Morgunblaðið - 24.10.1984, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
41
Fulbright-stofnunin:
14 íslenskir há-
skólanemar fá styrk
FJÓRTÁN íslenskir háskólanemar
hafa hlotið námsstyrki hjá Mennta-
stofnun Bandaríkjanna, Fulbright-
-stofnuninni, að upphæð rúmlega
100 þúsund dollarar til að leggja
stund á MA eða PhD-nám í Banda-
ríkjunum, að því er segir í frétt frá
stofnuninni.
Fulbright-stofnunin veitir
hverjum nemanda ákveðna styrk-
upphæð, en síðan eru þeir aðstoð-
aðir við að fá inngöngu og fjár-
hagsaðstoð við bandaríska há-
skóla. í ár nemur framlag banda-
rískra háskóla til íslenskra
Fulbright-styrkþega u.þ.b. 65 þús.
dollurum. Islenskir styrkþegar
skólaárið 19841985 eru Árni Geirs-
son (vélaverkfræði, Stanford),
Ásta Melitta Urbancic (landa-
fræði, University of Maryland),
Baldur Gunnarsson (amerískar
bókmenntir, State University of
New York), Guðmundur H. Guð-
mundsson (erfðafræði, Houston
University), Hjálmtýr Haf-
steinsson (tölvufræði, Cornell
University), Ingi Þ. Bjarnason
(jarðeðlisfræði, University of Ut-
ah), Magnús I. Óskarsson (tölvu-
fræði, Illinois Institute of Techn-
ology), Páll R. Guðmundsson
(byggingarverkfræði, University
of Washington), Rúnar H. Vignis-
son (enska, University of Iowa),
Sigurborg Sigurbjarnadóttir
(kennslufræði, University of
Massachusetts), Soffía Arnþórs-
dóttir (grasafræði, University of
Kansas), Stefán Hrafnkelsson
(tölvufræði, University of Wash-
ington), Tryggvi Gunnarsson (am-
erískar bókmenntir, University of
Massachusetts) og ögmundur
Snorrason (rafmagnsverkfræði,
University of Ohio).
Auk ofangreindra fengu tveir
íslenskir nemar ferðastyrki í ár,
þau Guðrún Þórhallsdóttir, sem
hyggst nema málvísindi við Corn-
ell University, og Lárus Thorlaci-
us, sem nemur eðlisfræði við
Princeton. Styrki til að stunda
rannsóknir í Bandaríkjunum
fengu að þessu sinni þeir ólafur
Guðmundsson til rannsókna á
beitilöndum og Örn Helgason, sem
hyggst vinna að rannsóknum á
vindorku. Þrír kennarar voru
styrktir á sumarnámskeið í
Bandaríkjunum, Kristín Guð-
mundsdóttir, Bryndís Steinþórs-
dóttir og Gerður Guðmundsdóttir.
Þá var ferð Ágústs Þorsteinsson-
ar, skátaforingja, sem hann fór til
að kynna sér störf skáta í Banda-
ríkjunum, styrkt að hluta.
Fulbright-stofnuninni er stjórn-
'að af íslendingum og Bandaríkja-
mönnum og er fjármögnuð af báð-
um ríkjum. I ár gegnir Mary Butl-
er Guðjónsson, lektor í ensku við
HÍ, embætti stjórnarformanns, en
í fyrra gegndi Guðmundur Magn-
ússon, háskólarektor, því embætti.
Athugasemd
ÞAR SEM þaó kom fram í fjölmiðl-
um, aó ég hefði fengið úthlutun úr
Tónlistarsjóði Ármanns Reynissonar
til tónsmíða, vil ég taka fram, að af
persónulegum ástæðum treysti ég
mér ekki til þess að verða við þeirri
úthlutun, og vil ég því skila sjóðnum
henni.
Áskell Másson.
Birgir Þorgils-
son ferðamálastjóri
BIRGIR Þorgilsson tók við starfi
ferðamálastjóra 1. október en hann var
markaðsstjóri hjá Ferðamálaráði.
Matthías Bjarnason, samgöngu-
ráðherra, réð Birgi í starf ferða-
málastjóra til fjögurra ára.
Birgir tók við af Ludvig Hjálm-
týssyni, sem lét af starfi ferðamála-
stjóra, þar sem hann nær ald-
urshámarki ríkisstarfsmanna á ár-
inu.
Aðrir umsækjendur um starf
ferðamálastjóra voru Einar Guð-
johnsen, skrifstofustjóri og Sigurður
Sigurðarson, útgefandi, en sá þriðji
óskaði nafnleyndar.
DIPLOM
Þ/VK
DIPLOM — Einfalt, fallegt, ódýrt.
DIPLOM-þakefniö er frá Gavle Verken í Svíþjóö.
DIPLOM-þakefniö jafnast á viö tígulsteinsþak í út-
liti, en hefur ótrúlega marga kosti umfram þau.
DIPLOM er létt og allir fylgihlutir eru fáanlegir og
því er DIPLOM auövelt og einfalt í uppsetningu.
DIPLOM-þak hefur mikið veörunarþol og endist
því vel, jafnvel í okkar norölæga veðurfari.
Síöast en ekki síst er veröið á DIPLOM mjög hag-
stætt.
Skemmuvegi 2, Kópavogi.
Sími 41000.
Dalshraun 15, Hafnarfiröi.
símar 54411 — 52870
BYKO
1007. NlilRI LYSIHG
OSRAM HALOGEN perur lýsa 100/meira en
venjulegar perur og endast tvöfalt lengur.
OSRAM fæst hjá
HINN VELUPPLÝSTI MAÐUR
ERMEÐ PERUNAÍLAGI
OSRAM