Morgunblaðið - 19.07.1984, Side 3
3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚLl 1984
„Giörsamlega
út í hött“
— segir Kristján Ragnarsson formaður LIU
um fisksölutilboð Grænlendinga
„ÞETTA er gjörsamlega út í hött. í fyrsta lagi eigum við ekki nema þrjú skip,
sem geta fryst aflann um borð, Hólmadrang, Örvar og Akureyri, og þau
sýnast hafa næg verkefni hérna heima með tilliti til þeirra kvóta. Þetta er
líka svo óhagkvæmt að ég get ekki ætlað að menn gefi nokkurn skapaðan
hlut fyrir þetta,“ sagði Kristján Ragnarsson, formaður LÍU, um fisksölutil-
boð grænlenska fyrirtækisins AMBA til íslenskra verksmiðjutogara og greint
var frá í frétt Morgunblaðsins í gær.
Hugmyndir Grænlendinga voru
þær, að grænlensk fiskiskip seldu
þorsk um borð í verksmiðjutogar-
ann, sem myndi síðan vinna hann
í salt eða frystingu. Samkvæmt
upplýsingum Mbl. er fiskverðið,
sem Grænlendingar setja upp um
krónur 5,20 danskar, sem er nokk-
uð hærra en upp úr sjó hér og þeir
útgerðarmenn, sem blaðið hafði
samband við í gær vegna þessa
máls, tóku fremur dræmt í tilboð
Grænlendinga.
Þorsteinn M. Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samherja á
Akureyri, sem gerir út togarann
Akureyrina, sagði í samtali við
Morgunblaðið að tilboð Grænlend-
inga væri ekki raunhæft. „Þeir
höfðu samband við okkur, Græn-
lendingarnir, en þetta getur ekki
gengið miðað við það verð, sem
skipið þarf að kaupa aflann á,“
sagði Þorsteinn. „Þar að auki er
þetta smár fiskur, af stærðinni 45
til 65 sm og er þar af leiðandi erf-
iður í vinnslu. En það er líka verið
að bjóða okkur kvóta við Græn-
land, sem væri álitlegra, en það
má segja að hvorki við né aðrir
hafi getu til að taka þá áhættu að
fara þarna yfir þótt það sé ef til
vill freistandi," sagði Þorsteinn
ennfremur.
Sveinn Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Skagstrendingi,
sem gerir út togarann Örvar, tók í
sama streng. „Verðið er of hátt og
auk þess eru þeir með netafisk,
sem við gætum ekki unnið um
borð í örvari fyrr en hann væri
orðinn 12 til 36 tíma gamall. Það
samræmist ekki þeim gæðakröf-
um sem við gerum. Mér líst ekki á
þetta, en ég er þó ekki búinn að
hringia í þá til að tilkynna þeim
það. Eg þarf aðeins að ræða betur
við mína kaupendur úti í Eng-
landi, en tel hverfandi líkur á að
úr þessu geti orðið," sagði Sveinn.
Sjálfstæðisflokkurinn
fundar um verkefna-
áætlun ríkisstjórnarinnar
„Meginefni fundarins verður
áframhaldið á þessu stjórnarsam-
starfi, þ.e.a.s sú verkefnaáætlun sem
búin er að vera í farvatninu nokkuð
lengi,“ sagði Friðrik Friðriksson,
framkvæmdastjóri þingflokks
Sjálfstæðisflokksins, í samtali við
Morgunblaðið, en Sjálfstæðisflokk-
urinn heldur miðstjórnar- og þing-
flokksfund á Laugarvatni í dag.
„Það verður tekin upp markviss
vinna að þessari verkefnaáætlun
eftir þennan fund og ég á von því
að ákvörðun verði tekin á honum
um vinnubrögðin í framtíðinni.
Meginefni þessa fundar verður að
gefa yfirlit um stöðuna og taka
ákvörðun um hvert framhaldið
verður," sagði Friðrik.
í framhaldi af þeirri umræðu,
sagði Friðrik, yrðu málefni sjáv-
arútvegs og landbúnaðar rædd
sérstaklega. Hvað sjvarútveginn
snerti yrði rætt hvað gera skyldi,
bæði hvað varðaði aðkallandi
vanda og einnig hugmyndir sem
horfðu lengra fram á við.
