Morgunblaðið - 04.09.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.09.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984 Endurvinnsla brota- járns á íslandi, völsun og stálbræðsla — eftir Jónas A. Aðalsteinsson Enn einu sinni hefir birst fréttatilkynning í dagblöðum frá Stálfélaginu hf., nú síðast í Morg- unblaðinu hinn 28. ágúst 1984 með yfirskriftinni „Af hverju íslensk stálverksmiðja?". I fréttatilkynn- ingu þessari er sagt frá áformum Stálfélagsins, greint frá forsend- um stofnunar þess og skorað á al- menning að veita því brautar- gengi. Enn einu sinni er fullyrt, að „verksmiðjan nýti innlent hráefni, innlenda orku og íslenskt vinnuafl og stuðli um leið að landvernd með því að skapa verðmæti úr brotá- járni sem liggi vítt og breytt og spilli fögru umhverfi lands okkar“. Enn einu sinni er að engu getið þeirrar endurvinnslu brota- járns og málma sem fram hefur farið á fslandi síðastliðna áratugi, starfsemi sem auðgað hefir at- vinnulíf þjóðarinnar og fært björg í bú með auknum tekjum í erlend- um gjaldeyri og stuðlað að land- vernd. Getur það verið að foryst- umenn Stálfélagsins hafi ekki heyrt um starfsemi þessa, þekki ekki til brautryðjendastarfs Ein- ars heitins Ásmundssonar og fé- lags hans Sindra-Stáls hf. á þessu sviði? Getur það verið að forystu- menn Stálfélagsins viti ekki í hverju endurvinnsla á brotajárni er fólgin eða er hér aðeins um að ræða vanmat á allri annarri starf- semi en nákvæmlega þeirri, sem þeir sjálfir hyggjast standa fyrir? Af þessu tilefni skal þess getið, að endurvinnsla brotajárns hefir farið fram hér á landi áratugum saman. Þannig hefir t.d. Sindra- Stál hf. stundað þessa starfsemi í um það bil 40 ár og á síðasta ári endurvann fyrirtækið og flutti út um það bil 10.000 tonn. Ef ein- hverjum skildi blandast hugur um það í hverju endurvinnsla brota- járns er fólgin skal til upplýsinga greint frá því að í eðli sínu er endurvinnsla iðngrein. Hún felst í því að brotajárni og öðrum úr- gangsmálmum sem til falla er safnað saman. Efnið er sfðan sundurgreint eftir tegundum í jarn, kopar, sink, blý, ál o.fl. o.fl. Síðan er hver efnisflokkur bútað- ur niður, klipptur, pressaður eða skorinn í ákveðnar stærðir eftir alþjóðlegum stöðlum, sem byggj- ast á því til hvað endurnota efnið hentar á hverjum tíma. Innan hvers flokks eru síðan mismun- andi gæðaflokkar sem fara eftir efnisgæðum hráefnisins og hversu vel hefir tekist til um vinnslu þess. Sem dæmi um mismunandi efnis- flokka má nefna að hér fellur til verulegt magn bifreiða, en í þeim er bæði lélegt og gott hráefni. Auk þess má nefna að hér á landi fellur til töluvert magn af áli og eru t.d. nú til endurvinnslu hjá Sindra- Stali hf. 5 flugvélar. Nú á tímum eru 45% af stálframleiðslu í heim- inum úr brotajárni, 40% af koparframleiðslunni, 50% af blýframleiðslu, 30% af sink- framleiðslu og 25% af heims- framleiðslu áls. Verulegar verðsveiflur eru á hinum alþjóðlega brotajárns- markaði og svipar þeim til ann- arra markaðssveiflna sem við verðum að búa við á útflutningsm- örkuðum okkar. Um þessar mund- ir er markaðsverð t.d. svo lágt að ekki þykir svara kostnaði að höggva upp skip nema að mjög takmörkuöu leyti og í Noregi, svo dæmi sé tekið, Iiggur fjöldi skipa, sem ekki þykir svara kostnaði að höggva upp í þessu skyni að svo stöddu. Þessi starfsemi öll, þar á meðal markaðsuppbygging, byggist á verulegri verkþekkingu sem aflast hefur í gegnum árin hér á landi. Sú þekking segir okkur að veru- legt magn af endurunnu efni hér á landi nýtist ekki til stálbræðslu, svo sem t.d. endurunninn kopar og ál. Á hinn bóginn nýtist töluverð- ur hluti hins endurunna járns til stálbræðslu og hafði Sindra-Stál hf. búist við því að selja Stálfélag- inu þann hluta framleiðslu sinnar, ef Stálfélagið myndi hefja bræðslu hér á landi, þar eð stál- bræðslufyrirtæki annars