Morgunblaðið - 09.09.1984, Side 55

Morgunblaðið - 09.09.1984, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984 59 landi, sem hún kemur eitthvað seinna út — í október held ég.“ — Hver stjórnaði upptökum á plötunni? „Steve Lillywhite sá um þá hlið mála. Kannastu við hann? Hann hefur unnið með mörgum frægum yngri hljómsveitum á borð við U2, Simple Minds og Big Country." — Hvað kom til að Phil Collins varð ekki fyrir valinu á nýjan leik? „Meginástæðan var sú, að hann hafði ekki tima til þess að vinna að þessu með mér þegar til kom. Það var upphaflega hugmyndin að hann stjórnaði upptökunum en síðan dróst alltaf á langinn að við gætum hafist handa. Ég vildi endilega reyna að fá hann til þess að vinna með mér áfram en siðan kom að því að ég varð að gera upp minn hug hvort ég vildi koma plötunni út á þessu ári eða láta hana bíða enn lengur. Ég valdi fyrri kostinn og Steve Lillywhite tók að sér upptökustjórnina. Sennilega var það sterkur leikur þegar öllu er á botninn hvolft að fá hann til að taka dæmið að sér. Hann er mjög ungur og jafnframt reyndur — aðeins 28 ára gamall en með 12 ára reynslu — og ég held að hugmyndir hans megi í sumum tilfellum merkja nokkuð vel á plötunni." Ákveðnari hugmyndir — Eru áhrif Lillywhite jafn augljós á þessari plötu og áhrif Collins voru á „Something’s going on“? „Nei, ég held ekki. Samvinna okkar Steve var dálítið öðruvísi en hjá okkur Collins. Ég fellst alveg á það, að áhrifa hans gætti kannski full mikið á fyrstu plötunni, sér- staklega var trommu „sándið" mjög augljóslega hans eigið svo og sumt annað á plötunni. Núna hafði ég aftur á móti miklu ákveðnari hugmyndir um hvað ég ætlaði mér og vissi betur hverju ég sóttist eftir í hljóðverinu. Reynslan af síðustu plötu kenndi mér ýmislegt, þó er ég enn tiltölu- lega sátt við hana. Eg komst að því þegar ég vann með Steve að tónlistarsmekkur okkar er afar svipaður og hugmyndir mínar líktust hans að mörgu leyti. Þann- ig tel ég það hafa verið mikið happ að vinna með honum.“ — Áttu sjálf eitthvað af lögun- um á nýju plötunni? „Já, ég samdi eitt laganna sjálf. Ég hef ekki gert mikið af því að semja, en langar nú til þess að leggja mig meira niður við slíkt.“ — Hverjir eiga hin lögin? „Hinir og þessir. Björn og Benny sömdu eitt lag fyrir mig og Stuart Adamson i Big Country samdi líka eitt lag sérstaklega fyrir mig. Það heitir Heart Of The Country." — Hverju mega aðdáendur þín- ir búast við, verður þessi plata svipuð þeirri síðustu eða af öðrum toga? „Ég held að þessi verði mjög frábrugðin henni. Það er dálítið erfitt að útskýra á hvern hátt hún er öðruvísi en ég held að hún sé á allan hátt nær nútímanum en hin var. „Sándið“ er dálítið hrátt og þar á Lillywhite stærstan hlut að máli. Þá skiptir það einnig tala- verðu, að tónlistarsmekkur minn hefur bæði breyst og þróast frá því fyrir tveimur árum og ég von- ast til þess að fólk geti merkt það á þessari nýju plötu.“ — Hversu langan tíma tóku upptökurnar? „Við tókum plötuna upp í Stud- ios de la Grandé í Paris og þær tóku rétt um tvo mánuði með öllu og öllu.“ ABBA endurreist? Talið barst síðan að ABBA um stund og ég spurði Fridu að þvi hvort það væri rétt, sem sést hefði á prenti, að hljómsveitin hygðist koma saman að nýju til plötuupp- töku á næsta ári. „Ég veit ekki hvað er hæft í þessu, ég hef a.m.k. ekki heyrt þetta. Hinu er ekki að neita að ég myndi sjálf hafa gaman af þvi að taka upp enn eina plötuna með hinum í ABBA. Ég held nefnilega, að hvert okkar um sie hafi nú öðl- ast mikla reynslu sem gæti skilað sér vel á nýrri plötu. Tónlistar- góð — þ.e. ef af henni yrði — ein- mitt vegna þessa aðskilnaðar okkar. Við erum öll uppfull af nýj- um hugmyndum. Auðvitað yrði erfiðara fyrir þá Björn og Benny að ráða ferðinni eins og þeir gerðu hér áður fyrr, þar sem bæði ég og Agnetha höfum aflað okkur nýrr- ar reynslu. Þetta ætti að verða okkur öllum ákveðin áskorun." — Hittist