Morgunblaðið - 04.09.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
55
Einbeitnin skín úr augura Jim Kerr söngrara Simple Minds, enda var
frammistaðan pottþétt f TorhauL
nýju plötunni, en það ásamt lög-
unum Promised You a Miracle,
Someone Somewhere og Book of
Brilliant Things báru af á Tor-
haut. Eftir að hafa barið Simple
Minds augum á tónleikum er ég
ekki í vafa um að þeir eru komnir
i landsliðsflokk rokkhljómsveita í
dag.
þjóðsagnapersóna
barin augum
Það var komið rökkur er þeir
stigu af sviði, en þá átti gamla
brýnið Lou Reed enn eftir að koma
fram. Reed var meðlimur í banda-
rísku neðanjarðarhljómsveitinni
Velvet Underground, sem starfaði
á síðari hluta sjöunda áratugarins
og hefur alla tíð síðan átt trausta
aðdáendur innan þröngs hóps
fólks sem leggur mikið upp úr
þenkjandi og óvenjulegri tónlist-
arsköpun.
Lou var undarlega slappur fyrri
helming tónleikanna, en lagið
Walk on The Wild Side var vendi-
punktur og seinni helmingur
framlags Lou Reed var snöggtum
betri. Þá mátti m.a. heyra lög af
nýju plötunni New Sensations, t.d.
I Love You Suzanne sem sást í
Skonrokki um daginn.
Sterkasti kostur Reed er það
hve sér á báti hann er innan
rokkheimsins og eiga þar textar
hans og heillandi talsöngur
stærstan hlut að máli. Áhrif hans
á rokksöguna eru hreint ekki lítil
og þykir hann vera einn þeirra
sem ruddu brautina fyrir innrás
pönksins og nýbylgjunnar um
miðjan síðasta áratug. Allt þetta
gerir það að verkum að gaman var
að berja kappann augum á sviði,
þó e.t.v. megi segja að hann sé
ekki lengur á hátindi ferils sins.
Lou Reed er þó engan veginn
dauður úr öllum æðum, það sýndi
hann á Torhaut-hátíðinni, þar
sem hann lék tuttugu mínútum
lengur en upphafleg dagskrá gerði
ráð fyrir.
Klukkan var rúmlega eitt að
nóttu er Lou Reed þakkaði pent
fyrir sig og sína við mikil fagnað-
aróp áhorfenda. Að því loknu var
hátíðinni slitið á viðeigandi hátt
með glæsilegri flugeldasýningu.
Frábærri skemmtun í frábæru
veðri var þar með lokið.
Allir á tónleika
Torhaut-hátíðin er greinilega á
góðri leið með að verða ein sú allra
glæsilegasta af fjölmörgum sem
haldnar eru í Evrópu á hverju
sumri. Við íslendingar virðumst
heldur vera að taka við okkur í
sambandi við hópferðir á slíka
merkisviðburði, sbr. hópferð
þungarokksunnenda á Doningt-
on-festivalið í Englandi síðastliðin
tvö ár. Næsta skref hlýtur því að
vera hópferð á almenna rokkhátíð.
Á þessum tíma, þ.e. í júlímánuði,
voru a.m.k. þrjár slíkar haldnar í
Evrópu: Torhaut-, Roskilde- og
Dortmund-hátíðirnar.
Eg veit til þess að nokkrir val-
inkunnir rokkáhugamenn hafa
fullan hug á því að líta á einhverj-
ar af fyrrnefndum tónlistarhátíð-
um að ári liðnu. Hvers vegna ekki
að slást í hópinn? Kostnaður við
slíka ferð er í lágmarki ef miðað
er við ánægjuna sem af henni
fæst. Sem dæmi má nefna að að-
göngumiðaverð á Torhaut, þar
sem gafst kostur á að sjá suma af
færustu fulltrúum rokktónlistar,
kostaði skitnar 300 krónur. Þarf
að hugsa sig um tvisvar? Ég segi
nei.
TEXTI: Skúli Þ. Helgason
Nes-sól heilsurœkt
Nuddnámskeið
Nuddarar og áhugafólk
Bandaríski nuddkennarinn
Joseph Meyer MT
heldur 6 vikna nuddnámskeiö sem byrjar
8. sept. 1984.
Nuddnámskelöin eru tvenns konar, námskelð í
sœnsku vöövanuddi fyrlr byrjendur og fram-
haldsnámskeið i djúpnuddl Wllhelm Relch fyrlr
nuddara.
Framhaldsnámskeiö fyrir fyrrl nemendur f
Shlatsu.
Joseph Meyer MT er einnlg með einkatíma i
nuddmeöferö.
Uppl. i síma 67-70-20 milli kl. 13 og 18.
Aueturströnd 1, Seltjarnarneai. TakmarkaöUf fjöldi.
ÞEIR BERA NAFN
MEÐRENTU
VAXTAKOSTIR
ÚTVEGSBANKANS
Frá og með 1. september 1984 verða vextir
Útvegsbanka íslands sem hér segir:
INNLÁN
Vextii
alls
Árs-
ávöxtun
Sparisjóðsbœkur Sparireikningar: a) með 3 mán. uppsögn b) með 6 mán. uppsögn c) með 12 mán. uppsögn 17,0% 20,0% 23,0% 24,5% 17,0% 21,0% 24,3% 26,0%
Vextii cdls
Verðtryggðir relkningar: a) með 3 mán. bindingu b) með 6 mán. bindingu 3,0% 6,0%
Vextii allf Áis- áröxtun
Plúslánareikningar: a) Sparnaður 3-5 mán. b) Sparnaður 6 mán. eða lengur 20,0% 23,0% 21,0% 24,3%
Vexth alls Áis- árröxtun
Spariskírteini 6 mán. binding 24,5% 26,0%
~vsxST
rrllc
Tókkareikningar
12,0%
Vextii alls Árs- áröxtun
Innlendir gjaldeyrisreikningar: a) innstœður í Bandaríkjadollurum 9.5% 9,5%
b) innstœður í sterlingspundum 9,5% 9,5%
c) innstœður í vestur þýskum mörkum 4,0% 4,0%
d) innstœður í dönskum krónum 9,5% 9,5%
ÚTLÁN
Vextii alls
Almennir víxlar (f orvextir) 22,0%
Viðskiptavíxlar (íorvextir) 23,0%
Yíirdráttarlán 26,0%
Endurseljanleg lán:
a) íyrir íraml. á innlendan markað 18,0%
b) lán í SDR 10.25%
Almenn skuldabróf 25,0%
Viðskiptaskuldabróf 28,0%
Verðtryggð útlán:
a) allt að 2‘/2 ár 8,0%
b) minnst 2V6 ár 9,0%
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖU MÓNUSTA