Morgunblaðið - 24.10.1984, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
Sannkallað
þjóðþrifayerk
— segir Kjartan Gunnarsson um starfsemi frjálsu útvarpsstöðvanna
Bfllinn sem Frjálst útvarp notaði og sent var úr fyrstu dagana, en útsend-
ingar hófust að kvöldi þriðjudagsins 2. október, rúmum sólarhring eftir að
Ríkisútvarpinu var lokað. Myndin er tekin framan við Háaleitisbraut 1 eða
Valhöll þar sem Sjálfstæðisflokkurinn og fleiri sem komu við sögu útvarps-
málsins hafa aðsetur. (Ljóam. Eiríkur IngAlfsaon)
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
var í hópi þeirra sem stóðu að út-
varpsstöðinni Frjálst útvarp er hóf
fyrst sendingar í Reykjavík og ná-
grenni að kvöldi 2. október. Morg-
unblaðið sneri sér til Kjartans og
spurði hann um stöðina, rekstur
hennar og útvarpsmálið almennt.
»
„Þegar starfsmenn Rikisút-
varpsins framkvæmdu þá ólöglegu
skyndilokun sina, sem varð til
þess, að engir fjölmiðlar störfuðu i
landinu, varð mér ljóst eins og
mörgum öðrum, að grípa þurfti til
einhverra ráða, svo að upplýs-
ingamiðlun væri tryggð, ekki sist
þar sem hörð átök voru i þjóðfé-
laginu og miklar kjaradeilur,"
sagði Kjartan Gunnarsson. „Ég
hef alltaf talið það sjálfsagt að
skýra ritfrelsisákvæði stjórn-
arskrárinnar i ljósi tíðaranda og
tækniþróunar, þannig að frelsið til
að reka útvarpsstöðvar nyti
verndar stjórnarskrárinnar. Þeg-
ar þar við bættist þetta sérstaka
ófremdarástand, var engin spurn-
ing í mínum huga um, að réttmætt
væri og lögmætt að hefja rekstur
útvarpsstöðvar og að það væri
raunar borgaraleg skylda mín.“
Kjartan sagði síðan: „Ég kynnti
þessi sjónarmið fyrir nokkrum
hópi ungs fólks, einkum fólki, sem
ég þekkti og treysti úr starfi i
samtökum ungra sjálfstæðis-
manna. Við ákváðum að stofna fé-
lag um frjálst útvarp, og var mér
sýnt það traust að verða talsmað-
ur þess. Okkur var Ijóst, að engan
tíma mátti missa, svo að við gerð-
um þegar ráðstafanir til að afla
okkur sendis og annars búnaðar
og hófum síðan útsendingar úr
bifreið í Seláshverfinu í Reykjavík
um tíuleytið um kvöldið 2. október
síðastliðinn. Við lögðum höfuð-
áherslu á að senda út tón-
listarþætti og fréttir. Mikill hópur
af fólki lagði á sig sjálfboðavinnu,
og við fundum líka afdráttarlaus-
an stuðning almennings á höfuð-
borgarsvæðinu og þótt víðar væri
leitað.”
Kjartan Gunnarsson sagði:
„Daginn eftir hóf síðan Fréttaút-
varpið sendingar, en það var rekið
af starfsmönnum DV. Þessar út-
varpsstöðvar störfuðu nánast
samfleytt, þangað til þeim var lok-
að með lögregluvaldi um sexleytið
að kvöldi miðvikudagsins 10.
október.”
„Það er athyglisvert," sagði
Kjartan, „að meirihluti útvarps-
ráðs og útvarpsstjóri, svo að ekki
sé talað um starfsmenn útvarps-
ins og verkfallsverði BSRB, viður-
ingar 3. október.
„Fyrst má nefna, að við töldum
slíka útsendingu byggjast á neyð-
arrétti, vera nauðvörn almenn-
ings. Önnur ástæðan var sú að
tjáningarfrelsi er varið í stjórnar-
skránni og því er varla hægt að
tala um ólöglegar aðgerðir í þessu
sambandi. Siðast en ekki síst töld-
um við> aö Rítósútvarpiif hefði.
kenndu allir réttmæti sumra
þeirra sjónarmiða, sem lágu til
grundvallar útvarpsrekstri okkar,
þegar þeir samþykktu, að af ör-
yggisástæðum væri nauðsynlegt
að hefja aftur fréttasendingar
hljóðvarps ríkisins. Ég legg þó
áherslu á, að aðalatriðið i minum
huga er frelsið til að reka út-
varpsstöðvar, sem er alveg hlið-
stætt við frelsið til að gefa út dag-
blöð og halda fundi. Hverjum
dettur í hug að fela einhverjum
ríkisskipuðum ráðum að stjórna
slíkum málum? Þá væri auðvitað
ekki annað blað hér en Lögbirt-
ingablaðið."
Kjartan var þá spurður, hvernig
hefði staðið á ferðum Radíóeftir-
lits rikisins í hús Sjálfstæðis-
flokksins, Valhöll við Háaleitis-
braut, miðvikudaginn 3. október.
„Þennan dag birtust í Valhöll
tveir starfsmenn Radíóeftirlits
fyrirgert rétti sínum til einokunar
þegar starfsmenn þess lögðu niður
vinnu áður en til boðaðs verkfalls
kom. Það var ljóst að þjóðin var
sambandslaus við umheiminn, því
dagblöðin höfðu áður stöðvast
vegna verkfalls prentara. Það var
réttlætismál að fylla þetta tóma-
rúm og því lagði útgáfufyrirtæki
Pósts og síma ásamt tveimur lög-
reglumönnum," svaraði Kjartan.
„Þeir kváðust vera að leita að út-
varpsstöð hjá auglýsingastofu
Ólafs Stephensens, en í Frjálsu út-
varpi hafði verið tilkynnt, að aug-
lýsingastofan tæki á móti auglýs-
ingum til birtingar í Frjálsu út-
varpi. Mér var gert aðvart um
ferðir þessara manna i húsið, og
hitti ég þá í anddyri hússins og
greindi þeim frá því, að þeir færu
hvorki um húsakynni Ólafs Steph-
ensens né annarra í húsinu nema
því aðeins, að viðkomandi húsráð-
endur heimiluðu eða þeir hefðu til
þess fullnægjandi dómsúrskurði.
Þar sem þeir óskuðu sérstaklega
eftir að framkvæma leit hjá Ólafi
Stephensen, fylgdi ég þeim að
skrifstofu hans og bað starfsmenn
hans að sækja Ólaf. Hann kom að
vörmu spori og leyfði leitina, sem
engan árangur bar.
DV til aðstöðu og tækjabúnað, svo
starfsmenn þess gætu unnið að út-
sendingum. Strax i upphafi urðum
við varir við mjög jákvæð við-
brögð almennings, en segja má að
70—80% þjóðarinnar hafi getað
hlustað á Fréttaútvarpið."
Ellert kvað viðbrögð fólks við
Fréttaútvarpinu hafa sannað að
langlundargeð þess væri á þrotum.
„Það er fáránlegt að ein stofnun
skuli hafa einokun á öllum út-
varps- og sjónvarpsútsendingum“,
sagði hann. „Aðstæður nú voru
einnig sérstakar, því starfsmenn
□tvarpsins eru aðilar að þeim
Radíóeftirlitsmennirnir vildu
þá fara hvarvetna um húsið, með-
al annars um húsakynni Heyrnar-
og talmeinastöðvar íslands og á
fleiri staði. Eftir samráð við lög-
fræðing tjáði ég þeim og lögregl-
unni, að ég myndi ekki heimila
fyrir hönd húseigenda neina rann-
sókn eða umferð um húsakynni
Sjálfstæðisflokksins eða leigjenda
í húsinu nema með samþykki við-
komandi og hvað Sjálfstæðis-
flokkinn varðaði aðeins eftir að
hafa ráðfært mig við yfirboðara
mína, annaðhvort formann eða
miðstjórn flokksins, en fundur
hafði einmitt verið boðaður í
henni tveimur dögum síðar.“
Síðan sagði Kjartan Gunnars-
son: „Þessi afstaða mín var lög-
reglunni ljós. Þá ber einnig að
geta þess, að einn lögreglumann-
anna ræddi í síma við starfandi
póst- og símamálaráðherra, Al-
bert Guðmundsson, og tjáði ráð-
herrann honum, að engin beiðni
um rannsókn á útvarpssendingum
úr Valhöll hefði komið frá yfir-
stjórn Pósts og síma. Vegna þess-
ara atburða skrifaöi ég strax póst-
og símamálastjóra bréf og óskaði
kjaradeilum sem þeir fjalla um í
fréttum og því eru þeir mjög
hlutdrægir. Það kom því aldrei til
greina að hætta útsendingum
Fréttaútvarpsins þótt farið yrði
að útvarpa aftur fréttum tvisvar á
dag hjá RÍIV, því þær fréttir eru
mjög einhæfar og draga mjög
taum BSRB.“
Útsendingar Fréttaútvarpsins
voru stöðvaðar miðvikudaginn 10.
október þegar Þórir Oddsson,
vararannsóknarlögreglustjóri
ríkisins, gerði útsendingartæki
upptæk. Ellert B. Schram sagði að
nú væri verið að undirbúa stofnun
almenningshlutafélags um Frétta-
útvarp DV-manna. „Það hafa þeg-
ar borist um 10 þúsund undir-
skriftir, þar sem lýst er yfir stuðn-
ingi við Fréttaútvarpið, islenskt
þjóðarútvarp. Við DV-menn mun-
um verða í fyrirsvari fyrir þeim
útvarpsrekstri, en útvarpið verður
eign almennings. Framþróunin
verður ekki stöðvuð héðan af,“
sagði Ellert að lokum.
