Morgunblaðið - 04.09.1984, Side 53
61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
inni og vafalaust prakkaranum
líka.
f ólgusjó framhaldsmenntunar-
innar missti Gæi kúrsinn stuttan
tíma. Svo var kúrsinn tekinn á ný
og siglt af öryggi í höfn. Hann
varö tannlæknir í vor, kvæntist
Nínu skömmu síðar, stofnaöi
heimili og setti upp tannlækna-
stofu. Hann var stórstígur og hon-
um lá á. Síðustu samskipti okkar
voru aðeins fáum dögum áður en
hann féll frá. Þá bað hann mig að
aðstoða sig við skjalagerð vegna
kaupa á húsi. Þau skjöl voru aldrei
undirrituð.
Á námsárunum eignaðist Garð-
ar dóttur, Elvu Dögg, með Ingu,
þáverandi sambýliskonu sinni.
Milli föður og dóttur var einstak-
lega gott samband sem Garðar
lagði sig fram um að rækta þótt
leiðir skildu. Á næstunni mun svo
líta ljósið lítil mannvera sem
aldrei á þess kost að kynnast föður
sínum, þeim góða dreng sem nú
hefur kvatt okkur. Megi drottinn
styrkja börnin á vegferð þeirra því
þau hafa misst mikið.
Það er erfitt að skilja almættið
þegar slökkt er á lífsneistanum
með þessum hætti og nýblómstruð
hamingja gerð að sárum söknuði.
Gísli Baldur
Okkur setti hljóð, þegar við
fregnuðum lát Garðars Brands-
sonar. Þessi ungi geðþekki maður
vann með okkur á tannlæknastof-
unni í Tjarnargötu 16 um tíma í
fyrrahaust, meðan hann var að
undirbúa sig undir að hefja rekst-
ur eigin stofu á Hellu í Rangár-
vallasýslu. Kom strax í ljós, að
hann kunni að umgangast starfs-
fólk og sjúklinga af glaðværð og
háttvísi. Hann var prúður maður
og gerði sér far um að vanda tal
sitt og framkomu alla. Þannig
munum við geyma Garðar
Brandsson í minningu okkar.
Við sendum ekkju hans, foreldr-
um og öðrum aðstandendum inni-
legar samúðarkveðjur á þessari
erfiðu stund.
Hörður Sævaldsson
og starfsfólk.
Stundum er erfitt að sætta sig
við hve stutt er á milli gleði og
sorgar í þessu lífi.
Ekki er langt síðan að ég fékk
tækifæri til að gleðjast með
frænda mínum og starfsbróður,
Garðari Brandssyni, við brúðkaup
hans og Nínu Gunnarsdóttur í
apríl sl. og nú er komið að kveðju-
stundinni.
Garðar var aðeins 31 árs. Hann
fæddist 16. júlí 1953 og voru for-
eldrar hans hjónin Jónína Mar-
grét Gísladóttir og Brandur
Jónasson, yfirflugvirki. ólst hann
upp í líflegum hópi fimm systkina
í stórri samhentri fjölskyldu.
Hann var stór og myndarlegur, en
undir stóru skapi hans bærðist
ótrúlega viðkvæm sál.
Skarðið er stórt, þegar fyrsta
barnabarn foreldra minna kveður
þennan heim, en vissulega skilur
hann mikið eftir. Minningar frá
barndóms- og unglingsárum, sem
við er fylgdust með skildum ekki
alltaf hvað var.
Það var fyrst nú á þessu ári,
sem greinilegt var að markinu var
náð. Hann lauk tannlæknisnámi
um síðustu áramót og hóf starf,
sem féll vel við meðfædda hand-
lagni hans. Virtist hann njóta þess
að byggja upp starf sitt og
starfsvettvang á sjálfstæðan hátt
eftir eigin hugmyndum.
Það sem þó var ekki síður mik-
ilvægt var að síðastliðið vor gekk
hann að eiga vandaðan lífsföru-
naut, sem var honum samhent í
einu og öllu. Jafnframt skópu þau
saman hlýlegt heimili, sem
ánægjulegt var að koma á.
Því miður hefi ég og kona mín
af óviðráðanlegum ástæðum ekki
tækifæri til að fylgja Garðari síð-
asta spölinn, en við biðjum þess að
Nínu, foreldrum hans og dóttur,
Elvu Dögg, verði gefinn kraftur til
að bera þeirra miklu sorg og sökn-
uð.
Sjálfur þakka ég fyrir minn-
ingar, sem ég geymi um samskipti
við kröftugan og svipmikinn
frænda. Samskipti, sem Garðar
setti aldrei dökkan blett á.
Hvíli kær frændi í friði.
Magnús R. Gíslason.
Garðar Brandsson er dáinn.
Hann varð bráðkvaddur heima
hjá sér. Þannig hljómuðu orð móð-
ur minnar í síma síðla mánudags.
Við Garðar vorum systkinasyn-
ir og þekktumst eins og tíðkast
innan fjölskyldna, þar sem ald-
ursmunurinn er 4 ár, en kynnt-
umst betur þegar leiðir lágu sam-
an i tannlæknadeildinni, Garðar
sem nemandi og undirritaður sem
kennari. Hann var prúður og hæg-
ur nemandi og samvinna okkar
góð.
Garðar var einn fimm barna
hjónanna Jónínu M. Gísladóttur
og Brands Tómassonar, flugvirkja,
uppalinn á rausnar- og fyrirmynd-
arheimilinu Hörgshlíð 22, Reykja-
vík.
Eftir nám ákvað Garðar að
setja á stofn tannlæknastofu á
Hellu, sem hann og gerði fyrir
tæpu ári síðan.
Margt áttum við sameiginlegt
og þurftum ýmislegt að spjalla og
kynntist ég því Garðari enn nánar
og fann þá hvern öndvegismann
hann hafði að geyma. Stutt er síð-
an við hjónin vorum við brúðkaup
þeirra Garðars og Nínu Kristínar.
Nú blasti lífið við. Fögur eigin-
kona og væntanlegt barn, erfiðu
námi lokið og brúðkaupsferðin til
Evrópu nýafstaðin.
Þvílíkt reiðarslag, en við sem
Guömunda Bjarna-
dóttir Vestmanna-
eyjum —
Fædd 27. desember 1908
Dáin 28. ágúst 1984
Á laugardaginn, 1. september,
var til moldar borin frá Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum amma
mín, Guðmunda Bjarnadóttir.
Hún var fædd 27. desember 1908
í Fljótum í Sléttuhlíð. Foreldrar
hennar voru Bjarni Guðmundsson
og Margrét Sigurveig Gottskálks-
dóttir. Þau eignuðust sex börn.
Þegar amma var tveggja ára
gömul fluttist fjölskyldan til
Siglufjarðar. Þar ólst hún upp við
mikið ástríki foreldra sinna.
Þegar amma var tvítug að aldri
urðu mikil straumhvörf í hennar
lífi. Hún fór til Vestmannaeyja í
atvinnuleit. Þar kynntist hún ung-
um efnismanni, Stefáni Valda-
syni, og giftu þau sig tveimur ár-
um síðar. Þau eignuðust fimm
börn: Guðrúnu Valdísi, fædd 1930,
dáin 1937, Margréti, fædd 1931,
Kristínu Jónu, fædd 1934, Gunnar
Kristinn, fæddur 1938, dáinn 1940
og óskar, fæddur 1942.
Minning
Amma og afi reistu sér hús við
hliðina á Sandgerði, húsi föður
afa. Þar áttu þau ánægjuleg ár og
fylgdust með uppvexti barna
sinna. Síðar á ævinni byggðu þau
stærra hús að Bröttugötu 4 og
bjuggu þar ásamt Óskari syni sín-
um til dauðadags.
Amma var alla tíð mikið snyrti-
menni og hugsaði um heimili sitt
að stakri prýði. Henni var alla tíð
annt um velferð barna sinna og
áttu þau hug hennar og hjarta.
Það varð henni þungbær reynsla
að missa tvö börn í blóma lífsins
og síðar eiginmann sinn árið 1982
og þar komu fram sár er aldrei
greru til fulls.
