Morgunblaðið - 02.09.1984, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 02.09.1984, Qupperneq 10
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1984 K, Dularfullur, gráhærður Austurríkismaður, tæplega sjötugur að aldri, skaut upp kollin- um nokkrum mánuð- um áður en þess var minnzt fyrr á þessu ári að liðin voru þrjátíu ár frá ósigri Prakka fyrir her Viet Minh við Dien Bien Phu í Indó- Kína og viðurkenndi að hafa gert sig sekan um landráð, sem hefðu átt þátt í ósigrinum. Nýlega var skýrt ítarlega frá atburðunum i Indó-Kína fyrir þrjátiu árum í ís- lenzka sjónvarpinu. Samkvæmt skjölum, sem haft hefur verið upp á i skjalasafni frönsku útlendingahersveitarinn- ar í Aubagne, skammt frá Mars- eilles, féll þessi dularfulli Austur- ríkismaður, Ernst Frey að nafni, í skotbardaga nálægt Hanoi 1945 þegar hann var liðþjálfi í 5. fót- gönguliðsherdeild útlendingaher- sveitarinnar. Hann hafði gengið í útlendinga- hersveitina áður en heimsstyrj- öldin brauzt út, þar sem hann var á flótta undan nazistum. Yfir- menn hans höfðu enga hugmynd um að hann væri leynilegur félagi í kommúnistaflokknum og eldheit- ur stuðningsmaður „heimsbylt- ingarinnar". Hann skýrði ekki frá því hvern- ig „dauða“ hans bar að höndum og í hverju starfsemi hans var fólgin fyrr en um þrjátíu árum eftir að nýlendustríði Frakka í Indó-Kína lauk. Það gerði hann í bók, sem gefin var út í Frakklandi og vakti töluverða athygli. í INNSTA HRING Frey heldur því fram að hann hafi vísvitandi sett „dauða“ sinn á svið til þess að geta gengið í lið með víetnömskum kommúnistum. Hann heldur því fram að hann hafi náð svo langt í þjónustu kommúnista í Víetnam að hann hafi orðið helzti ráðunautur æðsta yfirmanns herliðs þeirra, Vo Nguyen Giaps hershöfðingja. Hann kveðst hafa verið hægri hönd Giaps hershöfðingja um sex ára skeið og kennt þessum yfir- manni sínum og fyrrverandi sögu- kennara hervísindi. Þetta hefur komið nokkuð spánskt fyrir sjónir, þar sem Giap hefur lengi haft orð á sér fyrir að vera einn albezti herfræðingur þessarar aldar á sviði skæruhern- aðar. Ef Frey hefur rétt fyrir sér getur hann að nokkru leyti þakkað sér yfirburðasigur Vietnama við Dien Bien Phu, þar sem Frakkar misstu um 15.000 menn. Fyrir vel unnin störf var Frey gerður að ofursta í víetnamska „alþýðuhernum" og hann tók sér víetnamskt nafn, „Nguyen Dan“. Giap hershöfðingi gaf þau fyrir- mæli að Frey mætti einn allra for- ingja hafa aðgang að skrifstofu sinni, að nóttu jafnt sem degi. Lið- hlaupinn úr útlendingahersveit- inni kveðst þar að auki hafa verið náinn vinur allra þeirra manna, sem áttu sæti í stjórn víetnamska kommúnistaflokksins. Hann sat fundi undir stjórn Ho Chi Minh og Pham Van Dong, nú- verandi forseta, og kynntist öllum helztu leyndarmálum þeirra frá fyrstu hendi. Ernst Frey. Giap hershöfðingi, sigurvegar- inn fri Dien Bien Phu. Þegar bók Freys kom út vildu núverandi leiðtogar Víetnama ekki viðurkenna að Frey væri til, þótt undarlegt megi virðast, og heldur ekki afrek þau, sem hann kveðst hafa unnið í baráttunni fyrir sjálfstæði lands þeirra. Ef frásögn Freys er rétt er hann eini Vesturlandabúinn, sem vitað er til að hafi talað á flokksþingi komm- únista í Víetnam. Frey hefur undir höndum áður óþekktar Ijósmyndir, sem sýna hann flytja ræðu á fundi með flokksmönnum í frumskógarbúð- um í Víetnam 1950, þegar 20. þing víetnamska kommúnistaflokksins var haldið. Hann á einnig í fórum sínum bréf undirritað af Ho Chi Minh, þar sem honum er þakkað fyrir „afrek í þágu málstaðar kommúnista". Fi <5 Hlciufjinn úr frönslcisi L7tlendingciHer’sveitinni, sem sneri crftur ciciuðnm og scigSi Jrá s\>ilc icm sínum viö Frcitclcci F>ien Bien BHvi Hægrí hönd Giaps

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.