Morgunblaðið - 04.09.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
21
Rochefort og Lanoux sem lögreglumenn i hálum ís I Sunnudagur íogregiu-
mannsins.
Á eftir sunnudegi
kemur mánudagur
koma varla aðrar kvikmyndir á
heimsmarkað en afurðir Jamie
nokkurs Uys sem leggur sig
mjög fram við að gera grunlausa
samlanda sína að fíflum fyrir
framan myndavélarnar. Uys
hefur reyndar gert vel á þriðja
tug kvikmynda en velgengni og
frægð hefur hann umfram allt
náð fyrir tilstilli þessarar að-
ferðar. Hingað hafa borist
Beautiful People, Funny People
1, The Gods Must be Crazy (sem
reyndar er leikin mynd) og nú
Funny People 2. Kúnstin við
svona kvikmyndagerð er annars
vegar að láta sér detta í hug
nógu grínaktugar gildrur fyrir
fólkið að detta í og hins vegar að
verða ekki ósmekklegur um of
við að breyta meðborgurunum í
trúða án þess að biðja þá um
leyfi fyrst. f Funny People 1
fannst mér Uys bregðast æði oft
hvað það síðarnefnda varðar;
grínið var allt of mikið á kostnað
óupplýstra og kúgaðra blökku-
manna í þessu landi aðskilnað-
arstefnunnar. í þeirri mynd sem
Bíóhöllin sýnir nú er hann á
hinn bóginn réttu megin við
strikið.
Og margar af þeim hugmynd-
um sem gengið er út frá í Funny
People 2 eru bráðglúrnar, enda
nýtur Uys hér ráðgjafar Allen
Funts sem fyrr var getið. Til
dæmis er óborganlegt að fylgjast
með viðbrögðum saklausra
einkaritara við síma sem hóstar
og hnerrar framan í þær, litlum
borðskúlptúr sem verður lifandi
og skrifstofuáhöldum sem virka
ekki. Að vísu er á mörkunum að
hugmyndirnar og viðbrögðin nái
þeirri fjölbreytni sem dugir í
tæpa tvo tíma, en Funny People
2 kallar samt fram mikið af
„nervösum" hlátri. Og á meðan
hefur áhorfandinn svolítið sam-
viskubit og hugsar með sér:
Allamalla hvað ég er feginn að
það var ekki ég sem gerði mig að
fífli þarna!
Stjörnubíó: Sunnudagur lögreglu-
mannsins — Un Dimanche de Flic.
★ ★
Frönsk. Árgerð 1983. Leikstjóri:
Michel Vianey. Aðalhlutverk: Vic-
tor Lanoux, Jean Rochefort, Bar-
bara Sukowa.
Franskar kvikmyndir, einkum
sakamálamyndir, hafa í sumar
fengið að skjótast annað slagið
upp á tjald Stjörnubíós. Þær eru
kærkomin tilbreyting frá engil-
saxneskri einstefnu, þótt sá
böggull fylgi skammrifi að þær
eru flestar dubbaðar upp á
amerísku. Því fer aftur á móti
fjarri að franskar myndir hafi
sjálfkrafa eitthvað umfram eng-
ilsaxneskar. Frakkar gera
kynstrin öll af vondum bíómynd-
um. Nokkrar slíkar hafa verið í
franska pakkanum til Stjörnu-
bíós. Einhver versta mynd sem
ég hef séð í mörg ár var einmitt
frönsk sakamálamynd með Jean
Paul Belmondo sem bíóið sýndi
fyrr í sumar.
Franskar sakamálamyndir
hafa að jafnaði aðrar forsendur
en t.d. amerískar. Á meðan
Bandaríkjamenn eru almennt á
úthverfunni, með eltingaleikjum
og blóðsúthellingum, eins flott-
um krambúleringum manna og
ökutækja og tæknin leyfir,
starfa Frakkar innhverft: Þeir
einbeita sér meira að innri átök-
um en ytri atburðum, skoða
frekar hug mannsins sem glæp-
inn fremur og þess sem kemur
upp um hann en skipta sér síður
af glæpnum sjálfum. Þegar við-
fangsefnið er glæpamennska
hafa Frakkar yfirleitt meiri
áhuga á seinni hluta orðsins.
Sunnudagur lögreglumannsins
er vel frambærileg sakamála-
mynd af frönsku gerðinni. Tveir
stólpaleikarar, Victor Lanoux og
Jean Rochefort, fara með hlut-
verk háttsettra miðaldra rann-
sóknarlögreglumanna sem falla í
þá freistni í kreppu gráa tíma-
bilsins að auðgast af glæp. Þeir
ræna þá sem ekki gert kært, —
glæpamennina sjálfa. Og
gleymdu því að glæpamenn hafa
sín eigin lög og sinn eigin rétt;
þeirra dómum er fullnægt með
ofbeldi. Vellystingar í ellinni,
sem þeir félagar sáu fyrir sér á
sunnudegi, breytast á mánudegi
í baráttu upp á líf og dauða.
