Morgunblaðið - 24.05.1984, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
117. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Áskorun EBE-ríkja:
Hætt verði árásum
á skip í Persaflóa
London og Manama í Hahrain. 23. maí. AP.
KÍKIN tíu, sem aðild eiga að Efna-
hagsbandalagi Evrópu, hafa skorað á
írani og íraka, að hætta árásum á
flutningaskip í Persaflóa. Sendiherrar
Frakka, Grikkja og íra í Bagdad og
Teheran afhentu stjórnvöldum þar orð-
sendingu þessa efnis á mánudag.
Frá því seint í mars hafa tíu flutn-
ingaskip, þar af sjö olíuskip, orðið
fyrir árásum Irana og Iraka á Persa-
flóa.
Tilraunir, sem leiðtogar Araba-
ríkja hafa gert undanfarna daga til
að bera sáttarorð á milli hinna stríð-
andi þjóða, hafa engan árangur bor-
ið. Saddam Hussein, forseti Iraks,
sagði í dag, að sú stund nálgaöist, að
Irakar gætu sprengt Kharg-eyju,
eina aðalolíuhöfn írana í Persaflóa, í
loft upp. Þau flutningaskip, sem orð-
ið hafa fyrir árásum í flóanum á
undanförnum vikum, hafa flest verið
á leið til Kharg-eyjar eða frá henni.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
sagði í gær að Bandarlkjamenn
hefðu ekki boðist til eða verið beðnir
um, að hafa afskipti af siglinga-
vandkvæðum á Persaflóa. Heimild-
armenn AP meðal arabískra stjórn-
valda segja hins végar, að Banda-
ríkjastjórn hafi lýst sig reiðubúna til
íhlutunar ef Persaflóarlkin fara þess
á leit.
Sez af vagnstjórunum átta í Kaupmannahöfn, sem reknir voru úr starfi í gær, horfa á sjónvarpsviðtal við sjöunda
vagnstjórann, Per Brandt, en hann var fyrstur til að ganga úr félagi bifreiðastjóra til að mótmæla því að stéttarfélags-
gjald sitt rynni til Bokks jafnaðarmanna. Símamynd: Nordfoto.
Endi bundinn á vinnudeiluna í Kaupmannahöfn?
Vagnstjórar reknir til
að friða verkfallsmenn
Kaupmannahöfn, 23. maí, frá AP
og Ib Björnbak, fréttaritara Mbl.
Karl-August Fagerholm
Karl-August
Fagerholm
látinn
llelsinki, 23. maí. AP.
Karl-August Fagerholm, fyrrum
forsætisráðherra Finnlands og for-
seti finnska þingsins, lést í gær á
sjúkrahúsi í Helsinki, 82 ára að
aldri.
Fagerholm var um árabil einn
helsti leiðtogi norrænna jafnað-
armanna og athafnasamur á vett-
vangi norrænnar samvinnu. Hann
sat á þingi í 35 ár, gegndi embætti
forsætisráðherra þrívegis, 1948—
1950, 1956-1957, 1958-1959, og
var félagsmálaráðherra á árunum
1937—1943. Fagerholm bauð sig
fram I forsetakosningunum 1956,
en tapaði naumlega fyrir Uhro
Kekkonen. Áratug síðar hætti
hann afskiptum af stjórnmálum.
Borgarráð Kaupmannahafnar
féllst í dag á tilmæli stjórnar stræt-
isvagna borgarinnar, að víkja átta
vagnstjórum, sem neitað hafa að
greiða stéttarfélagsgjöld til Alþýðu-
sambandsins, úr starfi, en undan-
farna tólf daga hafa samgöngur í
borginni lamast, með víðtækum af-
leiðingum, vegna verkfalla sem and-
stæðingar vagnstjóranna hafa efnt
til í mótmælaskyni við afstöðu
þeirra.
Vagnstjórarnir átta segjast ekki
vilja vera í félagi bifreiðastjóra,
sem er aðili að Alþýðusamband-
inu, vegna skipulagslegra tengsla
danskrar verkalýðshreyfingar og
flokks jafnaðarmanna. Þeir segj-
ast vera á móti því að stéttarfé-
lagsgjöld þeirra renni til jafnað-
armanna, og hafa stofnað óháð
stéttarfélag.
Verkamenn í Kaupmannahöfn,
sem eru á öndverðum meiði við
vagnstjórana átta og krefjast þess
að þeir verði knúnir til að ganga í
félag bifreiðastjóra eða reknir,
hófu mótmælaaðgerðir 12. maí,
sem síðan hafa breiðst út og auk-
ist að umfangi. Strætisvagna-
stjórar lögðu fyrstir niður vinnu,
en síðan slógust bílstjórar í
sorphreinsun og olíuflutningum í
hópinn og hafa verkföllin lamað
ailt eðlilegt líf í Kaupmannahöfn,
sorp hefur t.d. hlaðist upp og
vandræði skapast á sjúkrahúsum.
