Morgunblaðið - 04.09.1984, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
51
„Létu sig dreyma um
byltingu við sólarlag"
Endurnar voru hreint ekki
með nein læti á kyrru yfirborði
tjarnarinnar í miðborg Reykja-
víkur sólríkan fimmtudag fyrir
hálfum mánuði, þær lifðu í sátt
og samlyndi við Guð og menn og
kunnu ekki síður en mannfólkið
að meta sólskinið.
Bandarískur ferðamaður stóð
með myndavél í hendi við tjarn-
arbakkann gengt húsi Félags-
málastofnunar Reykjavíkur-
borgar og myndaði umhverfið.
Hann var sko ekki að versla,
hann var að dáðst af náttúrunni
og gekk eftir Tjarnargötunni
áleiðis að Ráðherrabústaðnum
og myndaði húsið frá ýmsum
sjónarhornum. Hinum megin við
götuna, við dagheimilið voru
börnin að leik í rólum og sand-
kössum og unglingar sleiktu sól-
skinið á grasflötinni ekki langt
frá styttunni af ólafi Thors.
Annars var rólegt i hádeginu
þennan sólríka dag, lítil umferð
bifreiða eða gangandi fólks. Eft-
ir Tjarnargötunni, ekki langt frá
Ráðherrabústaðnum, gekk Ant-
on Örn Kjærnested hinn ötuli
framkvæmdastjóri bókaklúbbs
Almenna Bókafélagsins og gekk
greitt, líkiega verið á leið heim í
hádegismatinn. Sumarleikhúsið
„Light Nights" efnir til sýninga
fyrir erlenda ferðamenn í gamla
Tjarnarbíói og eru komnar út-
stillingamyndir í glugga við hús-
ið, útlendur ferðamaður greip í
hurðarhúninn á útidyrahurð-
inni, þar var lokað, miðasala
greinilega ekki hafin.
í brekkunni upp af Ráðherra-
bústaðnum í leikaranýlendunni
sem sumir nefna „Beverly Hills"
búa Flosi Ólafsson, Baldvin
Halldórsson, Gísli Alfreðsson og
Helgi Skúlason ásamt fjölskyld-
um. Ókunnugir sem leið eiga um
hverfið ímynda sér að þarna búi
athafnarmenn í verslun eða iðn-
aði. Gömlu timburhúsin taka sig
vel út og aldrei betur en í sól-
skini og hafa fengið nýtt útlit,
máluð ýmist í skærum ljósum
litum eða dökkum litum og um-
hverfið til fyrirmyndar, hús og
garðar. Fegrunarnefnd Reykja-
víkur mætti gjarnan veita auka-
verðlaun (það er búið eins og
kunnugt er að veita aðalverð-
launin) til húsráðenda í „Beverly
Hills", t.d. kassa af góðu kon-
fekti eða dýrum vindlum, í við-
urkenningarskyni fyrir mikla al-
úð í frágangi lóða og húsa.
Við Tjarnargötu hefur löngum
búið fólk sem sett hefur svip á
umhverfið, á mannlífið, athafna-
menn, embættismenn og lista-
menn. í annálum er getið um
Rosenern, stiftamtmann, dansk-
an umboðsmann konungs sem
árið 1848 fyrirskipaði ákveðin
nöfn á allar götur sem þá voru í
Reykjavík, ein af þessum götum
var Tjarnargata sem síðar fékk
svo sama nafn og alþýða manna
hafði þegar skýrt hana. Snemma
á öldinni byggðu embættismenn
í bænum hús við Tjarnargötu og
þar reis af grunni aðalslökkvi-
stöðin í bænum. Á horni Tjarn-
argötu og Kirkjustrætis bjó í
upphafi starfsferils síns seint á
nítjándu öld, Geir Zöéga, útgerð-
armaður, sem lengi var einn af
aðalburðarásunum i reykvísku
athafnalífi. Á Tjarnargötu núm-
er fimm bjó um eftir aldamótin
siðustu, frændi hans og alnafni,
Geir Zoéga síðar rektor, afi
Geirs Hallgrímssonar, utanrik-
isráðherra. Húsin sem þeir al-
nafnarnir bjuggu í eru löngu
horfin, einnig hús sem stóð við
Tjarnargötu númer þrjú sem hét
Suðurbær, þar bjó lengi Guð-
mundur Hannesson böðull, með
konu sinni Margréti. Á þessum
slóðum reis síðar stórbygging
Steindórsprents sem enn er við
götuna, hið veglegasta hús þar
er Happdrætti Háskólans með
umboð og gefur út vinningaskrá
mánaðarlega sem veldur allt i
senn vonbrigðum og gleði.
