Morgunblaðið - 04.09.1984, Blaðsíða 66
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
Umdeilt
Valsmark
— og jafntefli varð niðurstaðan
„ÉG HEFÐI kosid að fá þrjú stig
úr þessum leik, en eins og leikur-
inn þróaðist held ég að þetta hafi
veriö sanngjörn úrslit. Strákarnir
gerðu vel að ná að jafna leikinn
eftir aö fá á sig svona drullumark.
Ég held aö það hafi allir sáð aö
það var brotið á Friðriki, nema
dómarinn," sagöi Magnús Jóna-
tansson, þjálfarí Breiöabliks, eftir
að Valur og Breiðablik skildu jöfn
á Valsvellinum í 1. deildinni á
sunnudaginn. Hvoru liði tókst aö
skora eitt mark.
Þeir sem sáu fyrstu mínútur
þessa leiks geröu sér vonir um aö
þetta yröi skemmtilegur og fjörug-
ur leikur. Bæöi liðin léku mjög
hratt og mikiö var um marktækif-
æri fyrstu 15 mínúturnar, en svo
ekki söguna meir. Jón Oddsson
áttti skalla eftir hornspyrnu en
Stefán varöi vel í horn. Hann átti
einnig skot rétt framhjá markinu
eftir aö hann fékk mikinn tíma til
aö athafna sig innan vítateigs Vals.
Þetta geröist allt á annari mínútu
leiksins. Bergþór átti gott skot en
Friörik varöi og síöan kom mark
Valsmanna.
Valsmenn fá hornspyrnu. Bolt-
inn er gefinn á Grím Sæmundsen
sem framlengir hann inn í teiginn á
stöngina fjær. Friðrik stekkur upp
og ætlar aö grípa boltann, en Valur
Valsson stökk upp meö honum og
styöur höndunum á axlir honum
þannig aö Friörik nær ekki aö
hoppa upp til aö handsama bolt-
ann og Þorgrímur Þráinsson skutl-
Stórsigur
Selfoss
ÞRÍR leikir áttu að vera í þriöju
deildarkeppninni i knatt-
spyrnu um helgina í A-riðli, en
keppni er lokiö í B-riðlinum.
Selfyssingar sigruöu Snæfell
nokkuð örugglega, 5:1, Vík-
ingar úr Ólafsvík sígruöu HV á
sínum heimavelli 2:1 og leik
Grindvíkinga og ÍK var frest-
að.
Leikur Selfyssinga og Snæ-
fells var nokkuö fjörugur á aö
horfa. Snæfell er þegar falliö í
fjóröu deild og Selfyssingar
eiga enga möguleika á aö kom-
ast upp í aöra þannig aö leikur-
inn sem slíkur skipti ekki máli
fyrir liöin. Þaö var Ingólfur
Jónsson sem skoraöi fyrsta
mark leiksins og Páll Guö-
mundsson skoraöi annað
markiö fyrir leikhlé.
I síöari hálfleik bættu þeir viö
þremur mörkum og voru þaö
þeir Birgir Haraldsson, Þórar-
inn Ingólfsson og Lárus Jóns-
son sem skoruðu mörkin og var
mark Þórarins mjög glæsilegt.
Hann kom hlaupandi inn í teig-
inn og skallaöi knöttinn firna-
fast í slánna á markinu og inn,
glæsilega gert hjá þessum
skemmtilega knattspyrnu-
manni. Eina mark Snæfells
geröi Rafn Rafnsson rétt fyrir
leikslok.
Víkingar siguröu HV, 2:1, og
voru þaö þeir Magnús Gylfason
og Báröur Tryggvason sem
skoruöu mörk Ólafsvíkinga.
ÍK hélt til Grindavíkur í þeirri
trú aö þeir ættu aö leika þar. Er
þeir komu á staöinn kom í Ijós
aö dómara vantaöi á leikinn og
buöust þá heimamenn til aö út-
vega dómara úr Grindavík til aö
dæma en Kópavogsliöiö þver-
tók fyrir þaö og ekkert var leik-
ið.
Valur — UBK
1:1
aöi sér fram og skallaöi í tómt
markið. Flestir sem á vellinum voru
töldu örugglega aö Valur heföi
brotiö á Friörik, en línuvörðurinn,
sem var i aöstööu til aö sjá þetta
geröi ekkert og markið dæmt lög-
legt. Furöulegur dómur og ekki sá
eini sem vakti undrun í þessum
leik.
Mínútu síöar vildu Valsmenn fá
vítaspyrnu eftir aö fast skot Jó-
hanns Þorvarðarsonar haföi lent i
varnarmanni, en dómarinn hlust-
aöi ekki á beiöni þeirra. Friörik
geröi vel skömmu síöar aö loka
markinu fyrir Guömundi Þorbjörns
þegar hann var kominn einn í gegn
og skot hans fór yfir.
