Morgunblaðið - 23.05.1984, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MAl 1984
FÉLAG ÍSLENSKRA
IÐNREKENDA
boöar til fundar um
virðisaukaskatt
Fundurinn verður haldinn aö Hótel Sögu, Átthaga-
sal, föstudaginn 25. maí kl. 13:30.
Gestur fundarins verður Hans Tellander, forstöðu-
maður skattadeildar sænska iðnrekendafélagsins.
Markmið fundarins er að kynna frumvarp um virö-
isaukaskatt, sem lagt var fram á Alþingi, og efna til
umræðu um þetta mikilvæga mál.
Dagskrá:
Kl. 13:30 Fundarsetning: Víglundur Þorsteinsson,
formaöur FÍI.
Kl. 13:45 Hvað er virðisaukaskattur?
Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri FÍI.
Kl. 14:15 Framkvæmd virðisaukaskatts.
Hjörtur Hjartar, hagfræðingur FÍI.
Kl. 15:00 Kaffihlé.
Kl. 15:15 Virðisaukaskattur í Svíþjóö (flutt á
ensku) Hans Tellander, forstööumaður
skattadeildar sænska iönrekendafé-
lagsins.
Kl. 16:00 Almennar umræður og fyrirspurnir.
Kl. 17:00 Fundarslit.
Fundurinn er öllum opinn.
Vélfræöingar
— vélstjórar
Ráðstefna
um stööu og störf vélfræöinga og vélstjóra á
vínnumarkaðinum hefst sunnudaginn 27. maí nk.
kl. 09.30 f.h. aö Borgartúni 18, Reykjavík.
Frummælendur á ráðstefnunni koma frá þeim
starfsgreinum þar sem vélfræðingar og vélstjórar
starfa. í máli sínu munu þeir svara eftirtöldum
spurningum.
1. í hverju eru störf vélfræöinga og vélstjóra fólgin í viökom-
andi starfsgrein?
2. Er um tengd störf aö ræöa sem gætu falliö undir starfssviö
vélfræöinga/vélstjóra?
3. Þarf menntun viökomandi aö breytast og þá hvernig?
4. Hver er líkleg þróun þessarra starfa í framtíöinni?
Frummælendur á ráðstefnunni veröa eftirtaldir:
Frá Landsambandi íslenskra útvegsmanna:
Eiríkur Ólafsson, útgeröarstjóri, Fáskrúösfiröi.
Frá Sambandi íslenskra kaupskipa útgeröa:
Birgir Ómar Haraldsson, tæknilegur fulltrúi framkvæmda-
stjóra hjá Hafskip.
Frá verksmiðjum:
Runólfur Þóröarson, verksmiöjustjóri Áburöarverksmiöju
ríkisins.
Frá orkuverum:
Guömundur Helgason, rekstrarstjóri Landsvirkjunar.
Frá frystihúsum:
Magnús Valdimarsson, tæknifræöingur hjá Sölumiöstöö
Hraöfrystihúsanna.
Til viðbótar þessum erindum mun Ingimar Hans-
son, verkfræðingur flytja erindi um japanska
stjórnun og Vilhjálmur Rafnsson, læknir hjá Vinnu-
eftirliti ríkisins gera grein fyrir niðurstöðum rann-
sókna varöandi dánartíðni og atvinnusjúkdóma
meðal vélfræðinga og vélstjóra í samanburði viö
aðrar starfsgreinar.
Milli kl. 12:00—13:00 veröur hádegisverðarhlé, en
matur veröur borinn fram á ráðstefnustað.
Væntanlegir þátttakendur eru beönir aö skrá sig
í síma 91-29933 eigi síöar en kl. 12:00 á hádegi,
föstudaginn 25. maí nk.
Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir.
Vélstjórafélag íslands.
Símamynd AP.
Kynbomba úr tré
Bandaríkjamenn um
ummæli Ustinovs:
Breytingin
sáralítil
Washington, 22. maí. AP.
