Morgunblaðið - 04.09.1984, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
Þota með framstæða vængi
GRUMMAN-flugvélaverksmiðjurnar kynntu í fyrri viku nýja orrustuþotu, sem fljótlega verða hafnar tilraunir
með. Þotan er auðkennd með stöfunum X-29. Hún er með öðru vænglagi en flestar fyrri þotur, þ.e. framstsðu.
Með því móti er hún meðfærilegri. Vængirnir eru færanlegir og sér sérstök tölva um að velja legu vængjanna og
stjórnflata. Meðfylgjandi mynd var tekin er þotan var sýnd við athöfn hjá Grumman-verksmiðjunum f
Calverton.___________________________________________________________________________
Treg laxveiði við Grænland
Þorskur með hrognum í ágúst
Kiupmannahófn, 3. neptember. Krá Nib Jörgen Bruun fréUariUra Mbl.
Laxveiðivertíðin við vestur-
strönd Grænlands hófst fyrri
tveimur vikum og hefur veiðin
gengið treglega.
Á vegum konunglegu Græn-
landsverzlunarinnar hafa aðeins
veiðst 13 smálestir. Fengu þann
afla skip frá bæjunum Sukker-
toppen og Holsteinborg, en bátar
frá bæjum norðan og sunnan
þessara tveggja bæja hafa nán-
ast engan lax orðið varir við.
Hins vegar hafa þorskveiðar í
net gengið vel. Þær veiðar hafa
þó verið óvenjulegar sakir þess
að þorskurinn var hrognafullur í
ágústmánuði, sem hann er
venjulega í marz. Hefur þetta
komið fiskfræðingum verulega á
óvart, og hafa þeir engar skýr-
ingar enn á þessu fyrirbæri.
Hemlar og hemlakerfi er mikilvægasti öryggisþátturinn í öllum
akstri og meðferö ökutækja og vinnuvéla. Þetta vita allir.
í því sambandi skiftir mestu, sé fyllsta öryggis gætt; að vel sé séð
fyrir viðhaldi og umhirðu allri. Þetta vita líka allir.
Við erum sérfræðingar í allskyns hemlum og hemlakerfum.
Orginal hemlahlutir í allartegundir bifreiða
ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ.
NOTIÐ ÞJÓNUSTU FAGMANNA, ÞAÐ TRYGGIR ÖRYGGIÐ.
LLINGp
Sérverslun með hemlahluti.
Skeifunni 11 Simi: 31340,82740,
Suður-Afríka:
Botha tekur við
forsetaembætti
Höfóaborg, Suður-Afríku, 3. sept. AP.
P.W. BOTHA, forsætisráðherra
í Suður-Afríku var í dag valinn
forseti til bráðabirgða um leið
og gildi tók ný stjórnarskrá.
Samkvæmt henni eiga kyn-
blendingar og fólk af asískum
uppruna að fá takmörkuð stjórn-
málaréttindi. Óeirðasamt var í
byggðum svertingja fyrir sunnan
Jóhannesarborg.
Botha mun gegna embættinu
fram á miðvikudag en þá mun
kjörmannafundur velja nýjan
forseta. Blandast engum hugur
um, að hann muni einnig heita
P.W. Botha. Á morgun mun
þingið koma saman en það er
þrískipt, ein deild fyrir hvíta,
önnur fyrir kynblendinga og sú
þriðja fyrir fólk af asískum ætt-
um. Eru hvítu þingmennirnir
166 talsins en hinir 120. Svert-
ingjar hafa engain atkvæðisrétt
og er litið svo á, að þeir séu
borgarar heimalandanna svo-
kölluðu, sem engin erlend ríkis-
stjórn hefur viðurkennt.
Væntanlegur forseti mun
verða svarinn í embætti 14. sept.
nk. og greinir þá frá skipan
nýrrar stjórnar. Er búist við, að
tveir nýju ráðherranna verði úr
P. W. Botha
flokki kynblendinga og Asíu-
manna.
Óeirðir voru í dag í svert-
ingjabyggðum fyrir sunnan Jó-
hannesarborg og létu þrír lífið.
Eldur var lagður í bíla, verslanir
rændar og grjóti grýtt í lög-
reglumenn. Eitt fórnarlamb-
anna var aðstoðarbæjarstjórinn
í Sharpeville, svartur maður að
nafni Sam Dlamini, en hann var
stunginn til bana á húströppun-
um heima hjá sér og lík hans
síðar brennt.
Nýr flugvöllur
á Grænlandi
Kaupmannahöfn. X september. Frá Nils Joreen Bruun frétUriUra Mbl.
OPNAÐUR var nýr flugvöllur í
Jakobshavn í norðvesturhluta
Grænlands, en þagnað munu
DASH-7 flugvélar Grönlandsfly
fyrst og fremst fljúga, auk þess
sem félagið mun nota þyrlur til
flugs þangað.
A vesturströndinni geta
DASH-7 flugvélar Grönlandsfly
einnig lent á flugvellinum í
Godthaab, en á öðrum áætl-
unarstöðum félagsins eru aðeins
þyrluvellir. Með opnun flugvall-
arins í Jakobshavn opnast nýir
möguleikar í áætlunarflugi
þangað.
Bretland:
Fimmtungur
barna fæddur
í lausaleik
Fór að fjölga með aukinni kynfræðslu og
auðveldari getnaðarvörnum
London, 3. sepí. AP.
HLUTFALL lausaleiksbarna (
Bretlandi er nú fimm sinnum
hærra en það var um síðustu alda-
mót, áður en frjálsar fóstureyð-
ingar og auðveldur aðgangur að
getnaðarvörnum komu til sögunn-
ar. Kemur þetta fram í opinberum
tölum, sem birtar voru í gær.
Hlutfall barna, sem fædd eru í
lausaleik, hækkar stöðugt og
segir í skýrslunni, að fari fram
sem horfir muni þau verða þriðj-
ungur allra barna um næstu
aldamót og i meirihluta kynslóö
síðar. Á síðasta ári var fimmta
hvert barn fætt utan hjónabands
en um aldamótin, á timum Ját-
varðs konungs, var aðeins eitt af
hverju 25 börnum fætt í lausa-
leik.
Mikla athygli vekur, að lausa-
leiksbörnunum fór fyrst að
fjölga verulega á sjöunda ára-
tugnum þegar upp var tekin al-
menn kynfræðsla og getnaðar-
varnarpillur urðum öllum til-
tækar. í skýrslunni er raunar
vakin athygli á því, að ekki sé
allt sem sýnist í þessum efnum
því að það færist mjög í vöxt, að
fólk búi saman og eigi börn en
bíði með vígsluna með tilliti til
skattanna.
Annað, sem sýnir vel hið
aukna frjálslyndi í kynferðis-
málum, er gífurlegur vöxtur í
alls kyns kynsjúkdómum. Val-
erie Riches, formaður í samtök-
um sem heita „Ábyrgt þjóðfélag"
og berjast t.d. gegn því að lækn-
ar gefi stúlkum undir 16 ára
aldri pilluna, sagði um skýrsl-
una, að hún væri „skelfileg án
þess að koma á óvart". „Lausa-
leiksbörnum fer fjölgandi um
allan heim þrátt fyrir eða
kannski einmitt vegna þess hve
getnaðarvarnir eiga að heita
auðveldar, vegna fóstureyðinga
og svokallaðra kynfræðslu,"
sagði hún.