Morgunblaðið - 24.10.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
21
Fundur Norræna velferðarráðs sjómanna:
Sjómenn fái auk-
inn aðgang að
sjónvarpsefni
FUNDUR norræna velferðarráðsins
var haldinn í Reykjavík 5. og 6. sept-
ember og sóttu hann fulltrúar frá
Danmörku, Noregi, Svíþjóð og
Kinnlandi auk íslands.
Á fundinum var m.a. ákveðið að
skipuð verði nefnd sem vinni að
því að tryggja að allir norrænir
sjómenn fái aukinn og jafnan að-
gang að sjónvarpsefni frá ríkis-
reknum sjónvarpsstöðvum.
Reyndar er þessi þjónusta til stað-
ar á öllum Norðurlöndunum nema
á íslandi. Danir eru nú þegar til-
búnir að veita íslenskum sjómönn-
um þessa þjónustu, en ekki er
hægt að þiggja það að svo stöddu.
Til þess að svo yrði þyrfti að
breyta íslensku tollalögunum.
Á blaðamannafundi sem full-
trúar norræna velferðarráðsins
héldu í tilefni fundarins kom fram
að nokkuð er langt síðan að til-
mæli voru send íslenskum stjórn-
völdum um nauðsyn þess að þau
viðurkenndu sérstök tollalög um
velferðarþjónustu til sjómanna,
„Customs Convention Concerning
Welfare Material for Seafarers".
Voru íslensku fulltrúarnir
óánægðir með að ekkert hefur enn
gerst í þessu máli og er ísland þvi
eina landið þar sem sendingar vel-
ferðarþjónustu til erlendra sjó-
manna eru tollskyldar.
fslenskt velferðarráð sjómanna
var formlega stofnað í maí 1980 af
samgönguráðuneytinu. í því eiga
sæti 3 fulltrúar skipaðir að tillögu
Farmanna og fiskimannasam-
bands íslands, Sjómannasam-
bands íslands og Sjómannadags-
ráðs. 2 fulltrúar skipaðir að tillögu
Þjóðkirkjunnar og 3 fulltrúar
skipaðir að tillögu skipaeigenda.
Undanfarin sumur hefur verið
gerð tilraun til að hafa íslenskan
fulltrúa velferðarráðsins í Hull og
Grimsby. Þetta er í fyrsta skipti
sem íslendingar starfrækja nokk-
urs konar velferðarstöð í erlend-
um höfnum og var þessu mjög vel
tekið. Þess má geta að hin Norður-
löndin senda daglega út fréttir á
telex til skipa i erlendum höfnum.
Aðalstarf þessara velferðarstöðva
er að vera tengiliður milli sjó-
manna og heimalands þeirra og
stefna þau að því að sjómenn njóti
sömu réttinda og aðrir borgarar.
Norðurlöndin hafa haft mikla
samvinnu sín á milli í þessum
málum allt frá því að þau stofn-
uðu sín velferðarráð á árunum
1946—1950 og er starf þeirra
margþætt. Til dæmis má nefna
starfsemi norska velferðarráðsins,
en þar starfa um 260 menn á
Vextir lækkaðir
af afurðalánum
til útflutnings
Á FUNDI sínum 18. október síðast-
liðinn samþykkti ríkisstjórnin, að til-
iögu Seðlabankans, nýjan hátt á
ákvörðun vaxta á afurðalánum
vegna útflutningsframleiðslu sem
leitt hefur til þess að vextir eru nú
lægri af þessum lánum vegna út-
flutnings sjávarafurða en áður var
en síðar er gert ráð fyrir að lækkun-
in nái einnig til annarra útflutnings-
afurða.
í ' fréttatilkynningu frá við-
skiptaráðuneytinu um þessa
ákvörðun kemur fram að afurða-
lánin hafa nú verið gengisbundin
miðað við sérstök dráttarréttindi
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og með
10,5% vöxtum, en vextir verða
endurskoðaðir mánaðarlega. Áður
voru afurðalánin veitt í íslenskum
krónum með 24—26% nafnvöxt-
um.
a.m.k. 26 stöðum út um allan heim
við að dreifa blöðum, bókum, sjón-
varpsefni o.fl. til sjómanna. Einn-
ig sér velferðarráðið um að skipu-
leggja íþróttamót fyrir sjómenn,
en íþróttir eru stór þáttur í starfi
þessara velferðarráða. Norðmenn
veita til þessa rekstrar um 260
milljónum íslenskra króna á ári.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fulltrúar á fundi Norræna velferðarráðsins talið frá vinstri: Lorang Ridder Nilsen, fulltrúi frá Noregi, en hann er
einnig formaður Alþjóða velferðarráðs sjómanna og alþjóða íþróttaráðs sjómanna, Ragnar Wold, fulltrúi Noregs,
Matti Haarma, fulltrúi Finnlands, Helgi Hróbjartsson, formaður íslensk ráðsins, Óskar Ginarsson, fulltrúi skipa-
deUdar SÍS, Jan Ristarp, fulltrúi Svíþjóðar, Finn Fuldby Olsen, fulltrúi Danmerkur og Ingólfur Stefánsson, fulltrúi
Farmanna- og fiskimannasambands Islands.
Póstkort flá París
ú/yr
UtJfMí' C
‘éfib Wtm/ jbsivrW faMl 5 'kd'tAvrc&fesÓÁ
jbJL'PfitfÍMU! Cl-JcL-ia I! tíu/ruJbvrrvfe&masJwm)
/ftdda. fioí)-
fitddua. pw/• .
rULyy-Qtð &j AflOiðfiwru,
ay dnjíi AflkJ&uf ÚL iil okJeúfi. cAdcu &Csr**r7nar
ptzkafi J&ff' farár yjxfiA cry ikko pfiá JiUcU/tyuJ
'Jfadt ioJUJÍ /rnasaftót foftr fowruxffisðjMJ1.
’m/uv, éiúl, VU/haXvro* JdUr'fW, pt InunJ örua*&aA ttíú
fiuia(jtd*Aji.4o^vm/ ! c&ÁeUcí AkkC ÁyrvanU yý* itntxfi —
Jzcrii, /íkUjfié éfij/a tfUi /rmSfit Á
qldbUmtd. Ud /tfifnCiS'** ö<t
/X sfvÓlfiJLtsrAfi) /okkfidf CjotÆ A Á&íúrvu, fuftf póvCCo.
rf&rurÚUl,
1
ifi&/rruwndtX
jkJei/sr/
n/fixdbmucr
jJL JStU&rudi
auka-aukafeiðir með Henríéttu og
Rósamundu til
fröken Parísar.
9.-13. nóv. Verö kr. 14.250
14.-20. nóv. Verö kr. 15.135
Inmfalið Flug til Luxemborgar. rúta til Parísar þar sem konur hristast saman, og gistmg á þægilegu hóteh i latínu
hverfinu, með morgunverði, - og beint flug heim aftur (ásamt fararstjórum sem seint munu gleymast)
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SlMAR 21400 & 23727
auglýsingaþjönustan