eftir þvi, að athugun færi fram á
því með tækjabúnaði Pósts og
síma, hvort einhverjar útvarps-
sendingar bærust frá Valhöll. t
svari frá póst- og simamálastjóra
kom fram, að svo væri ekki. Þá hef
ég jafnframt óskað eftir fræði-
legri álitsgerð frá póst- og síma-
málastjóra á því, hvernig staðið er
að slikum athugunum og miðun-
um, vegna þess að skýrsla radió-
eftirlitsmanna um för þeirra i
Valhöll, sem meðal annars var
gefin út í sérútgáfu BSRB-tíðinda,
er vægast sagt ónákvæm og hroð-
virknisleg."
Kjartan var þá spurður, hvaðan
Frjálst útvarp hefði sent út. „Ég
fór ótilkvaddur á fund rannsókn-
arlögreglunnar til að gefa þeim
allar þær upplýsingar, sem ég
gæti, um rekstur þeirra útvarps-
stöðva, sem störfuðu í landinu eft-
ir hina ólöglegu skyndilokun
Ríkisútvarpsins, enda tel ég, að
við, sem vorum þarna að gera
borgaralega skyldu okkar, höfum
ekkert gert ólögmætt og höfum
ekkert að fela. Ég benti rannsókn-
arlögreglunni á, að útvarpsstöðvar
hefðu verið starfræktar á ísafirði,
Seyðisfirði, Siglufirði, Akureyri og
í Vestmannaeyjum, svo að ég vissi,
en einnig væri kapalkerfi víða í
fjölbýlishúsum og sums staðar f
dreifbýlinu. Þá hefði svokallað
kántrí-útvarp starfað á Skaga-
strönd, og þannig mætti lengi
telja. Aðallega fjallaði ég þó um
þær tvær útvarpsstöðvar, sem
störfuðu í Reykjavík, Fréttaút-
varpið, sem ég vissi til, að starf-
rækt væri f húsakynnum DV í
Síðumúla, og Frjálst útvarp,"
svaraði Kjartan.
„Ég vissi ekki nákvæmlega allan
tímann, hvaðan við sendum út,
enda er ég ekki mjög fróður um
tæknileg efni. En fyrstu dagana
var sent út úr bíl, sem fór vfða um
borgina, var meðal annars uppi f
Seláshverfi eins og ég sagði áðan
og um tíma á bilastæðinu hjá Val-
höll og annars staðar í borginni.
Þá var sent út úr fjölbýlishúsum
hér í borginni, sem ég greindi
rannsóknarlögreglunni frá,“ sagði
Kjartan ennfremur.
Kjartan Gunnarsson sagði að
lokum: „Ég greindi rannsóknar-
lögreglunni frá þeirri skoðun
minni, sem þegar hefur komið
fram, að þessi rekstur nyti vernd-
ar stjórnarskrárinnar. Ég benti á,
að i skýrslu stjórnarskrárnefndar
frá 1983 er einmitt tillaga um, að
ritfrelsi verði þar breytt í almennt
tjáningarfrelsi, en ætla má, að sú
tillaga endurspegli nútfmaviðhorf.
Þá hefur frumvarp legið um hríð
fyrir Alþingi, sem afnemur einka-
rétt Ríkisútvarpsins, og hefur yf-
irgnæfandi meirihluta þing-
manna, að því er best ég veit, lýst
yfir fylgi við þá meginhugmynd.
Siðast, en ekki síst, er Ijóst, að
almenningur er allur á bandi
þeirra, sem vilja frjálsan út-
varpsrekstur, og því verður ekki
trúað að óreyndu, að þingmenn
virði ekki þennan þjóðarvilja. En
ég vil að lokum þakka kærlega öll-
um þeim, sem lögðu hönd á plóg-
inn við rekstur þessarar fyrstu
frjálsu útvarpsstöðvar á íslandi,
og öllum hlustendum hennar.
Þetta var skemmtilegt starf og
sannkallað þjóðþrifaverk.*
„Útsendingarnar helg-
uöust af neyðarrétti“
— segir Ellert B. Schram, ritstjóri DV
„ÁSTÆÐUR þess að við DV-menn ákváðum að hefja ólöglegar útvarpssend-
ingar, eins og sumir vilja kalla það, eru þrjár“, sagði Ellert B. Schram,
ritstjóri DV, er hann var inntur eftir tilurð Fréttaútvarpsins, er hóf útsend-
Arnar Hákonarson (Lv.) tæknimaður og Ólafur Als þulur við útsendingu hjá Frjálsu útvarpi. (Ljósm. BjArgvin Pálsson)