Morgunblaðið - 04.09.1984, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
íslandsmótið í knattspyrnu
Skagamenn
meistarar
Sjá nánar/37.
Átta atvinnumenn koma
í leikinn gegn Wales
• Ásgeir Sigurvinsson gerði Wales-búum lífið leitt (síðustu viðureign þjóðanna — skoraði þá tvívegis. Þeir
hafa vafalausf góðar gætur á honum í þetta skipti. Morgunbiaöið/Friðþ|ófur
Fram úr fallsætinu
„ÞESSI leikur varö aö vinnast —
annars var þetta búiö hjá okkur.
En þó sigur hafi unnist er ekki
nema hálfnað þaö verk að halda
sér í deildinni,“ sagði Jóhannes
Atlason, þjálfari Fram, ( gær-
kvöldi eftir að lið hans hafði lagt
Víkinga að velli, 3:1, (1. deildinni
í knattspyrnu. „Leikurinn ein-
kenndist af mikilli taugaveiklun
— sárstaklega fyrri hálfleikurinn,
þá var alveg skelfileg taugaveikl-
un í leik okkar,“ sagöi Jóhannes.
Þaö var greinilegt að leikmenn
vissu aö um Iff og dauöa var aö
tefla í leiknum. Framarar voru, eins
og Jóhannes sagöi, mjög tauga-
spenntir — enda heföi tap þýtt fall
í 2. deild. En eftir sigurinn í gær
eru þeir komnir úr fallsæti.
Fyrri hálfleikurinn var slakur —
hart barist á báöa bóga og nokkur
færi. Guömundur Torfason fékk
besta færiö — komst einn inn fyrir
vörn Víkings og lék á markvöröinn,
en Jón Otti Jónsson, sem lék í
marki Víkings, náöi aö slæma
hendi í boltann og færiö rann út í
sandinn.
Síðari hálfleikur var mun fjörugri
— og þá voru mörkin öll skoruö.
Staðan
Staðan í 1. deildinni er nú
þannig: 16 11 2 3 29:16 35
ÍBK 16 8 3 5 19:16 27
Valur 16 6 6 4 22:15 24
Þór 16 6 3 7 24:23 21
Víkingur 16 5 5 6 25:27 20
Þróttur 16 4 7 5 17:17 19
KR 16 4 7 5 16:23 19
Fram 16 5 3 8 18:21 18
UBK 16 3 8 5 15:16 17
KA 16 4 4 8 23:34 16
Sautjánda og næst síðasta um-
ferð Islandsmótsins hefst á
fimmtudaginn með leík Fram og
Vals. UBK og KA leika síöan á
föstudag og á laugardag eru þrír
leikir: Þór—Víkingur, ÍBK—KR og
Þróttur—ÍA.
Víkingur - Fram
1:3
Þaö fyrsta geröi Guömundur
Steinsson á 57. mín. Hafþór
Sveinjónsson gaf fyrir markiö,
Guömundur tók boltann niður,
sneri af sér varnarmann og skoraöi
örugglega af markteig.
Sex mín. síöar jafnaöi Geir
Magnússon. Hann kom inná sem
varamaður stuttu áöur. Eftir glæsi-
legan undirbúning skallaöi hann
fallega í netiö eftir fyrirgjöf Ragn-
ars Gíslasonar.
Eftir markiö sóttu Vikingar stíft
og fengu mjög góö tækifæri — en
þeir náöu ekki aö bæta viö marki.
Þaö geröu Framarar hins vegar.
Eftir tvö dauöafæri Víkings í röö
náðu Framarar skyndisókn — örn
Valdimarsson, sem nýkominn var
inná sem varamaöur, fékk boltann
á eigin vallarhelmingi og einlék
upp allan völl, inn á vítateig og
sendi fyrir markiö. Þar kom Guö-
mundur Torfason á fullri ferö og
skoraöi af markteig.
Ómar Jóhannsson skoraði
þriöja mark Fram á næstsíöustu
mínútunni. Hann fékk boltann rétt
aftan við miöju — tók á rás fram
völlinn meö Gylfa Rútsson á hæl-
unum, lék á Jón Otta markvörö
sem kom út á móti og skoraði í
mannlaust markiö. Fögnuöur
Framara var mikill enda dýrmæt
stig í höfn. Víkingar voru daufir í
dálkinn — þeir gátu sjálfum sér
um kennt. Þeir fengu næg færi til
aö sigra en nýttu þau ekki.
„Þetta var í einu oröi sagt lélegt.
Mjög lélegt," sagöi Björn Árnason,
þjálfari Víkings, eftir leikinn.
i STUTTU MALIi
Valbjarnarvöllur 1. delld. Víkingur—Fram 1:3
(0:0)
Mark Víkinga: Geir Magnússon á 63. mín.
Mörk Fram: Guömundur Steinsson á 57. rnin..
Guómundur Torfason á 82. mín. og Omar Jó-
hannsson á 89. mín.
Gul spjöld: Andri Marteinsson, Vikingi og
Guömundur Torfason, Fram.