Stuítyart, 23. maí. AP.
TALIÐ er að allt að fimmtfu þúsund
verkamenn í Vestur-Þýskalandi hafi
lagt niður vinnu í dag til að mót-
mæla vcrkbanni vinnuveitenda, sem
Það voru jafnaðarmenn, sem
hafa meirihluta í borgarstjórn
Kaupmannahafnar, sem stóðu að
brottvikningu vagnstjóranna. Þeir
segja að það sé eina leiðin til að
ieysa deiluna og koma samgöngum
í borginni í eðlilegt horf á ný.
Borgaraflokkarnir, sem eru í
minnihluta í borgarstjórn en fara
með stjórn landsins, greiddu at-
kvæði gegn uppsögninni. Þeir
nær til 65 þúsund félaga í samtökum
málmiðnaðarmanna.
Málmiðnaðarmenn í bifreiða-
verksmiðjum hafa undanfarna níu
daga verið í skæruverkföllum til
að leggja áherslu á kröfu stéttar-
samtaka sinna um styttingu
vinnuvikunnar um fimm klukku-
stundir án kauplækkunar, en sam-
tökin, sem eru öflugustu verka-
lýðssamtök heims með 2,5 milljón-
ir félaga, telja það árangursríka
aðferð í baráttu við atvinnuleysi í
landinu.
Verkföllin, sem talið er að um
250 þúsund manns taki þátt í, hafa
að heita má lamað bifreiðafram-
leiðslu í Vestur-Þýskalandi og
hafa sumir framleiðendur brugð-
ist við þeim með því að loka verk-
smiðjum og lýsa yfir verkbanni.
Bifreiðaframleiðendur telja sig
þegar hafa tapað andvirði eins
milljarðs þýskra marka vegna
vinnudeilunnar.
Samningafundur málmiðnað-
armanna og vinnuveitenda í
segja hana brot á stjórnarskrár-
bundnum réttindum vagnstjór-
anna; óheimilt sé að skikka menn
til að vera í ákveðnum verkalýðs-
félögum.
Fullvíst er að ágreiningsmál
þetta á eftir að koma til kasta
dómstóla í Danmörku og einnig er
hugsanlegt að ríkisstjórn borgar-
aflokkanna hafi einhver afskipti
af samþykkt borgarráðsins.
Stuttgart er fyrirhugaður á morg-
un, fimmtudag, og niðurstaða þess
fundar er talin skipta miklu máli
fyrir framvindu deilunnar annars
staðar í landinu.
Verkfall
í Noregi
Osló, 23. maí, frá Jan Erik
Lauré, fréttaritara Mbl.
Á MIÐNÆTTI hófst verkfall
15 þúsund opinberra starfs-
manna í Noregi. Seint í kvöld
slitnaði upp úr samningavið-
ræðum fulltrúa þeirra og
Arne Rettedals félagsmála-
ráðherra og strandaði sam-
komulag á launakröfu starfs-
mannanna. Verkfallið kemur
til með að setja ýmiss konar
opinbera þjónustustarfsemi
úr skorðum.
„Samningamaduru Afgana
biðst hælis í Pakistan
Islamabaad, 23. maí, AP.
ABDUL Majid Mangal, háttsettur
embættismaður kommúnista-
stjórnarinnar í Afganistan, flúði I
dag ásamt fjölskyldu sinni til Pak-
istan og baðst hælis þar sem póli-
tískur flóttamaður. Við komuna
þangað sagði hann að Sovétmenn,
sem hafa hersetið Afganistan síð-
an 1979, væru að leggja föðurland
sitt í eyði og útrýma samlöndum
sínum.
Mangal, sem starfaði í utan-
ríkisráðuneytinu í Kabúl og var
um þriggja ára skeið sendi-
fulltrúi í Moskvu, var ásamt
Taraki, fyrrum forseta, og Amin,
fyrrum utanríkisráðherra,
höfundur samkomulags sem
afgönsk og sovésk stjórnvöld
gerðu með sér í desember 1978,
en á grundvelli þess hafa Sov-
étmenn réttlætt innrás sína í
Afganistan og hersetuna þar.
f yfirlýsingu, sem Mangal
sendi frá sér í Islamabaad í dag,
sagði að öll völd í Afganistan
væru nú í höndum Sovétstjórn-
arinnar og Afganir sjálfir væru
þar áhrifalausir.
Nær þrjár milljónir Afgana
hafa flúið til Pakistan frá því að
Sovétmenn hernámu Afganistan
í desember 1979.
Deila málmiðnaðarmanna í Vestur-Þýskalandi:
Fimmtíu þúsund manns
mótmæltu verkbanninu