Hvað landbúnaðinn varðaði,
yrði rætt um endurskoðun fram-
leiðsluráðslaganna, en nefnd hefði
verið skipuð til að endurskoða þau
og hefði starfað að þeirri endur-
skoðun í sumar.
Frá slysstað í Svínadal.
Ljósm. Mbl. D.P.
Umferðarslys í Svínadal
Grund, Horgarfirói, 14. júlí.
ÞAÐ óhapp átti sér stað síðastlið-
inn laugardag, að ökumaður lítill-
ar rútu af gerðinni M. Bery missti
stjórn á henni er hann var að aka
niður brekkuna fyrir sunnan Þór-
isstaði í Svínadal. Rútan lenti á
brúarstöpli og endastakkst síðan
niður fyrir veg. Ökumann, sem var
einn í bifreiðinni, sakaði ekki, eft-
ir því sem best er vitað, en bifreið-
in er talin ónýt.
D.P.
Olöglega stæðir
bílar fjarlægðir
DRÁTTARBIFREIÐ á vegum um-
ferðardeildar lögreglunnar hefur
verið á ferðinni, aðallega í miðbæ
Reykjavíkur, upp á síðkastið til að
fjarlægja bifreiðir sem lagt hefur
verið ólöglega.
I samtali við blaðamann Mbl.
sagði Páll Garðarsson varðstjóri 1
umferðardeild lögreglunnar í
Reykjavík að alls væru fjarlægðar
á milli 10 og 15 bifreiðir á dag, en
lögreglan hefði afskipti af um það
bil 4050 bifreiðum á dag. Bílarnir
sem væru fjarlægðir, væru færðir
Lögregluþjónar og ökumaður drátt-
arbifreiðarinnar undirbúa bifreið,
sem lagt var ólöglega, fyrir „ferða-
lag“ á aðalstöð lögreglunnar. Lög-
reglan í Reykjavík fjarlægir á milli
10 og 15 bifreiðir á dag og hefur
afskipti af 40—50 ólöglega staðsett-
um bifreiðum á dag.
á aðalstöð lögreglunnar og þangað
þyrftu eigendur að vitja þeirra,
leysa þá út og greiða flutnings-
kostnað og sekt fyrir rangstöðu.
Sektin nemur nú 240 krónum og
flutningskostnaðurinn er um og
yfir 500 krónur, eftir því á hvaða
tíma sólarhrings hann fer fram.
Páll Garðarsson sagði að drátt-
arbifreiðin væri kölluð út af lög-
reglunni öðru hvoru, þegar sýnt
væri að hennar væri þörf. Hann
gat þess að oft bærust kvartanir
vegna bíla sem væri ólöglega lagt
og meðal annars heftu för gang-
andi fólks og strætisvagna. Oft
læki olía og annað slíkt undan bíl-
unum og stundum væri þeim lagt
þannig að þeir lokuðu innkeyrsl-
um. Páll sagði að bílarnir væru þó
aldrei fjarlægðir af lögreglunni
fyrr en reynt hefði verið að ná í
skráða eigendur til að þeir gætu
fjarlægt bílana sjálfir. Dráttar-
bifreiðin verður 1 miðbæ Reykja-
víkur næstu daga til að fjarlægja
þá bíla sem er ólöglega lagt, ef
ekki næst í eigendur þeirra.
VOKUNOTT
hjá gjaldkena húsfélagsins
JA, ÞAÐ ER tímafrekt starf
að vera gjaldkeri húsfélags, og
ómældar stundirnar sem fara í
innheimtu, bókhald, útreikninga
o.s.frv.
En nú bjóðumst við til að
létta störfín. Með aðstoð tölvu
getum við t.d. reiknað gjöld,
fylgst með stöðunni og innheimt
með gíróseðlum, allt á fljótvirkan,
ódýran og öruggan hátt.
Líttu inn til okkar og kynntu
þér alla þá möguleika sem hús-
félagaþjónusta okkar býður upp á.
Eftir það getur þú notað
næturnar til svefns...
SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA