Morgunblaðið - 04.09.1984, Síða 63
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1984
71
Slysavamamenn í þjálfunar- og námsferð:
Liður í að treysta
björgunarkeðjuna
— segir Hannes Hafstein, framkv.stj. SVFÍ
FÉLAGAR úr björgunardeildum
Slysavarnafclags íslands á Vestur-
landi og Vestfjörðum héldu til Skot-
lands í gjer í þjálfunar- og námsferð.
Er ferð þessi farin og skipulögð í
náinni samvinnu við björgunarfélög
og björgunarstöðvar f Skotlandi.
Fararstjóri þessarar ferðar verður
Hannes Hafstein, framkvsmda-
stjóri SVFÍ. 15. september næst-
komandi verður önnur ferð af sama
toga og fara þá félagar úr björgun-
arsveitum á Norður- og Austurlandi.
Fararstjóri þá verður Gunnar
Tómasson frá Grindavfk.
Hannes Hafstein, framkvæmda-
stjóri SVFÍ, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að björgunarsveit-
irnar sjálfar stæðu straum af
kostnaði vegna ferðanna, en auk
þess hefðu ýmsir aðilar sýnt þessu
bæði skilning og velvilja. Eimskip,
Hafskip og skipadeild Sambands-
ins hefðu sýnt þessum ferðum
mikinn áhuga og velvilja. Mark-
miðið með þessum ferðum væri
nám og þjálfun í björgun manna
af sjó og við sjó og væru því mikil-
vægur þáttur í starfsþjálfuninni. I
ferðunum myndu menn kynna sér
björgunarstöðvar og kynnast
starfsemi félaga sinna í Skotlandi.
Ferðirnar væru því mikilvægur
liður í því að treysta hlekkina í
Motzfeldt í op-
inbera heimsókn
Landsstjórnarformaður Græn-
lands Jonathan Motzfeldt og kona
hans koma til íslands 26. septem-
ber nk. og dveljast hér á landi til
29. september í boði Steingríms
Hermannssonar forsætisráðherra.
(Krétutilkynning frá fonuetinriAunejtinu.)
björgunarkeðjunni á Norður Atl-
antshafi. Þá væri mikill áhugi á
því að reisa hér á landi þjálfun-
armiðstöð og því væri sú þekking
og reynsla, sem menn öfluðu sér í
Skotlandi mikilvæg þegar þar að
kæmi.
„Vika íslenska
hestsins“ í Hollandi
Ilagana 10. til 16. september
veröur haldin í Hollandi hátíð sem
ber yfirskriftina „Vika íslenska
hestsins“. Er hér um aö ræða af-
mælishátíð félags eigenda ís-
lenskra hesta í Hollandi sem er 25
ára um þessar mundir. Dagskrá
verður fjölbreytt og má þar nefna
fyrirlestra um ýmis mál, kvik-
mynda- og myndbandasýningar
alla dagana. Kynbótahross verða
sýnd og dæmd og alþjóðlegt mót
verður haldið þrjá síðustu dagana.
Einnig verður keppt í því sem á
ensku kallast „Long distance
ride“ en erfiðlega hefur gengið að
fá íslenska þýðingu á þessari
nafngift svo vel fari, en ýmsir hafa
kallað þetta „þolreið".
Setningarathöfn verður á
mánudagskvöld þann tíunda en
á þriðjudag hefst ræktunarráð-
stefna FEIF (Samband eigenda
íslenska hesta í Evrópu) og mun
Friðþjófur Þorkelsson halda þar
erindi um ræktun á íslenskum
hestum. Á miðvikudag verða
kynbótahross dæmd og munu
þeir Friðþjófur og Walter
Feldmann frá Þýskalandi dæma
þar hvor í sínu lagi. Að því
loknu verða pallborðsumræður
um kynbótadóma og munu þeir
Friðþjófur og Feldmann sitja
þar fyrir svörum varðandi þau
atriði sem þá kann að greina á
um og fleira. í tengslum við há-
tiðina verður haldinn aðalfund-
ur FEIF nánar tiltekið 17. sept-
ember. Ljóst er að nokkrar
Haldin í tilefni af
25 ára afmæli
Félags eigenda
íslenska hestsins
þar i landi
mannabreytingar munu eiga sér
stað í stjórn samtakanna og
mun núverandi forseti, Ewald
Isenbugel, frá Sviss ekki gefa
kost á sér til endurkjörs. Hefur
Volker Ledermann frá Þýska-
landi ákveðið að gefa kost á sér í
forsetaembættið en hann er nú-
verandi ræktunarfulltrúi í
stjórn og verður því að kjósa
nýjan ræktunarfulltrúa ef hann
mun ná kjöri í stöðu forseta.
Einnig mun Gunnar Jónsson frá
Danmörku hafa ákveðið að gefa
ekki kost á sér til áframhald-
andi setu í stjórn en hann hefur
gengt stöðu ritara. Pétur Behr-
ens frá Islandi sem setið hefur í
stjórn sem blaðafulltrúi hefur
einnig ákveðið að hætta og eiga
íslendingar þá aðeins einn
mann eftir í stjórn sem er
Gunnar Bjarnason en hann er
reyndar heiðursforseti samtak-
anna.
Meðal keppenda á alþjóðlega
mótinu sem heldið verður í lok
hátiðahaldanna verða nokkrir
íslendingar og munu þeir ef að
líkum lætur keppa á hestum
sem verða fluttir héðan næstu
daga en einnig verða fengnir
hestar að láni úti. Þeir íslend-
ingar sem keppa eru Reynir Að-
alsteinsson, Sigurbjörn Bárð-
arson, Þórður Jónsson, Viðar
Halldórsson, Herbert Ólason og
einnig gæti svo farið að Sigurð-
ur Sæmundsson bættist í hóp-
inn. Ekker er endanlega ákveðið
á hvaða hestum hver keppir en
til greina kemur að Reynir verði
með stóðhestinn Nasa frá Geirs-
hlíð og Tenór frá Flugumýri og
Þórður fer að öllum líkindum
með skeiðhestinn Hjört utan og
keppir á honum í skeiði. Heyrst
hefur að Sigurbjörn Bárðarson
munu keppa á Seif frá Hömrum
í fimmgangi og fái lánaðan hest
úti í tölt og fjórgang. Svo gæti
þó farið að fá yrði lánaða hesta
erlendis fyrir alla knapana en
það ræðst af því hvenær hrossin
verða flutt út.
Afmælishátiðin verður haldin
í Uddel sem kann að hljóma
kunnuglega í eyrum Íslendinga
því þar var haldið Evrópumót
1979 og var það einmitt þá sem
hestar íslensku keppendanna
veiktust eins og mörgum er
sjálfsagt í fersku minni.
Einmana inn-
brotsþjófur?
EKKI sækjast allir innbrotsþjófar
eftir peningum eða skemmta sér
við að eyðileggja sem mest. Altént
ekki pilturinn, sem braust inn í
Bókabúð Breiðholts við Arnar-
bakka aðfaranótt laugardagsins.
Hann reyndist bara vera einmana.
Þegar komið var að honum inni
í búðinni hafði hann safnað í mal
sinn nærri þrjátíu tímaritum af
ýmsum uppruna — öll áttu þau þó
sammerkt að vera mestmegnis
myndir af fáklæddum og óklædd-
um konum.
wrnmmnmimz;
srrTL^uv’r