Þaö sem eftir var fyrri hálfleiks
geröist ekkert markvert fyrr en á
síöustu sekúndunum. Jón Odds-
son gaf þá góöan bolta fyrir mark
Vals þar sem Sigurjón var í góöu
færi. Áöur en hann næöi aö skjóta
tók Jón Einarsson boltann af hon-
um, snérist í eina tvo hringi fyrir
framan varnarmenn Vals og sendi
knöttinn glæsilega efst í mark-
horniö. Jafntefli og flautaö var til
leikhlés áöur en Valsmenn náöu aö
byrja á miöju. Fallegt mark hjá
Jóni.
Síöari hálfleikurinn var ekki betri
en sá fyrri. Ekkert markvert geröist
fyrr en á 74. mínútu en þá átti
Ómar Rafnsson sannkallaöan
þrumufleyg af löngu færi sem Stef-
án náöi aö verja. Honum tókst þó
ekki aö slá knöttinn yfir markiö
eins og ætlunin var hjá honum
heldur datt boltinn niöur viö stöng-
ina. Stefán var fljótur á fætur og
átti í kapphlaupi viö Sigurjón aö
knettinum. Þvi hlaupi lauk meö þvi
aö Sigurjón skallaöi rétt framhjá
stönginni.
Rétt undir lok leiksins komst
Jón Einarsson í gott færi en skot
hans fór yfir mark Vals og þar með
var ieikurinn búinn.
Eins og áöur segir lofaöi þessi
leikur góöu í byrjun, en því miöur,
aöeins í byrjun. Flest liöin eru í
þeirri stööu aö þau þora ekki aö
taka neina áhættu og þá veröa
leikirnir oft þófkenndir og mikið
um miöjuhnoö, þar sem hvorugur
aöilinn hefur í raun betur og sókn-
araðgeröir því fálmkenndar.
Bestu menn í þessum leik voru
Guöni Bergsson og Bergþór
Magnússson hjá Val en hjá Blikun-
um er erfitt aö gera upp á milli
manna, liöiö var mjög jafnt nema
hvaö Benedikt Guömundsson
bakvörður hefur oftast leikiö betur
en í þessum leik. Ómar Rafnsson
var einnig slakur í fyrri hálfleik en
náöi sér ágætlega á strik í þeim
síöari.
EINKUNNAGJÓFIN:
VALUR: Stefán Arnarson 6, Þorgrímur Þrá-
insson 6, Guömundur Kjartansson 6. Guöni
Bergsson 7, Grimur Sæmundsen 6. Bergþór
Magnússon 7, örn Guömundsson 5, Jóhann
Þorvaröarson 5, Ingvar Guömundsson 5, Valur
Valsson 5, Guömundur Þorbjörnsson 6, Hilm-
ar Haröarson (vm. á 84. mín.) lék of stutt, Jón
Grétar Jónsson (vm. á 84. min.) lék of stutt.
BREIOABUK: Frlðrik Friöriksson 6. Benedikt
Guðmundsson 5. Loftur Ólafsson 6, Ólafur
Björnsson 6, Ómar Rafnsson 6, Vlgnir Bald-
ursson 6, Guömundur Baldursson 6, Sigurjón
Kristjánsson 6. Jón Einarsson 6, Jón Oddsson
5, Þorsteinn Hilmarsson 6, Heiðar Heiöarsson
(vm. á 84. mín.) lék of stutt.
I STUTTU MALIc
Valsvöllur 1. deild
Valur - Breiöablik 1:1 (1:1)
Mark Vals: Þorgrimur Þráinsson á 10 mfn.
Mark UBK: Jón Einarsson á 45. min.
Gul spjöld: Engln
Dómarl: Helgi Krlstjánsson og var slakur.
Áhortendur: Um 350. SUS.
• Hér é þMsari myndaseríu má
sjé mark Valsmanna í Mknum
gegn Breiðablik é sunnudaginn.
Hérna atökkva þair Friðrik og
Valur upp í boltann...
... Friörik nær ekki knettinum og
dettur, Valur ýtir aðeins við hon-
um...
... boltinn hoppar og Þorgrímur
er aö fara að fleygja aér é hann.
Valur og Guömundur Kjartansson
fylgjaat spenntir með...
... Hér hefur Þorgrímur akutlaö
aér é knöttinn og skallað hann í
netið. Boltinn er við höfuö Þor-
gríms og Guömundur er byrjaöur
að fagna . . . Morgunblaðlð/Július