Morgunblaðið - 02.09.1984, Page 6

Morgunblaðið - 02.09.1984, Page 6
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1984 Fjöhmðlamir og réttarkerf ið Morgunblaðið leitar álits á ummælum Þórs Vilhjálmssonar forseta Hæstaréttar um stöðu fjöl- miðlanna í íslenska réttarkerfinu Ummæli Þórs Vilhjálmssonar forseta Hæstaréttar um íslenska fjölmiðla og rétt- arkerfi, sem hann viðhafði í rœðu á norrænu lögfræðingamóti í Osló í síðasta mánuði hafa vakið athygli og umræður um ábyrgð fjöl- miðla og stöðu þeirra gagnvart réttarkerfinu. f ræðu sinni sagði Þór m.a., „að það verður æ Ijósara, hve lítið réttarkerfið og fjölmiðlarnir eiga saman að sœlda. Lagaeftirlitið með fjöl- miðlunum er ekki virkt. Og við það bætist, að hið ólögfesta eftirlitskerfi, sjálfsögunin, hef- ur enga þýðingu, eða að minnsta kosti næst- um enga. “ Þá sagði Þór: J landi mínu eru eins og á öðrum Norðurlöndum reglur um meiðyrði, um friðhelgi einkalífs o.s.frv. og við og við eru kveðnir upp dómar um sektir, bætur, ómerkingar, upptökur og annað, sem til heyr- ir. En þessir dómar hafa sjaldnast verulega þýðingu fyrir dómþola. Fjölmiðlamenn virð- ast ekki taka því með ýkjamikilli alvöru, að dómar gangi gegn þeim á þessu sviði, — sið- ferðileg áhrif eru með öðrum orðum ekki mikil. Spurningin, sem dæmdur ritstjóri læt- ur sig varða, virðist fremur vera sú, hve mik- ið hann þarf að borga. Og réttarvenja í mínu landi er með þeim hætti að menn borga ekki ýkja mikið. Það er a.m.k. oft lítillar sektar virði að fá góða sögu og selja vel. Það eru þannig dómstólarnir, sem gefið hafa æsi- pressunni lausan tauminn, og þar er komið að aðalvandanum í mínu landi að því er ég tel. Bætt sjálfsögun kæmi varla að miklu gagni. Þau viðurlög, sem þar koma til álita, eru ekki slík, að búast megi við, að þau dragi úr ákafri leit blaðanna eftir athygli lesendanna. Og um hina svonefndu siðareglunefnd Blaða- mannafélags Islands er að segja, að hún hef- ur aðeins fengið til meðferðar um 30 mál síðan hún var sett á fót fyrir 20 árum. Ástæð- ur þess eru vafalaust margar, en sú er aug- Ijósust, að nefndin starfar fyrir luktum dyr- um og að úrskurðir hennar eru aðeins birtir í félagsbréfi blaðamannafélagsins en ekki kunngerðir almenningi. “ Og seinna segir Þór Vilhjálmsson: „Varla hillir undir breytingu til hins betra. í mínu landi tel ég, að breyting muni ekki geta orðið á næstu árum. Svo virðist sem meðal fjöl- miðlamanna sé það ríkjandi ósk, að þeir séu lausir við eftirlit laganna. Þetta er ekki eins- dæmi. Aðrir áhrifahópar, einkum stjórn- málaflokkarnir og hagsmunasamtökin, vilja helst komast undan því í mínu landi, að rétt- arkerfið hafi afskipti af málum þeirra. Öll- um þessum þremur hópum hefur tekist að komast undan þessu lagaeftirliti. “ Morgunblaðið leitaði álits nokkurra manna, sem hafa eða hafa haft á einhvern hátt mikil samskipti við fjölmiðla og spurði þá m.a. hvort þeir teldu gagnrýni Þórs Vil- hjálmssonar á blaðamenn og fjölmiðla rétt- mæta og hvort þeir teldu að setja bæri ná- kvæmari reglur um ábyrgð fjölmiðla og birt- ast hér svör þeirra. — ai. Helgi Daníelsson yfirlögregluþjónn RLR: Nauðsynlegt að tryggja betur rétt manna gagnvart fjölmiðlum „Mér þykir þetta gagnleg um- ræða og þaö er fyllsta ástsða til að velta vöngum yfir ábyrgð og vinnu- brögðum fjölmiðla. Það er deginum Ijósara að ef menn fara í mál vegna srumeiðandi ummsla í fjölmiðlun- um er afraksturinn lítill og menn nenna yfirleitt ekki að standa í því,“ sagði Helgi Daníelsson yfir- lögregluþjónn Rannsóknarlögreglu ríkisins. „Það er því nauðsynlegt að mínu mati að gera eitthvað sem tryggir betur rétt manna gagn- vart fjölmiðlum. Hvað varðar siðareglunefnd blaðamannafé- lagsins, þá finnst mér það hæpið að menn séu næstum látnir dæma í sjálfs sín sök, auk þess sem niðurstöður hennar eru ekki birtar nema í fréttabréfi félags- ins. Og það skýtur nokkuð skökku