í dag leitar hugur minn aftur í
tímann. Þegar ég, borgarbarn úr
Reykjavík, kom í heimsókn ásamt
foreldrum og systkinum og naut
þess frjálsræðis og fegurðar sem
Vestmannaeyjar gáfu mér. Þ6 er
mér minnisstæðust sú hlýja og
það öryggi sem streymdi frá heim-
Nýtt tölublað af
„Hestinum okkar“
trúum á almættið verðum að trúa
því að slíkt hafi einhvern æðri til-
gang.
Eiginkonu, Nínu Kristínu
Gunnarsdóttur, dóttur, Elvu Dögg
11 ára frá fyrri sambúð, foreldr-
um, systkinum og öðrum aðstand-
endum vottum við hjónin dýpstu
samúð.
Tómas Á. Einarsson
Úti er þetta ævintýr.
Yfir skuggum kvöldið býr.
Vorsins glóð á dagsins vöngum dvín.
Þögnin verður þung og löng
þeim, sem unnu glöðum söng
og trúáð hafa sumarlangt á sól og vín.
Við svona fregnir setur mann
hljóðan og minningarnar sópast
að. Minningar um ungan mann
sem fyrir svo stuttu kvaddi okkur
í skólanum og hélt til starfa. Bú-
inn að ná þeim áfanga sem við öll
stefnum að og bíðum með óþreyju.
Enn við megum ekki einblína of
mikið á framtíðina því enginn veit
hvað hún ber í skauti sér og nú
hefur Garðar kvatt í hinsta sinn.
Garðar kunni að njóta líðandi
stundar og jafnt í skóla sem utan
höfum við átt með honum gleði- og
ánægjustundir þar sem honum
tókst ekki svo sjaldan að kitla
hláturtaugar viðstaddra. Við
þökkum þessar samverustundir og
þær lifa með okkur um ókomna
tíð.
Innilegustu samúðarkveðjur
sendum við ástvinum hans öllum.
ÚT ER komið 2. tölublað 25. ár-
gangs af Hestinum okkar. Meðal
efnis í blaðinu má nefna'umfjöllun
um fjórðungsmótin sem haldin
voru í sumar á Kaldármelum og
Hornafirði, viðtal við Ólaf Jónsson
stóðbónda í Hemlu í Hvolhreppi. í
vísnaþættinum eru birtar Gránu-
vísur eftir sr. Pál Bjarnason frá
Undirfelli í Vatnsdal og rætt við
Gísla Jónsson sem var gæslu-
maður á Skógarhólum í sumar. Þá
er sagt frá ferð tveggja stjórn-
armanna L.H. og ritstjórnarfull-
trúa Hestsins okkar um Vestfirði
þar sem haldnir voru tveir svæð-
isfundir í vor. Kemur fram í þess-
ari grein hver aðstaða Vestfirð-
inga er í hestamennskunni.
I unglingaþætti er fjallað um
unglingakeppnina auk þess sem
birtur er útdráttur úr bréfum sem
þættinum hafa borist. Þá er
myndaopna frá hestadögum sem
haldnir voru í Garðabæ í vor og
sagt er lítillega frá undirbúningi
fyrir fjórðungsmótið sem haldið
verður í Reykjavík á næsta ári og
birt þar merki mótsins.
Hesturinn okkar kemur út fjór-
HESTUEINN
mnr/m
um sinnum á ári en stefnt er að
útgáfu fylgirits með fjórða tölu-
blaði sem innihéldi ættbók sem
verið hefur í fjórða tölublaði. Rit-
stjóri Hestsins okkar er Albert Jó-
hannsson, Skógum, og ritstjórn-
arfulltrúi Valdimar Kristinsson.
(Fréttatilkynning.)
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega, óháð því, sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
(Tómas Guðmundsson)
Tannlæknanemar.
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
ili ömmu og afa. Þar var hlutur
ömmu stór.
Við áttum góðar stundir, en allt
of fáar, þar sem við sátum á tali
saman og hún rifjaði upp liðna at-
burði sem stóðu henni ljóslifandi
fyrir hugskotssjónum. Þá naut
amma sín vel.