staðar í veröldinni kaupa aðeins það járn til fyrirtækja sinna, sem nýtist þeim við framleiðsluna. í ljósi þessa er enn spurt að því, af hverju stafar þessi þögn Stálfé- lagsmanna um þá endurvinnslu brotajárns og málma sem fram fer hér á landi. Eru þeir ef til vill að fara fram á fjárframlög frá allri þjóðinni, að því er manni skilst, til þess að yfirtaka þá endurvinnslu- starfsemi sem hér fer fram nú. Þess ætti þó ekki að vera þörf því Sindra-Stál hf. hefir þegar komið því á framfæri við þá Stálfélags- menn að þeir geti fengið keypt það endurunna járn af framleiðslu fé- lagsins sem þeim henti. Alla vega ætti ekki að vera þörf á því að skora á ríkissjóð og allan almenn- ing að láta fé af hendi rakna til þess að hefja brotajárnsvinnslu hér á landi því hún fer hér þegar fram svo sem að framan er rakið. Að sjálfsögðu mætti bæta og auka söfnun og endurvinnslu brotaj- árns hér á landi og hefir töluvert verið unnið í þeim efnum undan- farið án þess þó að seilst sé í vasa opinberra aðila eða almennings i því skyni. Hvað er valsverk? í fréttatilkynningu Stálfélags- manna er frá því greint að þeir hafi keypt valsverk í Svíþjóð. En hvað er valsverk? Valsverk er nokkurs konar rulla, sem rullar járnstengur í aðrar mjórri, oft sí- valar járnstengur og í þessu tilviki eru þær rullaðar í steypu- styrktarjárn. Það hráefni sem slík verksmiðja notar er ekki til hér á landi og verður því allt að flytjast inn. Þeir Stálfélagsmenn hyggjast kaupa allt sitt hráefni til völsunar frá Svíþjóð. Það er þannig ekki rétt sem gefið er í skyn í frétta- tilkynningu Stálfélagsins að inn- lent hráefni nýtist að svo stöddu í þessa framleiðslu þeirra. Þessi rullustarfsemi á steypustyrktar- járni er í eðli sínu mjög einföld og lítt arðgefandi og um þessar mundir er verið að loka hliðstæð- um verksmiðjum um allan heim vegna offramleiðslu, en þær sem starfa áfram eru margar reknar með hálfum afköstum eftir kvóta- kerfi, ýmist með tapi eða ríkis- styrktar og njótum við íslend- ingar góðs af þessu ástandi er- lendis í kaupum á ódýru steypu- styrktarstáli. Það væri því fróð- legt fyrir húsbyggjendur og vænt- anlega hluthafa Stálfélagsins að fá upplýsingar um það hvað steypustyrktarstál frá félaginu kemur til með að kosta í saman- burði við hið niðurgreidda erlenda járn sem hér fæst nú. Samkvæmt því sem heyrst hefir þarf Stálfélagið eitthvað á ann- aðhundraðmilljónir króna á fyrsta ári til að geta byrjað að valsa járnstengurnar frá Svíþjóð. Iðn- aðarráðuneytið fékk danskan sér- fræðing á þessu sviði til álitsgerð- ar um starfsemi þessa, en þeirri alitsgerð hefir verið haldið leyndri. Þó hefir kvisast að Dan- inn hafi talið þetta valsverk fjár- hagslegan Hrunadans. Þeir Stál- félagsmenn segja Danann hafa byggt á röngum forsendum og vera illa við Svía, en áætlanir Sví- anna, sem jafnframt eru seljendur valsverksins og stanganna, séu miklu betri og arðsemi félagsins verði góð. Vonandi hafa þeir rétt fyrir sér í því, en ástæða er til að spyrja hvers vegna væntanlegir hluthafar, sem biðlað er til um hlutafé, fá ekki að sjá dönsku skýrsluna, sem keypt var fyrir opinbert fé, svo þeir geti sjálfir dæmt um gildi hennar og rétt- mæti. Hvað er stálbræðsla? Af fréttatilkynningum Stálfé- lagsins gæti maður fengið það á tilfinninguna að þeir væru nánast að hefja stálbræðslu. Svo langt eru þeir ekki komnir ennþá svo sem sést ef tilkynningar þeirra eru lesnar vandlega. En hvað er stálbræðsla? I víðasta skilningi þess orðs merkir það þá starfsemi að bræða málma eða efni sem málmur finnst í, málmgrýti ofl. til notkunar í iðnaöi. Það er sorgleg staðreynd, að fyrirtæki af þessu tagi eru nú allt of mörg í heimin- um og afkastageta þeirra langt umfram þarfir. Einhverra hluta vegna hafa stálbræðslufyrirtæki og stofnun þeirra víða í heiminum verið ofarlega á óskalista stjórn- málamanna ýmissa landa, ekki