Bandaríkjastjórn hefur gert lítið úr
yfirlýsingum Dmitri Ustinov, varnar-
málaráðherra Sovétríkjanna, en í ræðu
sem hann hélt í gær, sagði hann að
Itússar hefðu fjölgað kafbátum þeim er
sigla úti fvrir ströndum Bandaríkjanna
með kjamorkuvopn.
Ustinov sagði að Sovétmenn hefðu
nýlega ákveðið að fjölga kafbátunum
sem mótleik við auknum fjölda með-
aldrægra kjarnorkueldflauga NATO
í Vestur-Evrópu. „Þeir geta hæft
skotmörk í Sovétríkjunum á 8 til 10
mínútum, við getum leikið það eftir,"
sagði Ustinov.
Talsmaður Varnarmálaráðuneyt-
isins sagði að um engar meiri háttar
eða hættulegar breytingar væri að
ræða. „Við vissum um þetta, nýju
kafbátarnir komu fyrir nokkrum
mánuðum, þeir bættu einum við þá
tvo sem fyrir voru Kyrrahafsmegin,
og einum við þá þrjá sem voru Atl-
antshafsmegin. Þetta breytir engu
um hernaðarstöðuna, því kjarnorku-
vopnum þessara kafbáta var hvort
eð er beint að Bandaríkjunum frá
fyrri verustað þeirra í Norður-
Kyrrahafi og Norður-Atlantshafi,"
sagði talsmaðurinn.
Danmörk:
Ekkert lát á
verkföllunum
Kaupmannahöfn, 22. maí.
Frá Ib Bjornbak, frétlar. Mbl.
KKKERT hefur miðað í samkomu
lagsátt í hinu víðtæka bílstjóraverkfalli
í Kaupmannahöfn. Strætisvagnar hafa
verið óvirkir í viku, sorp er ekki sótt,
bensín og olía eru ekki keyrð út og það
er farið að segja verulega til sín í borg-
inni. Um tíma leit út fyrir að sporvagn-
arnir myndu stöðvast, en svo fór þó
ekki og er talið að Paul Schluter hafi
beitt sér persónulega fyrir því.
Þá hefur vinnustöðvunin komið
víða við. Blöðin stóru, Pólitíken og
BT hafa ekki komið út þar eð út-
keyrsla og dreifing hefur verið
óframkvæmanleg, sjónvarpsfréttir
hafa heldur ekki verið lesnar þar
sem frétta- og tæknimönnum hefur
verið meinaður aðgangur að upp-
tökusölum.
Þetta er kjarabarátta, viðkomandi
bílstjórar vilja hærra kaup,
skemmri vinnutima. Rikisstjórnin
heldur að sér höndum eins og hún
frekast getur, segir þetta mál borg-
arstjórnarinnar. Fundir hafa staðið
sleitulítið yfir síðustu daga, en vart
sér fyrir endann á deilunni, að
minnsta kosti enn sem komið er.
ónafngreindur franskur mynd-
höggvari lauk við tréstyttuna
sem sjá má á þessari mynd fyrir
skömmu. Þetta átti sér stað í
frönsku borginni Cannes i tilefni
af kvikmyndahátíðinni árlegu.
Stuttgart, 22. maí. AP.
VERKFÖLLIN í Vestur-Þýzkalandi
hreiddust út í dag en verkföllin og að-
gerðir vinnuveitenda, sem lokað hafa
verksmiöjum vegna verkfallsaðgerða,
koma beint við 250 þúsund málm-
iðnaðarmenn.
Á Stuttgart-svæðinu voru 65 þús-
und starfsmenn IBM, Porsche, Bosch
og fleiri fyrirtækja lokaðir úti og
samtök vinnuveitenda hótuðu frek-
ari aðgerðum þar til að viðunandi
samkomulag hefði náðst. Alls neyð-
ast um eitthundraö þúsund launþeg-
ar til að sitja heima vegna hefndar-
aðgerða vinnuveitenda. Ríkisstjórn-
in hefur ákveðið að þeir geti ekki
krafið vinnuveitendur launa þá daga
sem verksmiðjunum er lokað.