Nú þegar ég fylgi ömmu síðasta
spölinn þar sem hún verður lögð
til hvílu við hliðina á afa fyllist
hugur minn söknuði og virðingu
fyrir þeim og öllu því góða sem
þau hafa fyrir mig gert.
Hrönn Kjærnested
Réttirnar í haust
NÚ FER senn að líða að réttum, en
þær fyrstu verða sunnudaginn 9.
september. Alls verða réttir á yfir 50
stöðum á tímabilinu 9.—24. sept-
ember. Réttir í ár verða sem hér
segir:
Sunnudaginn 9. september:
Hrútatungurétt í Hrútafirði, V-Hún.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V-Hún.
Skarðaréttir í Gönguskörðum, Skag.
Mánudagur 10. sept:
Reynistaðarétt í Staðarhr., Skag.
Miðvikudagur 12. september:
Hraunsrétt í Aðaldal, S-Þing.
Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árn.
Tungnaréttir í Biskupstungum, Árn.
Fimmtudagur 13. september:
Hrunaréttir í Hrunamannahr., Árn.
Skaftholtsrétt í Gnúpverjahr., Árn.
Stafnsrétt í Svartárdal, A-Hún.
Föstudaginn 14. september:
Auðkúlurétt í Svínadal, A-Hún.
Skeiðaréttir á Skeiðum, Árn.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A-Hun.
Víðidalstungurétt í Viðidal, V-Hún.
Laugardagur 15. september:
Auðkúlurétt í Svínadal, A-Hún.
Heiðabæjarrétt í Þingvallasveit, Árn.
Kaldársrétt við Hafnarfjörð.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag.
Undirfellsrétt f Vatnsdal, A-Hún.
Víðidalstungurétt i Víðidal, V-Hún.
Sunnudagur 16. september:
Fossvallar. v/Lækjarbotna (Rvk./Kóp.)
Mælifellsrétt i Lýtingsstaðahr., Skag.
Skrapatungur. í Vindhælishr. A-Hún.
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyjaf.
Mánudagur 17. septemben
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr.
Fljótstungurétt i Hvítársiðu, Mýr.
Hafravatnsrétt í Mosfellss., Kjósars.
Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn.
Kaldársbakkar. i Kolbeinsst.hr., Hnapp.
Nesjavallarétt í Grafningi, Árn.
Silfrastaðarétt í Akrahr., Skag.
Þingvallarétt i Þingvallasveit, Árn.
Þórkötlustaðarétt v/Grindavík.
Þverárrétt í Eyjahreppi, Snæf.
Þriöjudagur 18. september
Kjósarétt i Kjósarhreppi, Kjósasýslu.
Kollafjaröarrétt í Kollafirði, Kjós.
Mýrdalsrétt í Kolbeinsst.hr., Hnapp.
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr.
Miðvikudagur 19. september:
Hítardalsrétt f Hraunhr., Mýr.
Langholtsrétt í Miklaholtshr. Snæf.
Oddstaðarrétt í Lundareykjadal, Borg.
Selflatarrétt í Grafningi, Árn.
Selvogsrétt í Selvogi, Árn.
Skaftártungur. í Skaftárt., V-Skaft.
Svarthamarsr. á Hvalfjarðarstr., Borg.
Svignaskarðsrétt i Borgarhr., Mýr.
Vogarétt, Vatnsleysuströnd, Gullbr.
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr.
Fimmtudagur 20. september:
Grímsstaðarétt í Álftaneshr., Mýr.
Ölfusrétt i ölfusi, Árn.
Ölkeldurétt i Staðarsveit, Snæf.
Föstudagur 21. september:
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg.
Laugardagur 22. september:
Krísuvíkurrétt, Krisuvfk, Gullbr.s.
Sunnudagur 23. september.
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal.
Mánudagur:
Fellsendarétt i Miðdölum, Dal.
Legsteinar
granít — marmari
Opiö alla daga, einnig kvöld ó.f
Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi,
og helgar. símar 620809 og 72818.