við að þegar menn kæra til þess- arar nefndar blaðamanna, þá er það orðið trúnaðarmál, sem eng- um kemur við nema þeim sjálf- um. Þetta er svolítið öfugsnúið. Það hlýtur að vera að fólk eigi rétt á að vita hvað fram fer innan þessarar nefndar. Sjálfsagt er að láta sömu reglur giida um siða- reglunefndir annarra stétta, ef það sama er upp á teningnum. Það er auðvitað satt og rétt, sem blaðamenn hafa sjálfir bent á, að það sem þeir skrifa er eins og hver annað ritningarlestur ef miðað er við það sem erlendis gerist, en við þurfum ekki alltaf að miða okkur við það versta. Það þarf varla nema að skrifa eitt lesendabréf til að svipta menn ærunni. Það er auðveldara að koma óorði á fólk en að hreinsa sig af því eftirá. Sá sem verður fyrir slíku verður að eiga einhvern rétt. Ég veit um marga, sem hefur þótt að sér vegið í fjöl- miðlum en ekki talið borga sig að leita réttar síns. Maður er lítið bættur með eindálka afsökunar- pung einhvers staðar inni i blaði þegar maður hefur verið sviptur mannorðinu. Þær fréttir, sem við gefum til fjölmiðla, mega ekki skaða rann- sókn málsins og það verður að gæta þess að þær valdi mönnum Helgi Daníebwon ekki skaða eða miska á annan hátt. Það er margt á vettvangi lögreglumála, sem að mínu mati á ekkert erindi í blöð, en það er erfitt að setja nákvæmar reglur varðandi þetta. Það verður hver og einn að meta í hvert sinn. Það er mikill munur á fjölmiðlum þegar kemur að birtingu lög- reglufrétta og það sést best á því að lesa blöðin," sagði Helgi Daní- elsson. ómar Valdimarsson form. Blaðamannafélags íslands: Eftirlit réttar- kerfisins er nóg „Þótt ég sé að mörgu leyti ósammála þeim skoðunum, sem Þór Vilhjálmsson viðraði á lög- fræðingamótinu í Osló, fagna ég þeirri umræðu, sem farið hefur fram í kjölfar mótsins. I Blaða- mannafélagi íslands hefur á und- anfornum árum mikið verið rætt um siðareglur blaðamanna, nauð- syn á endurskoðun þeirra og sam- skipti fjölmiðla og dómstóla,“ sagði Ómar Valdimarsson, blaða- maður og formaður Blaðamanna- félags íslands. „í nærri þrjú ár hefur verið starfandi endurskoðunarnefnd siðareglna BÍ og í félaginu eru nú til umræðu tillögur nefndar- innar að endurskoðuðum regl- um. Þær tillögur hafa tvívegis verið lagðar fyrir aðalfund Blaðamannafélags íslands og orðið um þær miklar umræður. Tillögurnar hafa ekki hlotið af- greiðslu enda erum við blaða- menn sammála um, að siðaregl- ur séu mál, sem ekki beri að semja, ræða og samþykkja í skyndi. Til þess er einfaldlega of mikið í húfi. Og svo kann að skipta máli, að í nýju tillögun- um er ekki gert ráð fyrir að úr- skurðir siðareglunefndar BÍ séu birtir opinberlega. Sjálfur er ég eindregið þeirrar skoðunar, að úrskurði siðareglunefndar eigi að birta almenmngi, a.m.k. í þeim fjölmiðli, sem hefur gerst brotlegur. Það getur ekki farið saman, að blaðamenn krefjist óhindraðs aðgangs að upplýs- ingum hvarvetna í þjóðlífinu og andskotist yfir hverskonar leynimakki annarra, en leyfi svo ekki að þeirra eigin mistök verði dregin fram í dagsljósið. Rétt er að taka fram, að sjálf- ar reglurnar eru á margan hátt viðunandi. Þær eru stuttar og gagnorðar og um efni þeirra hefur ekki verið deilt að neinu marki, helsta ágreiningsefnið hefur verið leyndarhjúpurinn um úrskurði siðareglunefndar. En þótt núgildandi reglur banni beinlínis, að frá dómum sé sagt nema í Fréttabréfi BÍ, tel ég engan vafa leika á því, að siðareglurnar og úrskurðir nefndarinnar hafi áhrif. Ég hef unnið með tugum blaðamanna og enn hef ég engum kynnst, sem lætur sér siðareglurnar í léttu rúmi liggja eða pípir á úr- skurði siðareglunefndar, eins og manni sýnist að forseti Hæsta- réttar haldi fram. Biaðamenn á íslandi eru upp til hópa vandað fólk, sem tekur starfsskyldur sínar alvarlega og vill fyrst og síðast gæta þess, að réttar upp- lýsingar komist til fólksins í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.