Morgunblaðið - 23.05.1984, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1984
Aquaseal
þéttiefni
á sökkla
Aquaprufe olíublendi mjög gott
á sökkla þar sem mikill raki eöa
vatnsagieríjarðvegi. Efniðermeö
10% gúmmíblöndu og er því mjög
teygjanlegt og sterkt. Ver steypuna
gegn raka.
Aquaseal 5 er vatnsblendi hentugt
á sökkla þar sem raki er ekki mikill
í jarðvegi. Efnið má bera á þótt
steypan sé rök.
Ver steypuna gegn raka.
Rétt rað gegn raka
Þýzku hjónunum birt
ákæra í Sakadómi
Dómur kveðinn upp eftir hádegi
f GÆR var þýzku hjónunum, sem
handtekin voru í Gilsfirði með átta
fálkaegg, birt ákæra í Sakadómi
Reykjavíkur. þau eru ákærö fyrir
brot gegn 33. grein laga um fugla-
veiðar og fulgavernd, samanber
breytingu á lögunum nr. 75 frá 1982.
Þá voru viðurlög verulega hert og
hámarkssekt ákveðin ein milljón
króna.
38. grein laganna er svohljóð-
andi: „Ólögleg eggjataka varðar
sektum, varöhaldi eða fangelsi.
Virða skal það refsingu til þyng-
ingingar, ef tekin eru egg fágætra
fuglategunda, sem svo arnar, snæ-
uglu, fálka og haftyrðils, svo og
æðaregg. Heimilt er að gera egg,
sem ólöglega er aflað, upptæk
samkvæmt 69. grein almennra
hegningarlaga. Sama gildir um
hagnað, sem fenginn er með ólög-
legri eggjatöku."
Dómsrannsókn fór fram í Saka-
dómi í gær og að henni lokinni var
málflutningur. Lögmenn hjón-
anna eru Örn Clausen, hrl. og
Guðmundur Jónsson, hdl. Jón Er-
lendsson, sakadómari, er dómari í
málinu. Dómur verður kveðinn
upp klukkan 13 í dag.
Meðfylgjandi mynd er frá birt-
ingu ákæru í Sakadómi í gær —
Jón Erlendsson, dómari, er lengst
til vinstri, þá dómritari, Örn Clau-
sen, hrl. og Þjóðverjinn sem tek-
inn var með átta fálkaegg. Eigin-
kona hans mætti ekki í dóminn
þegar ákæran var birt.
Nýjasta lag Mezzo-
forte í 100. sæti
NÝJASTA lag hljómsveitarinnar Mezzoforte, „Spring Fever“,
sem út kom á tveggja laga plötu í síðustu viku, fór rakleiðis í
100. sæti breska vinsældalistans. Er það betri byrjunarárangur
en hljómsveitin náði áður með lögunum „Garden Party“ og
„Rockalr, skv. upplysingum u
ar, Steina hf.
„Lagið hefur fengið talsverða
spilun í minni útvarpsstöðvum í
Suður-Englandi, þar sem sveitin
á mestu fylgi að fagna og það er
góðs viti,“ sagði Jónatan Garð-
arsson, fulltrúi hjá Steinum hf.,
í samtali við blaðamann Mbl. í
gær. „Þessi vinsældalisti er tek-
inn saman af Gallup-stofnuninni
í Bretlandi á mánudögum, birtur
útgáfufyrirtækjunum á þriðju-
dögum og svo í blöðum á
fimmtudögum. Það er því vika
þar til við vitum nánar um gang
rnála."
Lagið „Spring Fever" var
frumflutt á hljómleikum Mezzo-
forte í Reykjavík fyrir síðustu
jól og var raunar eina lag
hljómleikanna, sem ekki hafði
áður komið út á hljómplötu.
is hljomsveitarinn-
Höfundurinn, gítarleikarinn
Friðrik Karlsson, hafði þá ný-
lega samið lagið og skýrði það
„Heima er best“ í tilefni af jóla-
heimsókninni. Þegar liðsmenn
sveitarinnar komu aftur til
Bretlands varð það þeirra fyrsta
verk að hljóðrita lagið og kom
það út í langri útgáfu á safnplöt-
unni „Dansrás 1“, er út kom hér
fyrir nokkrum vikum. Stytt út-
gáfa verður væntanlega á næstu
safnplötu Steina hf.
Hljómlistarmennirnir í
Mezzoforte una sér vel í Eng-
landi. Þeim hefur hins vegar
gengið erfiðlega að fá varanlegt
atvinnuleyfi en það hefur ekki
haft nein áhrif á störf hljóm-
sveitarinnar, að sögn Jónatans
Garðarssonar.
OLÍUVERSLUN ÍSLANDS HF.
HAFNARSTRÆTI 5-REYKJAVÍK
SÍMI SÖLUDEILD 24220 (RÁÐGJÖF)
SÍMI BIRGÐASTÖÐ 33533 (PANTANIR)
Gódcm daginn!
raðauglýsingar — raöauglýsingar — radauglýsingar
húsnæöi óskast
Skrifstofuherbergi
óskast
Óskum eftir aö taka á leigu 20—30 fm
skrifstofuherbergi sem fyrst.
Hvöt —
trúnaðarráðsfundur
Nýhús hf.,sími 16606.
óskast keypt
Fyrirtæki óskast
Óska eftir aö kaupa lítiö aröbært fyrirtæki.
Allt kemur til greina.
Tilboö sendist augl.deild Mbl. fyrir 30. maí
merkt: „Trygg fjárfesting — 997“.
Fundur verður í trúnaöarráöi Hvatar fimmtudaginn 24. maí kl. 17 30 i
Valhöll.
Stjórnin.
Sjálfstæðiskvennafélag
Árnessýslu
Aöalfundur fólagsins veröur haldinn þann 24. maí kl. 20.30 í Sjálf-
stæðishúsinu viö Tryggvagötu.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboði — Hafnarfirði
Vorferö félagsins veröur farin laugardaginn 26. maí. Lagt af staö frá
Sjálfstæöishúsinu við Strandgötu kl. 14.00 stundvíslega.
Þátttaka tilkynnist til Flínar sími 53566, Valgerðar sími 53132 og Ernu
sími 53331.
Stjórnin.
Opinn fundur um Útvarpslagafrumvarpið:
FRJÁLST ÚTVARP
— hvert verður framhaldiö?
Samband ungra sjálfstæöismanna og Heimdallur halda opinn fund
um Útvarpslagaframvarpiö í Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 19.30—21.00
miövikudaginn 23. maí nk.
RaAumann:
Fríðrik Friöriktaon Halldór Blöndal al- Guömundur Ein-
1. varaformaöur þingismaöur, Sjélf- arsson alþingis-
Sambands ungra staöisflokki. maöur, Bandalagi
sjálfstaöismanna. jafnaöarmanna
Jón Baldvín Hanni- Fundarstjóri:
balsson alþingis- Haukur Þór Hauks-
maöur, Alþýðu- son varaformaöur
flokki. Heimdallar.