Þessari baráttu er þokkalega
komið til skila í Sunnudegi lög-
reglumannsins. Myndin fjallar
þó fyrst og fremst um sálarstríð
manna sem kipptu í ógáti undan
sér siðferðilegri fótfestu. Vin-
átta þeirra Rocheforts, sem
glímir við andlegt gjaldþrot eftir
að hafa farið frá eiginkonu og
syni, og Lanoux, sem fyllir upp í
tómarúmið með því að taka þau
bæði að sér, er óneitanlega
hnýsilegt viðfangsefni og leikar-
arnir bregðast hvergi. En höf-
undi tekst hins vegar ekki að
nálgast sálarlíf þessa fólks með
nægilega skýrum og skörpum
hætti. Myndin flýtur á djúpinu
án þess að stinga sér til botns.
Samt er hún meira virði en fimm
ofbeldismyndir af amerískri for-
skrift.
Musica
Nova
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Musica Nova gekkst fyrir tónleik-
um sl. sunnudag i Menntaskólanum
við Hamrahlíð og fékk til liðs við
sig pínaóleikarann prófessor Edith
Picht-Axenfeld, er lék tónverk eftir
Schönberg, Lachenmann, Holliger
og Luigi Nono. Tónleikarnir hófust
á fjórum píanóverkum eftir Schön-
berg, sem að nokkru spanna sér-
kennilegan feril, allt frá því að
hann semur tónlist í síðrómantísk-
um stíl og hann svo tekur til við að
losa tónverk sín undan oki tónteg-
unda og hugmyndafarvegi hefð-
bundinna formgerða. Hjá fáum tón-
skáldum má finna eins sterkar and-
stæður í tónsköpum en einnig und-
arleg tengsl hulinna afla er gera
verk hans samstæð í gerð og inni-
haldi, klassík andstæórar samheldni.
Það er í raun mjög merkilegt
hversu vel prófessor Edith Picht-
Axenfeld lék verk Schönbergs, hafi
maður það í huga að hennar sérsvið
er eldri klassíkin. Seinni hluti tón-
leikanna reyndi ekki eins mikið á
hlustunartækni hljómleikagesta og
í verkaröð Schönbergs. Barnaleikur
eftir Lachenmann er á ýmsan hátt
sniðuglega samið verk og laglega
leikið með enduróman píanó-
strengjanna en ákaflega einhæft i
útfærslu tónhugmyndanna, allt að
því myndkyrrt. Næturljóðin, eftir
þann heimsfræga mann Holliger,
eru hljómþýðar tónsmíðar en ekki
veigamiklar, eins konar tónföndur,
sem sótt er til ýmissa staða. Síðasta
verkið, Sofferte onde serene, eftir
Luigi Nono, sem er samið fyrir pí-
anó og tónband, er sérkennilegt og
vel unnið tónverk, sem trúlega má
gera með margvíslegar blætilraun-
ir. Prófessor Edith Picht-Axenfeld
lék verk Nonos á sannfærandi hátt
með aðstoð Pollinis, er átti ýmsar
af hljóðmyndum þeim er leiknar
voru af hljóðbandinu.
VIKA FYRIR KR. 15.213.-EÐA HELGIFYRIR KR. 10.329
Kaupmannahöfn er ekki bara Kastrup flugvöllur. Handan við græna hliðið hvílir hin forna
höfuðborg Islands - töfrandi og vinaleg.
I miðbænum, spottakorn frá einhverju úrvalshótelanna sem þú geturgist á, er margfrægt Strikið
með öllum sínum fjölda verslana, veitingahúsa og ölkráa. í raun gætirðu eytt fríinu á Strikinu
án þess að þurfa að fara lengra - en það er bara svo margt annað að sjá og „opleve".
Pú getur t.d. farið í Tívolí, dýragarðinn eða sirkus, skoðað vaxmyndirnar hennar Tussaud
í návígi, fylgst með glerblæstri og postulínsgerð, farið í kynnisferð um eitthvert brugghúsanna
og... o.fl. o.fl.
Dæmi um verð: Helgi Vika
Hotel Cosmopole 10.466.- 15.213.-
Hotel Sheraton 10.466.- 16.311.
Hotel Imperial 11.244,- 17.028.-
Innifalið: Flug, morgunverður og gisting fyrir einstakling í 2ja manna herbergi með baði, síma,
útvarpi og/eða litsjónvarpi.
Brottför á fimmtudögum og föstudögum.
Af skiljanlegum ástæðum þorum við ekki að lofa neinu um litlu hafmeyjuna.
Vertu samferða!
FERMSKRIFSTOFON ÚRVAL