Morgunblaðið - 24.10.1984, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1984
55
fclk í
fréttum
+ Olivia Newton-John á „lítið“ hús í spsnskum stíl. Söluverðið er bara 50 millj. kr.
+ Robert Wagner er rétt meðalmaður í hópi stjarn-
anna og lætur sér nægja 70 millj. kr. fyrir þetta hús.
+ Húseignin hennar Cher í Beverly Hills. Hún vill fá
fyrir hana um 180 millj. kr.
+ Mike Landon er ekki jafn nægjusamur í einkalíf-
inu og hann er í „Húsinu á sléttunni“. Húsið hans er
metið á 300 milljónir ísl. kr. og allt innréttað í Bon-
anza-stíl.
+ Jerry Lewis á þetta hús í Bel Air og setur upp fyrir
það 127 millj. kr.
Stjörnurnar vilja
selja húsin sín
+ Kvikmyndastjörnurnar og auð-
kýfingarnir á Kyrrahafsströnd-
inni í Kaliforníu eiga nú við dálít-
ið vandamál að stríða. Glæsilegu
húsin þeirra eru nefnilega ekki
jafn eftirsótt og áður var, þeir sem
vilja selja eru miklu fleiri en þeir,
sem vilja kaupa. Ronald Reagan,
forseti, fékk að reyna þetta þegar
hann var fyrst kosinn í opinbert
embætti. Hann setti villuna sína í
sölu en varð að lokum að sætta sig
við að slá 30% af upphaflegu
verði. Hann kann þó að hafa
sloppið vel miðað við allan leik-
araskarann, sem nú vill ólmur
losa sig við stórhýsin, en af þeim
má t.d. nefna:
Cher, söngkonuna, sem varð
fræg á sjöunda áratugnum ásamt
COSPER
Pabbi var bara að reyna nýju hjólaskautana
mfna.
félaga sínum Sonny og gat sér i
fyrra gott orð fyrir leik í mynd-
inni „Silkwood". Hún á glæsilegt
hús með sex svefnherbergjum, sjö
baðherbergjum, sundlaug og alls
kyns þægindum öðrum, sem of
langt mál væri upp að telja, og
fyrir það vill hún fá 5,9 milljónir
dollara, um 190 milljónir ísl. kr.
Jerry Lewis er með sjö svefn-
herbergi í sínu húsi, níu baðher-
bergi, kvikmyndasal, sundlaug og
sérstakt hús fyrir gesti og gang-
andi. Verðið, sem hann setur upp
fyrir það, er 4,2 milljónir dollara,
um 127 millj. ísl.
Olivia Newton-John á hús í
spænskum stíl og fremur lítið
miðað við það, sem þarna gerist,
því að í því eru aðeins fjögur
svefnherbergi. Það á þó að kosta
1,6 millj. dollara eða um 50 millj.
ísl.
Robert Wagner, sem missti konu
sína, leikkonuna Natalie Wood, af
slysförum fyrir tveimur árum, er
einn þeirra, sem vilja minnka við
sig, og vill fá um 70 millj. króna
fyrir húsið sitt.
Mike Landon, sem varð fyrst
frægur fyrir leik í Bonanza-
myndunum og síðar sem húsbónd-
inn í „Húsinu á sléttunni", býr í
einu glæsilegasta húsi í Beverly
Hills. Það er með sjö svefnher-
bergjum, 13 baðherbergjum, sund-
laug, tennisvelli og sérstakt hús
fyrir gesti. Innréttingar eru allar í
Bonanza-stíl og lóðin, sem fylgir
tæpir þrír hektarar. Fyrir her-
legheitin vill Landon fá um 300
milljónir ísl. kr.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Fréttapunktar frá
Bridgesambandi
íslands
ólafur Lárusson hefur tekið
við störfum af Jóni Baldurssyni,
sem framkvæmdastjóri Bridge-
sambands íslands 1984—1985.
Starfsemi skrifstofunnar á
Laugavegi verður efld til muna
og verður tekinn upp sá háttur
frá og með október-mánuði að
fastur símatími á Laugavegi
verður milli kl. 10—12 f.h. alla
virka daga. (Það þýðir einfald-
lega að Ólafur mun örugglega
vera við á þeim tíma.) Öll þjón-
usta við bridgefélögin í landinu
verður áfram með svipuðu sniði
og verið hefur.
- O -
23.-24. febr. ’85. íslandsmót
kvenna í sveitakeppni og ís-
landsmót yngri spilara í sveita-
keppni. Undanrásir.
2.-3. mars. Úrslit í íslandsmót-
um kvenna/yngri spilara.
15,—16.—17. mars. Undanúrslit
íslandsmóts í sveitakeppni. Loft-
leiðir.
5.—6.—7.—8. apríl. Úrslit
sveitakeppni. Loftleiðir.
20.—21. apríl. Undanúrslit ís-
landsmóts í tvímenningi.
4.-5. maí. Úrslit tvímennings.
Loftleiðir.
- O -
Bridgesambandsþing verður
haldið eftir Ólympíumótið í
Seattle, USA, sem þýðir um
miðjan nóvember í fyrsta lagi.
Bridgekeppni
stofnana
Bridgesamband íslands og
Bridgefélag Reykjavíkur gang-
ast í sameiningu fyrir Stofnana-
keppni í bridge-sveitakeppni
(fyrirtækja-firmakeppni).