Áhorfendur: 612
Dómari: Þorvarður Björnsson
EINKUNNAGJÖFIN:
Víkingur: Jón Otti Jónsson 6, Kristlnn Heiga-
son 5, Ragnar Gíslason 5, Einar Einarsson 4,
Magnús Jónsson 5, Andri Marteinsson 6,
Kristinn Guðmundsson 6. Omar Torfason 5,
Amundi Sigmundsson 6, Gytfi Rútsson 4,
Heimir Karlsson 5, Gelr Magnússon (vm) 5,
Hans Leó (vm) lék of stutt.
Fram: Guömundur Baldursson 6, Hafþór
Sveinjónsson 5, Trausti Haraldsson 4, Þor-
steinn Vilhjálmsson 4, Sverrir Einarsson 7,
Þorsteinn Þorsteinsson 6. Kristinn Jónsson 6,
Viðar Þorkelsson 4, Guómundur Steinsson 6,
Guömundur Torfason 6, Úmar Jóhannsson 5,
örn Valdimarsson (vm) lék of stutt. _SH.
ÍSLENDINGAR leika sinn fyrsta
leik í undankeppni heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu á
Laugardalsvellínum í næstu viku
gegn Wales-búum. Tony Knapp,
þjálfari liðsíns, hefur valið sextán
manna hóp fyrir leikinn og var
hann tilkynntur i gær. Átta at-
vinnumenn eru í hópnum — og
virkar íslenska liöið sterkt á
pappírnum. „Það er þó ekki nóg
— það verður aö samstilla hóp-
inn og blása í hann baráttuanda,"
eins og Ellert B. Schram, formaö-
ur KSI, sagði í gær.
Ásgeir Sigurvinsson, sem skor-
aöi bæöi mörk islands í síöustu
viöureigninni viö Wales á Vetch
Field í Swansea, leikur meö ís-
lenska liöinu gegn Wales. Hann
átti frábæran leik i Swansea en þá
geröu liöin jafntefli, 2:2, í mjög eft-
irminnilegum leik.
Sextán manna hópurinn lítur
annars þannig út:
Markmenn: Bjarni Sigurösson ÍA
og Þorsteinn Bjarnason iBK.
Aörir leikmenn: Arnór Guöjohn-
sen, Anderlecht, Atli Eövaldsson,
Fortuna Diisseldorf, Árni Sveins-
son, ÍA, Ársæll Kristjánsson,
Þrótti, Ásgeir Sigurvinsson,
Stuttgart, Guömundur Þorbjörns-
son, Val, Janus Guölaugsson, Lár-
us Guömundsson, Bayer Uerding-
en, Magnús Bergs, Eintracht
Braunschweig, Pétur Pétursson,
Feyenoord, Ragnar Margeirsson,
ÍBK, Siguröur Lárusson, ÍA, Sævar
Jónsson, SC Brugge, Þorgrímur
Þráinsson, Val.
Reikna veröur meö því aö allir
atvinnumennirnir verði í byrjunar-
liði islands — og veröur fróölegt
aö sjá hvernig Tony Knapp hyggst
stilla upp liöi sínu. Magnús Bergs
leikur í fremstu viglínu meö félagi
sínu i Vestur-Þýskalandi en fullvíst
má telja aö hann leiki ekki i þeirri
stööu í landsleiknum. Svo virðist
sem Knapp hafi jafnvel valið hann
til aö leika stööu vinstri bakvaröar,
eöa þá aö hann yröi notaöur sem
aftasti tengiliöur. Baráttujaxl á
miöjunni.
Bjarni Sigurðsson hlýtur aö
standa í marki íslenska liösins —
varnarmenn eru líklegastir Þor-
grímur, Sævar, Janus og Magnús
— nema Árna Sveinssyni veröi
stillt upp sem bakveröi vinstra
megin — en þaö vekur athygli aö
enginn vinstri bakvöröur úr 1.
deildinni er í hópnum.
Á miðjunni ættu aö veröa Ás-
geir, Atli, Arnór og hugsanlega
Magnús Bergs — leiki Árni sem
bakvöröur, og Lárus Guömunds-
son og Pétur Pétursson í framlín-
unni. _____ ________
HSÍ veitir
undanþágu
STJÓRN Handknattleikssam-
bands íslands ákvað á fundi sín-
um í gærkvöldi aö standa ekki í
veginum fyrir þvi að Siguröur
Gunnarsson gæti gerst leikmaö-
ur vestur-þýska liðsins Gross-
waldstadt, ef beiðni um félaga-
skipti hans til liðsins bærist.
Ný reglugerö var samþykkt þess
efnis í síöasta HSÍ-þingi aö leik-
menn fengju ekki félagaskipti til
erlendra liða eftir 31. júli. Stjórnin
ákvaö aö veita undanþágu nú á
þeirri forsendu aö reglugeröin væri
ekki nægilega kynnt.
Heimsmet í stangarstökki
Sovétmaðurínn Sergei Bubka setti heimsmet í stangarstökki ( Róm á föstudagskvöldiö — stökk 5,94
metra. Bubka átti heimsmetið fyrir mótiö, 5,90 metra. Á mótinu stökk svo Frakkinn Pierry Vigneron
5,91. Fjórtán mín. síðar bætti Sovétmaðurinn svo þaö met. Á myndinni sést Bubka svífa yfir rána á sínu
nýja heimsmeti. Sjá nánar/38