síst hinna vanþróuðu. Margar stálbræðslur, bæði smáar og stór- ar á alþjóða mælikvarða, eru lok- aðar eða hafa aldrei tekið til starfa þó þær hafi verið fullbúnar. Stofnkostnaður jafnvel lítillar stálbræðslu er mjög hár, skiptir hundruðum milljóna. Enda þótt íslenskt samfélag sé smátt í sniðum þurfum við á sama fjölbreytileik málmiðnaðarvara að halda og aðrar miklu stærri þjóð- ir, en aðeins í smærri einingum. Það leiðir af sjálfu sér að við gæt- um aldrei framleitt sjálfir allar þær fjölmörgu tegundir, sem iðn- aður okkar þarf á að halda vegna hins takmarkaða magns af hverri einingu, en hér á landi hafa við og við komið upp þær hugmyndir að unnt væri að bræða hérlendis brotajárn til framleiðslu þeirra 12.500 tonna af steypustyrktar- stáli, sem við notum að meðaltali af því efni á ári. Það er einmitt þessi hugmynd, sem þeir Stálfé- lagsmenn hyggjast hrinda í fram- kvæmd. I fréttatilkynningu sinni í Morgunblaðinu hinn 28.8. 1984 svara þeir þeirri spurningu: „Af hverju íslensk stálverksmiðja?" Þeir segja að Jitlar verksmiðjur séu arðbærari en stórar og bera fyrir sig bandarískt tímarit því til sönnunar. Ástæða er til þess að spyrja í þessu sambandi hvort það sé endilega víst að það sem er lítið í Bandaríkjunum sé líka lftið á Is- landi og einnig er ástæða til þess að spyrja, hvers vegna verið sé að loka bæði litlum og stórum stál- bræðsluverksmiðjum út um allan heim, jafnt í hinum iðnvædda sem hinum vanþróaða. Þeir Stálfélagsmenn segja að stöðugleiki íslenska markaðarins sé mikill. Það er rétt að íslenski markaðurinn hefur verið nokkuð stöðugur undanfarin ár, en ástæða er til að ætla að hann minnki í framtíðinni, t.d. vegna aukinnar byggingar timburhúsa. Þeir Stálfélagsmenn segja í Morgunblaðinu að innlenda brota- járnið sé forsenda fyrir verk- smiðjunni, en þeir segja ekki frá því í Morgunblaðinu að þeir þurfi að flytja inn erlent brotajárn til viðbótar við það brotajárn sem Jónas A. Aðalsteinsson „Það er lágmarkskrafa að Stálfélagsmenn birti í dagblöðum núverandi efnahagsreikning fé- lagsins, allar rekstrar- og greiðsluáætlanir ásamt skýrslum um fé- lagið, bæði þeirra eigin og hina dönsku leyndar- skýrslu Iðnaðarráðu- neytisins, áður en þeir geta leyft sér almennt hlutafjárútboð á þann hátt sem þeir gera nú.“ hérlendis fellur til og sá innflutn- ingur gæti numið allt að helmingi þess magns, sem þeir þurfa á að halda árlega til að geta fullnægt þörfum íslenska markaðarins. Þeir segja ekki frá því að mjög miklar sveiflur eru á hinum er- lenda brotajárnsmarkaði sem þeir yrðu þá háðir að því marki óum- flýjanlega með ærnum flutnings- kostnaði. Þeir segja ekki frá því að fjölbreytileikinn, jafnvel í steypu- styrktarstáli, er slíkur að þeir myndu seint geta framleitt á fjár- hagslegum jákvæðan hátt allar stærðir, enda áætla þeir sjálfir að flytja inn unnið steypustyrktar- stál í sjaldgæfari stærðum. Að sjálfsögðu er ekkert við það að at- huga að öðru jöfnu að flytja inn erlent brotajárn, en það er ekki rétt að láta að því liggja í al- mennri kynningarstarfsemi, að þess sé ekki þörf. Á sama hátt er ekkert við það að athuga nema síður sé að flytja inn það, sem ekki borgar sig að framleiða hérlendis, en það er rangt að láta að því liggja í almennri kynningarstarf- semi að þess sé ekki þörf. Þeir Stálfélagsmenn segjast munu nýta innlenda orku. Þeir segja hvorki hvað mikil orka sé notuð við völsunina eða bræðsluna né á hvaða verði hún verði keypt. Þeir Stálfélagsmenn segjast ætla að stuðla að landvernd og með því skapa verðmæti úr brota- járni, sem liggur vítt og breytt og spillir fögru umhverfi lands okkar og láta þannig að því liggja að annað hvort stuðli núverandi brotajárnssöfnun og endurvinnsla og útflutningur ekki að landvernd eða sú starfsemi sé yfirleitt ekki til hér á landi í dag. Þeir Stálfélagsmenn segjast ætla að stuðla að fegrun