Morgunblaðið - 04.09.1984, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
SIEMENS
SIWAMAT
þvottavélin
frá Siemens
• Vönduö.
• Sparneytin.
SMITH &
NORLAND HF.,
Nóatúni 4, sími 28300.
ESAB ESAB ESAB
ettur
rafsuóuvír
Eitt mikilvægasta atriði varðandi rafsuðu er að velja rétta gerð
rafsuðuvírs. Til þess að hámarksgæði verði á suðu er nauðsyn-
legt að vírinn sé valinn með tilliti til allra aðstæðna
Með þessa staðreynd í huga eigum við til á lager mikið úrval af
rafsuðuvír auk tækja og fylgihluta. Tæknimenn okkar veita
fúslega allar upplýsingar og eru þér innan handar um valið.
Hafið samband við söludeild.
FORYSTA ESAB ER TRYGGING FYRIR GÆDUM OG GÓÐRI ÞJÓNUSTU
HÉÐINN
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
HITAMÆLINGA-
MIÐSTÖÐVAR
Fáanlegar fyrir sex, átta, tíu, tólf, sextán, átján eöa
tuttugu og sex mælistaöi.
Ein og sama miöstööin getur tekið viö og sýnt bæöi
frost og hita, t.d. Celcius +200+850 eöa 0+1200 o.fl.
Hitaþreifarar af mismunandi lengdum og meö mis-
munandi skrúfgangi fáanlegar.
Fyrir algengustu riö- og jafnstraumsspennur.
Ljósastafir 20 mm háir.
Þaö er hægt aö fylgjast meö afgashita, kæli-
vatnshita, smurolíuhita, lofthita, kulda í kælum, fryst-
um, lestum, sjó og fleira.
SQy'rC«iu;®(u;ir cJðxniæ©©^ &. (S® RfYKJAVIK, ICILAND
Vesturgötu 16. Símar 14680 — 13280.
Metsölublad ú hverjum degi!
MÁLEFNI ALDRAÐRA Þórir S. Guðbergsson
Þjónusta
við aldraða
í Reykjavík
Margvísleg þjónusta viö aldraða er veitt í
höfuöborginni af opinberum aðilum, fé-
lögum og félagasamtökum. Margir hafa
spurt: Hvar er þessi þjónusta? Hver er
hún? Hver veitir hana og hvernig á aö
sækja um hana?
Félagsmálastofnu n
Reykjavíkurborgar
Undirritaður hefur fengið
fjölda fyrirspurna varðandi
þjónustu við aldraða í Reykja-
vík, hverjir reki hana, hvar hún
sé veitt, hvað hún kosti og
hvernig eigi að sækja um hana. I
næstu þáttum verður því leitast
við að svara þessum spurningum
í stuttu máli.
í Reykjavík einni býr rúmlega
helmingur allra íbúa landsins 67
ára og eldri og mun öldruðum
fjölga mjög á næstunni.
Við Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar starfar sér-
stök deild sem fer með velferð-
armál aldraðra. Víða út um
landsbyggðina eru málefni aldr-
aðra byggð upp á svipaða vegu.
Við Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar eru aðallega
þrjár deildir sem sinna sérstak-
lega málefnum aldraðra, þ.e.
ellimáladeild, heimilisþjónusta
og húsnæðisdeild Félagsmála-
stofnunarinnar.
Deild velferðar-
mála aldraðra
Deild sú sem sinnir málefnum
aldraðra hefur skrifstofur sínar
að Tjarnargötu 11 á fyrstu hæð.
Allar almennar upplýsingar um
málefni aldraðra er unnt að fá á
skrifstofunni. Símatímar eru á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum frá 9.00 til 10.00 f.h.,
en viðtöl við fulltrúa þarf að
panta sérstaklega í síma stofn-
unarinnar, 25500.
Fulltrúar deildarinnar fara
með einstaklings-, hjóna- og
fjölskyldumál veita upplýsingar
og ráðgjöf varðandi trygginga-
mál, fjármál, áfengismál, hús-
næðis- og vistunarmál, afslátt á
afnotagjaldi síma og sjónvarps,
lækkun á opinberum gjöldum við
sérstakar aðstæður, dagvistun-
arstofnanir o.fl.
Þá hefur deildin og á sinni
könnu rekstur og uppbyggingu
félags- og tómstundastarfs fyrir
aldraða. Félagsmiðstöðvarnar
eru nú fjórar i borginni, tvær
eru í byggingu og kannaðir
möguleikar á fleiri.
Þá hefur deildin einnig um-
sjón með félagslegri þjónustu og
ráðgjöf við þá aldraða íbúa sem
búa í leiguhúsnæði Reykjavík-
urborgar.
Við deildina starfa 2Vfe fulltrúi
auk ritara.
Öll þjónusta og upplýsingar
við deildina er öldruðum veitt að
kostnaðarlausu.
Heimilisþjónusta
Skrifstofa heimilisþjónustu
Pennarnir fyrir
skóla- ~
nemendur
í ar
sMrtlim*200
Frábær tússpenni með mjóum
plastoddi, sem hægt er
að nota við öll
tækifæri, léttur og
þægilegur í
hendi, fæst í 4 litum
svart - blátt -
rautt og grænt.
^ArtlineB^LL 2000
Kúlutússpenni sem þolir álagið,
endingargóður hversdagspenni,
sem á engan sér líkan. Hægt að velja
um 4 liti.
Fást í flestum bóka- og
ritfangaverslunum
Artline
Mikil umferð
um Þjóðgarðinn
á Þingvöllum
í sumar þrátt
fyrir yotviðri
UMFERÐ um þjóðgaröinn á
Þingvöllum hefur i sumar verið
svipuð og endranær, þrátt fyrir
linnulítil votviðri frá því í júlí-
byrjun og fram í miðjan ágúst.
Næturgestir í tjöldum og öðrum
sumardvalartækjum voru eink-
um fjölskyldufóik og var um-
gengni alla jafna góð, að því er
segir í fréttatilkynningu.
Ljóst þykir orðið að þjóðgarð-
urinn á Þingvöllum nýtist mun
betur sem dagvistarsvæði en
útileguvöllur. Þjóðgarðurinn er
í næsta nágrenni Reykjavíkur
og „Þingvallahringurinn" hin
hefðbundna dægradvöl borg-
arbúa, auk þess sem gönguferð-
ir um Þingvelli eru mönnum
tíðar. í sumar var gengist fyrir
umferðarfræðslu á vegum þjóð-
garðsins og gaf sú þjónusta
góða raun. Stangveiði var
stunduð í sumar í Þingvalla-
vatni innan Þjóðgarðsins sem
annars staðar og á tveimur
mánuðum, frá miðjum júní til
miðs ágústs, seldust um það bil
fimm hundruð veiðileyfi eða lið-
lega sextíu í hver vikulok. Feng-
ur var hins vegar misjafn, eins
og fram hefur komið í fjölmiðl-
um.