjá garðyrkjubændum. Gúrku- uppskeran hófst um miðjan mars og nú eru tómatarnir farnir að roðna hver á fætur öðrum, enda ekki að furða þegar borgfirsku blómarósirnar brosa til þeirra. Þessi mynd var tekin í garðyrkjustöðinni á Laugalandi í Borgarfirði fyrir helgina. Morgunbla«i«/Helgi Bjarnason. Verkfalli flug- manna afstýrt með lögum? Samgönguráðherra mun væntanlega síðdegis í dag mæla fyrir frumvarpi sem komi í veg fyrir verkfall flug- manna hjá Flugleiðum sem boðað hefur verið á föstudag laugardag og sunnudag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur þetta frum- varp verið í undirbúningi á vegum samgönguráðuneytisins að undan- förnu og mun það vera ætlan ríkis- stjórnarinnar að koma frumvarpinu í gegn fyrir föstudagskvöld. Sátta- fundur var haldinn í deilu flug- manna og Flugleiða í gær en honum lauk án nokkurs árangurs eftir lið- lega þrjár klukkustundir. Flugmenn, einkum flugmenn á Fokkervélum félagsins í innan- landsfluginu hafa farið sér hægt við störf sín að undanförnu og það svo mikið að allt innanlandsflug Flugleiða hefur farið úr skorðum. Talið er næsta víst að þeir muni halda uppteknum hætti, ef til lagasetningar kemur, og því munu Flugleiðamenn ekki vera ýkja hrifnir af lagasetningu, þó að þeir viðurkenni hana sem illa nauðsyn, eins og málum nú er komið. Morgunblaðið snéri sér til Steingríms Hermannssonar, for- sætisráðherra í gærkveldi og spurði hann hvort frumvarp það sem ofangreinir yrði lagt fram á þingi í dag og sagðist forsætis- ’ ráðherra ekkert um málið geta Geir skrifar Schultz bréf um Rainbow: íslendingar krefjast jafn- réttis í öllum flutningum Sérstakur fundur Geirs og Schultz um máliö í Washington GEIR Hallgrímsson, utanrík- isráðherra, hefur skrifaö Schultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, bréf, varö- andi væntanlegar siglingar bandaríska skipafélagsins Alþingi: Fjórir um- sækjendur FJÓRIR hafa sótt um embætti skrifstofustjóra Alþingis, en Friðjón Sigurðsson sem gegnt hefur stöð- unni lætur af störfum á þessu ári sökum aldurs. Umsækjendur eru: Friðrik Ólafsson lögfræðingur og ritstjóri Lagasafnsins, Bauganesi 24, Reykjavík; ólafur Ólafsson deild- arstjóri í skrifstofu Alþingis, Hjálmholti 6, Reykjavík; Sig- mundur Stefánsson skrifstofu- stjóri hjá Skattstjóraembætti Reykjaness og einn umsækjandi, sem æskir nafnleyndar. Rainbow Navigation til ís- lands og er bréf þetta sent í framhaldi af viðræðum utan- ríkisráðherra hér heima við bandaríska sendiherrann og viðræðum Hans G. Ander- sen, sendiherra íslands í Washington, við stjórnvöld þar. Geir Hallgrímsson mun inn- an skamms eiga fund með Schultz í Washington um þetta mál og önnur og er sá fundur í tengslum við sérstakan fund utanríkisráðherra Atlants- hafsbandalagsríkjanna þar. Utanríkisráðherra staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann hefði sent Schultz bréf vegna siglinga Rainbow skipa- félagsins og kvaðst hann hafa lagt áherzlu á, að hið banda- ríska félag mætti ekki draga til sína alla flutninga til varnar- liðsins hér í skjóli úreltra ein- okunarlaga. Það væri sameigin- legt hagsmunamál þessara tveggja ríka að halda uppi