þið stundum, fyrrum ABBA-fólkið? „Já, alltaf af og til, en það er ekkert skipulagt samband á milli okkar. Ég held að við höfum öll haft gott af því að komast burt hvert frá öðru eftir svo mörg ár, þar sem við vorum saman öllum stundum. Ferill ABBA einstakur — Gerirðu þér einhverjar vonir um að verða eins vinsæl sem ein- staklingur eins og ABBA var á sínum tíma sem hljómsveit? grannt með því. Það er í höndum fyrirtækisins, en jú það er rétt, við vorum sökuð um að hafa svikið undan skatti. Reynist það vera létt þá verðum við auðvitað að borga okkar skuldir en ég er ekki vel inni í þessu.“ — Fluttirðu til Englands vegna skattanna eða af öðrum ástæðum? „Nei, það kemur sköttunum ekk- ert við. Mér finnst ákaflega gott að búa í London því hér er alltaf svo mikið um að vera á tónlist- arsviðinu. Hins vegar neita ég því ekki að ég borga minni skatta hér en ég gerði á meðan ég bjó í Svi- þjóð.“ Talið barst skyndilega að ís- landi þegar Frida spurði mig út skattamálin hér. Er hún heyrði, að skattar hér væru ekki svo háir, a.m.k. ekki í samanburði við það sem gerist víða erlendis, kvað hún það kannski ekki svo vitlausa hugdettu að búa hér. Annars væri það kannski ekki svo viturlegt eft- ir á að hyggja. Ég spurði hana ABBA-flokkurinn á raestu velgengn- isárum sínum. í hljóðverinu meó Steve Lillywhite og aðstoðarmanni hana. smekkur minn er nú t.d. verulega frábrugðinn þvi sem hann var. Það gæti orðið skemmtileg plata og tilhugsunin er óneitanlega spennandi. En hvort af þessu verður er svo önnur saga. Agnetha er enn að vinna að annarri sóló- plötu sinni og Björn og Benny eru enn að vinna að söngleiknum „Chess“ með Tim Rice.“ — Heldurðu að platan yrði jafngóð og fyrri plötur ABBA ef til þess kæmi að hljómsveitin hljóðritaði saman á næsta ári, er ekki allur neisti á bak og burt? „Auðvitað yrði það öðruvísi en áður, ekki hvað síst 1 ljósi reynslu okkar hvers um sig undanfarin tvö ár. En ég held að platan gæti orðið „Nei, það geri ég ekki. Sólóferill minn stenst engan samanburð við velgengnisár ABBA — hér er tvennt ólíkt á ferðinni. Vinsældir ABBA voru slfkar og þvíumlíkar, að ég geri mér það fyllilega ljóst, að ég — og ekki bara ég heldur meginþorri þeirra popptónlist- armanna sem nú eru í eldlínunni — get ekki vænst neins 1 þeim dúr. Ég er mjög sátt við að komast út úr öllu þvf grfðarmikla umstangi, sem fylgdi ABBA. Þar var allt orðið svo geysilega stórt í sniðum, nú er þetta meira á þann veg að ég get stýrt mér sjálf.“ — Nú fóru á sínum tíma miklar sögur af skattsvikum ABBA, hvernig standa þau mál? „Ég hef nú ekki fylgst hvort hún hefði nokkru sinni kom- ið til íslands? Sá Grýlurnar „Nei, ég hef aldrei komið þang- að, en starfsmenn fyrirtækisins (Polar Records) hafa verið þar og láta mjög vel af. Hins vegar sá ég einhvern tfma fslenska kvenna- hljómsveit í sænska sjónvarpinu og líkaði vel. Hvað hún hét? Jú, Hekserne (Grýlurnar) var það ekki. Mér fannst það skemmtileg hljómsveit. Nú er hún hætt? Það var leiðinlegt. Söngkonan var sér- staklega góð fannst mér.“ — Hvernig er það, þú hefur ekki haldið tónleika nýverið er ekki svo? „Ég hef ekki haldið neina tón- leika í talsverðan tíma. Mér finnst ég einhvern veginn ekki reiðubúin til þess núna. Mig langar til þess að gera aðra plötu áður en ég legg land undir fót. Tónleikaferðalag er mikið fyrirtæki og maður verður að vera vel undir það búinn, and- lega sem likamlega. Ég hugsa að ég hljóðriti aðra plötu næsta vor og þá verður ekkert tónleikaferða- lag fyrr en eftir u.þ.b. eitt ár, þá ætti ég að vera tilbúin f slaginn.“ — Hvað tekur við hjá þér núna eftir að platan kemur út? „Ég*þarf að ferðast dálftið um í tengslum við kynningu á plötunni, fara í útvarps-, sjónvarps- og blaðaviðtöl, en sfðan langar mig til að taka mér tfma til þess að semja lög. Það er nokkuð, sem mig langar til að leggja áherslu á.“ — SSv. svo

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.