Morgunblaðið - 04.09.1984, Blaðsíða 60
ii ii iiinin n n n i
68
MORGUNBLADID, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
Skóla- =
töskur =
og möppur z
Nýhína i
S SðftA
'J^’HUSIÐ
LAUGAVEGI 178,
(NÆSTA HÚS VIÐ SJÓNVARPIÐ) "■
Sími 68-87-80 “■
Sundlaugin á Seltjarnarnesi sem opnuð verður á morgun.
OPNUM Á MORGUN
í SKEIFUNNI 11!
Við bjóðum þig velkominn í bjart og notalegt kaffihús í nýrri viðbyggingu Brauðs
hf., þar sem þér bjóðast ýmsar veitingar á hóflegu verði.
Kaffihúsið ber nafnið „Café Myllan", enda er þar á boðstólum fjölbreytt úrval af
nýbökuðum Myllukökum og brauði með ýmiss konar áleggi, ásamt kaffi og
gosdrykkjum.
A morgnana, milli kl. 7.00 og 9.00, bjóðum við upp á „morgunverðarhlaðborð" fyrir
fast verð - og í hádeginu súpur og smárétti sem eru breytilegir frá degi til dags.
Líttu við á „Café Myllunni" — við höfum opið mánudaga til föstudaga
milli kl. 7.00 og 18.00.
Seltjarnames:
Nýja sund-
laugin opn-
uð á morgun
Á MORGUN, 5. sept. kl. 16.00, verð-
ur nýja sundlaugin á Seltjarnarnesi
opnuð. Sundlaugin er lokaáfangi í
fþrótta- og félagsmiðstöð Seltjarn-
arness, þ.e. íþróttahús, sundlaug, fé-
lagsheimili og íþróttasvæði.
Sundlaugin er að hluta skóla-
mannvirki og mun öll aðstaða til
sundkennslu gjörbreytast við til-
komu laugarinnar. Laugin var
frumhönnuð árið 1967, þegar
íþróttahúsið var byggt, en önnur
verkefni voru tekin fram yfir
sundlaugina og var ekki hafist
handa við smíði laugarinnar fyrr
en árið 1981, þegar sökklar voru
steyptir.
Sundlaugin er 25x12,5 metrar að
stærð auk barnalaugar, ennfrem-
ur eru tveir heitir pottar. Bún-
ingsklefar laugar taka í einu um
200 gesti, en auk þess er hægt að
nota búningsklefa íþróttahúss á
sumrin. Sundlaugin, búningsklef-
ar og setlaugar eru lögð Höganás-
flísum, en bærinn Höganás í Sví-
þjóð er einmitt vinabær Seltjarn-
arness.
Sundlaugin er hönnuð hjá
Teiknistofunni Ármúla 6 og hefur
Leifur Gíslason haft með verkið
að gera. Sérteikningar hafa verk-
fræðistofan Hnit og Rafhönnun
annast að mestu. Yfirsmiður við
laugina frá upphafi hefur verið
Kristján Jónsson og aðrir iðnað-
armenn: Pétur Kr. Arnason, múr-
verk, Skúli Júlíusson, rafmagn,
Friðrik Kristjánsson, innrétt-
ingar, Valgarður Magnússon,
málning, Rásverk, blikksmíði, og
Guðjón Jóhannsson, pípulögn.
Ólokið er framkvæmdum við
gufuböð og æfingasali í kjallara,
en stefnt er að því að taka gufubað
í notkun í vetur.
Laugin verður opin frá kl. 07.10
til kl. 20.30 mánudaga til föstu-
daga, en um helgar frá kl.
7.10-18.30.
Geimstríð 2
í Háskólabíói
„Geimstríð 2“ nefnist ný banda-
rísk mynd sem Háskólabíó frum-
sýnir í dag. Myndin fjallar um
geimfarið Enterprise sem er í
rannsóknarferð, og gerist myndin
á 23. öldinni. Leikstjóri er Nichol-
as Meyer, en handritið skrifaði
Jack. B. Sowards. William Shatn-
er, Leonard Nimoy og De Forest
Kelley fara með aðalhlutverk í
„Geimstríðinu".