Þessi keppni verður haldin
dagana 1. nóvember (fimmtu-
dag), 7. nóvember (miðvikudag)
og 20. nóvember (þriðjudag).
Hver stofnun má senda allt að
fjórar sveitir. Einnig er heimilt
að fyrirtæki sameinist um þátt-
töku (hámark tvö fyrirtæki séu
saman). Skilyrði fyrir þátttöku í
viðkomandi stofnun/fyrirtæki,
er að aðilar séu (hafi verið) á
launaskrá viðkomandi stofnun-
ar/fyrirtækis á árinu (1984).
Hver sveit má vera skipuð allt að
sex spilurum, en þó þannig að
aðeins spili fjórir i einu.
Spilað verður eftir Swiss
(Monrad) fyrirkomulagi og
verða 8—10 spil í leik. Notast
verður við „nýju“ útreiknings-
stigatöfluna (15—15, 16—14,
17-18 etc.)
Þátttökugjald pr. sveit er kr.
4.000, sem greiðist við upphaf
spilamennsku. Spilað verður um
meistarastig í þessari keppni.
Umsjónarmaður keppninnar er
Ólafur Lárusson og eru forráða-
menn sveita beðnir að tilkynna
þátttöku til hans sem allra fyrst.
(S. 18350 eða 16538). Keppnis-
stjóri verður Agnar Jörgensson.
Spilað verður alla dagana í Dom-
us Medica og hefst spilamennska
í síðasta lagi kl. 19.30.
Þetta er í fyrsta skipti sem
þessi keppni verður reynd (spil-
uð). Það er von mín að keppnin
takist vel, þrátt fyrir yfirstand-
andi verkfall bókagerðarmanna
og BSRB. Hvernig til tekst verð-
ur að sýna sig, en stefnt er að
þátttöku minnst 30 fyrirtækja.
Landsliðið á förum
til Seattle
Landslið íslands í bridge, sem
tekur þátt í Ólympíumótinu í
sveitakeppni 1984 í Seattle,
USA, hefur verið valið að undan-
genginni landsliðskeppni sem
stóð yfir í sumar. Það er þannig
skipað: Björn Eysteinsson, Guð-
laugur R. Jóhannsson, Guð-
mundur Sv. Hermannsson, Jón
Ásbjörnsson, Símon Símonarson
og Örn Arnþórsson. Fyrirliði án
spilamennsku er Björn Theo-
dórsson, forseti Bridgesambands
íslands.
Landsliðið fer utan 25. október
og mun dvelja ytra fram í miðj-
an nóvember. 51 þjóð tekur þátt
í mótinu að þessu sinni og er
þátttökusveitunum skipt í tvo
riðla. fsland er í A-riðli, ásamt
m.a. sveitum frá Danmörku,
Frakklandi, Kanada, Brasilíu,
Swiss, Hollandi og N-Sjálandi. I
B-riðli eru m.a. sveitir frá Ítalíu,
USA, Noregi, Svíþjóð, Pakistan,
Ástralíu, Bretlandi, Þýskalandi,
Argentínu, írlandi, Kína og
Indónesíu.
Fjórar efstu úr hvorum riðli (8
sveitir) munu síðan spila inn-
byrðis 64 spila leiki og tvær
efstu komast þaðan í undanúr-
slit.
Reynt verður eftir megni að
koma úrslitum leikja til skila
eftir hvern keppnisdag mótsins.
Bridgesamband fslands vill
þakka þeim aðilum sem gerðu
þessa för mögulega. Sérstakar
þakkir eru fluttar Ríkissjóði,
Reykjavíkurborg og íslenska ál-
félaginu, auk Flugleiða o.fl.
Úrslit landsliðskeppninnar
urðu þessi:
1. Guðlaugur R. Jóhannsson —
Örn Arnþórsson 731 stig. 2. Sig-
urður Sverrisson — Valur Sig-
urðsson 728 stig. 3. Björn Ey-
steinsson — Guðmundur Sv.
Hermannsson 726 stig. 4. Ás-
mundur Pálsson — Karl Sigur-
hjartarson 722 stig. 5. Guðmund-
ur Sveinsson — Jón Baldursson
718 stig. 6. Hrólfur Hjaltason —
Jónas P. Erlingsson 681 stig. 7.
Guðmundur Pétursson — Sig-
tryggur Sigurðsson 679 stig. 8.
Jón Ásbjörnsson — Símon Sím-
onarson 627 stig.
SÓLBAÐSSTOFA
ÁSTU B. VILHJÁLMSDÓTTUR
Grettisgötu 18, sími 28705.
Opið:
Virka daga frá
kl. 7—23.30
Laugardaga 9—19
Sunnudaga 9—19
Slakiö á á sólbekknum látiö streit-
una líöa úr ykkur meö Ijúfrl tónllst
úr headphone Eftir sturtubaöiö
getiö þið valið úr fjölbreyttu úrvali
af snyrtivörum (Baölína) og haft
afnot af blásara og krullujárni. Er-
um meö extra breiöa sólbekki
meö sérstökum andlitsljósum. Og
enginn þarf aö liggja á hliöinni.
Ávallt heitt á könnunni
Verið velkomin