Morgunblaðið - 24.10.1984, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.10.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984 31 Bretland: Deilt um nafnið á nýja prinsinum London, 23. október. AP. HARRY Grecnway, áhrifamikill þing- maður breska íhaMsflokksins, hefur lagt fram tillögu í Neðri mílstofunni þcss efnis, að hinn nýfæddi sonur Karls Bretaprins og Díönu prinsessu, sem gefið hefur verið nafnið Hinrik (Henry), verði skírður Harry. Bendir Greenway i að foreldrarnir hafi sjálf- ir lýst því yfir að þau etli að kalla haun Harry þótt hann verði ekki skírður þvl nafni. „Þvf þi ekki að skíra hann Harry?“ spyr Greenway. „Nafnið Harry hæfir vel á nfunda áratugnum. Það er einfalt og áhrifamikið," segir Greenway, sem sjálfur var skírður Harry fyrir fimmtíu árum. Ekki er búist við því að tillaga hans komi til umræðu i Neðri málstofunni, enda tillögu- formið þar mest notað til að koma skoðunum á framfæri. Hinrik prins er sex vikna gamall og heitir fullu nafni Hinrik Karl Albert Davfð. Hann er þriðji f röð- inni af erfingjum bresku krúnunn- ar. Á undan honum koma Karl faðir hans og Vilhjálmur bróðir hans, sem er tveggja ára gamall. Ekki hefur verið greint frá því hvenær Henrik prins verður skírð- ur, en talið er sennilegt að athöfnin verði 14. nóvember nk. þegar Karl prins verður 36 ára. Budapest: Norður-írland: Þrjár sprengjur sprungu BelfaHt. 23. október. AP. ÞRJÁR sprengjur sprungu í bænum Newry i Norður-lrlandi aðfaranótt mánudagsins. Tvö bifreiðaverkstæði og ein verslun skemmdust mikið í sprengingunum, en manntjón varð eigi. Lögreglan i Norður-írlandi tilkynnti að írski lýðveldisherinn bæri ibyrgð i sprengingunum. Vaxandi þrýstingur er f hópi þing- manna íhaldsflokksins um að taka upp viðræður um dauðarefsingu, sér- staklega eftir að fjórir fórust í sprengjutilræði IRA á Grand Hotel í Brighton í Englandi þann 12. þessa mánaðar. Mikið var deilt um dauða- refsingu á breska þinginu á síðasta vetri og voru skoðanir skiptar. Til- laga um að innleiða slfka refsingu á ný var hins vegar felld. Hælis leitað í sendiráði Hunborg, 22. október. AP. VESTUR-þýskt dagblað sagði fri því i sunnudag, að fjórir Austur-Þjóð- verjar hefðu leitað hælis f vestur- þýska sendiriðinu f Budapest en þegar leitað var ilits talsmanns utanríkisriðuneytisins i fréttinni vildi hann ekkert um hana segja. í grein f dagblaðinu „Bild“ sagði, að fjórir Austur-Þjóðverjar væru nú í vestur-þýska sendiráð- inu f Budapest f Ungverjalandi og krefðust þess að fá að fara til Vestur-Þýskalands. 140 Austur- Þjóðverjar eru enn í vestur-þýska sendiráðinu í Prag í Tékkó- slóvakiu og hefur hvorki gengið né rekið í viðræðum um framtíð þeirra. Þegar fréttamaður AP hafði samband við sendiráðsstarfsmann í vestur-þýska sendiráðinu í Buda- pest vísaði hann bara til utanrfk- isráðuneytisins en talsmaður þess kvaðst ekkert vilja um málið segja. Carrington tjáir sig um notkun kjarnorkuvopna New York, 23. október. AP. Carrington lávarður, fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbandalags- ins sagði í ræðu í dag, að bandalagið ætti ekki að skuldbinda sig til þess að nota aldrei kjarnorkuvopn að fyrra bragði. Það yki aðeins hættuna á því að til „hefðbundins stríðs" kæmi: Framkvæmdastjórinn flutti ávarp sitt á 65 ára afmælisþingi utanríkissamtakanna. Hann sagði m.a.: „Frá siðferðilegu sjónar- horni hljómar það í upphafi aðlað- andi að samþykkja að nota aldrei kjarnorkuvopn að fyrra bragði. En að fleiru þarf að hyggja. Við meg- um ekki gleyma því, að það var „hefðbundinn hernaður" sem svipti 51 milljónir manna týnt líf- inu í síðari heimsstyrjöldinni og síðan hafa 11 milljón manns týnt lífi í sams konar hernaði utan NATO-svæðisins. Ef Atlantshafs- bandalagið lýsti yfir að það yrði aldrei fyrri aðilinn til að beita kjarnorkuvopnum myndi það vera umhugsunarefni fyrir hvern þann aðila sem kynni að vera að velta fyrir sér að láta til skarar skríða. Þannig myndu stríðslíkur aukast ef einhver andstæðingur NATO væri öruggur um að hann yrði ekki beittur kjarnorkuvopnum. Nei, af tvennu illu, er öryggið meira í því að selja sig ekki.“ Sandinistar einir í kosningabaráttu? Miupu, Nkorogu*. 23. október. AP. DANIEL Ortega, æðsti maður herstjórnar sandinista í Nicaragua, sagði í dag, að forseta- og þingkosningum yrði ekki frestaö í landinu, þær færu fram 4. nóvember næstkomandi eins og ákveðið hefði verið, þó sandinistar væru eini flokkurinn í framboði, það myndi ekki breyta kosningadeginum. Yfirlýsingar Ortega komu í tæki ekki þátt í kosningunum. Áð- kjölfarið á tilkynningu frá Frjáls- ur hafði stærsti stjórnarandstöðu- lynda flokknum þess eðlis að hann flokkurinn, Lýðræðisbandalagið, E1 Salvador: Dauðasveitir á stjá Su Salvador, 23. október. AP. DAUÐASVEITIR hægri manna í El Salvador hafa heldur en ekki náð sér niðri i bændaleiðtoga að nafni Alirio Montes. 14 ira sonur hans fannst myrtur í skurði skammt fyrir utan heimaþorp þeirra feðga í út- jaðri San Salvador í gær, einum sól- arhring eftir að honum var rænt á heimili þeirra. Um háls piltsins var hengd aðvörun til föðurins um að Yilmaz Guney Kvikmyndaleik- stjóri látinn Parín. AP. TYRKNESKI leikstjórinn Yilmaz Gun- ey lést fyrir nokkru á sjúkrahúsi hér í borg eftir langvarandi veikindi. Hann var 47 ára að aldri. Guney var þekktastur fyrir kvikmynd sína „Yol“, er hlaut „Gullna pálmann" á kvikmyndahá- tíðinni f Cannes árið 1982. Yilmaz Guney var eindreginn and- stæðingur herstjórnarinnar f Tyrk- landi og varð af þeirri ástæðu að sæta margra ára fangelsisvist ( tyrkneskum fangelsum. Hann var sviptur ríkisborgararétti eftir að hann-flúði land á siðasta.ári. láta af „vinstri sinnuðum iróðri", ellegar yrðu örlög hans hin sömu og sonarins. Það var bandaríska sendiráðið i E1 Salvador sem greindi frá at- burði þessum og sendi frá sér óvenjulega harðorða fordæmingu á starfsemi dauðasveitanna. Stóð m.a.: „Enn einu sinni hefur morð- ingjalýður sem titlar sig föður- landsvini farið á stúfana og þjón- að sjúklegri lund sinni.“ Starfsemi dauðasveitanna hefur dregist til muna saman eftir að Napoleon Duarte tók við forsetaembætti í júní síðastliðnum. Róstusamt í Líbanon Beirát, 23. október. AP. HELDUR HEFUR sorfið til stáls í Líb- anon í seinni tíð og síðustu daga hafa stjórnarhermenn og drúsar skotið úr fallbyssum hvorir á aðra í fjöllunum í kring um BeirúL Vopnahlé hafa verið samin jafn óðum og skænir hafa hafist, en aldrei staðið lengi. Enn er deilt um skiptingu valds og embætta milli krist- inna manna og múhameðstrúarmanna til þess að draga úr spennu á milli umræddra trúarhópa. Síðasta hrina hófst er Karami for- sætisráðherra lýsti yfir að hann myndi leggja fyrir þingið i næsta mánuði nýja tillögu þar sem gert væri ráð fyrir að líbanski stjórnar- herinn kæmi sér fyrir f Chouf- og Aley-fjöllum í nágrenni Beirút. Þetta eru stöðvar drúsa og þeim leist ekki betur á yfirlýsingu forsætisráð- herrans en svo, að þeir hófu fall- byssuskothríð á stöðvar stjórnar- hersins. Sýrlendingar hafa lagt blespun sína yfir tillögurnar. tilkynnt að hann myndi ekki taka þátt í kosningunum. Aðeins fimm smáflokkar standa nú eftir auk sandinista. Ortega sagði í ræðu- stúf sínum: „Kosningarnar munu fara fram hvort sem flokkarnir verða einn eða sjö.“ Horfur eru á að sandinistar standi einir uppi, því þrýstingur er á smáflokkana að fara að fordæmi stærri stjórn- arandstöðuflokkanna. La Prenza, málgagn stjórnar- andstöðunnar í landinu, kom ekki út I dag þar sem ritskoðun stjórn- valda bannaði meira en 50 prósent af efni blaðsins. Þar á meðal for- síðufrétt með fréttaskýringu um ákvörðun frjálslyndra að taka ekki þátt I kosningunum. Þetta var í 25. skipti sem La Prenza missir úr dag vegna ritskoðunar. Veður víða um heim Ammterdam 13 rigníng Aþona 25 heiðskírt Berlin 15 akýjaö Brusset 13 rigning Chicago 14 skýjaö Dubltn 13 skýjað Frankturt 12 rigning Gent 15 heiöskírt Heistnki 8 skýjað Hong Kong 28 heiðakfrt Jenísalem 22 heiðskírt Keupmannahöfn 10 rigning Líssabon 23 heiðakírt London 15 skýjsö Miami 30 skýjað Montreal 12 ský|a« Moskva 11 skýjað New Vork 23 skýjað Osló 7 skýjað París 15 skýjað Peking 24 heiðskirt Rio de Janeiro 32 hetðskirt Rómaborg 23 heiðskirt Stokkbólmur 8 rigning Sydney 21 heiðskfrt Tókyó 21 heiðskirt Vtnarborg 18 skýjað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.