Ef grannt er skoðað má sjá hver
fyrirmynd listamannsins er,
einkanlega ef myndin við styttu-
fótinn er skoðuð. Er þetta engin
önnur en Brigitte Bardot, leik-
konan og kynbomban fræga.
Launþegasamtök svöruðu hótun-
um vinnuveitenda með því að hóta
að efna til svæðisbundinna verkfalla
þar til tillit hefði verið tekið til kröf-
unnar um 35 stunda vinnuviku án
launaskerðingar.
Verkfallsaðgerðirnar hafa lamað
bifreiðaiðnað V-Þjóðverja og kostað
framleiðendur hundruð milljóna
marka.
f dag slitnaði upp úr viðræðum í
deilu prentara. Lauk fimm stunda
sáttafudi án árangurs. Samtök
starfsfólks járnbrautanna, póst-
manna, bankamanna og ýmissa ann-
arra launþegastétta hafa hótað að-
gerðum af samúð við málmiðnað-
armenn.
Verkföll magnast
í V-Þýzkalandi
Sovéskur sendimaður í Washington:
Sakharov „veit of mikiðu
— og fær aldrei að fara úr landi
Motfkvu, W ashington, Paris, Hóm, 22. maí. AP.
FJÖLMIÐLAR í Sovétríkjunum
þögðu í dag þunnu hljóði um nób-
elsverðlaunahafann og andófs-
manninn Andrei Sakharov, en
sendiherra Sovétríkjanna í Frakk-
landi fullyrðir, að þau Sakharov-
hjónin séu á heimili sínu og við
„sæmilega" heilsu. Sovéskur
sendiráðsmaður í Washington seg-
ir, að Sakharov fái aldrei að fara
úr landi vegna þess, að hann „viti
of mikið“.
Vinir Yelenu Bonner, eigin-
konu Sakharovs, höfðu það eftir
henni um siðustu helgi, að mað-
ur hennar hefði verið fluttur
nauðugur af heimili þeirra í
Gorky hinn 7. þessa mánaðar en
Lionel Jospin, aðalritari franska
Sósíalistaflokksins, hefur það
eftir Vorontsov, sendiherra Sov-
étmanna í Frakklandi, að Sakh-
arov-hjónin séu bæði á heimili
sínu í Gorky og við „sæmilega
heilsu". Kvað Jospin orðalag
sendiherrans benda til, að Sakh-
arov væri enn í hungurverkfalli.
ítalska ríkisstjórnin lýsti í
gær yfir „miklum áhyggjum"
vegna meðferðarinnar á Sakh-
arov-hjónunum og í New York
efndi hópur manna til mótmæla
úti fyrir aðsetri sovésku sendi-
nefndarinnar hjá Sameinuðu
þjóðunum. Voru margir sovéskir
útlagar í þeim hópi. Margir
kunnir Bandaríkjamenn, t.d.
leikararnir Paul Newman, Cary
Grant og Laureen Bacall, hafa
sent Chernenko skeyti og skorað
á hann að leyfa Yelenu Bonner
að fara úr landi til að leita sér
lækninga.
I gær var gert opinbert bréf,
sem Ronald Reagan, Banda-
ríkjaforseti, skrifaði 7. maí sl. til
„Freedom House“, sem eru sam-
tök eða stofnun, sem fylgist með
mannréttindabrotum víða um
heim, en þar segir hann, að
Sakharov hafi margsinnis sýnt,
að hann „gefist ekki upp í bar-
áttunni fyrir friði og fyrir
mannréttindum handa löndum
sínum“.
Vadim Kuznetzov, sovéskur
sendiráðsmaður í Washington,
hefur endurtekið fyrri yfirlýs-
ingar Sovétstjórnarinnar um að
Sakharov fái aldrei að fara úr
landi vegna þess að hann „viti of
mikið“, en Sakharov hefur
stundum verið kallaður „faðir
sovésku vetnissprengjunnar".