í húsi við Tjarnargötu 6, sem
einnig er horfið, bjó Pétur Guð-
jónsen, orgenleikari, brautryðj-
andi í íslensku tónlistarlífi seint
á nítjándu öldinni og í byrjun
tuttugustu aldarinnar. Hann var
tengdafaðir eða forfaðir margra
af helstu oddvitum i menning-
arlífi þjóðarinnar hér fyrr á ár-
um eins og t.d. Indriða Einars-
sonar. Saga Ráðherrabústaðar-
ins að Tjarnargötu 32 er svolítið
sérstök. Húsið var upphaflega
byggt fyrir Ellefsen, forstjóra
norsku hvalveiðistöðvarinnar á
Vestfjörðum, sem þar var með
starfsemi um og eftir aldamótin
síðustu. Húsið var byggt við
Dýrafjörð og endurreist sem
ráðherrabústaður í Reykjavík og
er mikil prýði af húsinu þar sem
það stendur í brekkunni í Tjarn-
argötu og ágætt að geta boðið
þangað gestum ríkisstjórna,
stórmönnum heimsins sem leið
eiga um landið hvort sem er
sumar, vetur, vor eða haust. Hús
Islensk-Erlenda að Tjarnargötu
18 er komið til ára sinna en eigi
að síður vel útlítandi og vel með
farið. Þar ræður ríkjum Friðrik
Sigurbjörnsson og hefur gert í
áraraðir með traust fyrirtæki og
þekkt. Húsið að Tjarnargötu 20
er tengt ákveðnu tímabili I lífi
þeirra sem eitt sinn voru ungir
og byltingasinnaðir og störfuðu í
Æskulýðsfylkingunni, sambandi
ungra sósíalista, á sjöunda ára-
tugnum þegar algengt var að
kæmi til átaka við lögreglu á
götum úti vegna Víetnam eða
herstöðva á Islandi. Þar réðu
ríkjum á skrifstofu um tíma
Kjartan Ólafsson, síðar ritstjóri
Þjóðviljans, Jón heitinn Rafns-
son, hagyrðingur góður, minnis-
stæður maður, sem varð á sú yf-
irsjón eins og fjölda annara að
trúa á Sovétríkin og Stalín og
Vernharður Linnet, jazzgeggj-
ari, sem kunni tvö hundruð
manna spjaldskrá utan að,
mundi fæðingardag og heimili
félaga og það sem meira var um
vert mundi símanúmer hjá fé-
lögum og það var ekki lítið atriði
þegar efna átti til „liðsfunda"
eins og mótmælaaðgerðir voru
þá nefndar.
Að Tjarnargötu 26 búa þau
hjón Sveinn Einarsson rithöf-
undur og Þóra Kristjánsdóttir,
listráðunautur og umsjónarmað-
ur Kjarvalsstaða, ásamt dóttur
sinni í skemmtilegu húsi. Fram-
sóknarflokkurinn var með bæki-
stöðvar í þessu húsi á sjöunda
áratugnum á þeim tíma þegar
Kristinn Finnbogason og Þráinn
Valdimarsson réðu miklu i
Framsóknarflokknum og eiði-
merkurganga flokksins utan rík-
isstjórna var löng og erfið og
sumir framsóknarmenn voru
farnir að örvænta og töldu að
seint eða aldrei kæmi að því að
flokkurinn eini og sanni kæmist
að kjötkötlunum.
Róttækir, sósíalískir ungl-
ingar voru stundum að leynast í
kjarrinu við Tjarnargötuna, upp
af tjörninni hér forðum með
eggjalíkjörsflösku eða hvítvíns-
flösku í buxnastreng og létu sig
dreyma um byltingu við sólar-
lag. Þá var gróðurinn heldur lít-
ill en nú í dag er umhverfið allt
kjarri vaxið og fagurt sem fyrr.
Jakob Frímann Magnússon, sá
ágæti listamaður kom út úr húsi
við Tjarnargötu 10, þegar ég
gekk fram hjá um daginn,
burstaklipptur og minnir á fjall-
göngumann, stórstígur, þrekvax-
inn og gekk ákveðnum skrefum
út götuna og ekki langt frá flaug
hvítur mávur og fylgdist með
pilti sem er leikstjóri kvikmynd-
ar Stuðmanna, sem nú á að fara
að hefja tökur á og heitir „Hvítir
mávar“, sérkennileg tilviljun
það.
Karlar — Konur
NUDD - NUDD - NUDD
Megrunar- og afslöppunarnudd. (10 tíma kúrar).
Megrunarnudd, vöðvabólgunudd, partanudd ogj
afslöppunarnudd.
Nudd — sauna — mælingar — vigtun — matseóill.
Opið til kl. 10 öll kvöld.
Bilastæði. Sími 40609. Nudd- og sólbaösstofa^
Ástu Baldvinsdóttur,
Hrauntungu 85, Kópavogi.
LEIÐBEINENDA
TÆKNI
OG NÁMSKEIÐA
GERD
Námskeið fyrir
leidbeinendur
MARKMIÐ:
Markmið námskeiðsins er að auðvelda leiðbeinendum að beita
þeirri tækni sem hvðst við leiðbeinendastörf og í vali á námsaðferð-
um, og gerð verður grein fyrír skipulegri uppbvggingu námskeiða.
EFNI:
Fjallað verður um eftirtalda þætti:
- Leiðbeinandinn
- Þátttakendur
- Hjálpartæki
- Kennsluefni
- Námsefnið (hugmyndir)
- Niðurröðun (atburðarrás) námsefnis
- Dagskrárgerð
- Efnisgerð
ÞATTTAKENDUR:
Námskeiðið er ætlað leiðbeinendum og þeim sem þurfa að leið-
beina á námskeiðum, og setja upp námskeiðsefni.
LEIÐBEINANDI:
Sigurður Örn Gíslason. rekstrarráð-
gjafi. Hefur starfað sem rekstrarráð-
gjafí í 6 ár og rekur nú eigið ráðgjafa-
fyrirtæki. Hann hefur m.a. stjómað
námskeiðum í leiðbeinendatækni fyrír
ýmsa hópa sl. 2 ár.
TÍMI:
19.-20. september kl. 9.00 - 13.00.
TILKYNNIÐ PÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
ASTJÓRNUNARFÉLAG
Æm íslands nas^,23
BJARM DAGUR'AUGl