traustum og öruggum sigling- um og það hefðu Eimskipafélag íslands og Hafskip gert undan- farin ár. íslendingar krefðust þess, að jafnrétti ríkti í flutn- ingum á þessari leið. sagt á þessu stigi, en hann sagði að málið yrði rætt árdegis í dag í ríkisstjórninni. Steingrímur sagði um stöðuna í þessari kjaradeilu: „Ég lít þessa stöðu mjög alvarleg- um augum, og ég fyrir mitt leyti, tel það algjörlega ófært að þessir menn, sem eru með þeim hæst- launuðu í landinu, skuli ekki sætta sig við þær launahækkanir sem láglaunafólk hefur þurft að sætta sig við.“ Þjófaflokkur stöðvaður ÚTLIT er fyrir að upp sé að komast um starfsemi þjófa- flokks í Reykjavík. Sitja nú tveir menn, 20 og 25 ára, í haldi vegna þessa máls. Var í gær- kvöld sett fram krafa um gæslu- varðhaldsúrskurð yfir öðrum þeirra, vegna gruns um að hann sé valdur að þjófnuðum og skjalafalsi. Reiknað var með að krafist yrði gæsluvarðhalds yfir hinum í dag, skv. upplýsingum Mbl. í gærkvöld. Lögreglan komst á sporið þeg- ar handtekinn var og úrskurðað- ur í gæsluvarðhald sl. föstudag maður á þrítugsaldri, grunaður um innbrot og þjófnaði. Við yf- irheyrslur yfir honum vaknaði grunur um aðild hans að fleiri brotum og í framhaldi af því var handtekinn maður í fyrrakvöld og gerð húsleit í íbúð í Reykja- vík í gærmorgun. Tveir menn voru svo handteknir í gær en öðrum þeirra var sleppt síðdeg- is. Grunur leikur á að menn þessir hafi haft ofan af fyrir sér með innbrotum og þjófnuðum um alllangt skeið enda hafa þeir ekki stundað aðra vinnu. Brot þeirra eru talin vera allmörg en að auki eru þeir taldir hafa valdið umtalsverðum skemmd- um á húsum og öðrum mann- virkjum, m.a. Hólabrekkuskóla í apríl sl. Sjávarútvegsbraut væntanleg við HÍ ÁKVEÐIÐ hefur verið aö við gerð fjárlaga næsta fjárlagaárs, veröi tekið tillit til þess að bætt verði inn sérstakri námsbraut í sjávarútvegsfræðum við Háskóla íslands, og verður braut þessi að líkindum kennd á síðari námsár- um viðskiptafræöi, allt að 30 námseiningar. Þetta kom fram í máli Ragnhild- ar Helgadóttur, menntamálaráðherra er hún flutti ræðu á aðalfundi VSÍ í gær um atvinnulíf og menntamál. Menntamálaráðherra greindi frá því að nefnd sem unnið hefði að undirbúningi þessa máls, hefði nú skilað tillögum í þessa veru, og sagði hún að nefndin teldi að nám í sjávarútvegsfræðum félli vel að námi i viðskiptadeild H.í. og að hluta til væri einnig heppilegt að taka upp kennslu í öðrum grein- um sjávarútvegsfræða við verk- fræðideild H.L Sagði hún að nefndin væri sammáia um að ekki væri raunhæft að stofna sérstaka braut sem kenndi sjávarútvegs- fræði — raunhæfara væri að námið í þessum fræðum legðist ofan á grunnnám í öðrum deildum Háskóla íslands. Þá greindi menntamálaráð- herra frá því að ný námsbraut við Tækniskóla Islands, námsbraut í stjórnunartækni, myndi hefjast í ársbyrjun 1985. Hún sagði jafn- framt að nefnd sem unnið hefði að endurskoðun á starfi og rekstri Tækniskólans hefði komist að þeirri niðurstöðu að ákjósanlegt væri að í framtíðinni yrði Tækni- skólinn einkum rekinn sem fram- haldsmenntastofnun fyrir iðnað-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.