umhverf- isins, en staðsetja verksmiðju sína við Fögruvík á Vatnsleysuströnd við Keflavíkurveg. Ekkert hefur heyrst frá þeim um mengunar- varnir en miðað við erlendar verk- smiðjur af þessu tagi kæmi ekki á óvart að nafn Fögruvíkur ætti ekki lengur við. I sambandi við fyrirhugaða stál- bræðslustarfsemi Stálfélagsins er í raun engum lykilspurningum svarað í fréttatilkynningunni svo sem þeirri, hvað kostar ævintýrið, hvað þarf framleiðslan að kosta til almennings svo fyrirtækið borgi sig og vísast til þess sem að fram- an er sagt um valsverkið. Sú spurning vaknar óumdeilanlega hvort væntanlegir seljendur bræðslukerfisins hafi einnig reiknað út arðsemi stálbræðslu á íslandi? Einnig vaknar sú spurn- ing hvað núverandi hluthafar Stálfélagsins, sem sagðir eru yfir 1.000, hafi lagt fram mikið hlutafé samtals. Vitað er um þátttöku Vatnsleysustrandarhepps, Fram- kvæmdastofnunar og Svíanna, en ekkert er vitað um hvað hinir hluthafarnir, liðlega 1.000, hafa greitt í hlutafé. Ekkert er vitað um það hvort félagið hyggst hefja innflutning á unnum iðnaðarvör- um og hefja þannig samkeppni við þau mörgu heildsölufyrirtæki á þessu sviði sem fyrir eru og ekki njóta opinberrar fyrirgreiðslu. Svona mætti lengi spyrja. Tilefni þessara spurninga og fjölda ann- arra er sú áskorun til almennings í landinu, sem fram kemur í niður- lagi margnefndrar Morgunblaðs- greinar hinn 28.8. 1984 um að leggja Stálfélaginu lið og ganga í hluthafahóp þess. Það ætti að vera lágmarkskrafa, að almenningur eigi aðgang að öllum þeim upplýsingum sem þörf er á til að hann geti metið sjálfstætt for- sendur þær allar sem liggja til grundvallar efnahag og rekstri fé- laga sem biðla til hans um hlutafé. Slíkar reglur eru víða lögfestar erlendis, en svo er þvi miður ekki hér. í áskorun Stálfélagsins er að- eins fullyrt, án raka, að það sé arðbært fyrirtæki og með þátt- töku í því verði stutt að uppbygg- ingu arðbærra fyrirtækja í land- inu. Þetta er að sjálfsögðu ekki nægilegt fyrir einn eða neinn og minnir óþægilega á sögu H.C. Anderscns um nýju fötin keisar- ans. Það er lágmarkskrafa að Stálfé- lagsmenn birti í dagblöðum núver- andi efnahagsreikning félagsins, allar rekstrar- og greiðsluáætlan- ir ásamt skýrslum um félagið, bæði þeirra eigin og hina dönsku leyndarskýrslu Iðnaðar- ráðuneytisins, áður en þeir geta leyft sér almennt hlutafjárútboð á þann hátt sem þeir gera nú. Það er ekki fullnægjandi þó hin- ir pólitískt kjörnu forstöðumenn Framkvæmdastofnunar hafi sam- þykkt, með skilyrðum þó, að leggja félaginu lið, enda er það ekki sjálfgefið að sjónarmið þeirra við þá ákvarðanatöku fari saman við persónuleg sjónarmið almenn- ings við hlutabréfakaup af þessu tagi. Ef til vill tekst Stálfélaginu hf. að sannfæra almenning, en von- andi verður það á réttum forsend- um. Séu forsendurnar í lagi er hér um gott mál að ræða en annars ekki. í því skyni að útiloka misskiln- ing um annarlegar ástæður fyrir skrifum þessum skal það sérstak- lega fram tekið að það fyrirtæki, sem undirritaður er stjórnarfor- maður í, Sindra-Stál hf., og stál- bræðsla á íslandi gætu átt sam- eiginlegahagsmuni. Við stál- bræðslu hér myndi markaður verða til hér á landi fyrir hið endurunna brotajárn Sindra-Stáls hf., sem þá þyrfti ekki að flytja út, jafnframt því sem Sindra-Stál hf. myndi að sjálfsögðu að öðru jöfnu einnig selja framleiðslu stál- bræðslunnar til neytenda í smá- sölu. Ef þeir Stálfélagsmenn hyggjast aftur á móti stofna til sjálfstæðrar endurvinnslustarf- semi og/eða innflutnings á járniðnaðarvörum fyrir hina opinberu fyrirgreiðslu, sem þeir eru að falast eftir, stangast hags- munirnir að sjálfsögðu á, en þá sigla þeir Stálfélagsmenn líka undir fölsku flaggi í dag. Jónas A. Aðalsteinsson er hæsta- réttarlögmaður og stjórnarformað- ur SindraStáls hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.